Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1997, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1997, Qupperneq 16
16 ■ _ — —- /| FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1997 - ; FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1997 25 íþróttir DV DV íþróttir Seinni Júgóslav- inn til KA KA fékk í fyrradag til liðs við sig júgóslavneska knattspymu- manninn Nebojsa Lovic en hann leikur væntanlega með Akureyr- arliðinu í 2. deildinni i sumar. Lovic er 29 ára sóknarmaður og kemur frá 1. deildar liðinu Nap- redak. Áður hafði KA samið við landa hans, Slobodan Stefanovic. -VS Macari refsað? Lou Macari, framkvæmda- stjóri enska knattspyrnuliðsins Stoke, á refsingu yfir höfði sér eftir að hafa mótmælt hressilega þegar Lárus Orri Sigurðsson var rekinn af velli gegn Bradford á mánudag. Enskir fjölmiðlar eru sam- mála um að það hafi verið mjög strangur dómur að dæma víta- spyrnu á Lárus Orra, en síðan verið algerlega út í hött að sýna honum rauða spjaldið. -VS Afmælinu spillt Ferenc Puskas frá Ungverja- landi, einn frægasti knatt- spyrnumaður allra tima, varð sjötugur í gær. Af því tilefni léku Ungverjar og Ástralir vináttu- landsleik í Búdapest. Ástralir spilltu afmælisfognuðinum með því að vinna heimamenn, 3-1. Frakkar unnu Svía Frakkar unnu Svía, 1-0, í vin- áttulandsleik í París i gær. Youri Djorkaeff skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu. Þá unnu írar nauman sigur á Lettum, 1-0. Chicago styrkist Chicago, NBA-meistararnir í körfubolta, sömdu í gær við Bri- an Williams, fyrrum leikmann LAClippers. Hann var skorinn upp í haust og hefur ekkert spil- að í vetur. Dennis Rodman og Bill Wennington eru báðir úr leik vegna meiðsla og Williams á að fylla í skarðið. Aðalfundur HK Aðalfundur HK verður hald- inn í Hákoni digra í Digranesi fimmtudaginn 10. apríl og hefst kl. 20. Ferguson smeykur Enska knattspyrnufélagið Manchester United sendi í gær- kvöldi leiguflugvéi til Skopje í Makedóníu til að sækja þá Roy Keane og Denis Irwin. Þeir léku þar með irska landsliðinu í gær en Alex Ferguson, framkvæmda- stjóri United, vildi fá þá heim sem fyrst. Leiguvélin kostaði United 3,3 milljónir króna. Manchester United fær Derby í heimsókn i úrvalsdeildinni á laugardag og Ferguson er greini- lega smeykur við þann leik eftir að hafa náð naumlega jafntefli í fyrri leik liðanna í vetur. -VS Ikvöld Körfubolti karla - úrslit: Grindavik-Keflavík (0-1)...20.00 Handbolti - landsleikur: tsland-Kína..........Selfoss 20.15 Handbolti kvenna - úrslit: Haukar-Stjaman (1-0).......20.00 Knattspyrna - Reykjavíkurmótið: KR-Valur ..................20.30 KSÁÁ-Ármann................20.30 Knattspyma - Deildabikarinn: Stjaman-Afturelding .. . Hafn. 20.30 Breiðablik-Ægir ...........20.30 NBA-deildin í körfuknattleik í nótt: Sigurgangan hjá Phoenix heldur áfram Úrslit leikja í NBA í nótt: Eddie Jones skoraði 27 stig fyr- Boston-Cleveland...... 87-96 ir Lakers gegn Denver. Philadelphia-Toronto .90-112 Karl Malone skoraði 23 stig fyr- Charlotte-Atlanta.... 