Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1997, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1997, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 1997 Stuttar fréttir Forsetfnn með logum Forseti Suður-Kóreu hefur lýst yfir stuðningi sínum við nýja vinnulöggjöf sem hefur leitt til verkfalla um land allt og segir hana nauðsynlega til að bæta samkeppnisstööu landsins. Major í vígahug John Major, forsætisráðheiTa Bretlands, ætlar að blása til sóknar í dag vegna komandi kosningabar- áttu með því að boða til fyrsta fréttamanna- fundarins af mörgum, svona í anda Clintons Bandaríkjaforseta. Apar til jarðar Tveir apar, sem Rússar sendu út í geiminn um jólaleytið, hafa snúið aftur til jarðar og verða þeir nú rannsakaðir á næstunni. Dýrkeypt flóð Flóðin, sem urðu í Kalifomíu um áramótin, ollu meira fjár- hagstjóni en sambærilegar nátt- úruhamfarir í gjörvallri sögu rík- isins. Olía að ströndinni Olía úr rússnesku olíuskipi, sem sökk í Japanshafi á fimmtu- dag, hefur nú borist að norður- ströndum Japans og ógnar þar dýralífi. Sprengjuvargur tekinn Lögregla í Suður-Afríku hefur handtekið einn af þremur hvít- um hægriöfgamönnum sem grun- aðir eru um sprengjutilræði sem varð fjórum að bana á aðfanga- dag. Árás fordæmd Stjórn Clintons Bandaríkjafor- seta fordæmdi í gær sprengju- árás írska lýð- veldishersins á dómshús í Belfast í gær- morgun og var- aði við því að slíkar aðgerðir gætu spillt frið- arviðræðum sem eiga að fara fram síðar í mánuöinum. Óvissa um sjóara Ekki verður ljóst fyrr en eftir tvo daga hvort breskur kappsigl- ingamaður er enn á lífi í skútu sinni sem hvolfdi í suðurhöfum en franskur sjómaður, sem einnig var saknað um tíma, er viö góða heilsu. Þýskir til Bosníu Á annað hundrað þýskra her- manna kom til Sarajevo i gær til að taka þátt í gæslustörfum und- ir forustu NATO og er það í fyrsta sinn frá striðslokum að þýskir hermenn eru sendir til landa þar sem hætta er á átök- um. 18 myrtir í Alsír Múslímskir skæruliðar myrtu 18 manns I árás á þorp i Alsir í gær og 4 í höfuöborginni. Bertil prins látinn Sænski prinsinn Bertil, foður- bróðir Karls Gústafs Svíakon- ungs, lést í svefniásunnu- daginn. Bertil prins var kvæntur breskri fráskil- inni leikkonu, Lilian Craig, og gekk hann að eiga hana eftir 33 ára ástar- samband sem hann varð að halda leyndu til að missa ekki prinstit- ilinn. Bertil varð að halda titlin- um þar til Karl Gústaf yröi kon- ungur. Neita aöild íranar neita aö hafa átt hlut- deild í morötilrauninni í síðasta mánuði á syni Saddams Husseins íraksforseta. Reuter Utlönd Skæruliöar í Perú neita að sleppa fleirum úr japanska sendiherrabústaönum: Töfralæknar leita til anda um lausn Marxísku skæruliðamir sem halda 74 gislum í bústað japanska sendiherrans í Perú tilkynntu í gær að þeir myndu ekki sleppa fleiri mönnum úr prísundinni fyrr en stjómvöld settust niður til aö ræða kröfur þeirra. „Við sleppum ekki fleimm á með- an ríkisstjómin fellst ekki á póli- tíska lausn,“ sagði Isaac Velazco, al- þjóðlegur talsmaður uppreisnar- mannanna úr hópi Tupac Amaru byltingarhreyfmgarinnar, í síma- viðtali frá Hamborg í Þýskalandi. Hann sagði að „pólitísk lausn“ fælist í því að senda samningamann sinn, Domingo Palermo, inn í sendi- herrabústaðinn þar sem uppreisnar- mennimir og gíslar þeirra hafa haldið til í tuttugu daga og leyfa skæruliðunum að hafa samband við félaga sína sem sitja í fangelsum landsins. Uppreisnarmennimir hafa krafist þess að um 400 félagar þeirra verði látnir lausur úr fangelsi. Engin viðbrögð hafa borist frá stjómvöldum í Perú við þessum yfirlýsingum skæruliða. Alberto Fujimori forseti hitti Antonio Aranibar, utanríkisráðherra Bólivíu, í gær en sendiherra Bólivíu er meðal gíslanna. Forsetinn lét ekkert uppskátt eftir fundinn. Fulltrúar Alþjóða Rauða krossins fóru að vanda inn í sendiherrabú- staðinn