Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1997, Side 7
+
FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 1997
Fagra veröld í Borgarleikhúsinu:
Orðsnilld og margþætt skírskotun
Á morgun, laugardaginn 11. janúar, veröur nýr íslenskur söngleikur
frumsýndur. Hér er um að ræða verkið Fagra veröld eftir Karl Ágúst
Úlfsson við tónlist eftir Gunnar Reyni Sveinsson. Eins og tit-
illinn gefur til kynna er verkið byggt á Ijóðum
hins ástsæla skálds
Söngleikurmn Fagra Tómasar Guðmunds-
veröld er gerður eftir sonar en að ýmsu
samnefndri leyti hefur hann
Ijoðabok Tomasar sérstöðu á meðal
Guömundssonar íslenskra skálda.
en vinsældir
hennar voru
slíkar aö enn
er í manna
minnum.
Spenna, rómantík og fjör
Ljóðabók Tómasar, Fagra veröld, naut ótrú-
legra vinsælda, reyndar svo mikilla að það er
umhugsunarvert enn í dag. Orðsnilld hans,
margþætt skírskotun
sem ljóð hans höfðu
og makalaus frum-
leiki í meðferð
málsins hitti íslend-
inga í hjartastað.
Og á meðan önnur
skáld og talsverð-
ur hluti þjóðar-
innar lýstu af
bölmóði og
vandlætingu
siðspillingunni í höfuðborg landsins og
hörmuðu fólksflóttann úr blómlegum
og óspilltum sveitunum gerði Tómas
hina undarlegu „stórborg"
Reykjavík spennandi, róman-
tíska og fjörmikla, gerði hana að
borg æsku og ásta. Það sem aðr-
ir fundu borginni til lasts verð-
ur hjá Tómasi að hástemmdu
lofí í bland við fjörlega og ein-
staka glettni.
Karl Agúst Ulfsson hef-
ur veriö afkastamikill
aö undanförnu. Fagra
veröld er nýjasta verk
hans.
Sýning á úrvali úr flóru íslensk list-
handverks eftir 24 listamenn verður
opnuð i dag kl. 16.00 í Ráðhúsi Reykja-
víkur. Sýningin, sem er samstarf
Handverks, reynsluverkefnis á veg-
um forsætisráðuneytisins, og Happ-
drættis SÍBS til kynningar á ís-
lensku listverki, mun standa yfir
til 14. janúar. Guðni Franzson
klarínettuleikari spilar á opnun-
inni.
Skartgripir, klæði, leikföng, hús-
munir og hattar eru meðal þess
sem til sýnis verður. Sýningar-
gripirnir eru unnir úr leir,
leðri, ull og silki, gulli og kopar,
gleri og tré. Munirnir á sýning-
unni eru valdir af Handverki
og eru á vinningaskrá Happ-
drættis SÍBS 1997.
Þennan skemmtilega grip er aö finna á sýningu á íslensku handverki
í Ráöhúsinu.
Sigrún Sól leikur öll hlut-
verk í verki Megasar,
„Gefin fyrir drama þess
dama.“
Höfðaleikhúsið:
Dramadaman
aftur í gang
A morgun, laugardaginn 11. janúar, hefj-
ast aftur sýningar á leikritinu „Gefín fyrir
drama þessi dama og öllum stendur svo
innilega á sama“ eftir Megas. Áformað er
að sýna þétt í janúar en að því loknu verð-
ur að hætta sýningum.
Sýningar hófust í september á síðasta ári
og var sýnt sleitulaust til jóla, alls 26 sýningar.
Leikritið, sem hefur hlotið mjög góðar viðtökur, jafnt hjá gagnrýnendum
sem öðrum leikhúsgestum, ijallar um ólíkar manneskjur úr ýmsum af-
kimum þjóðfélagsins. Verkið er fullt af kímni, sorg, drama, hæðni og mik-
illi meðaumkun og þykir texti Megasar einstakur og notkun hans á málinu
slík snilld að mikla eftirtekt vekur.
Sigrún Sól leikkona leikur öll hlutverkin og Hörður Bragason organisti
hannaði hljóðmynd jafnframt því sem hann tekur þátt í sýningunni og spil-
ar á fjölda hljóðfæra. Leikstjóri er Kolbrún Halldórsdóttir, leikmynd og lýs-
ingu hannaði Egill Ingibergsson og búninga Þórunn Elísabet Sveinsdóttir.
Spessi á Mokka
Hetjur lands og þjóðar
Ljósmyndarinn Spessi hefur nú sett upp myndaröð sína, „Hetjur", á
Mokka-kaffi við Skólavörðustíg. Hún var áður til sýnis í Tjöruhúsinu á
ísafirði á síðasta ári við mikinn áhuga bæjarbúa, enda heimkynni þessara
afreksmanna.
