Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1997, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1997, Side 26
34 FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1997 Afmæli______________________ Hulda Jónsdóttir Hulda Jónsdóttir dagmamma, Víðigrand 3, Sauðárkróki, er sextug í dag Starfsferill Hulda fæddist á Kleifum í Ólafs- firði en ólst upp í foreldrahúsum á Húsavík. Hún var þar í bamaskóla og lauk þar gagnfræðaprófi. Á unglingsáranum stundaði Hulda ýmis almenn störf. Eftir að hún gifti sig helgaði hún sér heimil- isstörfum. Hún fór síðan gæta bama og hefur nú verið dagmamma í rúm tuttugu ár. Þau hjónin hófu búskap á Húsa- vík, fluttu síðan í Borgarnes 1964 og til Sauðárkróks 1972 þar sem þau hafa átt heima síðan. Hulda var i íþróttafé- laginu Völsungi á Húsa- vík, í Ungmennafélaginu Skallagrími í Borgamesi og hefur sungið með Kirkjukór Sauðárkróks frá því fljótlega eftir að þau hjónin fluttu til Sauð- árkróks. Fjölskylda Hulda giftist 27.12. 1957 Hilmi Jóhannessyni, f. 24.5. 1936, bókaverði við Sjúkrahús Sauðárkróks. Hann er sonur Jó- hannesar Ármannssonar, verka- manns á Húsavík, og k.h., Ásu Stef- ánsdóttur húsmóður. Börn Huldu og Hilmis eru Guðrún Sigríður Hilmisdóttir, f. 22.3. 1956, verkfræðingur hjá Sam- bandi íslenskra sveitarfé- laga, hennar maður er Gunnar Sigurjónsson, starfsmaður Einkaleyfis- stofnunar, þau eru búsett í Reykjavik og era böm þeirra Elínborg Hulda og Jóhannes Hilmir; Jó- hannes Hilmisson, f. 2.12. 1959, tæknifræðingur hjá Ericsson í Kaupmannahöfn, hans kona er Ásta Emma Ingólfsdóttir tæknifræðingur og er dóttir þeirra Telma Huld; Eiríkur, f. 5.4. 1963, tónlistarmaður og kennari, hans kona er Bergrún Ingimarsdóttir, starfsmaður í apóteki, þau era bú- sett á Sauðárkróki og eru börn þeirra Bríet Ama Jóhannesdóttir, Ingimar Heiðar, Hilmir Öm og Malen Rún Eiríksböm. Hulda á þrjár alsystur og einn hálfbróður. Foreldrar Huldu voru Jón Guð- mundsson, f. 13.1. 1905, nú látinn, skrifstofúmaður í Neskaupstað, og Guðrún Pétursdóttir, f. 25.12. 1897, d. 30.11. 1985, húsmóðir. Hulda og Hilmir taka á móti gest- um i Tjamarbæ á Sauðárkróki í dag frá kl. 20.00. Hulda Jónsdóttir. Andlát Bertha Bertha Helga Kristinsdóttir hús- móðir, Grensásvegi 47, Reykjavík, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur að morgni 23.3. sl. Hún verður jarð- sungin frá Fossvogskirkju í dag, fimmtudaginn 3.4., kl. 13.30. Jarðsett verður í Hafharfjarðarkirkjugarði. Fjölskylda Bertha Helga fæddist í Hafnar- firði 29.2. 1920 og ólst þar upp. Hún giftist 25.2. 1943 Halldóri Þorsteini Nikulássyni, f. 20.8.1918, bílamálara og veiðiverði við Norðurá. Hann er Helga Kristinsdóttir sonur Nikulásar Áma Halldórssonar og Jónínu Helgadóttur. Börn Berthu Helgu og Halldórs Þorsteins eru María, f. 8.12. 1943, hús- móðir á Raufarhöfn, gift Þórólfi Friðþjófssyni og eiga þau þrjú börn; Nikulás Árni, f. 3.5. 1946, skipstjóri í Kópavogi, kvæntur Hafdísi Gunn- arsdóttur og eiga þau þrjú böm; Óskar, f. 29.7. 1947, bifreiðasmiður í Bertha Helga Kristinsdóttir. Kópavogi, kvæntur Margréti Hólm- steinsdóttur og eiga þau tvær dætur; Halldór Helgi, f. 20.12. 1948, bíla- málari í Reykjavík, kvæntur Sigriði B. Hólm- steinsdóttur og eiga þau einn son; Jóhann Þór, f. 12.6. 