Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1997, Blaðsíða 30
34
ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 1997
Afmæli
Kristján Hreinsson
Kristján Hreinsson skáld, Einars-
nesi 27, Reykjavík, er fertugur í dag.
Starfsferill
Kristján fæddist í Kópvogi og ólst
þar upp. Hann stundaði nám við
MH og síðan við Bergen Kadedral-
skole, stundaði nám í fjögur ár við
Háskólann í Bergen þar sem hann
las heimspeki og listasögu með leik-
húsfræði sem aðaifag.
Á unglingsárunum var Kristján
lagermaður og handlangari. Hann
var nokkur ár gjaldkeri við Lands-
bankann og síðar skjalavörður þar,
en í seinni tíð hefur hann helgað sig
ritstörfum. Þá hefur hann unnið við
vísna- og pistlagerð fyrir útvarp,
þýtt myndir, m.a. fyrir Stöð 3, og
stjómað útvarpsþáttaröð á rás 1.
Ljóðabækur Kristjáns eru Mál-
verk, útg. 1974; Og, útg. 1975; Frið-
ryk, f. 1975; Andandi, útg. 1981; Vog-
rek, útg. 1989; Mannhaf, útg. 1991.
Þá hefur Kristján
samið mikinn fjölda
söngtexta á hljómplötur,
samið útvarpsleikritin
Ræsið 1993 og Myndina,
1996, auk þess sem hann
hefur lesiö smásögur eft-
ir sig í útvarp og samið
mikinn fjölda limra fyrir
útvarpsflutning.
Hann hefur þýtt kvik-
myndir og teiknimyndir
fyrir sjónvarp, samið
stutta leikþætti og gert
auglýsingatexta fyrir útvarps- og
sjónvarpsauglýsingar og skrifað
greinar og pistla í blöð og tímarit.
Fjölskylda
Kona Kristjáns er Edda Birgitte
Lingaas, f. 27.11. 1961, fulltrúi við
leikmunadeild Þjóðleikhússins.
Hún er dóttir Per Lingaas, yfir-
læknis við Oslo Helserád, og
Ástrósar Jónsdóttur,
lengst af saumakonu hjá
Nationaltheater í Osló.
Stjúpsonur Kristjáns frá
fyrri sambúð er Gunnar
Karl, f. 9.4. 1977.
Synir Kristjáns og Eddu
eru Pétur, f. 9.10. 1990;
Baldur, f. 27..3. 1993.
Systkini Kristjáns eru
Auður Hreinsdóttir, f.
15.10. 1955, starfsmaður
við mötuneyti Egils
Skallagrimssonar; Svan-
berg Hreinsson, f. 23.5. 1965, að-
stoðarframkvæmdastjóri hjá
Bakkalág.
Foreldrar Kristjáns eru Hreinn
Ágúst Steindórsson verkstjóri og
k.h., Guðrún Ólafsdóttir, matráðs-
kona við mötuneyti Egils Skalla-
grímssonar. Þau hjónin bjuggu
lengst af við Austurgerði í Kópa-
vogi en búa nú í Reykjavík.
Ætt
Hreinn er sonur Steindórs Krist-
ins, frystihússtjóra í Sænska frysti-
húsinu við Kalkofhsveg, Ingimund-
arsonar, b. í Sogni í Ölfusi, Ingi-
mundarsonar, b. í Sogni, Gísiason-
ar. Móðir Ingimundar Ingimundar-
sonar var Unnur Bjömsdóttir.
Móðir Steindórs Kristins var Guð-
björg, systir Jóns á Hálsi, fóður
ívars, fyrrv. ritstjóra Þjóðviljans og
skrifstofustjóra Þjóðleikhússins.
Guðbjörg var dóttir ívars, b. á
Króki í Ölfúsi, Halldórssonar, b. á
Króki og á Ytri-Þurá. Móðir Guð-
bjargar var Margrét Steindórsdótt-
ir, b. í Sölvholti í Flóa, Sæmunds-
sonar.
Móðir Hreins var Oddný Hjartar-
dóttir, ættuð frá Borðeyri.
Guörún er dóttir Ólafs Magnús-
sonar frá Hvammi á Hvalfjarðar-
strönd og Svanbjargar Daviðsdótt-
ur frá Hrísey.