„Hetjur“ Spessa eiga lítið skylt við hormónatröll hvíta tjaldsins, hvað þá
ofurfyrirsætur glanstímaritanna. Við okkur blasa rosknir og vörpulegir
sjóarar, uppá-
klæddir í sínu
fínasta pússi.
Þetta eru karlar
í krapinu, rún-
um ristir vinnu-
þjarkar sem
stritað hafa frá
blautu bams-
beini við að
færa þjóðinni
björg í bú. í and-
litsdráttum
þeirra virðist
mega lesa veður-
far landsins
undanfarna öld.
Jafhvel efha-
hagslínurit þjóð-
arinnar.
Sýning Spessa
á Mokka-kaffi Hetjur Spessa eru ólíkar kraftajötnum kvikmynd-
„ , , . anna en engu minm, nema siöur se.
6. februar.
Ráðhús Reykjavíkur:
íslenskt
handverk
=*» helgina 21
★
SÝNINGAR
Deiglan. Snorri Ásmundsson. „Lát
sæng þína ganga“. 30% af ágóða sýn-
ingarinnar fara í fikniefnaforvamir.
Gallerí Hornið, Hafnarstræti 16.
Bandaríska listakonan Lulu Yee sýn-
ir kraftaverkamyndir. Opið alla daga
til 22. janúar.
Gatlerí Sýnirými. Þijár sýningar. í
Galleríi Sýniboxi: Haraldur Jónsson.
í Galleríi Barmi: Róbert Róbertsson
og Ragnheiður Ágústsdóttir. f Galler-
íi Hlust: G.R. Lúðvíksson.
Listacafé, Listhúsi, Laugardal.
Magdalena Margrét Kjartansdóttir
sýnir verk sín.
Listasafn Islands. Sýning á verkum
Edvards Munch stendur til 19. jan.
Myndlist Eiríks Smith 1963-68 til 2.
febrúar 1997. Opið frá 11-17 alla
daga nema mánud.
Listasafn Siguijóns Olafssonar,
Laugarnesi. Sýning 91 á völdum
verkum hans. Opið laugard. og
sunnud. milli kl. 14 og 17.
Listhús 39, Strandgötu 39, Hafn-
arfírði. Laugardaginn 11. janúar kl.
16 verður opnuð sýningin „Af tvenn-
um toga“, samsýning Önnu Guðjóns-
dóttur og Erlu Sólveigar Óskarsdótt-
ur. Opið virka daga frá 10-18, laug-
ard. kl. 12-18 og sunnud. kl. 14-18
til 26. janúar.
Listhúsið í Laugardal, Engjateigi
17. Verk eftir Sjöfn Har. Opið virka
daga kl. 13-18 og lau. kl. 11-14.
Listþjónustan, Hverfísgötu 105.
Hafsteinn Austmaim sýnir akvarell-
ur frá ýmsum tímum til 2. febrúar.
Opið alla daga nema mánud. kl.
12-18, laugard. og sunnud. kl.
14-18.
Menntamálaráðuneytið, Sölv-
hólsgötu. Daði Guðbjömsson sýnir
olíumálverk.
Mokka, Skólavörðustíg 3a. Ljós-
myndarinn Spessi hefur sett upp
myndaröð sína „Hetjur". Sýningin
stendur tii 6. febrúar.
Norræna húsið. 11. janúar opna „
myndlistarmennirnir Gerhard Ro-
land Zeller og Þór Ludwig Stiefel
málverkasýningu. Opið daglega frá
kl. 12-18 til 26. janúar.
Sýning á veggspjöldum, sem gerð
vora af skólabömum í tengslum við
norrænu lestrarkeppnina Mími,
stendur yfir í anddyri hússins til 29.
janúar.
Ráðhús Reykjavíkur. Anna Leós
með myndlistarsýningu.
Sýningin íslenskt handverk, úrval
muna eftir 24 listamenn, stendur til
14. janúar. Opið virka daga frá 8-19
en um helgar frá 12-18.
Sjónarhóll, Hverfísgötu 12. Sýn-
ing Bjama Sigurbjömssonar. Opið
fimmtud.-sunnud. kl. 14-18 til 27.
janúar.
Sparisjóður Reykjavíkur og ná-
grennis, Álfabakka 14. Sýning á
verkum Vignis Jóhannssonar til 8.
apríl.
Stöðlakot, Bókhlöðustíg 6,
Reylqavík. 11. janúar verður opnuð
sýning á olíumálverkum Sigurðar
Hauks Lúðvíkssonar. Opið alla daga
nema mánud. kl. 14-18 til 28. janú-
ar.
Undir Pari, Smiðjustíg 3. Til 25.
jan. stendur yfir sýning Frakks sem
ber yfirskriftina Undur og hljóð-
merki. Opið fimmtudaga til laugar-
daga kl. 20-23.
Áskrifendur
aukaafslátt af
smáauglýsingum
DV
t