Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1996, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1996, Side 11
£ S æ c: „5 £ 3 3 *> "3 K DAGATÖL OG JÓLAKORT I NÝJUM VÍDDUM FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1996 ntenning ,Ég held að svona hlutir geti gerst" Iðunn Steinsdóttir er einn okkar fremstu og afkastamestu barnabókahöfunda á síðari árum. Hún hóf ferilinn með því að skrifa spennusögu, einnig hefur hún skrifað fantasíur, pólitísk ævintýri og nokkrar sögur sem hún byggir á eigin uppvexti austur á Seyðisfirði. Nýju bókina hennar, Þokugald- ur, er erfitt að flokka. Hún er sviðsett á Austurlandi og örlög söguhetja ráðast í þoku, en landslag bókarinnar er hvergi til nákvæmlega nema á hugar- korti höfundar og þetta er bæði samtímasaga og söguleg. Margt býr í þokunni „Það gerist svo margt í þokunni af því að menn missa áttir,“ segir Iðunn. „Það getur virst eins og galdur. í þokunni veltur ýmislegt af stað hjá tveimur ungum stúlkum, hvorri á sinni öld. Líf þeirra breytist, að minnsta kosti ann- arrar.“ - Hvemig datt þér í hug að flétta saman tvenna tíma á þennan hátt? „Það byrjaði með því að ég las þjóðsögu sem ég varð hugfangin af, hún gerðist fyrir austan í þoku. Þorsteinn Erlingsson skráði hana og ég fann hana í þjóðsagnabók sem Sigurður Nordal gaf út. Kannski hefði ég átt að láta mér nægja að semja sögu upp úr þjóðsögunni, en mér fannst spennandi tilhugsun að flétta hana saman við sögu úr nú- tímanum, reyna að kveikja áhuga hjá lesendum á gömlum tíma. Sagan segir frá tveimm' stúlkum. Eldri sagan gerist um 1830, hin nú á tímum. Ég var alltaf að reyna að gera það upp við mig hvor væri að- alpersónan, hvorrar saga þetta væri. En þegar upp er staðið finnst mér þær báðar vera aöalpersónur." - Trúirðu á að maður geti náð sambandi við horfmn tíma? löunn Steinsdóttir: Þjóösaga skráö af Þor- steini Erlingssyni kveikti í henni. DV-mynd ÞÖK „Ég get ekki sagt að ég sé spírit- isti, en samt trúi ég þvi. Það prent- aðist inn i mig á unga aldri að fleira væri til en hægt væri að útskýra. Mamma hafði trú á yfimáttúruleg- um fyrirbærum og amma var ber- dreymin, og heima í eldhúsi var alltaf verið að segja sögur af dul- rænum atburðum. Ég held að svona hlutir geti gerst. Ég hef skrifað um árin sem ég man eftir sjálf en ekki sögulega skáldsögu fyrr en núna. Eðlilega þurfti ég að lesa mér mikio til, en ég hef gaman af því og mjög gaman af þjóðsögum þannig að þetta var leik- ur einn.“ - Heldurðu að þú reynir við þetta aftur? „Ég á alveg eins von á því.“ AF LJÓSAKRI - HARVEST OF THE LIGHT - VERÐLAUNADAGATAL 12 breiðmyndir eítir Hörð Daníelsson. Stærð: 27cm x 50cm Myndatextar ú íslensku, sænsku, ensku, þýsku, _ frönsku og spænsku. '■^rr***rn““ fástJ helstu bóka- og minjagripaverslunum ISLAND '97, borðdagatal með 12 myndum eftir 8 Ijósmyndara. Texti á íslensku og ensku. Otrúleqt KQpuúrvQl Sparil$ápan þín er Islensk Verðið kemur á óvart Rétt verð 24.900. Margir litir og stœrðir Fríar Póstkröfur ffíápusalan gSnorrabraut 56 S 562 4362 ••• ••• ss connExion TELECOM SYSTEMS Glœsilegt úrval íslenskra jólakorta Sala og þjónusta við fyrirtœki og dreifing í verslanir: , M , NYJAR j IVIDDIR, Sími 561 4300, fax 561 4302 Snorrabraut 54, pósthólf5075, 125 Reykjavík Borðsímar, veggsímar og þráðlausir símar af öllum gerðum og í ýmsum litum. iþ Heimilistæki hf SÆTÚNI 8 SÍMI 569 1500 Umboðsmenn um land allt. LJÓSÁKRI tfwm V7 4.400 Big ».1.090—1 Studio-Talking Ói mi fcnWii i ‘lil um LoZinT Sími með símanúmerabirti CT8.900 Símanúmer sem hringt er úr birtist á skjánum. Kjörinn í jólapakkann! «4 .900 Símanúmeraliiiiir ID-30

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.