Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1996, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.1996, Page 26
34 FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1996 Afmæli Árni Ólafur Lárusson Ámi Ólafur Lárusson, fjármála- stjóri Skeljungs hf., Gígjulundi 1, Garðabæ, er fimmtugur í dag. Starfsferill Ólafur fæddist í Reykjavík og ólst þar upp á Grímsstaðaholtinu og í vesturbænum. Hann lauk stúdents- prófi frá MR 1967, viðskiptafræði- prófi frá HÍ 1972 og hefur auk þess sótt ýmis námskeið er tengjast starfi hans. Ólafur var upplýsingafulltrúi hjá Umferðanráði 1968-71, stundakenn- ari við Ármúlaskóla 1968-71, fram- kvæmdastjóri LÍN 1972-74, deildar- sfjóri hagdeildar Skeljungs hf. 1972- 78 og framkvæmdastjóri fjár- málasviðs Skeljungs hf. frá 1978. Ólafur sat í stjóm Vöku 1969 og var formaður Vöku 1970, í stjóm Stúdentaráðs HÍ 1970-72, ritstjóri Stúdentablaðsins 1970, í stjóm LÍN 1970-72 og 1976-78, í stjórn Heimdallar 1966-68, í stjórn SUS 1973- 77, í stjórn fulltrúaráðs sjálf- stæðisfélaganna í Garðabæ og Bessastaðahreppi 1979-87 og vara- formaður 1980-83, í stjóm Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga 1973-75, í stjóm Plastprents hf. frá 1978, í stjóm Fiskeldis hf. frá 1980 og formaður þar 1981-83, formaður um- ferðamefndar Garðabæj- ar 1978-82, í skipulags- nefnd Garðabæjar 1982-90 og formaður hennar 1982-86, í bæjar- stjóm Garðabæjar 1982-86, í bæjarráði 1982-84, forseti bæjar- stjómar 1984-85, í stjóm Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu 1982- 86, í ffamkvæmda- stjóm Skipulagsstofu höfuðborgarsvæðisins 1983- 86, í stjóm Sjálf- stæðisfélags Garðabæjar frá 1986, varaformaður 1986-87 og formaður 1987-90, í reikningsskilaráði frá 1992, tilnefndur af Verslunarráði ís- lands í yfirkjörstjóm Garðabæjar frá 1992 og í stjóm Flutningsjöfnun- arsjóðs olíuvara frá 1992. Fjölskylda Ólafur kvæntist 5.7.1969 Sólveigu Hannam, f. 20.7. 1947, húsmóður. Hún er dóttir Ralphs Thomas Hannam, f. 27.4. 1915, verslunarfull- trúa í breska sendiráðinu í Reykja- vík, og k.h., Elínar Guðlaugsdóttur Hannam, f. 3.1.1921, húsmóður. Sonur Ólafs og Sólveigar er Ámi Tómas, f. 10.10. 1984. Alsystur Ólafs em Kirstín Guðríður, f. 20.5. 1940, sölustjóri í Reykjavík; Valgerður, f. 6.7. 1944, hjúkrunarfræðingur og flugffeyja í Reykjavík. Hálfsystur Ólafs, sam- feðra, eru Guðrún Helga, f. 29.8. 1933, útgerðarmað- ur í Hafnarfirði; Ólafia Lára, f. 17.4.1937, húsmóð- ir og klínikdama í Kópa- vogi. Foreldrar Ólafs voru Lár- us Sigurbjörnsson, f. 22.5. 1903, d. 5.8. 1974, skjala- og minja- vörður Reykjavíkurborgar, og s.k.h., Sigríður Ámadóttir, f. 20.7. 1911, d. 7.8. 