Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1996, Blaðsíða 24
36
FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1996
„>
<tp^önn
Menningar-
ráðstafanir
„Annars gerði ég ráðstafir til
að verða ekki tekinn alvarlega í
menningarmafíunni og gekk í
Sjáifstæðisflokkinn. Ég hef ekki
verið tilnefhdur í eina einustu
nefnd síðan.“
Daði Guðbjörnsson myndlist-
armaður, í Degi-Tímanum.
Óhæfir þingmenn
„Menn sem afskrifa lán um
leið og þeir veita þau eru óhæfir
til að sitja á Alþingi. Slíkir menn
væru kallaðir bófar í siðuðum
löndum.“
Hrafn Jökulsson um stjórnar-
menn í Byggðastofnun, í Al-
þýðublaðinu.
Ummæli
Betri einstaklingar
„Það sem við höfum umfram
islenska liðið eru betri einstakl-
ingar í hverri einustu stöðu -
svo einfalt er það.“
Anghel loradanescu, þjálfari
Rúmena, í Morgunblaðinu.
Mörg himdruð ára venja
„Það hleypur úr Grímsvötnum
og hefur gert í allmörg hundruð
ár.“
Páll Einarsson jarðeðlisfræð-
ingur, í DV.
Hann kann sitt
„Hann er doktor í hagfræði og
stjómmálafræði, prófessor,
deildarforseti, fyrrverandi ráð-
herra og flokksformaður. Hann
kann sitt.“
Guðmundur rafn Geirdal, um
kosti forseta íslands, í Dagur-
Timinn.
Þrír fimmtu hlutar Byltingar sem
skemmtir á Kaffi Reykjavík í kvöld.
Kaffi Reykjavík:
Bylting
Norðlensku strákamir í hljóm-
sveitinni Byltingu hafa verið dug-
legir við spilamennskuna í sumar
og haust. Nú er komið að því að
þeir taki sér hlé þangað til í vor
en áhugasamir hafa enn þá mögu-
leika á því að beija þá augum á
Kaffí Reykjavík um helgina en
þeir munu skemmta bæði í kvöld
og annað kvöld. Bylting er þannig
skipuð: Vaiur Halldórsson söngv-
ari, Þorvaldur Eyfjörö gítarleik-
ari, Bjami Valdimarsson bassa-
leikari, Sigfús Óttarsson trommu-
leikari og Tómas Sævarsson
hljómborðsleikari.
Skemmtaiiir
Kirsuber á Gauknum
Hljómsveitin Kirsuber kemur
saman um helgina eftir nokkurt
hlé og leikur í kvöld og annað
kvöld á Gauki á Stöng. Þeir mæta
tvíefldir til leiks og hefja það sem
þeir kalla The Kirsuber Winter
Tour 96/97. Kirsuber stunda
fjörugan flutning og líflega fram-
komu og lofa þeir berjaliðar
þrumustuði um helgina.
Þurrt að mestu
Um 300 km austur af Langanesi
er 983 mb lægð sem hreyfíst norð-
austur en vaxandi 975 mb lægð um
400 km suðsuðvestur af Vestmanna-
eyjum fer norðaustur milli íslands
og Færeyja í dag.
Veðrið í dag
Vaxandi norðan- og norðaustan-
átt, allhvöss eða hvöss og snjókoma
eða slydda um allt norðanvert land-
ið er líður á morguninn, rigning á
Austfjörðum en þurrt að mestu
sunnanlands og vestan. Lægir aftur
er liður á daginn, fyrst vestan til.
Kólnandi veður.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
norðankaldi fram eftir degi en st-
inningskaldi eða allhvasst síðdegis.
Bjart veður. Lægir aftur í kvöld og
nótt. Hiti 1 til 5 stig í dag en vægt
frost í nótt.
Sólarlag í Reykjavík: 18.21
Sólarupprás á morgun: 8.09
Slðdegisflóð í Reykjavlk: 17.50.
