Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1997, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1997, Page 7
A>V FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1997 Urslitin Fyrir viku fór fram undankeppn- in á íslandsmeistaramótinu í frjáls- um dönsum á höfuðborgarsvæðinu. Keppt var bæði í hóp- og einstak- lingsdönsum og mikill fjöldi ung- linga kom saman í Tónabæ til að fylgjast með keppninni. í kvöld klukkan 20.00 hefst svo sjálf úrslitakeppnin en þá munu keppendur alls staðar af landinu berjast um íslandsmeistaratitilinn. Þetta er í sextánda skiptið sem keppni þessi er haldin og er hún alltaf jafn vinsæl á meðal ungling- anna. Rétt er að taka fram að í undan- keppninni fyrir höfuðborgarsvæðið bar hópurinn Dust sigur úr býtum. í honum eru fimm vaskar meyjar, þær Inga Maren Rúnarsdóttir, Þór- dís Schram, María Þórðardóttirr, Ásdísi Ingvarsdóttir og Sigyn Blön- dal. í einstaklingskeppninni var það Sigrún Bima Blomsterberg sem var Hún Sigrún Birna Blomsterberg sigraöi í einstaklingskeppninni. í fyrsta sæti. -ilk Gugga í Skruggusteini Nú er listmunagalleríið Skruggusteinn rúmlega ársgamalt. í tilefni þess var tekið í notkun „Skot“ í galleríinu sem hentugt er fyr- ir litlar sýningar. Nú stendur þar yfir myndlistarsýning Guggu (Guðbjargar Hákonardóttur). Á sýningunni eru sjö myndir málaðar með olíu og er þema sýningarinn- ar Undir yfirborð- inu. Gugga útskrif- aðist frá Myndlista- og handíðaskóla ís- lands árið 1995. þá Þetta er hún Gugga. hefur hún einnig Myndlistarskóla stundað nám í Reykjavíkur, i Finnlandi og víðar. Skruggu- steinn er að Hamraborg 20a í Kópavogi og er opið þar virka daga frá kl. 12.00 til 18.00 og laugar- daga frá kl. 11.00 tU 16.00. Sýning Guggu í Skruggusteini mun standa til 6. mars. -ilk Þetta er listakonan Kristín Geirs- dóttir sem hefur tímann aö við- fangsefni í þetta skiptið. Kristín Geirsdóttir opnar sýn- ingu á kolamyndum í Stöðlakoti að Bókhlöðustíg 6 í Reykjavík á morgun klukkan 14.00. Á sýning- unni verða átta stærri verk auk nokkurra minni. Myndimar em unnar með kolum og línolíu á pappír en viðfangsefnið er tíminn, hvemig hann gengin- á alla hluti. Kristín útskrifaðist úr málara- deild MHÍ árið 1989. Hún hefur haldið nokkrar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum bæði hér heima og erlendis. Sýningin í Stöðlakoti verður opin alla daga nema mánudaga frá klukkan 14.00 til 18.00. Henni lýkur svo sunnu- daginn 2. mars. -ilk Klassískur djass Einn ástsælasti hljómborðsleikari íslands, Þórir Baldursson, mun ásamt hljómsveit sinni leika klass- ískan djass og íslensk lög á Jóm- frúnni í kvöld. Hljómsveitina skipa, auk Þóris, þeir Jóel Pálsson, sem leikur á tenórsaxófón, Vil- hjálmur Guðjónsson á altsaxófón og gítar, Róbert Þórhallsson á bassa og Jóhann Hjörleifsson á trommur. Þessir athyglisverðu tónleikar eru á vegum djass- klúbbsins Múlans og hefjast klukkan 21.00 stundvíslega. Miða- verð er 1.000 krónur en 500 fyrir skólafólk og aldraða. -ilk frjálsum dönsum Þetta er hópurinn Dust sem stóö sig best í hópdansinum. Þjóðlagamessa í fyrsta sinn í Hafnarfjaröarkirkju veröur flutt þjóðlagamessa samkvæmt norænni þjóö- lagahefö. Á sunnudaginn verðm- sungin þjóðlagamessa í fyrsta sinn á ís- landi. Þjóðlagamessan er ættuð frá Svíþjóð og er flutt samkvæmt nor- rænni þjóðlagahefð. Allir liðir mess- unnar hafa verið endursamdir sam- kvæmt hljómfalli þjóðlagatónlistar- innar. Bænir, textar og hið talaða mál er sömuleiðis samið í samræmi við þessa hefð. Höfundur messunn- ar er sænski presturinn og vísna- skáldið Per Harling. Séra Þórhallur Heimisson hefur þýtt messuna á ís- lensku og Öm Amarson útsetti hana. í messunni verður fmmflutt- ur nýr altarisgöngusálmur er Per Harling samdi einnig og séra Þór- hallm- þýddi. Þjóðlagatríó leikur undir öllum söng og messutóni og kór kirkjunnar leiðir sönginn. Allir prestar kirkjunnar taka þátt í mess- unni sem byrjar kl. 20.30 í kvöld. -ilk J0n helgina ~ ** ★ SÝNINGAR Gallerí +, Brekkugötu 35, Akur- eyri. Sýningin „Án leiðarvísis" stendur til 23. febrúar. Opiö lau. og sun. frá kl. 14-18. Gallerí Fold