Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1996, Page 28
KÍN
Alla laugardaga
Vertu viðbúin[n)
vinningif
(25)(26)(28)
1
E
FRÉTTASKOTIÐ
SIMINN sem aldrei sefur
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1996
Helgarblaöið:
Stefna á
Broadway
Helgarviðtalið er að þessu sinni
við Sellu Palsson og Egil Ólafsson
sem skrifað hafa söngleik fyrir leik-
hús i New York. Stefnt er að því að
setja söngleikinn upp á Broadway
eða Off Broadway. Einnig verður
rætt við skáld sem sest hafa að á
Akranesi og Svein Þormóðsson ljós-
myndara sem bjó í bragga. Að auki
verður spjallað við leikkonu sem
leikur mörg hlutverk þrátt fyrir að
vera komin sjö mánuði á leið og
sagt frá stuðningsmanni knatt-
spyrnuliðs Grindvíkinga sem fékk
áritaða keppnistreyju frá liðinu.
-em
Davíö Oddsson:
Fjallaði um
Evrópu- og
jafnréttismál
Davíð Oddsson, formaður Sjáif-
stæðisflokksins og forsætisráð-
herra, kom víða við í setningarræöu
sinni á 32. landsfundi Sjálfstæðis-
-^flokksins í gær. Um 1.700 fulltrúar
sitja landsfundinn sem var settur í
Laugardalshöll síðdegis í gær.
Davíð fjallaði um Evrópumál og
sagði að Islendingar þyrftu að vera
opnir fyrir alþjóðlegu samstarfi og
viðskiptum án landamæra án þess
þó að tapa áttum. Davíð sagði m.a.
að íslendingar hefðu tryggt stöðu
sína í Evrópu og þau áhrif sem þeir
þyrftu.
Davíð vék einnig að jafnréttismál-
ur.i og sagði að Sjálfstæðisflokkur-
inn hlyti að taka frumkvæðið í þeim
málaflokki en yfirskrift landsfund-
arins er Einstaklingsfrelsi - jafn-
rétti í reynd. Þá fjallaði Davíð um
stjómarsamstarfið við Framsóknar-
flokk. Sagði hann samstarfið hafa
- ^Warið vel af stað og ekki annað að
'• finna en það væri byggt á heilind-
um. -RR
Bárðarbunga ekki öll þar sem hún er séð:
Risavaxin
dragdrottning
og til alls vís
- segir Stefán Benediktsson, þjóðgarðsvörður í Skaftafelli
„Bárðarbunga er mjög vara-
söm. Það má líkja henni við risa-
vaxna drag-drottningu og ef hún
fer raunverulega af stað þá vald-
ar hún alveg ótrúlega stórt svæði
og Skeiðarárhlaup er bara barna-
leikur í samanburði við þær
hamfarir sem hún gæti sett af
stað,“ segir Stefán Benediktsson,
þjóðgarðsvörður í Skaftafelli, i
samtali við DV.
Stefán segir að meðal slíkra
hugsanlegra hamfara sé til dæm-
is hlaup í Jökulsá á Fjöllum, sem
gæti valdið miklu meiri spjöllum
og skaða en Skeiðarárhlaup enda
mun óútreiknanlegra, vegna þess
hve vatnið fer langan veg eftir
þröngri leið. Þá gæti Tungnaár-
svæðið orðið illa fyrir barðinu á
hamförum í Bárðarbungu.
Stefán segir ýmislegt vera sér-
kennilegt við gossvæðið í Vatna-
jökli. Gossprungan liggi til norð-
urs og þar með þvert á sprungur
sem þarna eru og á stefnu
Reykjaneshryggsins, þannig að
þá ályktun megi draga að gosið
komi í raun úr kvikunni undir
Bárðarbungu og því hugsanlegt
að gosið sé aðeins undanfari
miklu verri hamfara.
„Menn telja öruggt að vatn sé
að safnast fyrir í gossprungunni
en ég held að þeir haft ekki alveg
áttað sig á samhenginu milli þess
vatns sem er í gossprungunni og
vatnsins í Grímsvötnum. Menn
vissu að vatn rann inn í Grím-
svötn, en núna rennur greinilega
miklu hægar þangað en gerði og
það verður ekki bara skýrt með
minnkandi gosvirkni, það hefur
eitthvað annað gerst, en hvað?“
spyr Stefán Benediktsson þjóð-
garðsvörður.
-SÁ
Sex japönsk túnfiskveiðiskip voru stödd í Reykjavíkurhöfn í gærdag. Skipin hafa verið að veiða túnfisk við 200 mílna
landhelgismörk íslendinga og koma til Reykjavíkur til að ná í olíu, matvæli og beitu. Skipin halda síðan heim til Jap-
ans með aflann. DV-mynd S
Maður var fluttur með reykeitrun á
slysadeild. DV.-mynd S
Sofandi í
hættu
Slökkviliðið í Reykjavík fékk til-
kynningu um reyk frá forstofuher-
bergi í fjölbýlishúsi við Rauðalæk í
gærkvöldi. Brjóta þurfti upp hurð til
að komast inn í íbúðina og kom þá í
ljós að maður var sofandi inni og
reykur frá potti á eldavélarhellu. Að
sögn varðstjóra slökkviliðsins var
maðurinn í hættu þar sem herberg-
ið var lítið og hann hafði augljóslega
andað að sér töluverðum reyk.
Hann var fluttm’ á slysadeild. -sv
Alelda bíll
Grunur leikur á um að bakkus
hafi verið með í fór í bíl sem fór út
af Suðurlandsvegi við Rauðavatn
rétt fyrir klukkan þrjú í nótt. Fimm
voru fluttir á slysadeild en fjórir
fengu að fara heim að skoðun lok-
inni. Eldur kviknaði í bílnum og
var hann alelda þegar slökkviliðið
kom á vettvang. Bíllinn er talinn
ónýtur. -sv
' BÁRPUR GAMLI^
ER GREINILEGA KOM-
INN í SITT FINASTA
V PÚSS! y
Veðrið á morgun:
Bjartviðri
víða um
land
Á morgun lítur út fyrir frem-
ur hæga nörðaustanátt og bjart-
viðri víða um land en úti við
norðausturströndina verða él.
Hiti verður nálægt frostmarki.
Veöriö í dag er á bls. 36
^533 -lOOOÍ
Kvöld- og
helgarþjónusta
/ að hafa allt í röð og
1 reglu i btlskúmum
brother
Verð frá kr. 6.995
Nýbýlavegi 28 Sími 554 4443