Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1997, Síða 9
FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1997
Utlönd
9
o»t mwi nirriin.
ífDi
smoaugtysingar
ov
550 5000
Tony Blair kynnir kosningastefnuskrá sína í dag:
Lofar að standa
við loforðin sín
Tony Blair, leiðtogi breska Verka-
mannaflokksins, kynnir kosninga-
stefnuskrá sína i dag og ætlar að
bjóða kjósendum nýjan „samning“
til að sannfæra þá um að hann
muni standa við loforð sín ef hann
verður forsætisráðherra.
Niðurstöður nýrrar skoðana-
könnunar munu efalaust verða til
að Blair vaxi ásmegin þar sem
flokkur hans hefur enn á ný aukið
forskot sitt á íhaldsflokk Johns
Majors forsætisráðherra. Sam-
kvæmt könnuninni, sem birtist í
blaðinu Times í morgun, fengi
Verkamannaflokkurinn 55 prósent
atkvæða ef kosið væri nú en íhalds-
flokkurinn aðeins 28 prósent. Kosn-
ingamar verða 1. mai næstkom-
andi.
Niðurstöður könnunarinnar
benda til að íhaldsflokkurinn gjaldi
fyrir ítrekaðar ásakanir á hendur
ýmsum þingmönnum hans fyrir
fjöllyndi og fyrir að hafa borið upp
fyrirspumir í þinginu 1 skiptum fyr-
ir fé. Einn þessara þingmanna, Pi-
ers Merchant, var þó valinn fram-
bjóðandi flokksins í kjördæmi sínu
á ný í gær, þrátt fyrir háværar kröf-
ur um að hann segði af sér.
Merchant er sakaður um að hafa
haft kynmök við sautján ára gamla
framreiðslustúlku á næturklúbbi.
Hann þvertekur fyrir það og segist
hafa verið leiddur í gildm af blaða-
mönnum.
En aftur að Blair. Hann sendi frá
sér handskrifaðan „samning“ í gær
þar sem hann tilgreinir tiu helstu
loforðin sem hann vill að verði
þungamiðja kosningastefnuskrár
sinnar. Ráðgjafar hans segja hann
sannfærðan um að Bretar séu orðn-
ir þreyttir á stjórnmálamönntun
sem geri ekki annað en svíkja kosn-
ingaloforð sín þegar þeir komast til
valda. Blair mun því halda sig við
loforð sem hann veit að hann getur
staðið við.
í samningntun segir Blair m.a. að
Verkamannaflokkurinn muni ekki
hækka tekjuskattinn og að verð-
bólgunni verði haldið í skefjum,
menntamálin verði sett í öndvegi og
framlög til þeirra aukin.
Reuter
Ferd á
Skeiðarársand
laugardaginn
5. april
LeiSsögumaSur á sandinum verSur SigurSur Bjarnason
ferSabóndi á Hofsnesi í Oræfum.
VerS kr. 2.200, yngri en 12 ára kr. 1.000.
Upplýsingar í síma 588 8660
Vib höfum þjónab innlendum og erlendum
ferðamönnum í meira en 30 ár, í byggb og óbyggb.
Leigjum út hópferbabíla fyrir allt ab 60 farþega.
SNÆLAND GRÍMSSON
Langholtsvegur 115 • Sími 588 8660
Slösuðust í
jarðskjélfta
í Japan
Að minnsta kosti fjórir slösuð-
ust þegar jarðskjálfti, sem mæld-
ist 5,5 á Richter, reið yfir eyjuna
Kyushu í Japan snemma í morg-
un. Að sögn talsmanns lögregl-
unnar olli jarðskjálftinn því að
aurskriður féllu á fjórtán stöðum.
Reuter
Bandaríski kvikmyndaleikstjórinn John Waters, höfundur hinnar sígildu
myndar um Bleiku flamingófuglana, er hér með tveimur klæðskiptingum í
gervi hinnar guðdómlegu Divine, sem lék aðalhlutverkið í myndinni. Tilefn-
ið er 25 ára afmæii myndarinnar og sýning í Los Angeles. Sfmamynd Reuter
Færeyjar:
Efnahagslegt
hrun blasir við
Efnahagslegt hrun blasir við á ný
í Færeyjum. Rányrkja ógnar fisk-
stofhunum. Og neyslan eykst svo
gífurlega að landsbankastjóri Fær-
eyja varar fólk við.
Ekki eru nema fjögur ár síðan
efnahagur Færeyja hrundi eftir
margra ára rányrkju. Þá varð land-
stjómin að fara til Danmerkur og
betla til þess að fá aðstoð við að
borga af erlendum skuldum.
Ný uppsveifla i fiskveiðum hefúr
leitt til neyslufyllirís. Meðal annars
hefur sala á bílum næstum tífaldast
á undanfömum fjórum árum. Tekj-
unum af veiðunum er ekki varið til
fjárfestinga sem gætu stuðlað aö
efliahagslegri fótfestu.
Landsbankinn leggur til að virð-
isaukaskatturinn, sem hú er 25 pró-
sent, verði hækkaður um 1 til 2 pró-
sentustig til þess að hægt sé að
stýra neyslunni. Sigurd Poulsen,
bankastjóri Landsbankans, bendir á
að hækkun virðisaukaskatts leiði til
þess að almenningur slái neyslunni
á frest til þess að uppsveiflan fram-
lengist. Þegar fyrirtækin hafi sýnt
arðsemi í nokkurn tíma þori fólk að
fjárfesta.
Hafrannsóknastofnunin í Færeyj-
um varar samtímis við því að sjó-
menn hafi svo að segja fengið frjáls-
ar hendur til þess að tæma hafið á
ný af fiski. Horfið hafi verið frá
kvótakerfinu og i staðinn fái hvert
skip ákveðinn fjölda veiðidaga.
Kerfið virki eins og engin takmörk-
un sé.
Askrifendur fá
aukaafslátt af
smáauglýsingum
DV
Helgartilboð:
Sendum í póstkröfu
Doblin jakkapeysa
stk. 3.990
2stk.4.990
’
Laugavegi 81
Sími 552 1844
Kringlan
Sími 581 1944
Politiken