Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1996, Blaðsíða 6
6
FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1996
Neytendur
>
>
Athugasemdir
við
verðkönnun
á gleraugum
Neytendasíöan hefur fengið
hörð viðbrögð við greininni frá
síðasta fóstudegi þar sem fjallað
var um verðmun á gleraugum og
sagt frá því að Sjónarhóll í Hafn-
arfirði byði 30-60% ódýrari gler-
augu en hinir. Eigendur annarra
gleraugnaverslana, sem og neyt-
endur, hafa mótmælí þessu og
segja Sjónarhól oft á tíöum bjóða
dýrari gler og/eða umgjarðir en
aðrir.
„Sams konar par af glerjum
kostar t.d. 4.300 krónur hjá mér
en 4.500 kr. í Sjónarhóli og ég
sel tvískipt, hert plastgler með
afspeglun á rúmar 19 þúsund
krónur á meðan það kostar
22.500 krónur í Sjónarhóli."
Annar verslunareigandi
sagði Sjónarhól eingöngu vera
með breskar spangir sem væru
20 árum á eftir í tísku og þar að
auki væru þær i ódýrari kant-
inum. „Ég á gamlar spangir í
sama stil sem ég sel allt niður í
2.000 krónur stykkið," sagði
hann. Enn einn eigandi gler-
augnaverslunar sagðist sjálfur
hafa verið með spangir frá
sama framleiðanda og Sjónar-
hóll, þ.e. Young Optical í
Englandi, og að þær spangir
seldi hann á enn lægra verði en
Sjónarhóll. Flestir þeir sem til
okkar hringdu og reka gler-
augnaverslun fullyrtu að verð-
listi þeirra hefði ekkert breyst
undanfarin 3-4 ár sökum
harörar samkeppni og því væri
30-60% verðmun ekki til að
dreifa.
Leiðbeiningastöð heimilanna ráðleggur varðandi sláturgerð:
Sjónarhóll
lítið
ódýrari
Miðaldra maður hafði enn
fremur samband og sagðist
nota tvískipt gleraugu
með sýnilegum sjón-
punkti og hertu plasti,
m.ö.o. frekar dýr gler-
augu. Hann kannaði
verð á nokkrum stöðum
til þess eins aö komast að
því að Sjónarhóll væri með
svipað verð og hinir, í
mesta lagi 1-2 þúsund krónum
lægra sem þá fælist í spöngun-
um. „Þeir verða því að segja
einhvern annan brandara í
Hafnarfiröi," sagði maðurinn
sem endaði á því að versla í
sinni gömlu gleraugnabúð. Að
sögn forsvarsmanna Sjónarhóls
átti hins vegar að vera mestur
verömunur á svona dýrum
glerjum sem þá væru allt að
60% ódýrari hjá þeim. -ingo
- kryddaður blóðmör nýtur vaxandi vinsælda
Ef notaður er mikiö minni mör en uppskriftin seg-
ir til um veröur slátriö ekki aö slátri. Þaö harönar
og bragöiö veröur ekki þaö sama.
Kryddað-
ur blóðmör
„Fólk vill
e.t.v. sefia eitt-
hvað út í blóð-
mörinn sem gerir
hann hollari, drýgir
hann eða gefur annað
bragð. Þá höfum við
t.d. ráðlagt því að nota
fjallagrös, sem eru
Þær Steinunn V. Óskarsdóttir og Steinunn Ingimundardóttir ráöleggja les-
endum varöandi sláturgerö. DV-mynd S
„Það er mjög mikið hringt og
spurt hvað hægt sé að nota í staðinn
fyrir vambir í sláturgerð. Við höfum
ráðlagt að nota sáragrisju sem fæst í
apótekum, þ.e.a.s. í handleggsbreidd
án teygju. Slátrið er sett í grisjuna og
klemmt fyrir endann með poka-
klemmu. Það er líka hægt að binda
hnút en þá verður endinn svolítið
leiðinlegur," sögðu þær Steinunn V.
Óskarsdóttir og Steinunn Ingimund-
ardóttir hjá Leiðbeiningastöð heimil-
anna.
„Það er líka hægt að nota frysti-
poka eða gervivambir úr himnu af
nautshúð. Mér fannst þó leiðinlegt
að setja í gervivambirnar því þær
eru bæði mjóar og gefa lítið eftir.
