Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1997, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1997, Blaðsíða 19
18 ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 1997 íþróttir Þrír nýir til Magdeburg Þýska úrvalsdeildarliðið i handknattleik, Magdeburg, hef- ur á skömmum tíma fengið þrjá nýja leikmenn í sínar raðir fyrir baráttuna sem fram undan er í vetur. Rússinn Atavin kom frá spænska liðinu Granollers og tveir franskir landsliðsmenn komu frá Creitel, félaginu sem sló Hauka út úr Evrópukeppn- inni. Það eru þeir Gueriz Kervadec og Joel Abati sem fór á kostum í síðari leiknum gegn Haukum í Strandgötunni fyrr í vetur. -GH Gylfi tekur við af Gunnari DV, Akranesi: Þann 15. janúar verður aðal- fundur Knattspymufélags Akra- ness og þá tekur ný stjóm við fé- laginu. Gunnar Sigurðsson mun láta af formennsku og við starfi hans tekur Gylfí Þórðarson. Með honum í stjóm verða Örn Gunn- arsson varaformaður, Þorgeir Jósepsson gjaldkeri og Ágúst Ás- geirsson og Karl Alfreðsson með- stjómendur. Gunnar hefur setið í stjórn Knattspymufélagsins með hlé- um allar götur frá því árið 1971 og mörg ár sem formaður. Hann hefur náð að byggja upp stór- veldi í íslenskri knattpymu og verður erfitt að feta í fórspor hans. Gylfi er ekki ókunnugur knattspyrnunni en hann eins og Gunnar hefur setið í stjóm KSÍ og tók fyrst sæti í stjóm Knatt- spymufélags ÍA árið 1979. -DVÓ Birkir sat á bekknum Birkir Kristinsson var á vara- mannabekk Birmingham þegar liðið sigraði utandeildarliðið Stevenage, 0-2, í ensku bikar- keppninni um helgina. Haraldur Ingólfsson var ekki í leikmannahópi Aberdeen frekar en í síðustu leikjum þegar Aber- deen mátti þola tap á heimavelli gegn Dunfermline í skosku úr- valsdeildinni. -GH Skaginn vann Gróttumótið Skagamenn sigmðu á hinu ár- lega Gróttumóti í innanhúss- knattspymu sem fram fór á Sel- tjarnamesi um helgina. Þrjú lið léku til úrslita, ÍA vann Breiða- blik, 7-1, í fyrsta leiknum, síðan geröu Leiftur og ÍA jafntefli, 4-4, og leikur Leifturs og Breiðabliks fór einnig 4-4. -VS Jóhannes með ÍA Jóhannes Harðarson, miðju- maðurinn efnilegi, hefur skrifað undir tveggja ára samning við ís- landsmeistara ÍAí knattspym- unni. Jóhannes hafði áður verið orðaður við nýliða Skallagríms. Ólafur til Reynis Hópurinn hjá nýliðum Reynis úr Sandgerði, sem leika í 2. deildinni í knattspymu í sumar, heldur áfram að styrkjast. Þeir hafa nú fengið Ólaf ívar Jónsson, einn öflugasta leikmanninn frá nágrönnunum í Víði, til liðs við sig. Fleiri úr Garðinum Víðir hefur misst fleiri menn síðustu dagana þvi Steinar Ingi- mundarson og Þorvaldur eru farnir í Fjölni og Unnar Sigurðs- son til Keflvíkinga. -VS Körfuknattleikur: Buckingham kominn á Krókinn - Jeffrey Johnson var látinn fara DV, Sauðárkróki: Tindastólsmenn í körfuboltanum létu bandaríska leikmanninn Jef- frey Johnson róa þegar hann fór vestur um haf yfir jólin. Nýr leik- maður er kominn á Krókinn og heit- ir sá Waync Buckingham. Halldór Halldórsson, formaður körfuknatt- leiksdeildar Tindastóls, sagði í sam- tali við DV að menn gerðu sér von- ir um aö þessi nýi leikmaður væri betri en Johnson og myndi vonandi leggja sig meira fram en hann gerði. Óánægja sú sem var með frammistöðu þessa annars ágæta miðherja byggðist á því að mönnum fannst hann ekki sýna það sem í honum bjó. Buckingham er 2,04 metrar á hæð og mun leika sinn fyrsta leik á fimmtudagskvöldið þegar nágrann- amir úr Þór á Akureyri koma í