95-84 ir Utah gegn Sacramento en Utah Minnesota-New Jersey..94-89 hafði 39 stiga forskot i leikhléi. SA Spurs-Detroit ...... 92-99 Kevin Johnson skoraði 30 stig Utah-Sacramento ......118-87 fyrir Phoenix gegn Houston og Phoenix-Houston .... 109-96 Wesley Person 21 stig. Olajuwon LA Lakers-Denver ....110-85 var með 33 stig fyrir Houston. Grant Hill var frábær í liði Phoenix vann þama 7. leik sinn í Detroit gegn SA Spurs, skoraði 31 röð og 10. sigurinn i 11 leikjum. stig, hirti 11 fráköst og gaf 10 Glen Rice skoraði 28 stig fyrir stoðsendingar. Þetta var 20. þrenn- Charlotte gegn Atlanta. an hjá honum á ferlinum. -SK Herdís styrkti HSI --------------- hnr Rpvníccnn TtVarr DV, Isafirði: Herdísi Egilsdóttur, ellilífeyris- þega frá ísafirði, var klappað lof í lófa fyrir leikinn. Hún hefur marg- oft stutt HSÍ með hinum ýmsu gjöf- um og fyrir leikinn í gær færði hún HSÍ 10.000 krónur að gjöf. Jón Freyr Egilsson úr Haukum byrjaði inná í sínum fyrsta lands- leik. Hann skoraði sitt fyrsta landsliðsmark eftir 20 mínútna leik og bætti við öðru 5 mínútum síðar. Reynir Þór Reynisson, Fram, var að leika sinn þriðja landsleik. Hann byrjaði inná og lék fyrri hálf- leikinn. Ólafur Stefánsson tók ekkert þátt í leiknum vegna meiðsla í ökkla og er tvísýnt um þátttöku hans í leiknum á Selfossi í kvöld. Kínverjarnir urðu skelfingu lostnir við lendingu á fugvellinum á fsafirði sídegis í gær. Flugvélin lenti nokkuð harkalega og urðu Kínverjarnir grænir í framan af hræðslu. -GH Platt gagnrýnir Hoddle - ekki sáttur við að vera úti í kuldanum David Platt, leikmaður Arsenal og margreyndur landsliðsmaður, er ekki hress með Glen Hoddle, lands- liðsþjálfara. Platt hefur ekki hlotið náð fyrir augum Hoddles síðan hann tók við liðinu af Terry Vena- bles og Platt gagnrýnir Hoddle fyrir að fá ekki skýringar hvers vegna landsliðsferill hans virðist vera lið- inn undir lok. Platt, sem er orðinn þrítugur og hefur leikið 62 lands- leiki fyrir England, var ekki valinn í 25 manna landsliðshópinn fyrir leikinn gegn Mexíkó þrátt fyrir að marga menn vantaði sökum meiðsla. Sagt eftir leikinn: „Þetta er svolítið ryðgað hjá okkur“ DV, ísafiröi: „Þeir voru snöggir og liprir en við áttum ekki að hleypa þeim svona inn i leikinn undir lokin. Það er erfitt að spila á móti svona liöum. Við höfum ekki æft saman lengi og auðvitað er þetta svolítið ryðgað hjá okkur,“ sagði Patrekur Jóhannes- son við DV eftir leikinn á ísafirði gærkvöld. Toppa á réttum tíma fyrir Japan Þetta var ekkert sérstakur leik- ur af okkar hálfu en ég hef engar áhyggjur. Við unnum leikinn, það var fyrir mestu og við ætlum okkur að toppa á réttum tíma í Japan og því er ágætt að vera ekkert að spila glimrandi leiki núna,“ sagði Patrek- ur Jóhannesson, besti leikmaður ís- lands í leiknum. „Ég fann mig bara mjög vel og það var virkilega gaman að vera þátttakandi í þessum leik, stemn- ingin góð og gott hús á ísafiröi. Þetta var öðruvísi en að spila með Haukunum. Ég er ágætlega sáttur við mína frammistöðu. Ég