Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1996, Page 24
44
MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 1996
aags
onn
Biskupar eru bara prestar.
Biskupar skipta
litlu máli
„Ég er ósköp lítið fyrir biskupa.
Ég held að þeir skipti sáralitlu
máli. Þeir eru bara prestar eins og
við hinir.“
Séra Guðjón Skarphéðinsson, i Al-
þýðublaðinu.
Vesalings
fréttamennirnir
„Dýrvitlausir fréttastjórar
heimta fréttir og þær er ekkert að
marka nema í beinni útsendingu.
Og vesalings fréttamennirnir
mæna út í sortann og sýna í
beinni útsendingu hvernig Skeið-
ará rennur.“
Oddur, i Degi-Tímanum.
Ummæli
Ekki æviráðinn
stj órnmálamaður
„Ég hef aldrei litið á mig sem
æviráðinn stjórnmálamann sem
eigi allt undir einhverjum ákvörð-
unum annarra um hvar ég eigi að
sitja og standa í pólitík."
Árni Sigfússon, í DV.
Hjal stjórnarherranna
„Hjal stjómarherranna hefur
leitt til þess að fjölskyldur hafa lif-
að um efni fram í þeirri trú að úr
muni rætast. Þetta fólk situr nú í
skuldasúpu."
Gísli S. Einarsson alþingismaður, í
Alþýðublaðinu.
Enginn auðkýfingur
„Ég er enginn auðkýfingur. Ég
hef einfaldlega lagt mikið í sölurn-
ar.“
Ástþór Magnússon forsetafram-
bjóðandi, í Alþýðublaðinu.
Fljúgandi furðu-
hlutir og fræga
fólkið
Oft er ekki tekið mark á þeim
sem segjast hafa séð fljúgandi
furðuhluti en skyldi meira mark
vera tekið á fræga fólkinu sem
segist hafa séð slíka hluti? Þó
nokkrir í þeim hópi hafa sagt frá
reynslu sinni í þessum efnum.
Mohamed Ali segist sjö sinn-
um hafa séð fljúgandi furðuhluti
og þann fyrsta sá hann i Central
Park í New York þegar hann var
að hlaupa að kvöldi til.
Jimmy Carter, fyrrum Banda-
ríkjaforseti, segir frá því að 6.
janúar 1969 hafi hann ásamt tíu
öðrum mönnum séð „birtu sem
var á við tunglið sem hafi fyrst
verið blá en síðan rauð og hafi
verið á hreyflngu um himin-
hvolfið.
Blessuð veröldin
Glenn Ford, leikarinn kunni,
segist ekki hafa verið trúaður á
fljúgandi furðuhluti fyrr en
kvöld eitt árið 1974 þegar hann
var við strandhús sitt við Kyrra-
hafsströnd Kaliforníu og sá tvo
bjarta hluti, „sem voru í laginu
eins og diskar", nálgast hvor
annan og hverfa svo. í ellefu
mínútur fylgdist hann með
þessu.
William Shatner, stjama Star
Trek-kvikmyndanna og sjón-
varpsseríunnar, segir að dag
einn þegar hann var ungur hafi
hann verið á ferð á mótorhjóli i
Mojave-eyðimörkinni. Allt i einu
hafi hann séð stóran skæran
hlut fyrir ofan sig, hlut sem
hann getur ekki skýrt öðruvísi
en að hafi verið geimfar.
Um 700 km norðaustur af Langa-
nesi er 967 mb lægð á hreyfingu
norðaustur. Á vestanverðu Græn-
landshafi er kyrrstætt lægðardrag.
Veðrið í dag
Um 500 km austur af Nýfundnalandi
er vaxandi 995 mb lægð á leið norð-
austur.
I dag verður vestan- og síðar suð-
vestankaldi eða stinningskaldi.
Sums staðar við norðausturströnd-
ina verða dálítil él fram eftir degi en
skúrir og slydduél suðvestan- og
vestanlands. Bjart veður verður á
Suðaustur- og Austurlandi. Hiti
verður 0 til 6 stig.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
vestan- og síðar suðvestankaldi eða
stinningskaldi. Skýjað verður með
köflum í dag en þykknar upp í nótt.
Hiti verður 0 til 6 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 18.28
Sólarupprás á morgun: 08.03
Síðdegisflóð í Reykjavík: 16.46.
