Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1997, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1997, Blaðsíða 28
32 ÞRIÐJUDAGUR 7. JANUAR 1997 Sviðsljós Hjónaband eng- in trygging Poppsöngkonan Madonna seg- ist hreint ekki hafa í hyggju að giftast barnsfóður sínum og leik- fimikennara Carlos Leon enda sé hjónabandið ekki trygging fyrir dyggðugu lífi. „Ég þekkti fuilt af giftu fólki sem er með allt niður um sig i hjónalífinu," segir Madonna og bætir við að fólk sé ákaflega dómhart í henn- ar garð. Anthony Quinn þarf ekki að hafa áhyggjur af eldsvoðum: Dóttirin féll fyrir slökkviliðsmanni Pamela ekki aft- ur í sundbol Silíkonkrúttið Pamela Ander- son ætlar ekki að fara aftur í rauðan sundbol strandvarðanna í Kaliforníu, í samnefndri sjón- varpssyrpu. Hundrað prósent pottþétt. „Mér fannst gaman að vinna við þættina en ég ætla nú að snúa mér að öðru,“ segir Pamela í viðtali. Ekki er ljóst hvort hún og Tommy Lee trommari eru aftur tekin saman en hann er að minnsta kosti í af- vötnun og gengur víst vel. Rod Stewart Lokkarnir fallnir Rod Stewart er stoltur yfir nýju útliti sínu. „Rachel, konunni minni, fannst kominn tími til að ég léti klippa mig og því ekki það,“ segir Rod. Til hvers eru brunaliðskallar, til að kveikja bál eða slökkva? Ætli það fari nú ekki eftir eðli bálsins. Hús- bálið slökkva þeir en öðru máli gegnir um ástarbálið, þar taka þeir öðrum mönnum fram í ikveikjum. Svo finnst að minnsta kosti hinni gullfailegu Valentinu Quinn. Valentina, dóttir leikarans aldna Anthonys Quinns, gekk sem sé í hjónaband um daginn með slökkvi- liðsmanni, Robert nokkrum Peters frá New York. Boðið var til glæsilegrar veislu þar sem nánir ættingjar brúðhjón- anna ungu komu og skemmtu sér og vinnufélagar brúðgumans mættu líka, bæði til að skemmta sér og til að passa að hjónakomin fúðruðu hreinlega ekki upp. Hjónin era svo flutt til New York, í eins konar loftíbúð sem svo mjög eru í tísku meðal listræns ungs fólks, enda Robert í slökkviliði borg- arinnar. Það var líka eldurinn sem kom þeim saman. „Við hittumst fyrir tilstilli Mar- ianne, góðrar vinkonu minnar frá Los Angeles," segir Valentina. „Hún missti nær allar eigur sínar þegar eldur kom upp í íbúð hennar nærri Central Park í New York. Slökkvi- liðsmennimir vora svo alúðlegir við hana að henni fannst hún standa í þakkarskuld við þá, enda þótt þeim tækist ekki að bjarga neinu sem heitið gæti af eigum hennar. Skömmu síðar bað hún mig um að koma með sér til að færa þessum mönnum gjöf. Og þama var hann.“ Neistinn var kviknaður. Ást við fyrstu sýn hjá báðum. Valentina hugsaði með sér að gaman væri nú að hitta þennan unga mann aftur og einmitt um það leyti sem hún var að kveðja rétti Robert henni bréf- miða og sagði: „Héma er símanúm- erið mitt. Hringdu endilega í mig ef þú heyrir um einhverja eldsvoða." Þar með var stúlkan unnin og nú er bara að sjá hversu lengi bruna- liðsmanninum tekst að viðhalda ást- arbálinu því. Fyrir þá sem vilja vita starfar Va- lentina sem leikkona. Valentina og pabbi gamli, Anthony Quinn. Hagstœ> kjör Ef sama smáauglýsingin er birt undir 2 dálkum sama afsláttur af annarri auglýsingunni atttmii lihimb tfío m&í,,;, ! £** . Smáaugllsingar 550 5000 Forseti Tékklands, Vaclav Havel, kom þegnum sínum á óvart á laugardaginn er hann kvæntist 44 ára gamalli leikkonu, Dagmar Veskrnova, í Prag. Hér dregur brúðurin hring á fingur forsetanum við athöfnina sem var borgaraleg og fór fram að morgni laugardagsins. Símamynd Reuter Dóttir Camillu Bowles óörugg í sviðsljósinu Camilla Parker Bowles, ástkona Karls Bretaprins, þótti fremur Laura Parker Bowles. afslöppuð á balli á Ritzhótelinu í London ekki alls fyrir löngu. Ástæð- an var sú að ljósmyndarar beindu ekki vélum sínum að henni eins og venjulega heldur dóttur hennar, Lauru. Laura Parker Bowles, sem hingað til hefur verið í heimavistarskóla og því utan við sviðsljósið, var hins vegar svolítið taugaóstyrk. Hún klæddist kínverskum kjól, sem hún hafði keypt á Kings Road í Chelsea, og töldu sumir ballgesta að hún hefði verið óviss um hvort hún væri í viðeigandi fatnaði. En kjóllinn klæddi að minnsta kosti ungfrúna og menn ræddu sín á milli að ef Karl kvæntist einhvern tíma Camillu fengi hann snotra stjúpdóttur. Tiggy Legge-Bourke, aðstoðarkona Karls Bretaprins og barnsfóstra drengjanna hans þegar það á við, kemur hér til jólaboðs sem prinsinn hélt starfsfólki sínu á glæsihóteli í London.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.