Árdegisflóð á morgun: 6.10
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri hálfskýjað 2
Akurnes skýjaö 2
Bergstaðir hálfskýjað -3
Bolungarvík Egilsstaðir léttskýjað -5
Keflavíkurflugv. skýjað 2
Kirkjubkl. léttskýjað 1
Raufarhöfn snjóél -0
Reykjavík léttskýkjað 1
Stórhöfði heiðskírt 1
Helsinki léttskýjað 1
Kaupmannah. þokuruðningur 3
Ósló skýjað 3
Stokkhólmur skýjaó 0
Þórshöfn Amsterdam þokuruðningur 8
Barcelona skýjað 14
Chicago heiðskírt 1
Frankfurt þokumóöa 8
Glasgow súld á síð.kls. 10
Hamborg þoka í grennd 4
London skýjað 6
Los Angeles heiðskírt 17
Madrid léttskýjað 5
Malaga Mallorca lágþokublettir 11
París þokumóða 12
Róm þokumóða 15
Valencia þokumóóa 14
New York heiðskírt 9
Nuuk skýjað -2
Vín skýjað 10
Washington heiðskírt 9
Winnipeg heiðskírt 8
Kristinn R. Olafsson, sögumaður á spænsku kvöldi:
Er orðinn hálfgerður netfíkill
„Það var leitað til mín i sumar
um að gera texta með sýningu sem
átti að fjalla um Spán og eftir smá-
vangaveltur lét ég verða af þessu
og skrifaði textann og var síðan
fluttur inn með textann fokheldan
í farangrinum," segir Kristinn R.
Ólafsson, höfundur og sögumaður
sýningarinnar Spænskt kvöld sem
Kaffíleikhúsið sýnir og hefur vak-
ið hrifningu og fengið góða dóma.
Þykir Kristinn, sem er þekktastur
hér á landi fyrir að vera fréttarit-
ari útvarpsins í Madrid, fara á
kostum sem sögumaður.
Kristinn sagði að starf hans sem
fréttaritari í Madrid hefði verið
Maður dagsins
aðalstarf hans í sex ár: „Það er
fastapunkturinn í lífinu. Ég hef
verið fréttaritari í fimmtán ár og
kenndi lengi með því en hef und-
ánfarin ár unnið við þýðingar með
fréttaritarastarfinu og er ein bók
sem ég hef þýdd einmitt að koma
út á næstunni. Nefnist hún Ref-
skák eða Bríkin frá Flandri, ákaf-
lega góð bók, en því miður var
gerð léleg kvikmynd eftir henni.“
Kristinn R. Ólafsson.
Þetta er ekki eina bókin sem
kemur frá Kristni fyrir jólin,
frumsamin skáldskapur er einnig
á leiðinni: „Það er lítið kver, Fjöl-
móðs saga foðurbetrungs. Þetta er
ævintýrasaga, sem gerist á tólftu
öld á íslandi, draumheimum og á
eyjum í Jórsalahafi. Bókin er í erf-
iðum stíl, Íslendingasagnastíl og
er með orðaskýringum á hverri
síðu, eiginlega átti undirtitillinn
að vera Ævintýralegur tólftu aldar
tryllir."
Kristinn sagði að hann áætlaði
að vera á íslandi til nóvemberloka:
„Sýningin hefur fengið það góðar
viðtökur að það er lagt hart að
mér að vera áfram, ég verð sjálf-
sagt að strjúka af landi brott.“
Þegar Kristinn var spurður um
helstu áhugamál sín sagðist hann
vera svo heppinn að áhuginn færi
yfirleitt saman við það sem hann
væri að starfa við: „Þetta verður
ein samfella, ég ræð mér sjálfur og
geri það sem mig langar til, en það
veröur vissulega að hafa aga og
reglu. Þá hefur starf mitt breyst
mikið með komu Internetsins og
má segja að ég sé orðinn hálfgerð-
ur netfíkill. Þetta er allt annað líf,
nú get ég lesið þau landsmálablöð-
in sem komin eru á netið snemma
morguns og þarf ekki að bíða eftir
komu þeirra í blaðasölutuma.