átti ekki von á að fá að byrja leikinn en það var ánægjulegt að fá að spila svona mikið og ekki skemmdi það fyrir að vinna í sinum fyrsta landsleik," sagði Jón Freyr Egilsson, horna- maðurinn knái úr Haukum, sem stóð sig með mikilli prýði í sinum fyrsta landsleik. -GH Kristinn vann svigið á Dalvík FIS-mót í svigi karla og kvenna í tenglsum við landsmótið á skíð- um fór fram á Dalvík í gær. Það átti upphaflega að fara fram á Ólafsfirði en var flutt til Dalvíkur vegna veðurs og færis á Ólafsfirði. Kristinn Björnsson sigraði með yfirburðum í svigi karla, kom tveimur sekúndum á undan Herm- an Schiestl frá Austurríki í mark. í svigi kvenna sigraði Petra Ola- mo frá Finnlandi eftir jafna keppni við Brynju Þorsteinsdóttur. -hiá „Ég er auðvitað mjög vonsvikinn eins og flestir myndu vera við þess- ar kringumstæður. Ég hefði viljað fá hringingu frá landsliðsþjálfaran- um þar sem hann hefði gefið skýr- ingu á þvi að hafa ekki valið mig en í stað þess lét hann Arsene Wenger, framkvæmdastjóra Arsenal, gera það. Ég vona að að ég hafi ekki leik- ið minn síðasta landsleik því ég hef, eins og allir, löngun og metnað til þess að spila með landsliöinu," sagði Platt í viðtali á Sky sport. -GH Konráö Olavsson sleppur hér inn úr horninu en kínverski markvörðurinn sá viö honum og varöi. ísfiröingar lágu ekki á liöi sínu og fjölmenntu á landsleikinn og studdu þannig vel viö bakiö á íslenska liöinu. Stemningin var góð á pöilunum eins og myndin ber glöggt vitni um. Símamynd Höröur/ísafiröi Margt jákvætt en slípa þarf ýmislegt - íslendingar lögðu Kínverja, 27-24, að Torfnesi á Isafirði DV, Isafirði: íslendingar innbyrtu nokkuð örugg- an sigur á Kínverjum í landsleik þjóð- anna á ísafirði í gærkvöld en segja má að íslenska liðið hafi þó lent í óþarfa basli með gesti sína undir lok leiksins. Kínverjarnir voru orðnir sex mörkum undir í síðari hálfleik en náðu að veita íslendingum harða keppni þegar þeir minnkuðu muninn í eitt mark þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir. íslendingar áttu síðasta orðið, skoruðu tvö mörk í röð á lokamínútunum og sigruðu með þriggja marka mun. íslendingar virtust ætla að kafsigla Kínveijana strax í upphafi leiks. ís- land skoraði sjö mörk gegn einu á fyrstu 12 minútum og það var greini- legt að mikil ferðaþreyta sat í kín- verska liðinu enda kom það nánast beint í leikinn. Kínverjarnir náðu þó að rétta sinn hlut þegar leið á fyrri hálfleikinn. íslendingar léku vömina framarlega í fyrri hálfleik sem gekk ágætlega framan af en þegar líða tók á fyrri hálfleikinn náðu Kínverjamir oft að leika i gegnum vömina enda sterkir í stöðunni maður á móti manni. í síðari hálfleiknum bakkaði íslenska liðið í 6:0 vörn og gekk sú vörn betur en kínversku skyttumar fengu þó oft óþarflega mikið næði til að athafna sig. Kínverjamir léku nær allan leikinn mjög framstæða vörn eins og tíðkast á meðal Asíuþjóða. Sú vörn hefur oft hentað íslenska liðinu illa. Sóknarleikurinn var stundum nokkuð stirður en um leið og boltalausu mennimir