með mat og vatn handa þeim sem þar eru innan dyra en ekkert bólaði á Michel Minnig, hátt- settum manni í Rauða krossi Perús og helsta milligöngumanninum í gíslamálinu. Sjónarvottar sögðu að ljós hefði sést í nokkrum gluggum, sennilega frá lugtum eða kertum þar sem ekk- gísla ert rafmagn er á húsinu, en ekki var annað lífsmark að sjá. Og ekki var sungið hraustlega eins og gert var á sunnudag. Rómversk-kaþólski biskupinn Ju- an Luis Cipriani, náinn vinur Fuji- moris forseta, var heldur hvergi sjá- anlegur í gær. Hins vegar komu að sendiherra- bústaðnum nokkrir hefðbundnir töfralæknar ofan úr Andesfjöllum, með hauskúpur og töfradrykki og grátbændu andana um að fá skæru- liðana tU að sleppa gíslum sinum. Reuter Töfralæknar ofan úr Andesfjöllum komu saman fyrir utan japanska sendiherrabústaöinn í Lima, höfuöborg Perú, í gær meö heföbundin töfratól sín eins og hauskúpur og töfradrykki. Þeir reyndu aö fá andana til liös viö sig til aö frelsa gíslana 74 sem skæruliöar hafa á valdi sínu í sendiherrabústaönum en þeg- ar síöast fréttist haföi þaö þó ekki gengiö eftir. Símamynd Reuter Repúblikanar kjósa þingflokksformann: Newt Gingrich spáð endurkjöri Newt Gingrich, forseti fuUtrúa- deUdarinnar í bandaríska þinginu, átti í gær fjögurra klukkustunda fund með flokksbræðrum sínum í Repúblikanaflokknum þar sem ræddar voru játningar hans á brot- um á siðareglum. Að loknum fund- inum spáðu flokksleiðtogar því að Gingrich myndi verða endurkjörinn sem formaður þingflokks repúblik- ana í dag. Fundurinn í gær var sá fyrsti sem Gingrich átti með flokksbræðrum sínum á þingi eftir að hann viður- kenndi þann 21. desember siðastlið- inn að hafa brotiö siðareglur þings- ins. Siöanefnd þingsins, sem rann- sakað hefur ásakanir á hendur Gingrich undanfarin tvö ár, kemur saman á morgun til að ræða hvem- ig refsa eigi þingmanninum. Hann hefur játað að hafa ekki gert nóg til að koma í veg fyrir að tekið væri á móti fjárframlögum til flokksstarfs- ins sem undanþegin eru skatti. í þessu tilviki var um að ræða nám- skeið sem Gingrich hélt. Hann við- urkenndi einnig að hafa leitt þá sem Newt Gingrich. Sfmamynd Reuter rannsökuðu málið á villigötur. Fjórir repúblikanar hafa tilkynnt að þeir muni ekki kjósa Gingrich í embætti formanns þingflokksins í dag. Aðrir tilkynntu í gær að þeir hefðu enn ekki ákveðið sig. Reuter Belgrad: Ný baráttuaðferð stjórnarandstæðinga Flokkur eiginkonu Slobodans Milosevic Serbluforseta, Mirjönu, lýsti því yfir í gær að sprengju hefði verið varpað að aðalstöðv- um flokksins i miðborg Belgrad. Flokkurinn hefur hvatt til þess að lögreglan beiti valdi gegn stjórn- arandstæðingum sem í 50 daga hafa efnt til mótmæla í höfuðborg- inni. Leiðtogar stjómarandstöð- unnar vísa því á bug að þeir hafi átt þátt í sprengjutilræðinu. Einn þeirra, Vuk Draskovic, fullyrti að það hefði verið sett á svið. í gær var jóladagur hjá rétt- trúnaðarkirkjunni og söfnuðust mörg hundmð þúsund manns í Belgrad og lýstu yfir andstöðu sinni við stjómvöld. Svo viröist sem flótti sé brost- inn á í stjórnarliðinu því borgar- stjóri Belgrad, Nabojsa Covic, hef- ur sagt upp starfi sínu. Þrátt fyrir bann við fjöldagöng- um lét lögreglan í Belgrad litið til sín taka í gær. Innanríkisráð- herra Serbíu, Zoran Sokolovic, neitaði fyrr um daginn að aflétta banninu er sendinefnd stúdenta Yfirmaöur serbnesku rétttrúnaö- arkirkunnar messar í Belgrad í gær. Kirkjan hefur lýst yfir stuön- ingi viö stjórnarandstæöinga. Sfmamynd Reuter gekk á hans fund. Yfirmaður herráðs Júgóslavíu- hers, Momcilo Perisic, tjáði hins vegar stúdentum er gengu á hans fund að hann væri hlynntur lýð- ræðislegri lausn á kreppunni. Stjórnarandstæðingar ætla að grípa til nýrra ráða í baráttunni gegn stjómvöldum með því að hringja stöðugt í allar ríkisstofn- anir. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.