Kristján Hreinsson.
Einar Guðmundsson
Einar Guðmundsson, sjómaður
og útgerðarmaður, Hjallastræti 19,
Bolungarvík, er sextugur í dag.
Starfsferill
Einar fæddist í Bolungarvík og
ólst þar upp. Hann stundaði fisk-
vinnslunám og hefur verkstjórarétt-
indi í fiskvinnslu.
Einar fór ungur til sjós og stund-
aði jöfnum höndum sjómennsku og
almenn verkamannastörf í landi til
1970. Þá geröist hann verkstjóri í
Frystihúsi Einars Guðfinnssonar
hf. Þá var hann í nokkur ár verk-
stjóri í Hraðfrystihúsi Norðurtang-
ans hf. á ísafirði en hefur frá 1990
stundað sjómennsku á eigin króka-
bátum.
Einar hefúr alla tíð átt heima í
Bolungarvík að undanskildum
ánmurn 1983-85 er hann
bjó á ísafirði.
Einar var í nokkur ár
gjaldkeri hjá Verkalýðs-
og sjómannafélagi Bol-
ungarvíkur, sat í stjóm
Lífeyrissjóðs Bolungar-
víkur og í sfjóm Verk-
stjórafélags Vestfjarða.
Fjölskylda
Einar kvæntist 26.9.
1959 Ásdísi Svövu Hrólfs-
dóttur, f. á Hesteyri f Jök-
uifjörðum 8.9. 1939, fiskverkunar-
konu. Hún er dóttir Hrólfs Guð-
mundssonar og Soffiu Bæringsdóttur
sem bæði era látin. Stjúpfaðir Ásdís-
ar Svövu er Þórður Eyjólfsson, bú-
settur í Bolungarvík.
Böm Einars og Ásdísar Svövu era
Guðmundur, f. 16.2. 1957,
skipsijóri í Bolungarvik,
kvæntur Ásgerði Jónas-
dóttur og eiga þau þijú
böm; Hrólfúr, f. 3.2. 1958,
verkamaður í Bolung-
arvík, kvæntur Lindu
Benediktsdóttur og eiga
þau einn son; Daðey Stein-
unn, f. 27.2. 1960, kennari
á Akranesi, gift Amari S.
Ragnarssyni og eiga þau
þijú böm; Soffia Þóra, f.
24.4.1961, skrifstofúmaður
á ísafirði, en maður henn-
ar er Guömundur Jens Jóhannsson
og eiga þau þijú böm; Jón Þorgeir, f.
22.5.1962, endurskoðandi í Bolungar-
vík, en kona hans er Sigrún Sigurð-
ardóttir og eiga þau þijú böm; Jó-
hanna, f. 11.6. 1966, skrifstofumaður,
búsett að Bifröst í Borgarfirði, en
maður hennar er Hallgrímur Magnús
Sigurjónsson og eiga þau tvö börn;
Hólmfríður, f. 3.9. 1972, nemi í
Reykjavík, en maður hennar er
Ragnar Þór Ragnarsson og eiga þau
einn son.
Systkini Einars: Þorgeir, f. 8.7.
1938, verkamaður í Bolungarvik; Jón-
ína, f. 18.2. 1940, d. 8.2. 1941; Daði, f.
16.3.1943, verkamaður í Bolungarvík
og formaður Verkalýðs- og sjómanna-
félags Bolungarvikur, kvæntur Fríðu
Dagmar Snorradóttur og eiga þau sex
böm; Elías, f. 5.1. 1946, d. 7.9. 1947;
Hálfdán, f. 20.5.1957, d. 22.10.1958.
Foreldrar Einars: Guðmundur Ein-
arsson, f. 1.6. 1911, d. 6.1. 1979, sjó-
maður í Bolungarvík, og k.h., Daðey
Steinunn Einarsdóttir, f. 26.7. 1919,
húsmóðir.
Einar og Ásdis dvelja á Kanaríeyj-
um þessa dagana.
Ingibjörg og Guðrún Pálsdætur
Tvíburasystumar Ingibjörg Páls-
dóttir ritari, Eikjuvogi 22, Reykja-
vík, og Guðrún Pálsdóttir kennari,
Hrísmóum 3, Garðabæ, eru fertugar
í dag.