komust á hreyf- ingu opnaðist kínverska vömin og þeir Patrekur og Júlíus vom seigir að finna smugur á henni. Það voru margir jákvæðir punktar í leik íslenska liðsins. Patrekur Jóhann- esson og Július Jónasson voru báðir mjög ógnandi í skyttuhlutverkunum, línumennimir Geir og Róbert hreyf- anlegir og iðnir við að opna leiðina fyrir félaga sína og hornamennirnir ágætlega virkir. Jón Freyr Egilsson stóð sig vel í sínum fyrsta landsleik og Gústaf Bjarnason skilaði sínu vel. Markvarsla þeirra Reynis og Guð- mundar var ekki nógu góð, Rúnar Sig- tryggsson, Konráð Olavsson og Dagur Sigurðsson náðu sér ekki á strik og ekki náðist nægilega góð stemning yfirhöfuð í liðinu. Leikurinn var fyrst og fremst góður undirbúningur fyrir keppnina stóru sem hefst í Japan í næsta mánuði. Þangað til á margt eft- ir að slípast í leik íslenska liðsins en enginn ætti þó að örvænta því mikið býr í landsliði Þorbjöms Jenssonar. Kínverjar í mikilli framför í handbolta Kínverjar era greinilega í mikilli framfor í íþróttinni. Þeir sýndu oft mjög skemmtileg tilþrif í sókninni og engum ætti að leiðast að sjá þá vel út- hvílda i leiknum á Selfossi í kvöld. -GH Undankeppni HM í knattspyrnu: Ovæntur sigur hjá Makedóníu Tyrkir fögnuöu sigrinum á Hollendingum vel og lengi í leikslok í Istanbul í gærkvöldi. Mynd-Reuter Makedónía setti heldur betur strik í reikninginn í 8. riðli undankeppni HM í knattspyrnu, riðli íslands, með því að vinna íra, 3-2, í Skopje í gærkvöld. Makedónía, sem áður hafði aðeins unnið Liechtenstein og Kýpur í sex ára landsleikjasögu sinni, er þar með í öðm sæti riðilsins. Rúmenar eru meö fullt hús stiga, unnu Litháen í Vilnius í gær, 0-1. Næsti leikur fslands er einmitt gegn Makedóníu í Skopje þann 7. júní og ljóst er á þessum úrslitum að róðurinn þar verður þungur. Tyrkir skelltu Hollandi Tyrkir komu heldur betur á óvart með því að leggja Hollendinga, 1-0, í 7. riðli. Hollendingar höfðu unnið alla sína leiki og þeir fengu vítaspymu 4 mínútum fyrir leikslok. Clarence Seedorf skaut yfir mark Tyrkja og heimamenn fognuðu sætum sigri. Albanir fengu þrjár vítaspyrnur Þjóðverjar lentu í miklum vandræð- um með Álbana þegar þjóðimar léku á „heimavelli“ þeirra síðarnefndu í Granada áSpáni. Albanir fengu þrjár vítaspymur í leiknum og nýttu tvær þeirra. Andreas Köpke varði þá fýrstu. Ulf Kirsten skoraði þrennu á 20 mínút- um seint í leiknum og tryggði Þjóðverj- um 2-3 sigur. „Ég er stoltur af minu liði og von- andi hefur fólkið heima í Albaníu átt góða stund á meðan það horfði á leik- inn í sjónvarpi," sagði Hafizi Astrit, þjálfari Albana. Skotar komust í mjög góða stöðu á toppi 4. riðlis með því að vinna Austur- ríki, 2-0. Kevin Gallacher gerði bæði mörkin. Savo Milosevic tryggði Júgóslövum sigur á Tékkum í Prag, 1-2, með marki á lokasekúndunum. Slóvenar náðu óvæntu jafntefli, 3-3, þegar þeir sóttu granna sína i Króatíu heim til Zagreb. ítalir töpuðu sinum fyrstu stigum þegar þeir gerðu markalaust jafntefli við Pólverja í Chorzow. Pólverjar vom nær sigri og