Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1997, Qupperneq 36
V I K I IV
MTTt
tii fíftikf/s né Wit^0
\ V
■Jir^
V
Vinningstölur
6.1/97
@@@
KIN
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 1997
Flugeldabann:
Ókunnugt
um málið
- segir ráðherra
t „Þetta er eitthvað sem mér er
' ókunnugt um og ég get því ekki
svarað því hvort þetta sé rétt en við
þurfum auðvitað að virða þá alþjóð-
legu samninga sem við höfum skrif-
að undir. Ég hef ekki trú á þvi að
það verði auðvelt að fá undanþágu
þess eðlis að íslendingar einir fái að
skjóta upp flugeldum ef þeir hafa
skrifað undir samning sem bannar
það,“ sagði Guðmundur Bjamason
umhverfisráðherra í morgun.
Jón Oddsson lögmaður hefur
skrifað Ferðamáiaráði Islands bréf
fyrir hönd erlends leiðsögumanns
sem hefur af því áhyggjur að íslend-
ingar hafi undirritað samning Evr-
ópubandalagsins um umhverfis-
vernd sem m.a. bannar notkun flug-
elda vegna mengunarhættu.
DV lagði máiið undir Magnús
Oddsson ferðamálastjóra sem sagð-
ist ekki þekkja málið.
-ingo
Orkustofnun:
Ráðherra
hefur engin
afskipti
„Ég treysti því að Þorkell Heiga-
son orkumáiastjóri hafi tekið þessa
ákvörðun að vel yfirlögðu ráði,“
sagði Finnur Ingólfsson iðnaðarráð-
herra við DV í morgun.
Finnur var spurður að því hvort
hann sem æðsti yfirmaður Orku-
stofnunar myndi hafa afskipti af ný-
legri ráðningu í yfirmannsstöðu hjá
Orkustofnun, en Hrefna Krist-
mannsdóttir deildarstjóri telm- að
fram hjá sér hafi verið gengið og
jafnréttislög hafi verið brotin með
ráðningu karlmanns í stöðuna. Ráð-
herra kvaðst ekki þekkja til málsins
og hann myndi ekki hafa afskipti af
því. Nánar er fjallað um þetta mál á
. ^bls. 2.
-SÁ
Kópavogur:
Árásarmaður
ófundinn
Árásarmaðurinn, sem ógnaði
starfsstúlku með hnífi í sölutum-
inum Sækjöri í Kópavogi seint á
sunnudagskvöld, er enn ófundinn.
Maðurinn hrifsaði til sín peninga
og hvarf út í myrkrið. Hann var í
blárri úlpu með hettuna dregna yfir
höfuð. Lögregla hefur leitað hans en
án árangurs.
~— -RR
Feðgin óku vélsleðum fram af klettum í nágrenni ÓlafsQarðar:
Bjargaði okkur að
lenda í sjónum
„Ég tel okkur feðginin heppin að
vera á lífi eftir þetta. Við flugum
fram af klettinum og lentum í sjón-
um. Það
bjargaði án
efa lífi okkar
því ef við
hefðum lent í
grýttri fjör-
unni þá hefði
varla þurft að
spyrja að
leikslokum,"
segir Anton
Konráðsson
sem lenti í al-
varlegu vélsleðaslysi ásamt 13 ára
gamalli dóttur, Júlí Ósk Konráðs-
dóttir, í nágrenni Ólafsfjarðar sl.
laugardag.
Þau feðginin voru á ferð á vélsleð-
um sínum á Kleifunum, skammt frá
Ólafsfjarðarbæ, þegar þau óku sleð-
unum fram af 6 metra háum kletti.
Stúlkan var flutt á Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri og þar kom í
ljós að hún hafði hryggbrotnað í
slysinu. Tveir hryggjarliðh' brotn-
uðu en mænan slapp við skaða og
því lamaðist stúlkan ekki. Hún var
flutt til Reykjavíkur og lögð inn á
Landspitalann þar sem hún gekkst
undir aðgerð í gær. Anton slapp
ómeiddur úr slysinu.
Örvæntingarástand
„Ég veit
hreinlega ekki
hvað fór úr-
skeiðis. Við
ókum sleðun-
um þarna á
Kleifunum og
höfum i ótal
skipti farið
þarna um
áður. Skyndi- Júh- ósk Antons-
lega áttaði ég á dóttir
mig að við vor-
um að koma að klettunum. Það varð
algert örvæntingarástand, öll rökrétt
hugsun stöðvaðist. Við náðum ekki
að stöðva sleðana og flugum fram af
klettunum.