heimsókn. Vonast Tindastólsmenn eftir fjölmörgum áhorfendum á leik- inn, en þeim var farið að fækka mjög í síðustu leikjum á liðnu ári. Áhorfendafjöldinn í Síkinu var kominn niður undir 200 manns, og var helsta ástæðan fyrir því nefnd óánægja með bandaríska leikmann- inn Johnson. -ÞÁ Júllus með átta mörk Júlíus Jónasson skoraði 8 mörk þegar lið hans, Suhr frá Sviss, sigraði Róbert Sighvatsson og fé- laga í þýska liðinu Schutterwald, 24-23, í úrslitaleik á alþjóðlegu handknattleiksmóti sem fram fór í Freiburg í Þýskalandi um helgina. Perkovac var markahæstur hjá Suhr með 11 mörk. -DVÓ/VS Lárus Orri varð annar Lárus Orri Sigurðsson varð annar í kjöri eins af styrktaraðilum enska knattspymufé- lagsins Stoke á leikmanni ársins 1996 sem birt var um áramótin. Sóknarmaðurinn Mike Sheron fékk 77 prósent atkvæða en Láms Orri kom næstur með 12 prósent. -DVÓ/VS Birgir valinn á Akranesi DV, Akranesi: Birgir Leifur Hafþórsson, íslandsmeistari karla i golfi, var í gærkvöld útnefhdur íþróttamaður ársins 1996 á Akranesi. Hann fékk 100 stig af 100 mögulegum. Alexander Högnason knattspymumaður kom næstur með 54 stig og Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir sundkona.varö þriðja með 45 stig. -DVÓ Greg Norman var vel fagnaö í mótslok. Eiginkona hans Laura stóöst ekki mátiö og kyssti karlinn sinn rembingskoss. Þaö er ekki ónýtt aö fá 70 milljónir fyrir sigur á einu golfmóti. Stórmeistaramót í holukeppni: Norman krækti sér í 70 milljónir Ástralski kylfingurinn Greg Norman fór með sigur af hólmi á stórmeistara- móti í holukeppni sem lauk í Scottsdale í Arizona í fyrrinótt. Gífurlegar peninga- upphæðir vom í verðlaun og gaf fyrsta sætið um 70 milljónir króna. Stigahæstu kylflngar i heiminum hafa rétt til þátt- töku á móti sem þessu og mættu þeir flestir til leiks í Arizona. Norman og Scott Hoch frá Bandaríkj- unum háðu æsispennandi keppni um sigur í mótinu og mátti vart á milli sjá. Það fór svo að Norman hafði betur þeg- ar hann tryggði sér sigurinn á síðustu holunni, tæpara gat það varla verið. Norman var að að vonum alsæll með fyrstu verðlaun og gat ekki annað viður- kennt að hann var aö leika gott golf á þessu móti. „Ég lagði mig allan fram á flötunum og það skipti sköpum. Þetta var skemmtileg keppni við Hoch sem er kylfmgur í fremstu röð. Auðvitað fylgir sigri sem þessum einhver heppni," sagði Norman eftir að hafa tekið við 70 millj- ónum króna. Hisayuki Sasaki frá Japan tók þriðju verðlaunin eftir fjöruga keppni við Skot- ann Sam Torrance. Þess má geta að Greg Normann er sem fyrr langefstur á styrkleikalistanum. Tom Lehman frá Bandaríkjunum er í öðru sæti og þriðja sætinu er Skotinn Colin Montgomerie. -JKS Patrekur Jóhannesson meiddur: Læknir Essen ráðlegg- ur hvíld í tvær vikur - pressa frá félaginu að leika þrátt fyrir meiðslin Patrekur Jóhannesson, landsliðs- maður í handknattleik, varð fyrir því óláni að meiðast á æfmgu hjá Essen í síðustu viku. Læknir félags- ins telur að Patrekur hafi slitið vöðva í síðu og ekkert nema tíminn einn mun lækna þessi meiðsl. Vegna pressu frá félaginu lét Patrekur til leiðast að leika gegn Lemgo um síðustu helgi en fór út af fyrir fullt og allt þegar eftir fyrstu sóknina. „Þetta gerðist nánast upp úr þurru. Ég var síðan sprautaður fyr- ir leikinn gegn Lemgo um helgina en það dugði skammt því ég bað um skiptingu strax eftir fyrstu sóknina. Ég fór í læknisskoðun í gær og eftir hana ráðleggur læknir liðsins mér að taka hvíld