Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1997, Blaðsíða 14
14
FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 1997
FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 1997
íþróttir
Aftureld. (12)26
KA (15) 29
0-1, 5-1, 6-2, 6-7, 9-7, 10-8, 10-10,
11-10, 11-12, 12-13, (12-15), 12-17,
13-18, 14-19, 17-19, 19-20, 21-22, 21-24,
23-24, 24-25, 25-26, 25-29, 26-29.
Mörk Aftureldingar: Páll Þórólfs-
son 7, Ingimundur Helgason 7/6,
Gunnar Andrésson 3, Bjarki Sigurðs-
son 2, Siguijón Bjamason 2, Jón
Andri Finnsson 2, Sigurður Sveins-
son 1, Einar Gunnar Sigurðsson 1,
Þorkell Guðbrandsson 1.
Varin skot: Bergsveinn Berg-
sveinsson 20/1.
Mörk KA: Sergei Ziza 9/4, Róbert
Julian Duranona 7, Jóhann G. Jó-
hannsson 5, Jakob Jónsson 4, Björg-
vin Björgvinsson 2, Leó Öm Þorleifs-
son 1, Alfreð Gíslason 1.
Varin skot: Guðmundur Amar
Jónsson 18.
Brottvísanir: Afturelding 6 min.,
KA 6 mín.
Dómarar: Egill Már og Öm Mark-
ússynir, höfðu góð tök á leiknum og
gerðu fá mistök.
Áhorfendur: Um 800, troðfullt.
Maður leiksins: Guðmundur
Arnar Jónsson, KA.
Tvísýnt meö
Sigurð
Óvíst er hvort Sigurður.
Sveinsson, homamaðurinn knái
úr Aftureldingu, getur leikið
með í fjórða leiknum við KA á
Akureyri á morgun. Sigurður
þurfti að fara af velli eftir aðeins
17 mínútur í leiknum í gærkvöld
þegar rifnaði upp úr vöðva í kálf-
anum. Ljóst er að hann getur
allavega ekki spilað án deyfing-
ar.
-VS
Anja Andersen
til Valencia
Anja Andersen frá Danmörku,
besta handknattleikskona heims
að margra mati, leikur með
spænska félaginu Valencia
Urbane næstu tvö árin. Anja hef-
ur undanfarin ár leikið með
Bækkelaget í Noregi en spænska
félagiö hefur verið á höttunum á
eftir henni undanfarin þrjú ár.
Forráðamenn Bækkelaget segja
að þeir hafi reynt allt sem hægt
var að halda henni hjá félaginu
en það hafi verið útilokað að
keppa við Spánverjana hvað
launagreiðslur varðaði.
-VS
ísland fellur
um fjórtán sæti
ísland er í 76. sæti af 190 þjóð-
um á nýjum styrkleikalista Al-
þjóða knattspymusambandsins
sem var birtur í gær. ísland fell-
ur um fjórtán sæti frá því listinn
var birtur síðast, í febrúar, en
þess ber að geta að íslenska
landsliðið hefur ekki spilað síð-
an í nóvember. Góður árangur
annarra þjóða á meðan er því
ástæðan fyrir fallinu.
ísland er númer 32 af 50 Evr-
ópuþjóðum á listanum og hefur
misst Ungverjaland, Finnland og
Norður-írland uppfyrir sig síðan
siðast.
Brasilía er í efsta sæti sem
fyrr, en síðan koma Þýskaland,
Frakkland, Spánn og Danmörk.
Makedónía, næsti mótheiji ís-
lands í undankeppni HM, er í
80. sæti á listanum.
-vs
Beiðni United
var hafnað
Stjórn ensku úrvalsdeildar-
innar í knattspymu hafnaði í
gær ósk Manchester United um
að lengja keppnistímabilið um
eina viku. Þar með þarf Man.Utd
að leika fjóra leiki á síöustu átta
dögum tímabilsins.