v/Rauðarárstig. Lau. 15. feb. kl. 15 verður opnuðr sýning: Olivur við Neyst i baksal. Stendur til 2. mars. Opið daglega irá kl. 10-18, lau. frá kl. 10-17 og sun. frá kl. 14-17. Gallerí Hornið, Hafnarstræti 15. Lau. 15. feb. kl. 17 opnar Sigríður Gíslad. sýningu. Stendur til 5. mars. Sýningin er opin alla daga kl. 11-23.30. Gallerí Ingólfsstræti 8. Síðasta sýn- ingarhelgi á verkum Halldórs Ás- geirssonar. Opiö fim. til sun. kl. 14-18. Galleri Listakot, Laugavegi 70. Framlenging á sýningu til 1. mars. Opiö 12-18 virka daga og 10-14 laug- ardaga. Gailerí Sýnirými. í Gallerí Sýni- boxi: Þóroddur Bjamason; í Gallerí Barmi: Sigriður Ólafsd., berandi Edda Andrésd. Gallerí Hlust: Surpris. Gallerí Tré: Margrét Blöndal. Gallerí Sævars Karls, Bankastræti 9. Sigurborg Stefánsd. opnar sýningu í dag, 14. feb. Opið frá kl. 10-18 virka daga. Gerðuberg. Sýning á verkum eftir Finnboga Pétursson til 30. mars. Hafnarborg, Hafnarfirði. Sýning á verkum eftir Einar Baldvinsson auk samsýningar hóps listamanna úr Hafnarfirði, standa til 17. febr. Kirkjuhvoll, Akranesi. Sýningin „Úr landslagi í afstrakt" stendur til 23. feb. Opið frá 19-21 virka daga og frá kl. 15-18 um helgar. Kjarvalsstaðir. Yfiriitssýning á verkum eftir Hring Jóhannesson í vestursal, sýning á nýjum verkum eftir Jónínu Guðnad. í miðsal og sýn- ing á verkum eftir Jóhannes S. Kjar- val í austursal. Opið daglega kl. 10-18. Leifsstöð. Sýning á málverkum eftir Þórð Hail. Stendur til 16. mars. Listacafé, Listhúsi, Laugardal. Magdalena Margrét Kjartansdóttir sýnir verk sín. Listasafn íslands. Sýning á högg- myndum Max Ernst stendur til 30. mars. Opið kl. 11-17 nema mán. Listasafn íslands, Bergstaðastræti 74. Safn Ásgríms Jónssonar, vatns- litamyndir, febrúar-maí. Safnið er opið um helgar, kl. 13.30-16. Listasafn ASÍ við Freyjugötu. Lau. 15. feb. kl. 16.00 opnar Gunnar Kr. Jónasson sýningu í Ásmundarsal. Stendur til 2. mars og er opin frá kl. 14-18 alla daga nema mán. Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn. Ásdís Sigurþórsdóttir og Helgi Gísla- son í vestursal, Sólveig Helga Jónas- dóttir á neðri hæð. Sýn. standa til 2. mars og eru opnar frá kl. 12-18. nema mán. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnesi. Sérstök skólasýning með völdum verkum eftir Sigurjón. Opið lau. og sun. kl. 14 og 17 og eftir samkomulagi. Listhús 39, Strandgötu 39, Hafhar- firði. Sýning Bergsteins Ásbjöms- sonar „7797“. Opiö virka daga frá 10-18, lau. kl. 12-18 og sun. kl. 14-18. Lýkur 16. febr. Listhúsið í Laugardal, Engjateigi 17. Verk eftir Sjöfh Har. Opið virka daga kl. 13-18 og lau. kl. 11-14. Listþjónustan, Hverfisgötu 105. Sýning á verkum Bjöms Bimis. Opið aíla daga nema mán. frá kl. 12-18 og um helgar frá kl. 14-18. Menntamálaráðuneytið, Sölvhóls- götu. Daði Guðbjömsson sýnir olíu- málverk. Mokka, Skólavörðusttg 3a. „Þaö er siminn til þin“, sýning Magneu Ás- mundsdóttur stendur til -6.3. Norræna húsið. Ljósmyndasýning Norðmannsins Mortens Krogvold stendur tU 16. febr., opin daglega kl. 14-19. t anddyrinu: Verk eftir finnska grafiska hönnuðinn Mikko Tarvonen tU 19. febr. Nýlistasafnið, Vatnsstíg 3b. Sýning á verkum HoUendingsins Joris Ra- demaker i neðri sölum. 16. febrúar verður performance kl. 15. Allir vel- komnir. Opið daglega frá kl. 14-18 tU 16. febr. Sjónarhóll, Hverfisgötu 12. Sýning Finnboga Péturssonar stendur yfir tU 2. mars og er opin fim - sun. frá kl. 14-18. Skruggusteinn, Hamraborg 20a. Myndlistarsýning Guggu (Guðbjarg- ar Hákonardóttur) stendur tU 6. mars. Opið virka daga kl. 12-18 og lau. kl. 11-16. SPRON, Álfabakka 14. Sýning á verkum Vignis Jóhannssonar til 8. aprU. Stöðlakot, Bókhlöðustig 6. Kristin Geirsd. opnar sýningu á kolamynd- um lau. 15. feb. kl. 14. Opið frá kl. 14-18 nema mán. Stendur tU 2. mars. World Class, Fellsmúla 24. Helga Siguröard. opnar myndlistarsýningu sun. 16. feb. kl. 16. Stendur tU 2. mars og er sérstæklega opin almenningi næstu tvær helgar frá kl. 14-19. Önnur hæö, Laugavegi 37. Sýning á verkum Eyborgar Guðmundsd. er opin á miö. frá 14-18 í feb. og mars.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.