ítalir virtust sáttir við að halda einu stigi. -VS Steinar Ingimundarson knattspyrnumaöur: Tapaði kærumáli í Glasgow Skoska blaðið Daily Record skýrði frá þvi í gær að íslenski knattspymumaðurinn Steinar Ingimundarson hefði tapaö kæm- máli fyrir rétti í Glasgow. Steinar kærði Tony Ashcroft, leikmann skoska liðsins Pollock, fyrir að kjálkabrjóta sig í apríl í fýrra. Steinar lék þá með Víði úr Garði gegn Pollock í æfingaferð í Skotlandi. Ashcroft var rekinn af velli fyr- ir tiltækið og hlaut sex leikja bann þó að um æfingaleik væri að ræða. Dómari leiksins bar vitni í mál- inu og sagðist hafa séð Ashcroft skalla Steinar í andlitið og því vís- að honum af velli. í niðurstöðu dómsins sagði hins vegar að ekki væri sannað að Ash- croft hefði kjálkabrotið Steinar. Þá er sagt að Steinar hafi tjáð réttinum að kjálkabrotið hafi bundið enda á feril sinn hjá Víði. Það er reyndar ekki rétt þvi hann lék með liðinu síðasta sumar. Ekki náðist í Steinar í gærkvöld eða morgun þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. -VS Eins og ég bjóst við DV, Isafirði: „Þeir spiluðu svona alveg eins og ég bjóst við. Þeir spila eins og S- Kóeruliðið, pressa vömina fram og þó Júlíus hafi leyst ágætlega stöð- una sem Ólafur er vanur að spila í var spilið svolítið stirðara fyrir vik- ið. Við leystum þetta mun betur þegar við spiluðum gegn Egyptum. Þetta er hlutir sem viö verðum að æfa ef eitthvað kemur upp á með Ólaf. Að visu get ég stillt Bjarka líka fyrir utan. Ég vissi að þessi framarlega vöm sem ég beitti á þá í fyrri hálfleik myndi ekki ganga sem skyldi en ég vildi samt prófa hana. 6:0 vömin gekk mun betur og hún á betur við okkur. Hreyfimunstur Kínverjanna er allt annað en okkar og þess vegna er betra að vera með múr fyrir framan heldur en aö lenda maður á móti manni. Við hleyptum þeim óþarfalega nálægt okkur þarna undir lokin enda vor- um við svolítið komnir á kínversk- an hraða á tímabili og það hentar okkur ekki,“ sagði Þorbjörn Jens- son. -GH Sigur hjá Víkingum Víkingur sigraði ÍR, 1-0, í A-deild Reykjavíkurmótsins í knattspyrnu í gærkvöldi. Tómas Ellert Tómasson skoraði markið. Staðan í A-deildinni: 9 4 4 Víkingur 3 1 1 1 3-3 Fylkir 3 0 1 2 1-6 ÍR 3 0 0 3 2-9 Fram 3 3 0 0 9-2 Valur 2 1 1 0 4-1 KR 2 1 1 0 4-2 Fjölnir sigraði Létti, 2-1, í B- deildinni. Þorvaldur Logason gerði bæði mörk Fjölnis en Rúnar Jóns- son mark Léttis. -VS ísland (15) 27 Kína (12) 24 3-0, 3-1, 7-1, 7-4, 11-6, 13-11, (15-12). 16-12, 18-14, 21-17, 23-21, 25-24, 27-24. Mörk íslands: Patrekur Jóhann- esson 7/1, Júllus Jónasson 6/2, Geir Sveinsson 4, Gústaf Bjamason 3, Jón Freyr Egilsson 2, Dagur Sigurðsson 2, Rúnar Sigtryggsson 1, Valgarð Thoroddsen 1, Róbert Sighvatsson 1. Varin skot: Reynir Þór Reynisson 7, Guðmundur Hrafnkelsson 5. Mörk Kína: Wang Xiding 6, Zhang Jingmin 4/1, Song Gang 3, Wu Jian 3, Yo Hongquan 2, Mo Zhujian 2, Ma Haiyong 2, Guy Weidong 1, Yan Tao 1. Varin skot: He Jun 13, Wang Bin 6/2. Brottvísanir: Island 0 min, Kína 2 mín. Dómarar: Guðjón L. Sigurðsson