Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1997, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1997
5
Fréttir
Skeifan 11 D • Sími 568 6466
Ríkissaksóknari vill sjá hvert endanlegt umhverfistjón verður vegna strandsins:
Beðið með að ákæra
Við söfnum fötum og skóm á eftirtöldum stöðum:
• Skútuvogi 1, i sama húsi og Raftækjaversiun íslands
• Fella- og Hólakirkju
• Seltjarnarneskirkju
• Hafnarfjarðarkirkju v/Strandgötu
• ísafjarðarkirkju
• Glerárkirkju, Akureyri
• Egilsstaðakirkju
Tekið er á móti heilum og hreinum fatnaði.
Gott er ef menn hafa tök á að flokka fötin sín:
karlmanna, kven- og barnaföt.
Tekið er við góðum skóm, bundnum saman.
OPIÐ: Fimmtudag og föstudag frá kl. 10 til 20
Laugardag frá kl. 10 til 18 (nema ísafirði).
\-\Tj HJÁLMRSTOFNUN KIRKJUNNAR
DMT
demantsbrýni
Þegar gæðin skipta máli
skipstjóra Vikartinds
- 4ra milljóna króna reiðufé liggur fyrir til tryggingar endurkomu hans
Akveðið hefur verið að bíða um
sinn með að taka afstöðu til þess
hvort eða með hvaða hætti skip-
stjóri Vikartinds, Michael Barz,
verður ákærður. Ástæðan er sú að
ekki er ljóst enn þá hve áhrif
strandsins á umhverfið verða um-
fangsmikil þó vissulega liggi fyrir
að langt er síðan jafnmikil spjöll
hafa verið unnin á náttúru landsins
á jafn skömmum tíma.
Michael Barz er kominn til
heimaborgar sinnar, Hamborgar,
enda var farbanni á hann hér á
landi aflétt fyrir skömmu. Trygging
hefur verið lögð fram gagnvart því
að hann komi aftur til íslands ef
ákæruvaldið óskar þess að hann
svari til saka í ákærumáli.
Hjá Héraðsdómi Reykjavíkur
liggur nú frammi bankabók sem
sýnir fram á 4 milljóna króna pen-
ingainnstæðu, reiðufé, sem útgerð
skipsins hefur lagt fram til trygg-
ingar því að skipstjórinn komi til
landsins ef á þarf að halda. Rann-
sóknarlögregla ríkisins fór fram á
að 5 milljóna króna trygging yrði
lögð fram en dómurinn féllst á að
upphæðin sem útgerð reiddi fram
yrði 4 milljónir króna.
Það sem ríkissaksóknari mun
væntanlega taka mið af þegar
ákvörðun verður tekin um ákæru
er hvort skipstjórinn hafi stofnað
áhöfn sinni í lifshættu með því að
neita ítrekað frá kunnugu fólki og
sérfræðingum að þiggja aðstoð varð-
Reykjavík:
Handtekinn
eftir þjófnað
Karlmaður var handtekinn
eftir að hann stal 7.500 krónum
úr rakarastofu á Amtmannsstíg
í gærmorgun.
Maðurinn komst reyndar í
burtu eftir þjófnaðinn en starfs-
fólk gat gefið greinargóða lýs-
ingu á honum. Hann var síðan
handtekinn á Skúlagötu
skömmu siðar. -RR
skips þegar Vikartindur var nánast
vélarvana skammt frá hættulegu
grunnbroti í Þykkvabæjarfjöru síð-
degis þann 5. mars. Eins og að fram-
an greinir verður auk þess ná-
kvæmlega tekið mið af því hve um-
hverflstjón verður mikið að teknu
tilliti til olíumengunar, leifa af gám-
um og vörum, skipsskrokknum
sjálfum og fleiru. -Ótt
Michael Barz, skipstjóri Vikartinds, hefur lagt fram þessa bankabók meö 4ra
milljóna króna innistæðu hjá Héraösdómi Reykjavíkur til tryggingar því að
hann komi aftur til íslands til aö svara til saka ef hann veröur ákæröur.
DV-mynd HÞG
EKTAITALSKT
PARMIGIANO REGGIANO...........Zanetti
GRAPPA NARDINI............Nardini
PECORINO.....................Pina
AVERNA SICILIANA........Fratelli Averna
MOZZARELLA..............Tenegrino
PROVOLONE PICCANTE.Zanetti/Carbinella
AMARONE...................Fabiano
GRANA PADANO..............Zanetti
MARSALA..................Lombardo
PROSCIUTTOfParma skinka)..Montorsi
r
KISILL HF. - umboðs og heildsala.
Ánanaustum 15 — Rvík — sími 551-5960-fax 552-8250.