-VS
KA - Afturelding 2-1
Sergei Ziza, Rússinn öflugi hjá KA, skoraöi níu mörk í Mosfelisbænum í gærkvöldi. Hér skorar hann eitt þeirra á dæmigerðan hátt, meö gegnumbroti, án þess að Þorkell Guöbrandsson og Siguröur Sveins-
son fái nokkuö aö gert. Ziza er án efa snjallasti gegnumbrotsmaöurinn í 1. deildinni í vetur. DV-mynd BG
Úrslitakeppnin í handboltanum:
Draumastaða KA
- getur tryggt sér íslandsmeistaratitilinn á heimavelli á morgun
Eftir þriggja ára baráttu í úrslita-
leikjum þar sem alltaf hefur verið á
brattann að sækja er KA loksins kom-
ið í draumastöðuna. Akureyrarliðið
vann Aftureldingu, 26-29, í þriðja leik
liðanna í Mosfellsbænum í gærkvöld
og getur þar með tryggt sér íslands-
meistaratitilinn í fyrsta skipti á hinum
öfluga heimavelli sínum á morgun.
Afturelding virtist ætla að stinga af
í byijun. Staðan var 5-1 eftir tíu mín-
útur og Mosfellingar voru sjóðheitir.
En þeir kólnuðu hratt. Fimm KA-
mörk sneru leiknum við og þó Aftur-
elding kæmist yfir á ný var KA kom-
ið á beinu brautina i sókn og vöm.
Fimm mörk skildu liðin að snemma í
seinni hálfleik en Afturelding sýndi
karakter með því að minnka muninn
í eitt mark. Síðan gátu Mosfellingar
tvívegis jafnað úr hraðaupphlaupum
í stöðunni 25-26 en í bæði skiptin
varði Guðmundur Arnar og fleytti
norðanmönnum yfir erfiðasta hjallann.
KA er komið á mikla siglingu á
hárréttum tíma og miðað við leikinn i
gærkvöld og stöðu mála eftir hann er
liðið með íslandsbikarinn langþráða í
höndunum. Það hefur hinsvegar sýnt
sig í úrslitaleikjunum að sveiflurnar
em miklar og heimavöllurinn einn og
sér tryggir engum neitt.
Eftir hrakfarir í lok deildakeppn-
innar spáðu ekki margir KA meist-
aratitlinum. Nú hefur liðið lent þrí-
vegis undir í úrslitakeppninni, gegn
Stjömunni, Haukum og Aftureldingu,
og alltaf snúið dæminu sér í hag.
Skýringar eru eflaust margar en ein
þeirra heitir Alfreð Gíslason. „Sá
gamli“ tók skóna fram enn einu sinni
þegar mest á reyndi og hefur gjör-
breytt varnarleik KA og enn er nóg
bensín á tanknum til að bregða sér í
hraðaupphlaup með góðum árangri.
Svo virðast KA-menn hafa sameinast
um aö kveðja Alfreð með stæl og færa
honum þann stóra, eina titilinn sem
KA hefur ekki unnið undir hans
stjóm. Það takmark eitt og sér virðist
vera liðinu næg hvatning.
Auk Alfreðs var Björgvin Björg-
vinsson fimasterkur í vöminni og
þáttur Guðmundar Amars var stór.
Duranona og Ziza voru báðir á eðli-
legu skriði, Jóhann frískur í hominu
og Jakob Jónsson skoraði dýrmæt
mörk í seinni hálfleiknum þegar aðr-
ir voru í strangri gæslu.
Góð markvarsla Bergsveins og stór-
leikur Páls Þórólfssonar í seinni hálf-
leik dugðu Aftureldingu ekki. Þar
munaði mestu að Bjarki Sigurðsson
komst aldrei í gang og að Sigurður
Sveinsson fór meiddur af velli i fyrri
hálfleik. Varnarleikurinn framstæði
gekk vel til að byrja með en eftir það
átti KA næg svör við honum.
Þurfum aö ná okkur niöur á
jöröina
„Það lá alltaf fyrir að við yrðum að
vinna leik hér í Mosfellsbænum og
fyrst það tókst ekki í fyrsta leiknum
varð það að koma núna. Manni brá
óneitanlega við þessa byijun hjá Aft-
ureldingu, það var eins og við væmm
kaldir í byrjun leiks og vomm á eftir
þeim í öllu, en sem betur fór sýndum
við karakter og jöfnuðum fljótlega.
Um leið og vörnin small, þá gekk
þetta. Nú þurfum við að ná okkur nið-
ur á jörðina og ná bikarnum fyrir
norðan. Við eigum tvo sénsa og verð-
um að grípa þann fyrri á heimavelli,“
sagði Guðmundur Arnar Jónsson,
markvörður KA, við DV.
