Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1996, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1996, Blaðsíða 10
FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1996 JL#"V" 10 #enni'ng Merkisdagar Ein þeirra fræðibóka sem á mánudaginn voru tilnefndar til íslensku bókmenntaverðlaun- anna er Merkisdagar á mannsævinni eftir Áma Bjömsson þjóöháttafræðing. Þetta er mikið rit, tæpar 500 síöur með heimildaskrá og at- riðisorðaskrá. í bókinni lýsir Ámi persónu- legum hátíðisdögum í lífi fólks, allt frá getnaði til útfarar. Einkum er dvalist við mannfagnað og aðra mannfundi af þessum fjöl- breytilegu tilefn- um, skímar- veislur, afmæli, fermingar, fest- _ ar og trúlofun, brúðkaup og loks erfisdrykkjur. Ámi gengur út frá tilveru okk- ar hér á landi, en ber þó jafnan saman við erlendar aðstæður „hvar sem kostur er og einhver vitglóra sýnist í“ eins og hann segir í Inngangi. Hann freistar þess einnig að rekja þróun ým- issa siða frá öndveröu og fram til samtímans. Mál og menning gefur út. Barni dýft í skírnarsá. Mynd fró 15. öld. Úr bók Árna. í kvikum sjónum Guös Friðrik Ágústsson hefur gef- ið út ljóðabókina í kvikum sjón- um Guðs, og er það önnur ljóða- bók hans. Eins og nafnið bend- ir til eru yrkisefni háleit í mörgum ljóðunum, en jarð- bundin ljóð era líka í bókinni og ekki laust við kímni á stöku stað: Ég geng inní herbergi mitt loka dyranum síðla kvölds krýp við rúmstokkinn legg saman lófana eilítið ávala og biö til fóðurins sem sér i leynum fyrir sjúkum og þjáðum og eilítið fyrir sjálfum mér. Höfundur gefur sjálfur út. Gjafabréf Loftkastalans Leikhúsið Loftkastalinn hef- ur bryddað upp á þeirri nýjung aö selja gjafabréf i leikhúsiö sem tilbúinn jólapakka í bóka- búðum, blómabúð- um og hljómplötu- verslunum á höfuð- borgarsvæðinu. Nú standa yfir í húsinu sýningam- ar Á sama tíma að ári, Sirkus Skara Skrípó, Deleríum Búbón- is og Áfram Latibær, en á næst- unni verður framflutt nýtt leik- verk eftir Þorvald Þorsteinsson, Bein útsending, auk verka eftir Harold Pinter og Noel Coward. Umsjón Silja Aðalsteinsdóttir Austur-Indíafélagið: Vandað og dýrt Ein bezta ástæða heimsóknar til London er að fá sér snæðing á einu af indversku veitingahúsunum, sem þar skipta hundraðum. Nokkru ódýrara er þó að skreppa á Hverfisgötuna og fá sér að borða á Austur-Indíafélaginu. Þar er vönduð matreiðsla, fremur skólabókarleg og nán- ast kórrétt. En hún er ekki tilþrifamikil og einkum er hún dýr. Hún mun þvi ekki leiða sparsemdarfólk inn í leyndardóma indverskrar matreiðslu. Hin fjölbreytta indverska matreiðsluhefð er með hin- um merkari í heiminum, skemmtilegri en til dæmis kín- versk. Frá fljótasvæðunum í norðri eru mongólsk áhrif með lambakjöti, jógúrt og hveiti. Frá Dekan-skaga í suðri koma sterkt kryddaðir grænmetisréttir, kókos og hrísgijón. Frá fenjunum í austri eru svo til dæmis kota- sæla og baunasúpur. Við indverska matreiðslu, eins og raunar aðra mat- reiðslu en fransk- vestræna og japanska, er sá galli, að hráefnið sjálft fær ekki að njóta sin, heldur er það kryddið, sem látið er gefa tóninn. Þetta getur oröið leiði- gjarnt til lengdar. Og tilgangslítið er að nota dýrt hrá- efni á borð við humar og nautalundir. Indversku innréttingamar eru að mestu óbreyttar frá tíð Taj Mahal, sem hér var áður, ógnarlangar breiður af