Svo eru þær svo harðar að maður
verður að leggja þær í bleyti til að
mýkja þær. í báðum tilvikum er
hægt að nota pokaklemmur til að
loka keppnum. Ég mæli þó alltaf með
upprunalegu vömbunum. Þær eru
svo mjúkar og frnar og gefa svo vel
eftir við suðu. Sums staðar er líka
hægt að fá fullhreinsaða og saumaða
vambarkeppi eins og t.d. á Akur-
eyri,“ sagði Steinunn Ingimundar-
dóttir.
Viðkvæmur matur
„Það skiptir mjög miklu að allt sé
tilbúið áður en hráefninu er blandað
saman, þ.e.a.s. blóðinu, mjölinu og
mörnum. Geijun hefst mjög fljótt eft-
ir að blóðinu og mjölinu er
blandað saman og þá er
hætta á að gæðin rýrni ef það er lát-
ið bíða. Það er því líka mjög mikil-
vægt að slátrið sé soðið eða fryst
strax og búið er að ganga frá því
vegna þess að slátur er mjög við-
kvæmur matur,“ sagði Steinunn V.
Hún sagði það ekkert síðra að
sjóða slátrið áður en það er fryst.
„Það gera það mjög margir. Þá er
hægt að setja það frosið í pott og
sjóða í Vr-1 klst. Að vísu tekur slátr-
ið mun meira pláss í frystinum ef
það er soðið áður,“ sagði Steimmn V.
Hún sagði ekki nauðsynlegt að láta
slátur þiðna í ísskáp áður en það er
soðið en kjósi fólk það má það ekki
vera í ísskápnum nema í nokkrar
klukkustundir, mesta lagi einn dag.
Má minnka mörinn?
„Sumum finnst of mikill mör í
uppskriftinni og spyrja hvort það sé
í lagi að helminga hann. Það er ekki
i lagi. Ef þú ert t.d. með lítra af blóði,
u.þ.b. kíló af rúgmjöli og e.t.v. 300 g
af heilhveiti og haframjöli þá er ekk-
ert mikið að hafa u.þ.b. 1 kg af mör.
Ef þú notar mikið minni mör verður
slátrið ekki að slátri. Það harðnar og
bragðið verður ekki það sama,“
sagði Steinunn V.
Hún sagði að mörinn væri alltaf
settur saman við slátrið jafnóðum og
troðið væri í vambarkeppina, þ.e. að
hann væri ekki hrærður saman við
mjölblönduna. Ástæðan er sú að
mörinn er fljótur að drekka í sig
blóðið ef hann liggur í blöndunni og
verður þá dekkri en ella þegar búið
er að sjóða hann. Einnig jafnast mör-
inn betur niður á keppina með þvi
móti. Ef maður hins vegar hefur
lítinn mör má maður
minnka mjölið örlítið
á móti. Steinunn
Ingimundar-
dóttir sagð-
ist aldrei
hafa slátrið
þykkara en
þykkan
velling.
mjög vítamínauðug. Það þarf að
hreinsa þau, hella á þau sjóðandi
vatni, þurrka þau og saxa niður og
síðan er hægt blanda þeim í
hræruna um leið og mjölinu. Að
öðru leyti er blóðmörinn búinn til
eins og venjulegur blóðmör, þetta er
bara krydd. Það er líka hægt að nota
negul eða allrahanda í blóðmörinn
og stundum er notaður svolítill syk-
ur,“ sagði Steinunn V.
-ingo
Fundið fé! ef þú greiðir áskriftina
I r \ / með beingreiöslum o o o
Þeir sem greiða áskriftina með beingreiðslum fá 5% afslátt af áskriftarverði
miðað viö þá sem greiða með gíróseðli. Þú græðir því einn og hálfan
sjónvarpsdag í hverjum mánuði og sparar þér auk þess ferð i bankann.
Allar nánari upplýsingar um beingreióslu færóu hjá viðskiptabanka þinum eöa
áskriftardeild Stöðvar 2, ( simi 51 5 6100 , - ( grænt númer 800 6161 )
Greiddu áskriftina meö beingreiðslum
í beingreiðslu er áskriftargjaldiö millifært beint af reikningi þínum í banka/sparisjóöi.
sm-2
FJOLVARP
ysvn
Hægt að nota grisjur
í stað vamba