Árdegisflóð á morgun: 05.11
Vedrið kl. 6 í morgun:
Akureyri skúr á síð.kls. 2
Akurnes alskýjað 4
Bergstaöir alskýjaö 1
Bolungarvík snjókoma 0
Egilsstaóir skýjað 2
Keflavíkurflugv. skýjaö 5
Kirkjubkl. skúr 3
Raufarhöfn snjóél á síð.kls. 0
Reykjavík skýjaö 4
Stórhöfði alskýjaó 5
Helsinki þokumóöa 10
Kaupmannah. rigning 10
Ósló þokumóða 5
Stokkhólmur þokumóóa 11
Þórshöfn skúr 8
Amsterdam þokumóóa 13
Barcelona léttskýjaó 11
Chicago skýjað 5
Frankfurt þokumóóa 10
Glasgow rign.á síó.kls. 10
Hamborg rign. á síö.kls. 8
London rigning 10
Los Angeles Madrid þokumóöa 17
Malaga heiöskírt 12
Mallorca hálfskýjað 9
París alskýjað 12
Róm skýjaö 15
Valencia heiðskírt 10
New York rigning 13
Nuuk snjókoma á síð.kls. -1
Vín þokumóða 12
Washington skýjað 14
Winnipeg alskýjaö 7
Guðríður Sigurðardóttir háskólanemi:
Safnað fyrir háskólann í Sarajevo
„Bosníusöfnunin fyrir háskól-
ann í Sarajevo kom til þegar tveir
fulltrúar frá Stúdentaráði fóru á
ráðstefnu í Búdapest í sumar. Þar
voru staddir fulltrúar frá háskólan-
um í Bosníu og þeir voru með
beiðni um aðstoð til að byggja upp
háskólann í Sarajevo en reyna á að
koma af stað eðlilegu skólastarfl
eftir þær hörmungar sem gengið
hafa yfir landið," segir Guðríður
Sigurðardóttir sem er í samstarfs-
hópi háskólanema sem undirbýr
tvo söfnunardaga sem verða á
morgun og fóstudag.
Guðríður segir að háskólann
vanti nánast allt: „Það vantar öll
tæki og í raun hvað sem er, meira
Maður dagsins
að segja eru bréfaklemmur og um-
slög vel þegin. Þótt hinir eiginlegu
söfnunardagar séu eftir þá erum
við þegar komin með nokkuð og er
þar stærst framlag utanríkisráðu-
neytisins upp á 1,5 milljón krónur
og þá erum við búin að fá ljósritun-
arvél.
Undirbúningur fyrir söfnunina
hefur staðið yfir í þrjár vikur: „Við
komum ekki til með að senda pen-
inga heldur kaupum við vörur fyr-
Guðríöur Sigurðardóttir.
ir þá peninga sem safnast. Við höf-
um ekki þurft að kvarta yfir við-
tökunum hingað til og er vonandi
að almenningur taki vel við sér á
morgun en við verðum með söfnun
í öllum byggingum háskólans á
morgun og á Ingólfstorgi á fóstu-
dag. Þegar söfnuninni lýkur mun
fulltrúi frá Stúdentaráði fylgja
sendingunni eftir en Samskip
munu flytja frítt fyrir okkur sjó-
leiðina. Við þurfum siðan að koma
sendingunni til Vínar en þar eru
samtök sem við erum í samstarfi
við sem munu taka við og koma
henni áleiðist til Sarajevo."
Þegar Guöríður var spurð hvað
það væri nú helst sem nýttist há-
skólanum í Bosníu sagði hún það
vera eiginlega hvað sem er sem
notað er í skóla: „Það er til dæmis
mikilvægt fyrir okkur að fá orða-
bækur, en bókasafn háskólans
brann, þá eru tölvur mikilvægar til
að hægt sé að kenna og viljum við
beina því til fyrirtækja og einstak-
linga sem eru að skipta um tölvur
að hugsa til okkar. Fjárframlög eru
einnig vel þegin en við kaupum
vörur fyrir peningana."
Guðriður sagði að háskólinn í
Bosníu væri mjög illa farinn. „Það
voru ekki aðeins byggingar, bækur
og tæki sem brunnu heldur er
einnig skortur á kennurum þar
sem margir hafa fallið frá í strið-
inu. Það er aðeins byrjað að kenna
við skólann en það er varla hægt
að tala um að sú kennsla sé á há-
skólastigi vegna vöntunar á öllu
sem til þarf til að skóli geti talist
háskóli."