Starfsferill
Ingibjörg og Guðrún fæddust í
Borgamesi en ólust upp á Seltjarn-
amesinu. Þær luku landsprófi við
Mýrarhúsaskóla, stunduðu báðar
ballettnám við Listdansskóla Þjóð-
leikhússins frá átta ára aldri og
tóku þátt í nemendasýningum þar.
Þær vora meðal stofnenda íslenska
dansflokksins 1973 og störfuðu við
hann nær óslitið þar til þær hættu
1993, sökum almennra aldurstak-
markanna flokksins en þær tóku
þátt í flestum upp-
færslum íslenska
dansflokksins á
starfsferli sínum
þar. Þá stunduðu
þær nám við Den-
ver College í
Colorado og döns-
uðu þá meö Den-
ver City Ballet
Company.
Við lok dansfer-
ils sins, hóf Ingi-
björg tölvunám en
Guðrún stundaði
nám við KHÍ.
Ingibjörg er nú
ritari hjá Lána-
sýslu ríkisins en
Guðrún er kennari
Eiginmaður Ingi-
bjargar er Gunnar
Hermannsson, f. 8.8.
1953, rafiðnfræðingur
og hljóðmeistari hjá
RÚV. Hann er sonur
Hermanns Jónssonar
og Guðnýjar Th.
Guðnadóttur.
Eiginmaður Guðrún-
ar er Þórir Baldurs-
son, f. 29.3. 1944, tón-
skáld. Hann er sonur
Ingibjörg og Guðrún Baldurs Þóris Júlíus-
Pálsdætur. sonar og Margrétar
við Hofsstaðaskóla í
Garðabæ.
Fjölskylda
Hannesdóttur.
Dætur Ingibjargar og Gunnars
eru Unnur, f. 7.4.1988; Rakel Rán, f.
17.12. 1995.
Dætur Guðrúnar og Þóris eru Sól-
ey, f. 11.4. 1984; Sunna Margrét, f.
2.5. 1992.
Systur Ingibjargar og Guðrúnar
era Katrín, f. 25.1. 1951, hjúkrunar-
fræðingur, búsett á Seltjamamesi;
Lára, f. 25.10. 1952, félagsráðgjafi,
búsett á Seltjarnamesi; Unnur, f.
18.6.1963, kennari, búsett á Seltjam-
arnesi.
Foreldrar Ingibjargar og Guðrún-
ar era Páll Guðmundsson, f. 29.8.
1926, skólastjóri Mýrarhúsaskóla, og
k.h., Unnur Ágústsdóttir, f. 11.7.
1927, kennari.
Jóhann J. Helgason
Jóhann Jóels Helgason bifreiðar-
stjóri, Miðtúni 74, Reykjavík, er sex-
tugur í dag.
Starfsferill
Jóhann fæddist í Hafnarfirði en
ólst upp á Litlu-Strönd á Rangár-
völlum við öll almenn sveitastörf.
Hann hóf akstur hjá Kaupfélaginu
Þór á Hellu 1954, flutti til Reykjavík-
ur 1957 og stundaði þar keyrslu hjá
Mjólkursamsölunni í Reykjavík,
var síðan vagnstjóri hjá Landleið-
um frá 1961, var vagnstjóri í afleys-
ingum hjá SVR auk fleiri starfa og
stundaði keyrslu hjá BÚR á árunum
1967-72. Þá gerðist hann húsvörður
við Fellaskóla og var síöan húsvörð-
ur við Fjölbrautaskólann
í Breiðholti frá 1975.
Hann hefur sfrmdað hóp-
ferðaakstur frá 1978 auk
þess sem hann ók um
skeið hjá Steypustöðinni
hf. 1979-83.
Fjölskylda
Eiginkona Jóhanns er
Nanna Sigríður Ragnars-
dóttir, f. 27.12. 1938, hús-
móöir og verkakona. Hún
er dóttir Ragnars Hall-
dórssonar, verkamanns á Höfh í
Homafirði, og k.h., Guðbjargar
Jónsdóttur húsmóður sem bæði eru
látin.
Böm Jóhanns og Nönnu
Sigríðar eru Randý Arn-
björg Jóhannsdóttir, f.