í tvær vikur. Ég finn hins vegar fyrir mikilli pressu frá félaginu að leika. Það eru mikilvæg- ir leikir fram undan, leikur í bikar- keppninni annað kvöld og síðan leikur í deildinni á laugardaginn kemur. Félagið leggur ríka áherslu á að ég taki þátt í þessum leik. Skrokkurinn á mér verður bara fyrst af öllu að vera í lagi. Það er stundum varla spurt að því,“ sagði Patrekur í samtalinu við DV. „Það er ansi fúlt að þurfa að lenda í þessum meiöslum núna því ég var kominn í mjög gott leikform. Ég næ mér af þessum meiðslum, en það tekur bara tíma. Tíminn lækn- ar öll sár.“ Patrekur var inntur eftir því hvort ánægja ríkti með gengi liðsins fram að þessu í deildinni. Þokkalega sáttir meö stööuna í deildinni „Já, menn eru bara þokkalega sáttir. Stefhan var sett á fimmta sætið og við erum í kringum þær slóðir í dag. Annars er deildin jafn- ari núna en oft áður og því er stað- an fljót að breytast. Tveir sigurleik- ir í röð geta komið liðum í toppbar- áttuna og enn fremur er stutt í neðri hlutann. Það vantar herslumuninn á það að Essen sé í toppbaráttunni," sagði Patrekur Jó- hannesson við DV í gærkvöld. -JKS Patrekur Jóhannesson fór af velli eftir fyrstu sóknina gegn Lemgo. Sigurður ráðinn til GS DV, Suðurnesjum: Sigurður Sigurðsson hefúr verið ráðinn golfkennari hjá Golfklúbbi Suður- nesja en hann starfaði hjá Golfklúbbi Reykjavíkur á liðnu ári. Hann tekur við af Philip A. Hunter sem hefur verið kennari hjá GS undanfarin sjö ár en sagði starfi sínu lausu fyrir skömmu og er farinn til Þýskalands. -ÆMK Þjálfarar ársins útnefndir Knattspymuþjálfarafélag Islands útnefiidi í gær þjálfara ársins 1996. I karlaflokki urðu jafnir og efstir þeir Guðjón Þórðarson og Ólafur Jóhannes- son. Undir stjóm Guðjóns varð ÍA íslands-, bikar- og deildabikarmeistari og Ólafur kom Skallagrími óvænt upp í 1. deild. Vanda Sigurgeirsdóttir var val- in í kvennaflokki en Breiðablik vann alla leiki og öll mót á árinu. Loks var Sigurður Þorsteinsson, Fylki, valinn unglingaþjálfari ársins. -VS ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 1997 23 Breyttir tímar fram undan í fjármálum Handknattleikssambandsins: „HSÍ verður komið nálægt núllinu í vor“ - segir Guðmundur Á. Ingvarsson, formaður Handknattleikssambandsins Breyttir tímar em fram undan varðandi fjármálin hjá Handknatt- leikssambandi íslands en sem kunnugt er hefur sambandið verið skuldum vafið árum saman og fjár- skortur staðið því verulega fyrir þrifum. „Staðan kemur til með að lagast mjög mikið hjá okkur á næstu vik- um og mánuðum. Við stöndum frammi fyrir því núna að við eig- um þessar 14 milljónir sem við fengum frá fjárlaganefnd Alþingis. Síðan reiknum við fastlega með því að fá Akureyrarpeningana en þar erum viö að tala um 17 milljónir til viðbótar. Þetta er það sem við höf- um í dag og við verðum bara að moða úr því. Það fleytir okkur langt,“ sagði Guðmundur Á. Ingv- arsson, formaður Handknattleiks- sambands íslands, í samtali við DV í gærkvöld. FYrir nokkrum mánuðum var HSÍ nánast gjaldþrota samband en á síðustu mánuðum hefúr staðan breyst verulega. Frammistaða ís- lenska landsliðsins í undankeppni HM og sú staðreynd að í dag eiga íslendingar aftur landslið meðal þeirra allra bestu í heiminum, kemur til með að létta HSÍ róður- inn. En hvemig metur formaður HSÍ stöðuna hjá sambandinu í dag: „Á allra næstu dögum munum við hjá HSÍ setjast vandlega yfir það mál hvemig við getum nýtt þessa peninga sem best og mest. Það verður eitt af fyrstu verkefn- unum að fá þá aðila sem við skuld- um til aö lækka sínar kröfur veru- lega. Þetta hefst ekki öðravísi. Það er alveg ljóst að HSÍ hefur ekki efni á því að skulda neinum eitt eða neitt. Rekstur sambandsins verður að vera á núllinu ef það á lifa. Þetta er ekki flóknara mál en það.