Guðríður, sem er í spænsku og
fjöimiðlafræði við Háskóla íslands,
sagði að það hefði farið dálítill tími
frá náminu i þetta: „Það er i lagi að
fóma sér fyrir málefni af þessu tagi
í smátíma en svo tekur skólinn við
á fullu eftir helgi.“ -HK
Veörid kl. 6 í morgun
Myndgátan
Lausn á gátu nr. 1632:
Myndgátan hér aö ofan lýsir orötaki
ísland - Rúmenía
Það verður mikið um að vera á
sviði íþrótta innanlands í kvöld,
en hæst ber þó landsleik íslands
og Rúmeníu á Laugardalsvell-
inum í kvöld kl. 19.00. Rúmenía
hefur á skipa einu besta landsliði
í heiminum og eru innanborðs
margir heimsfrægir leikmenn og
er liðinu stjórnað af þeim fræg-
asta, Hagi. Möguleikar íslendinga
á sigri eru ekki miklir, alla vega
ekki ef þeir leika eins og þeir
gerðu gegn Litháum um síðustu
helgi. Kl. 14.00 leika unglingalið
þjóðanna á Varmárvelli í Mos-
fellsbæ.
Iþróttir
í kvöld hefst keppni í 1. deild
kvenna í handboltanum og eru
þrfr leikir á dagskrá. KR leikur á
heimavelli gegn FH, Stjarnan
leikur gegn ÍBV og Valur leikur
Pekka Luuka á
Kringlukránni
Finnski djassgítarleikarinn
Pekka Luuka heldur tónleika á
Kringlukránni í kvöld. Pekka,
sem er einn þekktasti djassleik-
ari Finna, hefur leikið með
fjölda heimsþekktra tónlistar-
manna. Ásamt því að vera virk-
ur í tónlistarlífi Finnlands kenn-
ir hann við Pop og Jass
Conservatory i Helsinki sem er
stærsti tónlistarskóli Finnlands.
Tónleikar
Pekka Luuka er hér á landi á
vegum Tónlistarskóla FÍH og
kennir við stofnunina í viku-
tíma. Með Pekka leika Bjami
Sveinbjörnsson á kontrabassa
og Gunnlaugur Briem á tromm-
ur. Tónleikarnir hefjast kl. 22.00
og er aðgangur ókeypis.
Bridge
Landslið Taílands þótti standa
sig vel á Ólympíuleikunum árið
1964. Hér er eitt dæmi um góða
varnarspilamennsku taílenskra
spilara en fómarlömbin voru
Bandaríkjamenn. Bandaríkjamað-
urinn í suður opnaði á einu grandi
(13-15 punktar) sem passað var út.
Austur gjafari og allir á hættu:
4 65
V DG32
♦ D9
« D10742
4 ÁD4
•* Á1087
♦ K653
4 65
4 G93
•* K94
♦ ÁG1072
♦ KG
Taílendingurinn I vestur hóf
vömina á því að spila út laufsexu.
Sagnhafi fékk að eiga fyrsta slaginn
á laufgosann og einnig annan slag-
inh á laufkónginn. Hjartadrottning
fékk að eiga þriðja slaginn og
tíguldrottning þann fjórða. Sagnhafi
fór að velta því fyrir sér hvort hann
hefði frekar átt að spila þrjú grönd.
Hann svinaði tígultíu í fimmta slag
en þá tóku Taílendingarnir við sér.
Vestur drap á tígulkóng og réðst á
spaðalitinn. Vörnin tók laufás og
áður en síðasta spaðanum var spil-
að var staðan þessi:
4 --
•* Á10
4 6
* —
4 --
•* G3
4 --
4 D
N
V A
S
4 7
•* 5
4 --
4 9
4 --
•* K9
4 Á
4 —
Spaðasjöan setti sagnhafa í tvö-
falda kastþröng. Suður varð að
halda valdinu á tígli og norður varð
að halda i laufdrottninguna og því
var hjarta hent báðum megin. Vest-
ur fékk þvi afganginn af slögunum á
hjartaás og tíu. Sagnhafi fékk því
ekki nema 4 fyrstu slagina.
ísak Örn Sigurðsson