Kristinn býr í Madrid og sagði
ekki marga íslendinga búa þar:
„Ætli við séum ekki fjögur eða
fimm sem erum með fastar rætur
en það er alltaf slangur af vistum,
eins og ég kalla au-pair stúlkurn-
ar, og má segja að Madrid sé vin-
sæll vistnastaður. Eiginkona
Kristins er Maria Soldad Alvarez
og eiga þau eina dóttur sem heitir
Alda Sólrún. -HK
Saknæmur Myndgátan hér aö ofan lýsir athöfn
DV
KA er það liö íslenskt sem byrjar
í Evrópukeppninni í kvöld.
KA-Amicitia
Að venju taka íslensk hand-
knattleikslið þátt í Evrópu-
keppni í vetur. Valur leikur í
meistarakeppninni og KA í Evr-
ópukeppni bikarmeistara og
Stjarnan i Evrópukeppni félags-
liöa og það er KA sem hefur leik-
inn í kvöld á Akureyri og leikur
þar gegn Amicitia og verður KA
að teljast sigurstranglegra í þess-
ari viðureign. Á morgun fer síð-
an fram viðureign Stjörnunnar
og Hirschmann.
Einn leikur er í meistaradeild
körfuboltans í kvöld. Fer hann
fram á ísafirði. Heimamenn í
KFÍ taka á móti Tindastóli og
verður það örugglega spennandi
leikur en bæði liðin eru búin að
sigra.
íþróttir
Skákmenn verða við skák-
borðið um helgina því í kvöld
hefst deildakeppni Skáksam-
bands íslands, fyrri hluti, og
verður teflt fram á sunnudags-
kvöld. Teflt er i Faxafeni 12,
Reykjavík, en einn riðill í 4.
deild verður tefldur á Akureyri.
Keppnin hefst kl. 20.00. Seinni
hlutinn fer síðan fram í vor.
Bridge
Frammistaða Helga Sigurðsson-
ar og Sigurðar B. Þorsteinssonar á
spilakvöldum hjá Bridgefélagi
Reykjavíkur hefur vakið verðskuld-
aða athygli. Þeir hafa þrisvar sinn-
um tekið þátt í tvímenningskeppni
félagsins og lent í fyrsta sæti tvisvar
sinnum og einu sinni í öðru sæti.
Kerfi þeirra félaga er hannað af
Helga Sigurðssyni og er með
„pólsku ívafi“. Laufopnun kerfisins
lýsir annaðhvort 14-16 punkta jafn-
skiptri hendi eða 17 eða fleiri punkt-
um með óræðri skiptingu. Kerfið er
búið ýmsum grimmum vopnum, til
dæmis lýsir opnunin 2 lauf 5-11
punktum og a.m.k. 4-4 í hálitum. Á
spilakvöldi BR síðastliðið miðviku-
dagskvöld græddu þeir félagar vel á
þeirri opnun í þessu spili. Sagnir
gengu þannig, vestur gjafari og eng-
inn á hættu:
* KD32
•» 6
* K1086
* K642
é 108765
•f K985
+ 97
* 98
* G4
* G2
+ ÁDG2
* ÁG753
Vestur Norður Austur Suður
Helgi Guðl. Sig.B.Þ. Örn
2 * pass 4 •* p/h
Opnun Helga á vesturhöndina er
helst til veik til að samrýmast kröf-
unum en Helgi stóðst ekki mátið því
hann var utan hættu. Guðlaugur R.
Jóhannsson átti ekki sögn yfir
þeirri opnun og Sigurður sagði fjög-
ur hjörtu til vinnings. Örn Arnþórs-
son var ekki öfundsverður yfir því
að segja á suðurhöndina og passaði
eftir nokkra umhugsun. Eftir um-
hugsun Amars átti Guðlaugur varla
fyrir sögn á norðurhöndina. Þrátt
fyrir að 4 hjörtu Sigurðar væri sögð
til vinnings átti þessi samningur
enga vinningsmöguleika og Sigurð-
ur gaf hina upplögðu 5 slagi. 100 í
NS var hins vegar hreinn toppur til
AV því flestöll NS pörin spiluðu 5
lauf eða tígla og meira fékkst fyrir
að spila bút i öðrum hvorum lit-
anna (150). ísak Öm Sigurðsson