“ - Þú ert bjartsýnn á að rekstur HSÍ verði kominn nálægt núllinu á þessu ári? „Ekki kannski á núllið en ég er mjög bjartsýnn á að staða sam- bandsins verði orðin þokkaleg í vor. Það er bjart fram undan í handboltanum og hjá HSÍ enda helst þetta í hendur. Hvað hand- bolta varðar stöndum við mjög vel og fjárhagslega munum við standa miklu betur í vor en mörg undan- farin ár. Við verðum kaxmski ekki alveg komnir fyrir vindinn en allt að því.“ - Það er mun betra hljóð í for- manni HSÍ í dag en fyrir nokkrum vikum? „Það gefiu- vel verið og ekkert nema gott um það að segja. Eins og ég segi þá höfum viö þessar 14 milljónir i höndunum í dag og telj- um að 17 milljónir séu á leiðinni.“ - Eruð þið öruggir um að fá þess- ar 17 milljónir frá Akureyrarbæ eða aðeins vongóðir. Hvar stendur það mál? „Boltinn er hjá Akureyrarbæ. Okkar lögfræðingur segir að þeim beri að greiða þessa peninga og ég reikna með að fá þá í þessum mán- uði. Ég hef ekki heyrt neitt annað frá þeim en að þeir ætli að greiða okkur þessa peninga," sagði Guð- mundur Ingvarsson. -SK Fer Curcic til Leeds? George Graham, stjóri Leeds, hefur í hyggju aö bjóða Aston Villa 3 miÚjónir punda i miðvall- arleikmanninn Sasa Curcic. Curic sem keyptur var til Villa frá Bolton fyrir tímabilið hefur ekki áð að tryggja sér sæti í byrj- unarliðinu og er óánægður í her- búðum Villa. Toshack hættir með Deportivo Velski þjálfarinn John Tos- hack lét hafa það eftir sér í gær að hann myndi hætta sem þjálf- ari spænska 1. deildarliðsins Deportivo La Coruna eftir tíma- bilið. „Hvort sem tekst að vinna titilinn eða ekki mun ég fara frá félaginu eftir tímabili," sagði Toshack sem tók við liðinu í fyrra eftir að hafa stjórnað mál- um hjá Real Sociedad og Real Madrid. Arsenal í vandræðum Arsenal er í miklum vandræð- um fyrir bikarleik sinn gegn Sunderland í næstu viku. Lund- únaliðið er framherjalaust fyrir þann leik, John Hartson og Ian Wright verða báðir í banni, Dennis Bergkamp er meiddur, Chris Kiwomya i láni hjá Le Havre í Frakklandi og fimmti sóknarmaðurinn, Paul Dickov, hefur verið seldur til Manchest- er City. Tvær markspyrnur og ein fyrirgjöf David James, markvörður Liverpool, segist aldrei hafa átt eins rólegan dag og þegar lið hans vann Bumley, 1-0, í ensku bikarkeppninni í knattspymu á laugardaginn. „Ég tók tvær markspymur, hirti eina fyrirgjöf og fékk ekkert skot á mig. Ég vildi að ég hefði haft aðeins meira að gera,“ sagði James. Valsmenn höfnuðu tilboði frá Roda Valsmenn höfnuðu á dögunum tilboði sem hollenska 1. deildar liðið Roda sendi þeim en félagið vildi gera samning við Gunnar Einarsson. Að sögn fomáðamanna Vals var tilboðið frá Roda mjög lélegt og því ekki um annað að ræða en neita þvi en Gunnar er á samningi við Val út þetta ár. Forráðamenn Roda hrifust mjög af Gunn- ari, sem er 20 ára gamall vamarmaður, þeg- ar hann æfði með félaginu i haust og lýstu því yfir að þeir vildu gera samning við hann. Ekki hafa komið nein viðbrögð frá Roda vegna ákvörðunar Valsmanna en Gunnar er þessa dagana með félaginu í æf- ingaferð á Kanaríeyjum. -GH Gunnar Einarsson er í æfingaferð meö Roda en óvíst er hvort um