Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1997, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1997, Qupperneq 32
Vinnmgstölur miðvikudaginn 2. 04.’97 4 15 27 35 41 43 Fjöldi Vmningar vinninsa Vinningóupphœð 1. 6 af 6 2 47.785.000 I. 5 <•( 6* y 0 2.092.807 2. 4 aþ 6 2 173.480 3 < <6 6 244 2.260 4. 3 at 6+c U» 1-053 220 HeUdarvinningóupphœð 98.792.867 A Islandi 3.222.867 Lfm i_ FR ETTASKOTIÐ SlMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Frjálst,óháð dagblað FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1997 Skipulögð fjársvik - 5 í gæsluvarðhaldi Rannsókn stendur nú yfir hjá *•* RLR á fjársvikamáli þar sem grun- ur leikur á að um 35 milljónir króna hafi verið sviknar út með skipuleg- um hætti. Fimm manns sitja i gæsluvarð- haldi vegna málsins, að sögn Harð- ar Jóhannessonar, yfirlögregluþjóns hjá RLR, en alls hafa 10 manns ver- ið yfirheyrðir vegna þess. Málið kom upp þegar tveir menn voru handteknir 22. mars sl. eftir að þeir gáfu út vafasamar ávísanir. Að sögn Harðar gáfu mennirnir út ávísanir, víxla og skuldabréf í nafni félaga sem ekkert stóð á bak við. Mest notuðu mennirnir félagið Brúnir í svikum sínum. -RR * Fjölskyldan enn í lífshættu Fjölskylda úr Hafnarfirði, hjón og 5 ára drengur, liggja enn á gjör- gæsludeild Sjúkrahúss Reykjavíkur eftir harðan árekstur á Reykjanes- braut á annan í páskum. Líðan þeirra hefur verið óbreytt frá því slysið varð, að sögn lækna, og þau eru enn í lífshættu. -RR *Sigurður Sigurðs- son látinn Látinn er í Reykjavík Sigurður Sigurðsson, fyrrverandi íþróttcif- réttamaður Ríkisútvarpsins og einn þekktasti útvarpsmaður landsins fyrr og síðar. Eftirlifandi eiginkona Sigurðar er Sigríður Sigurðairdóttir. -SÁ Blackpool: Glæsilegur ár- angur íslensku * paranna Enn sigra íslensku pörin í Black- pool. í gær var keppt í einum dansi, jive, í aldursflokknum 6-11 ára. Um 100 pör hófu keppni. Davíð Gill Jónsson og Halldóra Sif Halldórs- dóttir urðu i fyrsta sæti. í dag kepp- ir þessi aldursflokkur í vínarvalsi en Davíð Gill og Halldóra Sif munu nú draga sig i hlé þar sem þau unnu aðalkeppnina í standarddönsum sl. þriðjudag. I aldursflokknum 12-15 ára var keppt í standarddönsum, þ.e. enskum valsi, tangó, foxtrott og quickstep. Þar hófu keppni u.þ.b. 215 pör. Þetta er mjög hörö keppni og náðu Benedikt Einarsson og Berglind Ingvarsdóttir að dansa 12 .^jiara undanúrslit sem er mjög góður árangur. -Lára Allt stendur fast í bankadeilunni og fundi frestaö í morgun: Flugmenn greiða at- kvæði um verkfall - flugvirkjar heQa verkfall í kvöld takist samningar ekki í dag „Við vorum með félagsfund í gær þar sem samþykkt var að hefja atkvæðagreiðslu um verk- fallsboðun. Atkvæðagreiðslan stendur yfir i viku. Hafi samning- ar ekki tekist munum við boða tveggja daga verkfall með viku fyr- irvara. Dugi það ekki til verður boðað til allsherjarverkfalls," sagði Kristján Egilsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, í samtali við DV í morgun. Hann sagði að ekkert hefði geng- ið í samningamálum þeirra og við- semjenda þeirra á þeim 18 samn- ingafundum sem haldnir hefðu verið. í stærstum dráttum er krafa flugmanna svipuð og þeirra verka- lýðsfélaga sem hafa verið og eru í kjarasamningum. Þó eru þar inni