Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1997, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1997, Blaðsíða 33
ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 1997 37 DV Eiríkur Smith á vinnustofu sinni. Milli tveggja heima í Listasafni Islands stendur nú yfir sýning sem hefur yfir- skriftina Milli tveggja heima. Á sýningunni er úrval olíumál- verka og vatnslitamynda Eiriks Smiths frá afstrakt-expressjón- íska tímabilinu. Er þessi sýning sú fjórða í sýningarröð Lista- safnsins þar sem vakin er at- hygli á verkum starfandi lista- manna af eldri kynslóð. Eiríkur Smith er Hafnfirðing- ur að uppruna og á að baki fjöl- breyttan feril sem listamaður. Sérstaða hans felst ekki síst í því að hann hefur komið við sögu helstu hræringa sem mót- að hafa íslenska málaralist á ár- unum 1950 til 1965. Rætur Eiríks liggja kirfilega í Sýningar íslensku landslagsmálverki og hlutlægum expressjónisma en við upphaf sjöunda áratugarins varð hann virkur þátttakandi í hreyfingu strangflatarlista- manna. Seint á sjötta áratugn- um tók Eiríkur svo að gera óhlutlægar myndir i opnum, ljóðrænum stíl. Þær leiddu síð- an af sér tímabil umbrotamik- illa afstrakt-expressjónískra málverka sem þó tóku nokkurt mið af hrynjandi íslenskrar náttúru. Þau eru af mörgum tal- in meðal öndvegislistaverka ís- lenskrar afstraktlistar. I tilefhi sýningarinnar gefur Listasafn íslands út veglega skrá með fjölda litmynda og upplýsingum um feril lista- mannsins frá upphafi. í henni er einnig ritgerð eftir Aðalstein Ingólfsson um þróun hinnar af- strakt-expressjónísku myndsýn- ar í verkum Eiríks í ljósi franskrar og bandarískrar myndlistarhefðar. Sýningunni lýkur 2. febrúar 1997. Janúarnám- skeið ÆSKR Æskulýðssamband kirkjunn- ar í Reykjavíkurprófastsdæm- um heldur hið árlega janúar- námskeið fyrir leiðtoga í æsku- lýðsstarfi kirkjunnar í Skál- holtsskóla helgina 10.-12. janú- ar. ÆSKR leitast nú við að auka metnað og kröfur til æskulýðs- leiðtoga sem starfa á vegum Samkomur safnaðanna í prófastsdæmunum og er því talið mjög brýnt að söfiiuðir sendi leiðtoga á nám- skeiðið. Gestafyrirlesari er Gra- hame Knox frá Bretlandi. Lagt verður af stað frá Hallgríms- kirkju á fóstudag kl. 18.00. Skráningu lýkur 9. janúar. Slökkviliðskórinn í tilefni þess að Slökkvilið- skórinn er fimm ára verða haldnir tónleikar í Ráöhúsi Reykjavíkur í dag kl. 16.30. Allir eru velkomnir og er aðgangur ókeypis. Björgunarsveitir á Vestfjörðum SVFI Suðureyri SVFI, Flateyri <. ' SVFÍ, Tálknafirði Kópur, Bíldudal hreppi SVF!, Rauðasandsí SVFÍ, Patreksfirði SVFI Lómfell C) SVFÍ, Reykhólum ____________ i23S=== Djass á Sóloni Sólon íslandus er vinsæll veitingastaður í gamla bænum. Er hann til húsa þar sem áöur var virt málningarvöruverslun. Allt frá því Sólon íslandus hóf starfsemi sína fyrir nokkrum árum hefur verið mikið lagt upp úr lifandi tónlist. Þriðjudagskvöld eru yfirleitt djasskvöld og á fyrsta djasskvöldi ársins er það hin kunna söngkona, Edda Borg, sem skemmt- ir gestum á Sóloni íslandusi. Skemmtanir Edda Borg er löngu þjóðkunn söngkona og hefur bæði rekið sitt eigið djasstríó og einnig danshljómsveit, þá hefur hún oft tekið lagið með Stórsveit Reykjavikur. í kvöld kemur fram með henni ungur píanóleikari frá Hafnar- firði, Agnar Már Magnússon, en hann hefur spilað með Eddu Borg um nokkurt skeið, lengi vel í Leikhúskjallarabandinu og einnig djass- sveitum. Þau eru með ýmsa djassstandarda og blúsópusa á dagskrá sinni, lög sem flestir ættu að kannast við. Edda