Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1997, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 1997
7
DV Sandkorn
Fréttir
Túlkunarsvið
För Hermanns Skúlasonar hafn-
arstjóra og Þórunnar Gestsdóttur
aðstoöarmanns bæjarstjóra ísafjarð-
arbæjar til Flórída er nokkuð um-
deild í héraði. Þau fóru á dögunum
á ráðstefnu til
að kynna ísa-
flarðarhöin og
kostaði ferðin
drjúgan skild-
ing. Samkvæmt
Bæjarins besta
á ísafirði bar
þó ferðin
nokkum árang-
ur því
glæsifleyið
Queen Eliza-
beth II var í
framhaldinu væntanlegt til að efla
hag Vestfirðinga. Gísli Hjartarson
stórkrati á ísafirði hafði samband
við útgerð skipsins til að forvitnast
nánar um ferðir þess. Þá kannaðist
enginn við að skipið væri væntan-
legt til ísafjarðarbæjar. Aftur á móti
ætti það aö hafa viðkomu í Isfjord á
Svalbarða. Þykir nú nokkuð ljóst að
íjölga verði sviðahausum vestra og
taka upp sviðsstjóra túlkunarsviðs.
Ljóskan á
Saga Class
Hér kemur saga um ljóskuna sem
keypti sér flugmiða hjá Flugleiðum
til New York. Ljóskan kom inn í
flugvélina og settist beint í sæti á
Saga Class þó hún ætti að sitja i
venjulegu far-
þegarými. Ljós-
kan sat sem
fastast þrátt
fyrir mótmæli
flugfreyjanna
sem reyndu að
útskýra fyrir
henni að hún
ætti ekki að
sitja á Saga
Class. Flug-
stjórinn var þá
loks fenginn til
að fara og tala við ijóskuna. Flug-
freyjumar fylgdust spenntar með en
eftir örstutt spjall flugstjórans við
Ijóskuna spratt vinan á fætur og
hljóp aftur í og settist i venjulegt
sæti. Flugstjórinn kom fram í vél
ánægður á svip. „Hvað í ósköpun-
um sagðirðu eiginlega við hana,“
spurðu flugfreyjumar undrandi yfir
góðum árangri kafteinsins. „Ég
sagði henni að Saga Class færi ekki
til New York,“ svaraði flugstjórinn.
r
Oheppinn
bensínþjófur
Hann var ansi óheppinn þjófurinn
sem ætlaði aö stela bensini úr húsbíl
þegar bensínverkfallið stóð yfir á
dögunum. í bílnum er netnilega
bensíntankur en einnig annar tankur
sem geymir úr-
ganginn úr sal-
eminu. Þegar
eigandi húsbíls-
ins kom að bíl
sínum einn
morguninn sá
hann slöngu i
tankopinu en
ekki á bens-
íntanknum
heldur tanknum
með úrgangin-
rnn í. Á jörðinni lá tómur bensín-
brúsi og við hliðina á honum var
stór ælupoliur en sá sem ætlaði að
stela bensíninu var á bak og burt og
ekkert hefur spurst til hans síðan.
Skrældur
Elis Kjaran Friðfinnsson á Þing-
eyri er mörgum landsmönnum
kunnur af brautryðjendastarfi sínu
í vegargerð þar sem hann heldur
uppi að eigin frumkvæði vegasam-
göngum milli
Dýraljarðar og
Lokinhamza-
dals í Arnar-
firði. Elli Kjar-
an er ekki síð-
ur kunnur af
vísum sínum
sem margar
hafa orðið
fleygar. Hann
átti á dögunum
leið til Reykja-
víkur þar sem hann gekkst undir
allsheijar læknisrannsókn. í fram-
haldinu varð þessi visa til:
Af hjartanu tóku þeir heilsurit.
Ég var hlustaður, veginn og
skrældur
Þá reyndist neðan við naflann
vit,
þegar náttúrukjaminn var
mældur.
Umsjón: Róbert Róbertsson og
Reynir Traustason
Nýr kennari viö Qölmiölaskor í HÍ:
Sigrún Stefánsdóttir
réði eftirmanni sínum
Sigrún Stefánsdóttir sem stjórnað
hefur kennslu í fjölmiðlafræðum
tekur á næsta kennslumisseri við
stjórn blaðamannaháskólans í Árós-
um i Danmörku og hefur fengið árs-
leyfi frá störfum við Háskóla ís-
lands. Við kennslu hennar tekur
Sigrún Björnsdóttir, fréttamaður
hjá Ríkisútvarpinu.
Að sögn Þorbjamar Broddasonar,
prófessors og deildarforseta Félags-
vísindadeildar Háskóla íslands, var
orðið liðið á vetur þegar ljóst varð
að Sigrún fengi fyrmefnda skóla-
stjórastöðu í Danmörku. Því hefði
verið bragðið á það ráð að ráða
stundakennara tímabundið til eins
árs og að sögn hans verður formlega
gengið frá ráðningu kennarans á
næstu dögum í deildarráði Félags-
vísindadeildar.
Samkvæmt heimildum DV benti
Sigrún Stefánsdóttir sérstaklega á
eftirmann sinn við fjölmiðlaskor Fé-
lagsvísindadeildar. Þorbjörn stað-
festi að rétt væri að Sigrún hefði
bent á nöfnu sína Bjömsdóttur sem
eftirmann sinn. „Þetta er tillaga Sig-
rúnar Stefánsdóttur sem við förum
eftir og emm mjög ánægð með,“
sagði Þorbjörn í samtali við DV.
Hann sagði að Sigrún Bjömsdóttir
tæki við kennslu nöfnu sinnar á
næsta kennslumisseri á hausti kom-
anda, en sjálfur yrði hann formleg-
ur stjómandi skorarinnar. -SÁ
Rauði krossinn á Isafirði:
Fini
loftpressur
Traustbyggðar
léttar og
meðfærilegar
Þegar gæðin skipta máli
Skeifan 11 D • Sími 568 6466
Hjólahjálmar
á dúndurverði
Aöeins lcr. 2-90
Sigrún Stefánsdóttir hefur fengið ársieyfi frá kennslustörfum við Háskóla ís-
lands. Að tillögu Sigrúnar tekur Sigrún Björnsdóttir, fréttamaður á Ríkisút-
varpinu, við starfi hennar á meðan.
Borgartúni 26, Reykjavík Sími 562 2262 - Bæjarhrauni 6, Hafnarfirði Sími 565 5510
Bryndís tekur við
af Sigríði Hrönn
Fyrir
böm og fullorðna
Bryndís Friðgeirsdóttir, fyrrver-
andi bæjarfulltrúi á ísafirði, hefur
verið ráðin til að taka við af Sigríði
Hrönn Elíasdóttur á Svæðisskrif-
stofu Rauða krossins á ísafirði. Sig-
og ber ekki heilt starf. Nú, þegar
flóttamennirnir hafa komið sér fyr-
ir, er þörfin enn minni á heilum
starfsmanni," segir Sigrún.
Hún segir eftirsjá í Sigríði Hrönn
sem rækt hafi starf sitt með ágæt-
um. -rt
rún Árnadóttir, framkvæmdastjóri
RKÍ, staðfesti í samtali við DV að
gengið væri frá ráðningu hennar
samhliða því að starfið væri skorið
niður í hálft starf.
„Ástæða þess að við skerum þetta
starf niður er sú að svæðið er lítið