1988, húsmóðir. Ætt Láras var bróðir Gísla, forstjóra Elliheimilisins Grundar, og Frið- riks stórkaupmanns. Lárus var son- ur Sigurbjöms, prests í Ási í Reykjavík, Gíslasonar, b. í Neðri- Ási i Hjaltadal, Sigurðssonar. Móðir Sigurbjöms var Kristín Bjömsdótt- ir. Móðir Lárusar var Guðrún, alþm. í Reykjavík, Lárusdóttir, prests og alþm. á Valþjófsstað, Halldórssonar, alþm. á Hofi í Vopnafirði, Jónsson- ar, bróður Guðrúnar, ömmu Sveins Bjömssonar forseta og Sigurbjarg- ar, langömmu Jóhanns Hafsteins forsætisráðherra, foður Péturs hæstaréttardómara. Móðir Guðrún- ar alþm. var Kirstín Katrine, systir Mörtu, móður Ingibjargar Thors. Bróðir Kirstínar og Mörtu var Þórð- ur, faðir Þóra, móður Jakobs Möll- ers, fyrrverandi ráðuneytisstjóra. Kirstín var dóttir Péturs, alþm. og organista í Reykjavík, ættfoður Guðjohnsenættarinnar. Móðir Kirstínar Katrínar var Guðrún Sig- ríður Knudsen, dóttir Lauritz Michaels Knudsens, ættföður Knudsenættarinnar. Sigríður var dóttir Áma, b. í Hlíðarendakoti í Fljótshlíð, Ólafs- sonar, b. í Hlíðarendakoti, bróður Erlings, föður Þorsteins skálds. Ólafur var sonur Páls, b. á Kvoslæk, Ólafssonar, b. á Kvoslæk, Ambjam- arsonar b. á Kvoslæk, Eyjólfssonar, ættföður Kvoslækjarættarinnar. Móðir Sigríðar var Guðríður Jónsdóttir b. á Hofakri í Hvamms- sveit, Jónssonar og Sigríðar Gísla- dóttur. Ólafur og Sólveig hafa afmælis- móttöku í Félagsheimili Rafveitu Reykjavíkur í Elliðaárdal, í dag, fimmtudaginn 12.12., milli kl. 17.00 og 20.00. Árni Ólafur Lárusson. Stefán Jóhannsson Stefán Jóhannsson, fyrrv. verk- stjóri, Grandargötu 20, Siglufirði, er áttræður í dag. Starfsferill Stefán fæddist í Minni- Brekku í Fljótum í Skagafjarðarsýslu. Hann lauk barnaskólaprófi og var síðan einn vetur í kvöldskóla hjá Sæ- mundi Dúasyni frá Krakavöllum, en kennt var í hinu svo kallaða þing- húsi í Haganesvík. Að öðru leyti er Stefán sjálfmenntaður. Stefán ólst upp við öll almenn sveitastörf en eftir að hann fékk ald- ur til vann hann jöfnum höndum bæði til sjós og lands. Stefán fluttist til Reykjavíkur 1951 þar sem hann hóf störf hjá byggingafélaginu Brú við Borgar- tún. Þar starfaði hann í átta ár, lengst af sem flokksstjóri. Síðasta fyr- irtækið sem Stefán starf- aði hjá var Hlaðbær en þar var hann verkstjóri um árabil. Stefán fluttist aftur til Siglufjarðar 1982 og hef- ur búið þar síðan. Fjölskylda Stefán stofnaði heimili á Siglufirði 1947 með Sigríði Sóleyju Sigurjónsdóttur, f. 7.5.1930, húsmóð- ur. Þau giftu sig 1.6. 