1957, bílamálari, bú- settur í Kópavogi, kvænt- ur Undínu Sigmundsdótt- ur og eiga þau þrjú börn. Langömmuböm Berthu Helgu era nú níu talsins. Systkini Berthu Helgu: Magnús, nú látinn, málarameistari i Hafnar- firði, var kvæntur Mörtu Sigurðar- dóttur; Sigurður, málarameistari í Hafnarfirði og fyrrv. forseti Lands- sambands iðnaðarmanna, kvæntur Önnu Sigurðardóttur; Sigurbjörn, málarameistari í Hafnarfirði, kvæntur Margrethe Kristinsson; Kristjana, húsmóðir og verkakona á Raufarhöfn, gift Stefáni Magnús- syni; Albert, rafvirkjameistari í Hafnarfirði, kvæntur Elsu Kristins- dóttur; Þórdis, skrifstofumaður í Hafnarfirði, gift Benedikt Sveins- syni. Stefán Halldórsson Stefán Halldórsson, fyrrv. vita- vörður, Skólastíg 14 A, Stykkis- hólmi, lést á St. Fransiskusspítalan- um í Stykkishólmi þriðjudaginn 25.3. sl. Hann verður jarðsunginn frá Stykkishólmskirkju í dag, fimmtudaginn 3.4., kl. 14. Starfsferill Stefán fæddist i Sandvík í Sand- víkurhreppi í Suður-Múlasýslu 9.6. 1903. Hann ólst upp í Hafnamesi við Fáskrúðsíjörð. Stefán var ungur settur til sjó- róðra ásamt bræðrum sínum. Leið hans lá til Vestmannaeyja þar sem hann ílentist og reri þar alls ellefu vertíðir. Hann flutti til Reykjavíkur og bjó þar í sjö ár ásamt seinni konu sinni en í höfuðstaðnum lagði hann stund á sjómennsku til 1940. Þá tóku þau hjónin sig upp og fluttu í Höskuldsey á Breiðafirði. í Höskuldsey var Stefán vitavörð- ur í fimmtán ár, enda oft kenndur við eyna. Fluttist hann síðan til Stykkishólms þar sem hann stundaði sjómennsku í mörg ár. Hann starfaði svo að flök- un og flatningu sem hon- um fórst vel úr hendi. Síðustu árin dvaldi hann við gott atlæti á Dvalarheimili aldraðra að Skólastíg 14 A í Stykkis- hólmi. Fjölskylda Stefán var tvigiftur. Hann kvænt- ist 11.9. 1926 Ástríði Þorgeirsdóttur frá Stóru-Borg undir Eyjafjöllum. Hún lést 28.6. 1929. Eignuðust þau Ástríður einn son, Halldór Brynjólf, f. 3.3. 1927, föður Páls, form. BHMR. Ólst Halldór upp hjá ömmu sinni, móður Stefáns. Hún hélt heimili með Ólafi syni sín- um, bróður Stefáns. Stefán kvæntist öðra sinni 31.12. 1932 Gyðríði Jónsdóttur úr Stykkishólmi. Átti hún fyrir eina dóttur, Jónu Kristinsdóttur, f. 8.3. 1924. Tóku þau til fósturs Magnús Jónsson, nú skipasmið, bróðurson Gyðríðar. Gyðríður lést 1.10. 1976. Systkini Stefáns vora: Jóhann, eldiá og yngri; Guðlaug; Ólafur; Snorri og Sigríður. Stefán var sonur Hall- dórs Hafldórssonar, beykis og skálds i Hafnamesi í Fáskrúðsfirði, og Elísabetar Brynjólfsdóttur hús- freyju. Ætt Hafldór var Halldórsson, Hall- dórssonar, Halldórssonar, b. í Krossgerði á Berufiarðarströnd, bróður Gísla, langafa Málfríðar, móður Jóhannesar Gunnarssonar, framkvæmdastjóra Neytendasamta- kanna. Gísli var einnig langafi Garðars, fóður Guðmundar, fyrrv. alþingismanns. Hafldór var sonur Halldórs, b. í Krossgerði, Gíslason- ar, bróður Áma, langafa Guðmund- ar, afa Emils Bjömssonar prests. Annar bróðir Gísla var Brynjólfur, langafi Gísla, langafa Ólafs Davíðs- sonar, ráðuneytisstjóra í forsætis- ráðuneytinu. Systir Halldórs var Margrét, langamma Eysteins Jóns- sonar ráðherra. Elísabet var Brynjólfsdóttir, b. á Karlsstöðum á Berufiarðarströnd, bróður Helgu, móður Benedikts Þór- arinssonar kaupmanns, afa Johns Benedikz læknis. Brynjólfur var sonur Jóns, b. í Hvammi, Jónssonar og k.h., Guðnýjar Þorsteinsdóttur, b. á Þorvaldsstöðum, Erlendssonar, b. á Ásunnarstöðum, Bjarnasonar, ættföður Ásunnarstaðaættarinnar, langafa Guðrúnar, langömmu Hall- gríms, föður Geirs forsætisráð- herra. Stefán Halldórsson. Fréttir