Guðmundur Arnar var lengst af
„skúrkurinn" í KA-liðinu í vetur og
mikið gagnrýndur fyrir slaka mark-
vörslu. Hann hefur hinsvegar heldur
betur farið í gang í úrslitakeppninni.
„Ég veit ekki skýringuna á þessu en
sem betur fer er tímabilið nógu langt!
Ég var ekki ánægður sjálfur með
mína fraunmistöðu en varnarleikur-
inn hefur stórbreyst með komu Al-
freðs og það hefur haft mikið að
segja,“ sagði Guðmundur Arnar.
Veit hvernig er aö fara Krýsu-
víkurleiöina
„Spennustigið fór með okkur þegar
þeir fóru að saxa á forskotið. Um mið-
bik fyrri hálfleiks fengu þeir 4-5
hraðaupphlaup, og síðan víti ef ég
varði, og það er erfitt að vinna lið
eins og KA þegar það skorar svona
mikið úr hraðaupphlaupum. Þegar
við áttum möguleika á að jafna seint í
leiknum fóru menn að „slútta" eftir 10
sekúndur og þannig á bara ekki að
spila handbolta. Við virðumst ekki
geta spilað yfirvegað í svona spennu-
stigi. En ég er úr Hafnarfirði og veit
hvernig það er að fara Krýsuvíkur-
leiðina að titilinum, og hana forum
við,“ sagði Bergsveinn Bergsveinsson,
markvörður Aftureldingar.
-VS
NBA í nótt:
Naumt hjá Bulls
Chicago Bulls þurfti að beita öll- New Jersey-Milwaukee. 93-88 Sacramento-Phoenix .99-101 Atlandshafsriðlinum.
um kröftum til að knýja fram sigur Miami-Detroit ...... 93-83 Michael Jordan lauk leiknum með 34 Minnesota er einnig komið í úrslit í
gegn New York í nótt i bandaríska Dallas-Seattle. 82-90 stigum skoruðum en hjá Knicks skoarði fyrsta sinn. Stephon Murry var með 29
körfuboltanum. Houston-Vancouver . 102-94 Larry Johnson 33 stig. stig fyrir liöiö í nótt.
Úrslit í nótt: San Antonio-Portland.81-98 Tim Hardaway skoraöi 30 stig fyrir Mi- Golden State lagöi Denver í framleng-
Toronto-Orlando .. 69-105 LA Clippers-Minnesota.96-108 ami og Alonzo Mouming 26 stig. Liöiö ingu ig þar fór Latrell Sprewell fremst-
New York-Chicago . 103-105 Golden State-Denver . 109-107 lék frábærlega í vetur og sigraði í ur í flokki og skoraði 22 stig. -JKS
27 *
íþróttir
Eyjapeyinn Hermann Hreiðarsson er vinsæll knattspyrnumaður:
Arsenal hefur haft
samband við ÍBV
DV, Eyjum:
Eins og fram kom í DV á dögun-
um hefur enska stórliðið Arsenal
bæst í flóru fjölmargra félaga í
Skotlandi, Sviss, Þýskalandi,
Englandi, Noregi og Svíþjóð sem er
á höttunum eftir varnarmanni
ÍBV, Hermanni Hreiðarssyni.
Fulltrúi frá Arsenal hafði
samband við Jóhannes Ólafsson,
formann knattspyrnuráðs ÍBV, og
spurðist fyrir um samningsstöðu
Hermanns. Vildi hann helst fá Her-
mann strax út til reynslu og til að
skoða hann nánar. Af því getur
ekki orðið þar sem Hermann á við
smávægileg meiðsli að stríða auk
þess sem stutt er í að íslandsmótið
hefjist.
Hermann er greini-
lega orðinn mjög eftir-
sóttur knattspyrnu-
maður og liggur ljóst
fyrir að hann fer í at-
vinnumennsku næsta
haust ef rétt verð fæst
fyrir hann, að sögn Jó-
hannesar. Er hér því
um sannkallaðan gull-
kálf að ræða fyrir ÍBV.
„Ég hef grun um að
njósnari frá Arsenal
hafi verið á Kýpur-
mótinu á dögunum og
fylgst með Hermanni.