slæðum í lofti og indversk listaverk á veggjum. Heildar- svipur er virðulegur, parkett gljáandi og tónlist ind- versk. Þjónusta er afar indversk, sem sagt kurteis. Þrátt fyrir hátt verðlag er ekki mikið lagt í lín. Borðplötur eru glerlagðar og munnþurrkur úr efnisrýrum pappír. Og básar era of þröngir á svona dýram stað. Við fáum okkur Poppadum, grillaðar og stökkar brauðflögur, meðan við skoðum matseðilinn. Þær eru bornar fram með koríander-sultu og tveimur öðrum kryddsultum. Með matnum borðum við Nan, mjúkar flatkökur, steiktar í leirofni. Hrísgrjónin pöntum við annaðhvort Pulao, kryddsoðin, eða Biryani, með kanil, kardimommum, negul, anís og grænmeti. Samósumar voru einna skemmtilegustu forréttirnir, léttkryddaðar kjöt- eða grænmetisblöndur, vafðar í heil- hveitiþríhyminga og djúpsteiktar. Pagórumar voru líka góðar, smásaxaður laukur, djúptsteiktur í kjúklinga- baunadeigi, með koríander-sultu. Tandoori-réttirnir era einkennisréttur margra ind- verskra veitingastaða, meðal annars þessa. Það er Veitingahús Jónas Kristjánsson jógúrt- og kryddhúðað kjöt, sem steikt er í Tandoor- leirofni. Skemmtilegi rétturinn af þessu tagi og oftast meyr var hálfi kjúklingurinn, sem borinn er fram snarkandi á pönnu. Indversk framreiðsla veitinga hentar hópum, því að réttirnir era ekki bornir fram á diskum, heldur fötum, sem síðan er haldið volgum á kertakössum á miðju borði. Allir geta smakkað á öllu og haldið uppi gáfuleg- um samræðum um réttina og samanburð á þeim. Einstaklega gott indverskt kaffi er á boðstólum, höf- ugt og ilmríkt, en kostar því miður 250 krónur bollinn. Búast má við, að þriggja rétta máltíð losi 3.000 krónur á mann. Eftirréttir era ekki merkilegir, enda nota Ind- verjar þá lítið. Eftir mat fá gestir heita andlitsdúka og frískandi sælgætis-smákúlur með kryddfræjum. Austur-lndíafélagiö: Viröulegur heildarsvipur. Unglingar eru líka fólk Persónurnar í nýrri skáldsögu Þórðar Helgasonar, Geta englar talað dönsku? standa á tímamót- um. Þær era að kveðja bernskuna en vita ekki hvað tekur við. Erna og vinir hennar í 10. bekk C hafa uppgötvað að það er miklu auð- veldara að vera ellefu ára en fimmtán. Aðstæður krakkanna eru ólíkar en þeir eiga það allir sameiginlegt að vera góðir í sér þó sumum finnist þeir vera að missa tökin á tilverunni. Vitundarmiðja verksins er hjá Emu. Mamma hennar er þung- lynd og pabbinn flúinn á braut. Heimilishaldið lendir því á herð- um hennar og hún dregst aftur úr í náminu. Atburðarásin tekur óvænta stefnu þegar krakkamir fá nýjan Bókmenntir Margrét Tryggvadóttir kennara en meginátök sögunnar eru mun dýpri en svo að þau felist í söguþræðinum einum saman. Þau felast í togstreitu milli drauma og væntinga og blákalds raun- veruleika sem virðist hafa yfirhöndina. Efnistök höfundar eru til fyrirmyndar og hann skrif- ar sögu sína af þekkingu og inn- sæi í líf unglinga á þessum síðustu og verstu tímum. Persónusköpun er svo sannfærandi að flestir ættu að kannast við einhvern í verk- inu, jafnvel sjálfa sig. Myndin, sem dregin er upp af heimilislífi einstakra persóna, er einnig mjög sannfærandi og þó að flestir eigi við einhver vandamál að stríða verða þau aldrei yfirþyrmandi. Sagan er líka fyndin, því þó að unglingsárin séu tími öryggisleys- is og óvissu eru þau sem betur fer einnig bráðskemmtileg. Þórður