Egilsstaðir: Fiðrildin dansa á Mallorca - 22 manns fara á þjóðdansamót í Palma Danshópurinn Fiðrildin á æfingu fyrir Mallorkaferðina sem senn lýkur. DV-mynd Sigrún DV, Egilsstöðum: 22 manna hópur frá Egilsstöðum er nú á alþjóðlegu þjóðdansamóti á Mallorca sem hófst um páskana. „Þetta er stórt mót þar sem þjóð- dansahópar frá 3(M0 þjóðum koma saman og sýna. Mótið stendur í fimm daga, en fyrsta daginn vora skrúðgöngur i borginni undir fán- um, mjög glæsilegar því þjóðbún- ingar margra þjóða era mjög lit- skrúðugir," sagði Þráinn Skarphéð- insson, prentari á Egilsstöðum og stjómandi þjóðdansahóps á Egils- stöðum, sem kallar sig „Fiðrildin", í samtali við DV. Mótið er haldið í Palma en hópamir hafa verið sendir út og suður um eyjuna til að sýna á hin- um ýmsu ferðamannastöðum. Á morgun, fostudag, er síðasti dagur mótsins og um kvöldið verða loka- hátíðahöld þar sem þátttakendur fá viðurkenningarskjöl. Hátíðarsýn- ingar hafa verið á hverju kvöldi og sjónvarpað hefur verið frá því dag- lega, að sögn Þráins. Fiðrildin sýna á þessu alþjóðlega móti íslenska þjóðdansa eins og Vefaradansinn og Hringbrot, en einnig gömlu dansana og einn nýjan dans sem Þráinn samdi við lagið Nótt í Atlavík. Þráinn stofhaði Fiðrildin 1975 og hafa þau starfað óslitið síðan og far- ið í margar sýningarferðir út fyrir landsteinana. Fiðrildin sýna þjóð- dansa hjá Útileikhúsinu á sumrin en taka auk þess þátt í svonefndu Héraðsblóti, sýningum fyrir erlenda ferðamenn, sem haldnar era einu sinni í viku í Hótel Valaskjálf þar sem einnig er íslenskur þorramatur á borðum. -SB Ul hamingju með afmælið 3. apríl 90 ára Anton R. Sigurjónsson, Goðabraut 20, Dalvik. 85 ára Baldur Guðmundsson, Dunhaga 15, Reykjavík. Stefán Bjamason, Flögu, Skriðdalshreppi. Borghildur Jónsdóttir, Fornhaga 25, Reykjavík. 80 ára Unnur Guðjónsdóttir, Skólabraut 3, Seltjamarnesi. Jóhanna K. Pálsdóttir, Hólabraut 3, Hafnarfiröi. 75 ára Ámi Ágústsson, Reykjavíkurvegi 32, Hafnarfirði. Guðný Finnsdóttir, Hólabraut 7, Höfðahreppi. Svava G. Felixdóttir, Bólstaðarhlíð 50, Reykjavík. Guðbjörg Sigurðardóttir, Iðavöflum 6, Húsavík. Halldóra Bjömsdóttir, Breiðuvík 22, Reykjavik. 70 ára Kristjana Jónsdóttir, Bræðratungu 8, Kópavogi. Guðmundur J. Sigurðsson, dvalarheimilinu Fellsenda, Dala- byggð. Finnbogi Friðfinnsson, Höfðavegi 4, Vestmannaeyjum. Hildur Einarsdóttir, Völusteinsstræti 34, Bolungarvík. 60 ára Svava Höjgaard, Teigagerði 11, Reykjavík. María Kristjánsdóttir, Tjöm, Skagahreppi. Reynir Gíslason, Bæ, Hofshreppi. Ásta Fjeldsted, Ljósheimum 10, Reykjavík. Skúli Guðmundsson, Laugamesvegi 88, Reykjavík. 50 ára Gunnar Björnsson, Hofi II, Fellahreppi. Valgerður Níelsdóttir, Þverárseli 12, Reykjavík. Bryndís Guðmundsdóttir, Hlíðartúni 33, Höfn í Homafirði. Björg Magnúsdóttir, Engjaseli 76, Reykjavík. Margrét Sveinsdóttir, Sundlaugavegi 31, Reykjavík. Þorsteinn Ólafsson, Háengi 6, Selfossi. Bjöm Bjömsson, Ártröð 6, Egilsstöðum. Þuríður Ingólfsdóttir, Bláskógum 7, Egilsstöðum. 40 ára Anna Þorbjörg Ingólfsdóttir, Reykási 23, Reykjavík. Guðmxmdur Sölvi Ásgeirsson, Lækjarkinn 10, Hafnarfirði. Garðar Sigursteinsson, Frostafold 25, Reykjavík. Kristinn Kolbeinsson, Baughúsum 50, Reykjavík. Kristján Heiðar, Jörundarholti 2, Akranesi. Anna Sigríður Arnþórsdóttir, Hjallalundi 18, Akureyri. Heiðar Jóhannsson, Erluhrauni 13, Hafnarfirði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.