21.8.1959, búsett í Reykja-
vík; Sigurjón Jóhannsson,
f. 1.6. 1961, bílstjóri í
Reykjavík; Ásgerður Soff-
ía Jóhannsdóttir, f. 16.1.
1963, húsmóðir í Dan-
mörku, gift Gísla Hjálm-
arssyni og eiga þau fjögur
börn; Agnes Björk Jó-
hannsdóttir, f. 4.2. 1964,
húsmóðir í Reykjavík en
hennar maður er Magnús
Stefánsson; Guðbjörg Ragna Jó-
hannsdóttir, f. 18.6. 1968, verslun-
armaður i Reykjavík og á hún einn
son.
Alsystkini Jóhanns era Hrafn-
hildur Helgadóttir, f. 16.8. 1943, hús-
móðir í Hafnarfirði; Sævar Örn
Helgason, f. 14.8. 1944, starfrækir
bilapartasölu, búsettur í Hafnar-
firði; Kristbjörg Lára Helgadóttir, f.
25.3. 1958, fóstra í Hafnarfirði.
Hálfsystir Jóhanns, sammæðra,
er Erla Siggerður Pálsdóttir, f. 15.2.
1932, verslunamaður í Hafnarfirði.
Foreldrar Jóhanns voru Helgi
Guðmundsson, f. 28.10. 1903, d. 3.2.
1979, bóndi að Litlu-Strönd á Rang-
árvöllum og síðar bílstjóri i Reykja-
vík, og k.h., Agnes Pálsdóttir, f.
27.11. 1912, d. 5.8. 1978, húsmóðir.
Jóhann verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Jóhann Jóels
Helgason.
DV
Tll hamingju
með afmælið
7. janúar
80 ára _____________
Þóra Þórðardóttir,
Skriðustekk 14, Reykjavík.
70 ára
Róbert Nikulásson,
Hafnarbyggð 13, Vopnafirði.
Unnur Ágústsdóttir,
Miðvangi 14, Hafharfirði.
60 ára
Ágústa Hulda Pálsdóttir,
Framnesvegi 55, Reykjavik.
Jóhann Hjálmarsson,
Miögarði 8, Neskaupstað.
Regína Jónsdóttir,
Skaröshlið 26E, Akureyri.
Sonja Sigurðardóttir,
Hátúni 10, Reykjavík.
50 ára
Jón Skúli Runólfsson,
Keilusíðu 9B, Akureyri.
Þórunn Jósefsdóttir,
Þórshamri, Borgarfjarðar-
hreppi.
Þórhalla Sigurðardóttir,
Skólagarði 6, Húsavík.
Stefanía Stefánsdóttir,
Sólvallagötu 56, Reykjavík.
Elsa Sigrún Sigurðardóttir,
Kársnesbraut 49, Kópavogi.
Anna Helgadóttir,
Hraunbæ 150, Reykjavík.
Daníel Douglas Teague,
Akurgerði, Seltjamamesi.
Halldór Ólafsson,
Reynigrand 22, Akranesi.
Þorbjörg Einarsdóttir,
Rauðarárstíg 22, Reykjavík.
Einar Magnús Kristjánsson,
Asparlundi 5, Garðabæ.
40 ára
Jóhanna Erlingsdóttir,
Flétturima 31, Reykjavík.
Valtýr Þorvaldsson,
Kleppsvegi 56, Reykjavík.
Bjöm Kristján Svavarsson,
Holtsgötu 4, Hafnarfirði.
Móeiður Sigvaldadóttir,
Víðigrund 17, Akranesi.
Guðrún Sveinsdóttir,
Kirkjuvegi 88, Vestmannaeyj-
um.
Dóróthea Jóhannsdóttir,
Laufásvegi 38, Reykjavík.
Hrefna Þórarinsdóttir,
Raftahlíð 67, Sauðárkróki.
Lára Helga Jónsdóttir,
Þorfinnsstöðum II, Þverár-
hreppi.
Skúli Sigurðsson,
Vesturbrún 8, Reykjavík.
Jón Karl Danielsson,
Bólstaðarhlið 12, Reykjavík.
Þorvaldur Kröyer,
Öldugötu 26, Hafnarfirði.
Þorkell Einarsson,
Neshaga 5, Reykjavík.
aukaafslátt af
smáauglýsingum
DV
Smáauglýsingar
PV
550 5000