1950. Hún er dóttir Siguijóns Gíslasonar og Ingi- bjargar Þorgrímsdóttur, kennd við Steinavelli í Flókadal. Stefán og Sig- ríður Sóley skildu 1982. Böm Stefáns og Sigríðar Sóleyjar eru Inga Jóna, f. 1948, bóndi á Molastöðum í Fljótahreppi, gift Kristni Hermannssyni og eiga þau fjögur böm; Jóhann Sigurður, f. 1950, skóla- stjóri á Hofsósi og á hann eitt barn; Helga Kristín, f. 1951, húsmóðir í Reykja- vík, gift Guðmundi Bald- urssyni rafvirkjameistara og eiga þau þrjú böm; Sæ- mundur Jón, f. 1954, leigubílstjóri, búsettur í Kópvogi, kvæntur Ást- hildi Sigurjónsdóttur og eiga þau þrjú böm; Þórður, f. 1958, garð- yrkjumaður í Reykjavík; Linda María, f. 1962, hjúkrunarfræðingur í Reykjavík, gift Valgarð Einarssyni og eiga þau þrjú böm; Dóra Mjöll, f. 1965, garðyrkjufræðingur að Laugal- andi á Flúðum, gift Rafni Emilssyni og eiga þau þrjú börn. Systkin Stefáns á lífi eru Ingi- björg Sæunn, f. 1.6. 1918; Guðmund- ur Jón, f.18.12. 1919; Björg Sigurrós, f. 9.9. 1923; Andrés Stefán, f. 21.10. 1924; Ólafur Guðmundur, f. 17.10. 1927. Hálfbróðir Stefáns er Sigurður Þorsteinn, f. 29.11. 1945. Foreldrar Stefáns voru Jóhann Benediktsson, f. 14.6. 1889, d. 9.6. 1964, síðast bóndi á Minna-Grindli i Fljótum, og Sigríður Jónsdóttir, f. 17.5. 1890, d. 14.10. 1939, húsfreyja. Stefán verður að heiman á afmæl- isdaginn. Stefán Jóhannsson. Vilberg Skarphéðinsson Vilberg Skarphéðinsson fram- kvæmdastjóri, Steinagerði 4, Reykjavík, varð sjötíu og fimm ára í gær. Starfsferill Vilberg fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk stúdents- prófi frá MR 1941 og viðskiptafræði- prófi frá HÍ 1947. Vilberg var framkvæmdastjóri heildverslunarinnar Miðstöðvarinn- ar hf., dótturfyrirtækis Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna, 1947-74 en stofnaði þá eigið fyrirtæki, Vil- berg Skarphéðinsson, umboðs- og heildverslun, sem hann starfrækir enn. Vilberg sat í stjóm Knattspyrnufélagsins Víkings í mörg ár, sat í varastjórn KSÍ, sat í aga- nefnd KSÍ í mörg ár og í dómaranefnd KRR. Fjölskylda Vilberg kvæntist 9.3. 1946 Sveinsínu Krist- björgu Guðmundsdóttur, f. 21.8. 1918, d. 1.8. 1979, matreiðslumanni. Hún var dóttir Guðmundar Jónssonar, sjómanns á Sæbóli í Grundarfirði, og k.h., Dagbjartar Jónsdóttur húsmóður. Börn Vilbergs og Sveinsínu Krist- bjargar eru Sigrún, f. 29.12. 1945, kennari, búsett í Garðabæ, gift Guðna Þ. Stefánssyni kennara og eiga þau tvær dætur; Ema, f. 17.2. 1948, skrifstofumaður, búsett í Mos- fellsbæ, gift Sverri Sæmundssyni, vélstjóra hjá Hitaveitu Mosfellsbæj- ar, og eiga þau fjögur böm; Valgerð- ur, f. 7.10.1952, fóstra á Selfossi, gift Erling Ingvasyni byggingatækni- fræðingi og eiga þau þrjú böm. Sambýliskona Vilbergs er Guð- björg Jónsdóttir, f. 13.6. 1932, hús- móðir. Vilberg á eina systur. Sú er Sig- rún Skarphéðinsdóttir, f. 23.7. 1914, fyrrv. gjaldkeri, búsett í Reykjavík, og á hún eina dóttur, Sig- ríði Magneu Njálsdóttur kennara, búsetta í Reykjavík, gifta Björg- vini Valdimarssyni, söngstjóra og tónlistar- kennara, og eiga Sigríður Magnea og Björgvin tvær dætur. Foreldrar Vilbergs: Skarphéðinn Ármann Njálsson, f. 23.9. 