Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1996, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1996, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1996 Fréttir ^ Rjúpnaskytta kærði meinta skotárás á sig til lögreglu: Eg fann alft í einu þyt vid höfuðið - og öskraði hvort hann væri brjálaður, segir Guðjón Björnsson „Ég var að klöngrast upp í brekkuna og klifra þama í haftinu þegar ég fann allt í einu þyt við höfuð mér. Ég sneri mér við og leit um öxl og sá þá mann í jeppa á veginum um 150 metra frá mér. Ég hugsaði með mér í skelfingu hvort það gæti verið að hann væri að skjóta á mig,“ segir Guðjón Bjömsson rjúpnaskytta sem hefur óskað eftir því við lögreglu að hún kanni atferli manns nokkurs sem Guðjón segir að hafi skotið í átt að sér. Atburðurinn varð fyrir skömmu í svokölluðum Almenn- ingi í landi Hrauns í Fljótum um, 24 kílómetra frá Siglufirði. Guðjón og félagi hans höfðu farið til rjúpnaveiða og vom á leið upp í Úíðina þegar atburður sá sem Guðjón lýsir gerðist. „Hann ók í burtu þegar hann sá að ég veitti honum eftirtekt. Síðan sneri hann við og þrusaði tveimur eða þremur haglaskotum. Þar með vissi ég að hann var að fæla okkur úr fjallinu. Ég var alveg skít- hræddur og öskraði á hann hvort hann væri orðinn brjálaður. Síðan skaut ég með minni byssu upp í Guðjón Björnsson rjúpnaskytta hefur tilkynnt lögreglu um atburð sem átti sér stað þegar hann var að rjúpnaveiðum í svokölluðum Almenningi í Fljótum fyrir skömmu. Hann fann þyt við höfuð sér og maður, sem var í 150 metra fjariægð frá honum, skaut þremur haglaskotum, að því er honum virtist til að reka hann úr fjallinu. DV-mynd ÞÖK hríðina þar sem honum var mjög brugðið. „Ég skalf og nötraði eftir þessa lífsreynslu og við fórum heim. Ég lagði mig og vaknaði með martröð, kófsveittur. Svo fór ég á lögreglu- stöðina og gaf skýrslu um atburð- inn, segir hann. Byssumaðurinn er ekki landeig- andi á umræddu svæði. Hann hef- ur þó veitt talsvert þar, samkvæmt heimildum DV, og þá með leyfi landeigenda. Guðjón segist vilja fá botn í málið og telrn- sig ekki eiga neitt sökótt við manninn sem skaut. „Spumingin er hvort hann skaut úr riíili fyrst eða hvort mér misheyrðist. Það liggur fyrir að hann skaut haglaskotunum og ég hirti skothylkin af veginum. Ég vil ekkert segja um sekt hans en krafa mín er sú að málið verði rannsakað," segir hann. „Ég ætla ekki að halda því fram að ég hafi haft leyfi til að veiða þama. Það er heldur ekki málið og það sem ég vil er að rannsakað verði hvað manninum gekk til. Það er óþolandi að eiga yfir höfði sér slíka atburði. Ég hef enn ekki fengið botn í það hvað manninum gekk til,“ segir Guðjón. Umrætt mál er til rannsóknar hjá lögreglunni á Siglufirði en rannsókninni mun ekki vera lok- ið. Samkvæmt upplýsingum frá sýslumannsembættinu á Siglufirði hafa yfirheyrslur farið ffam og neitar sá kærði öllum sakargift- um. Hann hefur reyndar lagt ffam gagnkæra á hendur Guðjóni. -rt bergið og þá var eins og hann rankaði við sér og að því búnu fór hann í burtu," seg- ir hann. Guðjón segist hafa lent í þeirri lífsreynslu sem bam að það var skotið að honum og félaga hans og þeir kúrðu á bak við stein meðan maður með riffil skaut beggja vegna steins- ins. ,Ég hef verið rnn 9 ára þeg- ar sá atburður varð. Sá sem átti í hlut hélt okkur bak við steininn í 5 mín- útur á meðan hann skaut báðum megin við hann. Þessi atburður hefur alltaf staðið mér ljóslifandi fyrir hugskots- sjónum og það sem ég þarf síst af öllu er að lenda í sambærilegri lífsreynslu," segir Guðjón. Hann segist hafa farið heim fljótlega eftir skot- Friörik Sophusson um lífeyrismálin: Eðlilegt að launþeg- ar sæki aukinn rétt - kostnaðurinn mælist eins hvort sem hann er laun eða iðgjald Stuttar fréttir Aðgerð gekk vel Kínverskur taugaskurðlæknir skar Hrafnhildi Thoroddsen öðra sinni upp í gær en hún lam- aðist í bílslysi fyrir sjö árum. Aðgerðin gekk vel en allt að ár kann að líða áður en árangurinn kemur í Ijós. Einkafjármögnun Samgönguráðherra hefur kynnt nýja leið við opinberar framkvæmdir sem færir verk- efni í auknum mæli úr höndum ríkis yfir til einkaaðila. Nýtt kortatímabil Nýtt kortatímabil hefst í dag, nokkram dögum fyrr en