sérmál sem snerta flugmenn eina og þar vegur þungt stofnun Flugfé- lags ís- lands og allt sem því við- kemur, að sögn Krist- jáns. í morg- un var sátta- fundi banka- manna og við- semjenda þeirra frestað. Friðbert Traustason, formaður Sambands íslenskra bankamanna, sagði að frá því að fundur hófst um miðjan dag í gær og þar til honum var frestað í morgun hefði ekk- ert mjakast. Hann sagði samkomu- lag vera orðið um gildistíma samnings- ins, tvö og hálft ár. „Það er hins vegar ekki sam- komulag um hvernig heildar prósentuhækk- un launa litur út á samningstíman- um. Eins hefur það alltaf verið krafa okkar að nýr samningur gildi frá þeim degi sem fyrri samn- Frá fundi flugvirkja og viösemjenda í Karphúsinu í morgun. DV-mynd S ingur féll úr gildi. Það þýðir að nýi samningurinn gildi frá áramót- um,“ sagði Friðbert Traustason. Samningafundur hefur verið boðaður hjá bankamönnum klukk- an 16 í dag. Takist samningar ekki í dag eða í kvöld hefst verkfall bankamanna á miðnætti. Flugvirkjar hafa hoðað verkfall frá og með miðnætti hafi samning- ar ekki tekist. Þeir hafa setið á samningafundi frá því í gær. Þórir Einarsson ríkissáttasemj- ari sagði í morgun að það væri ákaflega erfitt að meta stöðuna hjá flugvirkjum. Fundi yrði fram hald- ið í dag. Matvís, samband fagfélasga í matvælagreiranum, er í kjara- samningum og stóð samningafund- ur í alla nótt og stóð enn þegar DV fór í prentun. -S.dór Rimaskóli varö í gærkvöld sigurvegari í mælskukeppni grunnskólanna 1997. Rimaskóla lagði Hagaskóla meö 42 stiga mun í æsispennandi og skemmtilegri viöureign sem haldin var í Ráðhúsi Reykjavíkur. Hér sést sigurliö Rima- skóla, þau Jón Hjörleifur Stefánsson, sem jafnframt var ræöumaöur kvöldsins, Ingvar Lárusson, Dagný Þórsdóttir og Gústaf Ólafsson. DV-mynd Hilmar Þór Séra Geir Waage: Sá gagnlega þjóðlífsrýni „Ég horfði á þetta vandlega í gær- kvöldi á myndbandi og ég sá sums staðar nokkuð gagnlega þjóðlífs- rýni. Mér finnst reyndar neikvætt að velja þennan háhelga tíma, að- fangadag páska, en sumt í þessu þótti mér beinlínis geta verið gagn- leg þjóðlífsádeila. Mér sýndist Spaugstofan m.a. vera að gagnrýna umgengni okkar við þessa heilögu hluti. Sumt af þvi minnti mig bein- línis á predikun frelsarans sjálfs. Ég skil hins vegar vel að menn skuli vera viðkvæmir fyrir þessum hlut- um. Ég virðist hins vegar ekki hafa komið auga á það sem biskup var að gagnrýna en mér þykir gott þegar hann er vandlætingasamur um það sem heilagt er. Hann á að vera það,“ segir séra Geir Waage um kvörtun biskups til útvarpsráðs vegna síð- asta Spaugstofuþáttar. Sigurður Valgeirsson dagskrár- stjóri sagði við DV i morgun að hann hefði séð þáttinn fyrir sýningu hans: „Ég taldi að þetta ætti ekki að meiða neinn. En eins og Karl Ágúst Úlfsson þá fagna ég rannsókn." -Ótt L O K I Veðrið á morgun: Slæmt ferðaveður Á morgun verður allhvöss eða hvöss austanátt um mestallt land og hlánar sunnan- og suð- austanlands. Þar verður rigning eða slydda en snjókoma annars staðar. Þó verður úrkomulítið norðvestan til. Undir kvöldið lægir heldur og dregur úr úr- komu. Veðrið í dag er á bls. 36 Rffuiun JÍJVí! /JJJJJlJ 'J Bílheimar ehf. Sævarhöfba 2a Sími:525 9000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.