semst milli Vals og hollenska félagsins. KR sagði nei við gríska félagið - sem geröi KR-ingum tilboö í Ríkharð Daðason Samkvæmt heimildum DV gerði gríska félagið Kalamata KR-ingum til- boð í Ríkharð Daðason á dögunum. Vesturbæjar- liðið mun hafa hafhað því í gær á þeim forsend- um aö tilboðið þætti of lágt. Ekki er talið ólík- legt aö gríska liðið geri KR-ingum annað tilboð en áhugi innan herbúða þess að fá Ríkharð er mikill. Það fara að verða síð- ustu forvöð fyrir grísk fé- lög að kaupa leikmenn því markaðurinn lokast um miðjan þennan mán- uð. DV hafði samband við Ríkharð í gærkvöld og sagðist hann ekkert hafa heyrt frá liðum sem hafa verið aö bera víumar í hann. Hann taldi þau mál í vissri biðstöðu. „Ég vil skoða dæmið hvað varðar gríska liðið betur en við sjáum hvað setur. Ég hef ekki heyrt frá Malmö en æfingar hjá þeim hefjast ekki fýrr en eftir tíu daga,“ sagði Ríkharður Daða- son. Grfska liðið vill fá beitt- an markaskorara en þegar 14 umferðum er lokið er liðið í 9. sæti af 18 liðum og hefúr skor- að 16 mörk en fengið á sig 20. Kalamata er ungt félagð en það var stofnað fyrir 30 árum. Liðið er á sínu öðm ári í 1. deild en lék þar áður í samfleytt 20 Mál Ríkharös Daöasonar er enn í biöstöðu en Ijóst er aö gríska ár í 2. deild. félagiö Kalamata hefur áfram áhuga á honum. -JKS Allt um NBAI nótt og fýrrinótt á bls. 25 Damon Stoudamire Toronto Raptors íþróttir Fæddur: 3. september 1973. Hæð: 1,78 m. Þyngd: 78 kg. Staða: Bakvörður. Númer á treyju: 20. NBA-leikir: 100 með Toronto. Meðalskor í NBA: 19,2 stig. Flest stig í leik: 32. Flest fráköst: 12. Flestar stoðsendingar: 19. Ferill: Valinn af Toronto í ný- liðavalinu 1995. Áhugamál: Ljósmyndun, djass og rapptónlist. Uppáhaldsleikmenn: Hak- eem Olajuwon og gömlu stjörn- urnar George Gervin og Nate Archibald. Ýmislegt: Valinn nýliði árs- ins í NBA 1996, besti leikmaður- inn í nýliðaleiknum á stjömuhá- tíð NBA 1996 og nýliði nóvem- ber- og janúarmánaða tímabilið 1995-96. Fyrsti leikmaðurinn í sögu Toronto til að ná þrennu þegar hann skoraði 20 stig, tók 12 frá- köst og átti 11 stoðsendingar í leik gegn Seattle í vetur. Lék næstmest af öllum leik- mönnum NBA á síðasta tímabili, 40,9 mínútur aö meðaltali í leik. Valinn í úrvalslið bandarísku háskólanna og tilnefndur sem háskólaleikmaður ársins þegar hann lék með Arizona-háskólan- um. Fyrirliði bandaríska landsliös- ins sem lék á Friðarleikunum í Rússlandi 1994. Hrafnkell var markahæstur Hrafnkell Halldórsson, fyrrum leikmaður Breiðabliks, var markahæsti leikmaður Herkules með 6 mörk þegar liðið geröi óvænt jafntefli, 23-23, við Sande- fjord í norsku úi'valsdeildinni í handknattleik á sunnudaginn. Herkules hefur gengið vel að undanförnu og er komið í 8. sæti deildarinnar með 10 stig. Elver- um, lið Gunnars Gunnarssonar, er hins vegar sem fyrr í 11. og næstneösta sæti með 3 stig. -VS Tjaldiö hjá Brann rifnaði Norska knattspymufélagið Brann, sem Birkir Kristinsson og Ágúst Gylfason leika með, kom fyrir jólin upp tjaldi yfir leikvang sinn. Brann á heima- leik gegn Liverpool í Evrópu- keppni bikarhafa í mars og tjald- iö á að halda hita á vellinum þannig að hann verði leikfær á þeim tíma. Um áramótin hvessti talsvert I Bergen meö þeim afleiðingum að tjaldið fauk til, auk þess sem það rifnaði vegna ísingar. Viðgerð stendur yfir. Leikurinn viö Liv- erpool fer fram mánuði áður en norska úrvalsdeildin hefst. -VS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.