og Gunnar Kjartansson, dæmdu vel Áhorfendur: Ríflega 900. Maöur leiksins: Patrekur Jóhannesson, íslandi. Blak kvenna: ÍS vann fyrsta úr- slitaleikinn ÍS vann öruggan sigur á Víkingi, 3-1, í fyrsta úrslitaleik liðanna um íslandsmeistaratitil kvenna i blaki sem fram fór í Austurbergi í gærkvöld. ÍS vann fyrstu hrinuna, 15-9, en Víkingur þá næstu, 17-15. Eftir það var um einstefnu Stúdína að ræða og þær unnu tvívegis, 15-5 og 15-5, og leikinn þar með. Annar leikur liðanna verður í Víkinni annaö kvöld en þrjá sigra þarf til að veröa meistari. -VS Knattspyrnuþjálfari óskast UMF. Einherji, Vopnafirði auglýsir eftir þjálfara fyrir mfl. og yngri flokka félagsins. Upplýsingar í síma 473-1108, 473-1256 og 473-1344 um ^ X P UNDANKEPPNI HM 1. riðill: Bosnía-Grikkland . . . 0-1 0-1 Franceskos (74.) Króatía-Slóvenía .... 3-3 1-0 Prosinecki (33.), 2-0 Boban (43.), 2-1 Gliha (45.), 3-1 Boban (60.), 3-2 Gliha (65.), 3-3 Gliha (67.) Grikkland 5 3 11 8-3 10 Danmörk 3 2 10 5-2 7 Króatía 4 13 0 9-6 6 Bosnía 4 10 3 3-9 3 Slóvenia 4 0 13 4-9 1 2. riðill: PóUand-ltalía 0-0 ítalia 5 4 10 8-1 13 England 4 3 0 1 7-2 9 Pólland 3 111 3-3 4 Georgía 2 0 0 2 0-3 0 Moldavía 4 0 0 4 2-11 0 3. riöill: Azerbaijan-Finnland . 1-2 0-1 Litmanen (25.), 0-2 Paatelainen (66.), 1-2 Soleymanov (80.) Noregur 3 3 0 0 9-0 9 Ungverjal. 3 2 0 1 4-3 6 Finnland 3 10 2 4-5 3 Sviss 3 10 2 84 3 Azerbaijan 4 10 3 2-10 3 4. riðill: Skotland-Austurriki . . 2-0 1-0 GaUacher (24.), 2-0 GaUacher (77.) Skotland 6 4 2 0 7-0 14 Austurríki 4 2 11 3-3 7 Svíþjóð 4 2 0 2 7-4 6 Eistland 4 112 1-3 4 Hv.Rússland 4 112 3-7 4 Lettland 4 0 13 3-7 1 5. riðill: Búlgaria-Kýpur 4-1 1-0 Borimirov (2.), 2-0 Kostadinov (36.), 3-0 Kostadinov (45.), 3-1 Okkas (61.), 4-1 Yordanov (66.) ísrael 5311 7-4 10 Búlgáría 4 3 0 1 10-5 9 Rússland 4 2 2 0 10-2 8 Kýpur 5 113 5-12 4 Lúxemborg 4 0 0 4 1-10 0 6. riöill: Tékkland-Júgóslavia . . 1-2 0-1 Mijatovic (28.), 1-1 Bejbl (75.), 1-2 MUosevic (90.) Spánn 6 5 10 19-3 16 Júgóslavía 6 5 0 1 20-5 15 Slóvakía 5 4 0 1 14-5 12 Tékkland 4 112 7-3 4 Færeyjar 5 0 0 5 5-22 0 Malta 6 0 0 6 0-27 0 7. riöill: Tyrkland-Holland .... 1-0 1-0 Hakan Sukur (52.) HoUand 5401 17-3 12 Belgía 4 3 0 1 7-5 9 Tyrkland 4 2 11 9-2 7 Wales 6 2 13 14-12 7 San Marino 5 0 0 5 0-25 0 8. riöill: Makedónia-írland .... .... 3-2 0-1 McLoughlin (8.), 1-1 Stojkovski (29.), 2-1 Stojkovski (44.), 3-1 Hristov (60.), 3-2 KeUy (78.) Litháen-Rúmenía .... 0-1 0-1 Moldovan (75.) Rúmenía 5 5 0 0 19-0 15 Makedónía 6 3 12 18-10 10 írlahd 4 2 11 10-3 7 Litháen 4 2 0 2 4-5 6 ísland 4 0 2 2 1-7 2 Liechtenst. 5 0 0 5 2-29 0 9. riðill: Úkralna-Norður-írland .... 2-1 1-0 Kosovski (3.), 1-1 Dowie (15.), 2-1 Shevchenko (71.) Albanla-Þýskaland ... .... 2-3 1-0 Kola (61.), 1-1 Kirsten (64.), 1-2 Kirsten (80.), 1-3 Kirsten (84.), 2-3 Kola (90.) Úkraína 5 4 0 1 6-3 12 Portúgal 6 2 3 1 5-2 9 Þýskaland 4 2 2 0 84 8 N.Irland 6 13 2 5-5 6 Armenía 4 0 3 1 3-7 3 Albanía 5 0 14 3-10 1 t

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.