1889, d. 14.7. 1974, verkamaður í Reykjavík, og Valgerður Sigurðardóttir, f. 20.8. 1876, d. 1.8. 1956, húsmóðir. Ætt Skarphéðinn var sonur Njáls Símonarsonar, verkamanns í Reykjavík, og Vilborgar Magnús- dóttur. Valgerður var dóttir Sigurðar, b. í Reynisholti í Mýrdal, Sveinssonar, b. á Efri-Ey og í Sandaseli, Sveins- sonar, b. á Grímsstöðum, Erlends- sonar. Móðir Sveins í Efri-Ey var Ragnhildur Jónsdóttir. Móðir Sig- urðar var Þorgerður Runólfsdóttir. Móðir Valgerðar var Sesselja Árna- dóttir, b. í Nýjabæ, Jónssonar og Valgerðar Jónsdóttur. Vilberg er að heiman. 'M.eð gleði í fíugcb fseri ég þakkir alluni þeim &em &ý ndu mér jjöl&kyldw ininni mnarhug^ d áttræði& afmæli mínu þcmn 23. námmher &l. Lifið fíeil ‘Margeir ‘Ján&&wi, %eflamk Uppboð Eftirtaldar bifreiðir verða boðnar upp aö Bjarnarbraut 2, Borgarnesi, fimmtudaginn 19. desember 1996, kl. 13.30. AX-128 E118 II-769 JÓ-041 KC-198 M1882 M3579 MC-123 P194 R3344 R4384 R8409 XX-300 Y6719 Z1476 Ö9629 Greiðsla við hamarshögg. Sýslumaðurinn í Borgarnesi Vilberg Skarphéðinsson. Til hamingju með afmælið 12. desember 85 ára Guðrún Jónsdóttir, Fannborg 8, Kópavogi. Guðrún tekur á móti gestum í Gjábakka, Fannborg 8, í dag milli kl. 17.00 og 19.00. 80 ára Páll Jónsson, Hátúni 10, Vík í Mýrdal. 75 ára Rico Arthur Guidice, Kirkjuvegi 11, Keflavík. 70 ára Hulda Guðmundsdóttir, Stórholti 47, Reykjavík. Loftur Jónsson, Markarflöt 7, Garðabæ. Hulda Bjamadóttir, Blómsturvöllum 8, Neskaupstað. Margrét Ámadóttir, Fögrabrekku 13, Kópavogi. Páll Guðjónsson, Vestmannabraut 55, Vestmannaeyjum. 60 ára Friðfinnur Jósefsson, Háagerði 1, Húsavík. Haraldur Sigurðsson, Stífluseli 9, Reykjavík. 50 ára Anna Bjarnadóttir, Fannafold 53, Reykjavík. Sambýlismaður hennar er Sverrir Sigmundsson. Þau taka á móti gestum að heimili sfnu fostu- daginn 13.12. eftir kl. 20.00. Ingibjörg Árnadóttir, Nesbakka 4, Neskaupstað. Matthias Hallgrímsson, Heiðargerði 7, Akranesi. 40 ára Margrét Hólm Magnús- dóttir, Byggðavegi 111, Akureyri. Þorbergur Steinn Leifsson, Reykjafold 5, Reykjavík. Gunnar Karlsson, Kringlumýri 3, Akureyri. Lára Ingibjörg Ingvars- dóttir, Heiðarvegi 4, Reyðaríjarðar- hreppi. Ásgeir Gunnarsson, Hvassaleiti 30, Reykjavík. Guðrún Lára Sigurðar- dóttir, Borgarbraut 3, Grandarfirði. Erla Sigurveig Ingólfs- dóttir, Stapasíöu 13C, Akureyri. Jón Sigurðsson, Fögruhæð 2, Garðabæ. Vilborg Lofts, Fellsmúla 17, Reykjavik. Flosi Magnússon, Sigtúni 33, Patreksfiröi. Ásthildur Gunnlaugsdóttir, Hólabraut 20, Skagaströnd. Högni Rafnsson, Háaleitisbraut 28, Reykjavik. Smáauglýsingar 550 5000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.