Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1997, Page 13
FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1997
Fréttir
13
DV
Fjöldatakmörkun í lyQafræöi í HÍ:
Aðeins 12 lyfjafræði-
nemar fara áfram
Ákveðið hefur verið að taka upp
fjöldatakmörkun í lyíjafræði í Há-
skóla íslands. Aðeins 12 nemendur
munu komast áfram í lyfjafræði á
næstu skólaönn þegar framkvæmd-
in tekur gildi. Ákvörðun þessi var
tekin á fundi háskólaráðs á dögun-
um.
„Þessi fjöldatakmörkun var notuð
í lyfjafræði fyrir nokkrum árum en
hefur ekki verið notuð þar undan-
farin ár. Ein aðalástæðan fyrir
þessu er tilskipun sem kemur frá
lyfjafræðingum i Evrópu og kröfur
frá Evrópusambandinu um aukna
starfsþjálfun lyfafræðinema. Það
þarf að koma nemum fyrir í starfs-
þjálfun í apótekum og þeir munu nú
þurfa að minnsta kosti 6 mánaða
starfsþjálfun á námstímanum en
áður var það 3 mánuðir minnst. Að-
eins 30 nemendur komast að hjá ap-
ótekum hér á landi í þrjá mánuði á
sumrin," segir Þórður Kristinsson,
kennslustjóri í Háskólanum.
-RR
Sala hlutabréfa í Hraðfrystistöð Þórshafnar:
Reykvíkingar!
Munið borgarstjórnarfundinn
í dag kl. 17:00,
sem útvarpað er
á Aðalstöðinni FM 90.9.
Ibuarnir keyptu fyrir
tæpar 13 milljónir
- sveitarstjórn og stjórn HÞ vinna að frekari sölu hlutabréfa
DV, Akureyri:
Sala hlutabréfa í Hraðfrystistöð
Þórshafnar hófst á dögunum, en um
er að ræða 11,3% sem sveitarsjóður
hyggst selja af eignarhlut sínum í
fyrirtækinu. íbúum í Þórshafnar-
hreppi var gefinn forkaupsréttur að
hlutabréfunum og nýttu um 35
manns sér það og skráðu sig fyrir
hlutabréfum fyrir um 3 milljónir
króna að nafnvirði á genginu 4,09.
Reinhard Reynisson, sveitarstjóri
EskiQöröur: Nýr leikskóli
DV, Eskifiröi:
í fjárhagsáætlun Eskifjarðai’-
kaupstaðar er gert ráð fyrir að
byggja nú í sumar 500 fermetra
leikskóla fyrir innan íþrótta-
völlinn í bænum. Byggingar-
kostnaður er áætlaður um 60
milljónir króna.
Undirbúningur er þegar haf-
inn að verkefninu og stefnt er
að þvi að taka hinn nýja leik-
skóla í notkun í desemher nk.
Sem kunnugt er seldi bæjarsjóð-
ur 40% af hlutabréfum sínum í
Hraðfrystihúsi Eskifjarðar hf. i
lok siðasta árs og fékk fyrir
snúðinn 80 milljónir króna.
Leikskólabyggingin verður fjár-
mögnuð með hagnaði af sölu
hlutabréfa.
Núverandi leikskólastjóri er
ung og falleg stúlka frá
Hollandi, Bea Meijer að nafni.
Eiginmaður hennar er Atli
Börkur Egilsson harðfiskfram-
leiðandi. -RT
á Þórshöfn, segir að nú verði unnið
að sölu þeirra hlutabréfa sem eftir
eru í sölu, eða um 10% hlut í fyrir-
tækinu. „Það hefur aldrei verið tek-
in nein ákvörðun um það að ein-
hver einn ákveðinn aðili eignist þau
bréf, heldur verður stefnt að því
meginmarkmiði að breytingin á
eignarhaldinu í fyrirtækinu verði
til þess að styrkja félagið varðandi
hráefnisöflun. Það hefur t.d. verið
skoðað hvort einhverjir nýir aðilar
komi inn i félagið eða jafnvel hvort
samruni við annað félag verður nið-
urstaðan.
Átökin sem urðu um þetta mál
hér snerust um það hvort útiloka
ætti Hæng ehf. frá því að eignast
aukinn hlut í fyrirtækinu, eða að
DV, Suöurnesjum:
„Verksmiðjan er komin á fullt
skrið. Þetta hefur gengið samkvæmt
áætlun og afköstin eru þau sem við
reiknuðum með í upphafi," sagði
Þórður Jónsson, rekstrarstjóri SR-
mjöls hf., í samtali við DV um hina
nýju fiskimjölsverksmiðju fyrirtækis-
ins í Helguvik.
Nýlega var skipað út fyrsta mjöl-
farminum, 780 tonnum, sem unninn
var í Helguvík. Bræðslan vinnur
þrjár tegundir af mjöli og eru nú um
Hængur sæti við sama borð og aðr-
ir. Það er hins vegar alls ekki í
myndinni að Hængur einn komi til
greina varðandi kaup á þessum
bréfum," segir Reinhard.
Hann segist ekki reikna með að
hlutabréfin verði boðin út, sala bréf-
anna sé samvinnuverkefni sveitar-
stjórnar og stjórnar Hraðfrysti-
stöðvarinnar. „Þetta mun gerast við
samningaborðið og verður ekki upp-
lýst frekar fyrr en málinu er lokið,“
segir Reinhard.
Þórshafnarhreppur er stærsti
eignaraðili að Hraðfrystistöðinni í
dag með um 30% hlut, Hængur á
25%, en á þriðja hundrað aðilar aðr-
ir eiga mun minni hlut. -gk
1600 tonn til í geymslum í Helguvík.
Reiknað er með að næsta farmi verði
skipað út eftir páska. Bræðslan af-
kastar á milli 800 til 1000 tonnum á
sólarhring. Á meðan bræðslan er
keyrð á fúllum krafti er einnig verið
að flnstilla saman tæki og tól hennar.
Að sögn Þórðar er eins og loðnu-
vertíðin sé að lognast út af, en erfitt
sé að spá langt fram í tímann þegar
loðnan er annars vegar. Önnur ganga
gæti þess vegna komið fram einhvers
staðar á næstu dögum. -ÆMK
SR-mjöl í Helguvík:
Fyrsti mjölfarm-
urinn farinn
cu
OíB)AIL
Austurstrætj 12a - 101 Reykjavík
Sími (tel) 354-5B2 3570 - Fax 354-562 3571
Opnunartími
Opening hours
sun til fim
Sun to Thu
21.00-01.00
fös til lau
Fri to Sat
21.00-03.00
Stanslausar
CJ sýningar O
None stop shows
Frítt inn til kl. 23.00 alla daga.
Geysilegt fjölmenni var í Hlíöarfjalli við Akureyri um helgina og er t.d. taliö
að aldrei hafi komið fleiri þangaö á einum degi en á föstudaginn langa, þeg-
ar myndin var tekin, en þá var þar blíöskaparveöur. Einnig var fjölmenni á
skíöum á páskadag en á laugardag var lokaö vegna veðurs og óhagstætt
veöur var til skíðaiökunar í gær. DV-mynd gk
myndbanda-
listinn