Ég rankaði við mér i sjónum og
hugsaði um það eitt að komast til
dóttur minnar sem lá þama í sjón-
um skammt frá mér. Ég studdi hana
upp í fjöruna en þar kvartaði hún
undan miklum verk í bakinu. Við
náðum að komast upp úr fjörunni og
gengum nokkur hundruð metra. Þá
skaut ég neyðarblysi á loft sem ég
hafði meðferðis. Fljótlega kom að
maður á sleða sem var þarna
skammt frá og þar með vorum við
hólpin.
Dreymdi slysið
Það furðulega er að dóttir mín
sagði mér nú á spítalanum að hana
hefði dreymt að hún mundi lenda í
slysi á vélsleða. Ég á ekki von á því
að við hættum að keyra vélsleða
þrátt fyrir slysið. Ég mundi varla
hætta að keyra bíl þó ég lenti í
bílslysi. Slysin gera ekki boð á und-
an sér og geta orðið hvar sem er.
Annað vélsleðaslysið
Þetta er annað alvarlega vélsleða-
slysið sem verður í nágrenni Ólafs-
fjarðar á einni viku en laugardaginn
28. desember sl. slasaðist tvítugur
ÁRDALUR
nAivfu
Tvö alvarleg
vélsleðaslys
- f náír«nnl Ólafsf]«r6ar i elnnl vlku -
vélsleðamaður alvarlega þegar hann
fór niður hengju á sleða sínum. Það
gerðist í fjallshlíðunum í Ytri- Árdal,
sem er skammt frá Kleifúnum þar
sem slysið sl. laugardag varð.
-RR/HJ
Skautadrottningarnar Edda og Guðbjörg renna sér fimlega á skautasvellinu
í Laugardal. Þar var margt um manninn og sérstaklega er yngri kynslóðin
iðin við að stunda þessa skemmtilegu vetraríþrótt.
DV- mynd GVA
Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ:
Ekkert sem eykur
manni bjartsýni
- kjaradeilan líklega til sáttasemjara
„Hvort það stefnir í verkfóll inn-
an tíðar ætla ég ekki að fullyrða
um. Hitt er því miður staðreynd að
það er ekkert sem hefur aukið
manni bjartsýni á allra síðustu vik-
um eftir samþykkt fjárlaga og fleira.
Þá ber öllum okkar megin í samn-
ingaviðræðunum saman um að ekki
hafi fengist fram nema mjög tak-
markaðar efnislegar viðræður í
haust. Það eru auðvitað vonbrigði
að ekki skuli hafi miðað meira sið-
ustu vikurnar fyrir jól. Það er því
ekki nema von að hljóðið sé orðið
þungt í samningamönnum verka-
lýðsfélaganna," sagði Grétar Þor-
steinsson, forseti Alþýðusambands-
ins, í morgun.
Hann sagði að viðræður væru
ekki hafhar enn eftir það hlé sem
gert var um helgidagana. Líkur
væru á að viðræður hæfust aftur
um eða eftir næstu helgi og þá
kæmi fljótt í ljós hvert þær stefndu.
„Ég tel líklegt að kjaradeilum
allra verkalýðsfélaganna verði fljót-
lega vísað til ríkissáttasemjara. Það
er svo bara spumingin um þolið í
mönnum eftir það hvert framhaldið
verður," sagði Grétar Þorsteinsson.
-S.dór
ÞESSI STOFNUN
EYDIR MIKILLI ORKU í
JAFNRÉTTISMÁLIN!
Veðrið á morgun:
Snjómugga
norðanlands
Á morgun verður hæg breytileg
átt. Þokubakkar og dálítii súld
vestast á landinu en léttskýjað
annars staðar. Talsvert frost i
innsveitum en frostlitið við sjáv-
arsíöuna. Síðdegis má reikna með
austan- og norðaustankaida og þá
með snjómuggu norðanlands en
suðvestantil léttir til.
Veöriö í dag er á bls. 36
MERKILEGA MERKIVELIN
brother pt-2pq_
íslenskir stafir
5 leturstæröir
8 leturgerðir
6, 9 og 12 mm prentboröar
Prentar í tvær linur
Verð kr. 6.995
Nýbýlavegi 28 Slmi 554 4443
-r Bylti ng \ í pizzum / lO.jan.
o P»j«a 4iut.