Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1997, Side 20
32
+
MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 1997
Sviðsljós
Aukablað um
tölvur
Miðvikudoginn 5. febrúar mun nuknblað
um tölvur og tölvubúnað
BlaSiS verSur fjölbreytt og efnismikiS en í því
verSur fjallaS um flest þaS er viSkemur tölvum
og tölvunotkun. I blaSinu verSa upplýsingar
um bæSi hugbúnaS og vélbúnaS, (Dróun og
markaSsmál ásamt smáfréttunum vinsælu.
Þeim sem vilja koma á framfæri efni í blaSiS
er bent á aS hafa samband viS Jón HeiSar
Þorsteinsson í síma 550-5819 fyrir
fimmtudaginn 30. janúar.
Þeir auglýsendur sem hafa áhuga á aS aug-
lýsa í þessu aukablaSi vinsamlega hafi sam-
band viS Selmu Rut Magnúsdóttur, auglýsingadeild
DV, hiS fyrsta í síma 550-5720, í síSasta lagi
fimmtudaginn 30. janúar.
Mel Gibson hefur fallist á aö
vera kynnir við afhendingu
óskarsverðlaunanna í mars-
mánuði. Mel, sem fór heim
með tvær styttur í fyrra fyrir
myndina um hetjuna William
Wallace, er ekki ókunnugur
starfinu, hefur gegnt því fimm
sinnum áður. Hann er fyrsti
kynnirinn sem greint hefur
verið frá opinberlega.
Whitney fram-
leiðir bíómynd
Söngkonan Whitney Hous-
ton hefur getið sér gott orð fyr-
ir kvikmyndaleik á undanfbm-
um misserum. Hún hefur ekki
í hyggju að láta þar staöar
numið heldur ætlar að færa
sig upp á skaftið og framleiða
rómantíska gamanmynd sem
heitir þvi ágæta nafni: Hvem-
ig á að giftast blökkumanni.
Myndin er byggð á metsölubók
eftir tvær konur.
Erfitt að fá Lindu
upp að altarinu
Frá því að ofurfyrirsætan Linda Evangelista og kvikmyndaleikarinn Kyle
Maclachlan, sem þekktur er fyrir leik sinn í Twin Peaks, hittust og urðu ást-
fangin fyrir fjórum árum hefur hann reynt að fá hana til að ganga upp að
altarinu.
Það virðist þó sem Lindu liggi ekkert á þó hún hafi lýst yfir áhuga á að
stofna fjölskyldu einhvem daginn. Hún hefur verið með Kyle frá því að hún
skildi við mann sinn, Gérald Marie, sem stjómar fyrirsætuumboðinu Elite.
Ekki hafa sést nein merki um að brestir séu í sambandi Lindu og Kyle né
heldur áhugaleysi. Hún virðist bara vilja vera ógift enn vun sinn.
Kyle Maclachlan og Linda Evangelista.
t
Mel verður
kynnir á ósk-
arsathöfn
Amerísku tónlistarverðlaunin afhent í Los Angeles:
Braxton og Morissette
fóru klyfjaðar heim
Blökkusöngkonan Toni Braxton vakti mikla athygli þegar hún tók lagið við afhendingu Amerísku tónlistarverölaunanna á mánudags-
kvöld. Toni fór heim með tvenn verölaun. Hið sama gerði hin kanadíska Alanis Morissette en Mariah Carey fékk engin, þrátt fyrir flest-
ar tilnefningar. Sfmamynd Reuter
Það á ekki af
henni Mariuh
Carey að ganga,
óhamingju henn-
ar verður allt að
vopni þessa dag-
ana. Einn einu
sinni fóm leikar
svo að hún fékk
ekki tónlistar-
verðlaun sem þó
hefði mátt ætla
að hún mundi fá.
Hér er átt við
Amerísku tón-
listarverðlaunin
sem vom afhent
við hátíðlega at-
höfh í Los Angel-
es á mánudags-
kvöld. Stöllur
hennar, þær
Toni Braxton og
Alanis Moris-
sette, fóm aftur á
móti heim með
fullt fangið af
verðlaunagrip-
um.
Braxton og
Morisette fengu
hvor um sig
tvenn verðlaun.
Carey hafði hins
vegar fengið
flestar tilnefning-
ar, eða fimm
stykki. Það dugði
þó skammt, ekki
frekar en tilnefn-
ingamar sex sem
hún fékk fyrir
Grammy verð-
launin á síðasta ári. Sjálfsagt hefur
Carey fundið þetta á sér því hún
hafði ekki einu siimi fyrir því að
mæta á skemmtunina.
Margir aðrir frægir og flottir
hlutu verðlaun að þessu sinni. Þar
skal nefha sveitasöngvarann Garth
Brooks, gamla brýnið Eric Clapton,
sveitimar Metallicu, Smashing
Pumpkins og Hootie and the Blow-
fish, að ógleymdri hinni fjórtán ára
sveitasöngkonu LeAnn Rimes.
Braxton fékk verðlaun fyrir að
vera uppáhaldslistakonan og eiga
uppáhaldsplötuna í flokki ryþmabl-
ústónlistar. Hún tók lagið á samko-
munni og þótti búningur hennar í
djarfara lagi. Alanis Morissette kom
ekki fram á hátíðinni en hún fékk
samsvarandi verðlavm fyrir popp-
tónlist.
Rapparinn Tupac Shakur, sem
var myrtur í skotárás í Las Vegas á
síðasta ári, var kjörinn vinsælasti
rapparmn.
Loks skal geta söngkonunnar
Jewel sem er nýliði í bransanum og
hélt afar hjartnæma þakkarræðu
þar sem fram kom að hún hefði nú
búið í bílnum sínum fyrir ekki svo
löngu en núna væri hún stigin á
verðlaunapall.