venju- lega. Búist er við að jólainnkaup- in fari nú af stað fyrir alvöra. Verðhjöðnun Undanfama þrjá mánuði hef- ur neysluvísitalan lækkað um 0,3% sem jafngildir 1,3% verð- hjöðnun á ári. Vísitalan er nú 177,8 stig. Árekstrarvarar Flugleiðir hafa ákveðið að setja árekstrarvara í allar sínar þotur, þriðja félagið í Evrópu sem tekur slíka ákvörðun. „Ef við lítum á kröfur ASÍ varðandi auknar lífeyrisiðgjalda- greiðslur verður að rifja það upp að 10 prósent greiðslan á al-‘ menna markaðnum era lág- marksréttindi samkvæmt sarnn- ingi á milli ASÍ og VSÍ. Hins veg- ar hafa einstök félög innan ASÍ samið um betri réttindi. Þess vegna þykir mér ekkert óeðlilegt að í komandi kjarasamningum sæki launþegahreyfingin um betri lífeyrisrétt. Þá verðiu- líka að hafa það í huga að kostnaður launagreiðandans er mældur al- veg eins hvort sem hann fer beint í launaumslagið eða sem lífeyris- iðgjald," sagði Friðrik Sophusson fjármálaráöherra í samtali við DV um þá kröfu ASÍ að fá 5,5% hækkun lífeyrisiðgjalda eins og opinberir starfsmenn. Fjármálaráðherra sagði að það sém skipti meginmáli varðandi breytingar á lífeyrisréttindum op- inberra starfsmanna væri að kostnaður launagreiðandans, sem er ríkið, væri sá sami fyrir og eftir breytinguna á lífeyrisréttindum opinberra starfsmanna. Sá kostn- aður leiddi til jafnverðmætra rétt- inda og tryggingastærðffæðingar hefðu reiknað. Það hefðu enda ver- ið forsenda breytinganna að rétt- indin yrðu jafhgóð í þessum tveim- ur kerfum. „Það eina sem hefur gerst er að nú greiðir ríkið samtímis inn í sjóðinn en áður söfhuðust skuld- bindingar upp og ríkið þurfti að greiða þær síðar. Þess vegna hefur engin sú breyting orðið á ffamlagi ríkisins til lífeyrissjóðs starfs- manna ríkisins sem skapar öðrum aukinn rétt. Hvorki á hendur rík- inu né öðram aðilum," sagði Friö- rik. Hann sagði að öllum hefði verið ljóst um langt skeið að lífeyrisrétt- indi opinberra starfsmanna væru mun betri en á almenna vinnu- markaðnum. „Það eina sem nú gerist er að það er staðfest með þessum út- reikningum vegna þess að nú þarf ríkið að greiða jafnóðum í sjóðinn en safnaði áður upp skuldbinding- um,“ sagði Friðrik Sophusson flár- málaráðherra. -S.dór Stuttar fréttir Indriði í nefrid Forseti íslands hefur skipað Indriöa G. Þorsteinsson rithöf- und í orðunefnd í stað Jónasar Kristjánssonar. Ásgeir Péturs- son verður formaður nefndar- innar. Deilt um líkjör Félag stórkaupmanna hefur fyrir hönd víninnflytjanda skor- að á forráðamenn ÁTVR að end- m-skoða neitim á viðtöku á 100 kössum af líkjörsflöskum með lítilli gjöf utan á. Að öðrum kosti verði leitað til samkeppnisyfir- valda. Vitinn á netinu Félagsmiðstöðin Vitinn í Hafnarfirði hefur opnað útibú á spjallrásum Intemetsins þar sem unglingar geta ræðst við eða létt á hjarta sínu við starfsmenn. Þetta kom fram í RÚV. Hlutabréf ijúka upp Frá því hlutabréf Hraðfrysti- stöðvar Þórshafnar fóru á Opna tilboðsmarkaðinn sl. fóstudag hafa þau hækkað i veröi um 128 prósent. Gengið byrjaði í 1,86 en var í gær 4,25. -bjb y rödd Þú getur svaraö þessari spurningu með því að hringja í síma 9041600. 39,90 kr. mínútan Ji fl; Nel 2 FOLKSINS 904 1600 Á að leggja niður beingreiðslur ríkisins til bænda? Fox tryggði Boston sigurinn Sjö leikir voru í NBA í nótt og urðu úrslitin þessi: Boston-Toronto...........115-113 Fox 24, Wesley 20 - Stoudamire 31. Charlotte-Denver..........101-97 Mason 25, Rice 16. New Jersey-Seattle......110-101 Gill 24. Washington-Cleveland . . . 106-95 Howard 25, Webber 23 - Brandon 28, Mills 21. Philadelphia-Miami........79-84 - Hardaway 21, Mouming 20. Chicago-Minnesota.......103-86 Jordan 27, Pippen 26. LA Lakers-Indiana.........79-76 Shaq 33 - Miller 14. Úrslit í leik Boston og Toronto réðust ekki fyrr en í þriðju ffarn- lengingu og þar var Rick Fox sem tryggði Boston sigurinn með þriggja stiga körfu. Minnesota leiddi með einu stigi i hálfleik gegn Chicago en í byrjun seinni hálfleiks settu meistaramir á fulla ferð og sigu fram úr. Shaquille O’Neal náði sínu 4.000. frákasti í NBA með því að hirða tólf slík gegn Indiana. Shaq átti finan leik, skoraði 33 stig, tók 10 fráköst og varði 5 skot. -GH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.