forðast að mála persónur sínar of sterkum litum. Allir hafa sina kosti og galla en til þess að líflð verði þess virði að lifa þvi þarf fólk að hafa trú á sjálfu sér og láta hendur standa fram úr ermum. Áberandi er hve mikla virðingu höfundur ber fyrir þeim aldurshópi sem hann í senn skrifar fyrir og um. Unglingar eru hugsandi fólk og eiga ekki skilið að litið sé á þá sem einsleitan hóp vandræða- gemlinga. Unglingavandamálin svokölluðu spretta oftar en ekki frá hinum fullorðnu sem standa sig misvel í uppeldinu og sýna þeim sem yngri eru lítinn skilning. Þetta má vel sjá í þessari skemmtilegu og vel skrifuðu bók. Vonandi fá sem flestir að njóta hennar. Geta englar talað dönsku? Þórður Helgason Mál og menning Sól inni í stofu J Mozart er einstaklega I skemmtilegur í skammdeginu. i Tónlist hans er létt og samt svo j innblásin að það er eins og sól- Bin skíni inni í stofu þegar hann er á fóninum. Hér er það Emer- son strengjakvartettinn sem flytur tvo frábæra kvartetta og er flutningur þeirra í alla staði í óaðflnnanlegur. Túlkun þeirra I er lífleg og skemmtileg, hver : nóta skýr og allar hendingar J fallega mótaðar. Hljóðfærin eru í fullkomnu jafnvægi og upp- i; takan til fyrirmyndar. Mozart: Jagd-Quartett & Dis- sonanzen-Quartett (Veiðikvar- tettinn og Ómstríði kvartett- inn). Emerson strengjakvar- tettinn. Deutsche Grammophone Átrúnaðargoð píanósnillinga Richter er einn mesti pianó- i snillingur aldarinnar og átrún- aöargoð margra annarra píanó- j snillinga! Vladimir Ashkenazy : hefur margoft látið hafa eftir : sér aö hann dýrki Richter I meira en alla aðra píanóleik- ; ara; hvers vegna er auðheyrt í þegar þessi diskur er spilaður. Upptökurnar eru frá 1987 þegar i Richter hefur verið í kringum | sjötugt - samt er spilamennsk- i; an langt frá því að vera feyskin. ? Túlkunin er úthugsuð og það er eins og Richter hafi gengið með s þessi verk í maganum í hálfa I öld. Krafturinn er gífurlegur og S tæknin ótrúleg. Haydn: Píanósónötur nr. 40, 41, 44, 48 og 52. Sviatoslav Richter. Decca Samanbitinn reiðisvipur ] Þessi diskur er hálfleiðinleg- ur. Flutningurinn er eins og hjá ] leikara sem hefúr bara tvö svip- Ibrigði; annaðhvort samanbit- inn reiðisvipur eða ekkert! Sjálf spilamennskan er svo sem fln en það er bara ekki nóg. Alla dýpt vantar í túlkunina, allan innblástur. Það er eins og hljóð- færaleikararnir séu í vondu skapi megnið af tímanum. Beet- hoven var reyndar skaphund- ur, en hann var líka mikill hug- suður og heimspekingur. Það á að vera dálítil náttúrastemning í þessum sónötum, og hana vantar algerlega hér. Beethoven: Sónötur fyrir fiðlu og píanó nr. 7, 8 og 9. Olivier Charlier, fiðla, Brigitte Enger- er, píanó. Harmonia Mundi Himnesk gleði !■ Mozart er alltaf jafn yndisleg- = ur; klarínettuleikurinn er frá- ; bær. Samhljómurinn lýtalaus ; ■ og túlkunin saklaus og hrein. | Amadeus kvartettinn er einn i frægasti strengjakvartett heims og er hreinn unaður að hafa ( þennan disk á fóninum. Hljóð- * færaleikaramir leika við hvem I tón og í leiðinni við hvem sinn I fíngur;. flutningurinn er fullur af himneskri gleði. Mozart: Klarinettkvintett K. 581 8c Strengjakvartett K. 516. Gervase de Peyer, klar- ínetta, Amadeus kvartettinn. Deutsche Grammophone Hljómplötur Jónas Sen

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.