Borg hefur söng sinn um kl. 22.00. Edda Borg syngur þekkt djass- og blúslög á Sóloni Islandusi í kvöld. Víða mikil hálka Allir helstu þjóðvegir eru færir, en víða er nokkur hálka. Snjór er einnig á vegum sem liggja hátt, einkanlega á Norðaustur- og Aust- urlandi. Einstaka leiðir í þessum landshlutum eru ófærar vegna Færð á vegum snjóa, til að mynda Öxarfjarðar- heiði, Hellisheiði eystri og Mjóa- fjarðarheiði. Þá er Lágheiði á Norð- urlandi einnig ófær. Fjarðarheiði er fær en þónokkur snjór er þar og sama er að segja um leiðina Fella- bær-Hadlormsstaður. Hálka og snjór án fyrirstöðu Lokaö s Vegavinna-aðgát 0 Öxulþungatakmarkanir m Þungfært © Fært fjallabílum Sandra María Litla stúlkan á mynd- inni, sem hlotið hefur nafnið Sandra María, fæddist á fæðingardeild Landspítalans 28. nóvem- ber, kl. 9.15. Hún var við fæðingu 3394 grömm og mældist 50 sentímetra löng. Foreldrar Söndru Maríu eru Kjartan Már Þorvaldsson og Hildur Ása Sævarsdóttir og er hún fyrsta barn þeirra. Barn dagsins XagdStC Laurence Fishburne og Stephen Baldwin leika tvo fanga á flótta. Flótti Flótti (Fled) er ný spennu- mynd sem Laugarásbíó hefur hafið sýningar á. Segir þar af tveimur föngum, sem Laurence Fishburne og Stephen Baldwin leika, og flótta þeirra í 72 klukkustundir. Einu kynnin sem Piper og Dodge hafa haft hvor af öðrum er að þeir hafa verið handjárnaðir saman í þrælkvm- arbúðum. Óvænt skothríð gerir það að verkum að þeir sjá færi á að flýja og nota tækifærið. Áður en þeim er veitt eftirfór komast þeir yfir stolna peninga og tölvu- diskling sem geymir hættulegar upplýsingar en því gera þeir sér ekki grein fyrir í byrjun. Á flótt- Kvikmyndir anum lenda þeir í miklu varnar- spili gegn glæpamönnum og lög- reglumönnum en mesta þolraun- in er þó fyrir þá að þola hvor annan og læra að meta verðleik- ana sem þeir búa yfir. Auk þeirra Fishburns og Bald- wins leika í myndinni Will Patton, Robert Hooks, Robert John Burke og mexíkóska þokkagyðjan Salma Hayek. Nýjar myndir Háskólabíó:Slcepers Laugarásbíó: Flótti Kringlubíó: Lausnargjaldið Saga-bíó: Saga af morðingja Bíóhöllin: Jack Bíóborgin: Hringjarinn í Notre Dame Regnboginn: That Thing You Do Krossgátan Lárétt: 1 dökk, 6 samt, 8 óprýði, 9 renna, 10 fisk, 11 afturganga, 13 skekkir, 16 kemst, 17 sári, 18 dygg- an, 20 hreyfing, 21 hrap, 22 fugl. Lóðrétt: 1 ritfæri, 2 óværa, 3 dug- leg, 4 skot, 5 bömin, 6 síðan, 7 ósi, 12 sterkir, 14 flytja, 15 skjálfti, 17 bungu, 19 sting. Lausn á sfðustu krossgátu: Lárétt: 1 storm, 6 vá, 8 pera, 9 eir, 10 rið, 11 kind, 12 endast, 15 knár. Lóðrétt: 1 sat, 2, krógi, 3 aðlaga, 4 uggs, 5 teistan, 6 ár, 7 staðinn, 11 nit, 12 bera, 16 orð, 18 ól, 20 gó. Gengið Almennt gengi LÍ nr. 6 07.01.1997 kl. 9.15 Eininq Kaup Sala Tollqenai Dollar 66,940 67,280 67,130 Pund 113,430 114,010 113,420 Kan. dollar 49,040 49,340 49,080 Dönsk kr. 11,2220 11,2810 11,2880 Norsk kr 10,3530 10,4100 10,4110 Sænsk kr. 9,6200 9,6730 9,7740 Fi. mark 14,2740 14,3590 14,4550 Fra.franki 12,6740 12,7460 12,8020 Belg. franki 2,0787 2,0912 2,0958 Sviss. franki 49,4200 49,7000 49,6600 Holl. gyllini 38,1600 38,3900 38,4800 Þýskt mark 42,8500 43,0600 43,1800 ít. líra 0,04356 0,04384 0,04396 Aust. sch. 6,0870 6,1250 6,1380 Port. escudo 0,4272 0,4298 0,4292 Spá. peseti 0,5091 0,5123 0,5126 Jap. yen 0,57930 0,58280 0,57890 írskt pund 111,760 112,450 112,310 SDR 95,44000 96,01000 96,41000 ECU 83,1900 83,6900 83,2900 Símsvari vegna gengisskráningar 5623270

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.