Ég skýrði fulltrúa
Arsenal frá því að
Hermann væri eftirsóttur en hann
væri samningsbundinn ÍBV til
Hermann Hreiöarsson er
vinsæll hjá erlendum
liöum.
haustsins 1998. Hins
vegar væri hann til
sölu næsta haust ef
rétt verð fengist fyrir
hann. Við vorum
beðnir um að leyfa
þeim að fylgjast með
gangi mála hjá Her-
manni og þeir ætla
að senda njósnara
hingað til lands til
þess að fylgjast með
Hermanni á næst-
unni, jafnvel fyrir
íslandsmótið, og ef
hann spilar með
landsliðinu," sagði
Jóhannes í samtali
við DV í gær.
Umboðsmenn
hafa verið iðnir
við að hringja í Jóhannes til að
spyrjast fyrir um Hermann. Eins
og mörgum er eflaust í fersku
minni gerði enska 1. deildar félag-
ið Crystal Palace tilboð í Hermann
fyrr í vetur. Hermann hafnaði því
og framlengdi í staðinn samning
sinn við ÍBV um eitt ár og verður
því með ÍBV að minnsta kosti til
haustsins.
„Það hefur sýnt sig að þessi
ákvörðun Hermanns, að hafna til-
boðinu frá Crystal Palace, var rétt
því hann er það eftirsóttur. Áhugi
Arsenal núna sannar það. Allur
þessi áhugi setur svo sannarlega
pressu á strákinn sem hann verður
að þola,“ sagði Jóhannes Ólafsson.
-ÞoGu
A.
Óvæntur árangur
hjá Hermundi
- leiddi Heimdal upp í úrvalsdeildina
Strákarnir
skelltu
Svíunum
ísland vann góðan sigur á Sví-
þjóð, 75-63, í undanriðli Evrópu-
keppni unglingalandsliða í gær-
kvöldi en hann er leikinn í
Portúgal.
Sævar Sigurmundsson og
Morten Smiedowicz skoruðu 16
stig hvor fyrir ísland og Sæ-
mundur Oddsson 12.
í fyrstu umferðinni í fyrradag
steinlá íslenska liðið fyrir Spán-
verjum, 59-93. ísland mætir
Portúgal í kvöld og síðan Pól-
verjum og írum. Þrjú efstu liðin
i riðlinum komast áfram.
-VS
Hermundur Sigmundsson, fyrr-
um leikmaður með Stjömunni, hef-
ur náð óvæntum árangri sem þjálf-
ari norska handknattleiksliðsins
Heimdal frá Þrándheimi.
Heimdal vann sér á dögunum
sæti í norsku úrvalsdeildinni eftir
að hafa borið sigurorð af Elverum í
aukaleikjum, en Elveram lék í úr-
valsdeildinni í vetur. Þar er annar
íslendingur, Gunnar Gunnarsson,
þjálfari og leikmaður.
Fyrri leikurinn í Þrándheimi
endaði með jafntefli, 24-24, og mögu-
leikar Heimdal þóttu þvi ekki mikl-
ir. En liðið vann frækinn sigur á
heimavelli Elverum, 20-19, eftir að
hafa lent fimm mörkum undir.
Óhætt er að segja að Heimdal sé
spútnkiliðið í norskum handbolta
um þessar mundir. Liðið vann sig
upp úr 2. deild í fyrra og markmið-
ið var að halda sæti sinu í 1. deild.
I staðinn náði það einu af efstu sæt-
unum og fékk tækifæri til að vinna
sig upp í úrvalsdeildina, sem það
nýtti sér.
-DVÓ/VS
Lárus Orri ætlar að halda tryggð við Stoke:
Neitar Newcastle
- Dalglish tilbúinn til að borga 110 milljónir
Staðarblað í Stoke skýrði frá því
í gær að Lárus Orri Sigurðsson,
fyrirliði enska knattspymuliðsins
Stoke City, myndi ekki taka freist-
andi tilboði frá úrvalsdeildarliðinu
Newcastle.
Sagt var að Kenny Dalglish,
framkvæmdastjóri Newcastle, væri
að undirbúa 110 milljóna króna til-
boð í íslenska landsliðsmanninn og
að Manchester United, Nottingham
Forest og Manchester City hefðu
líka sýnt honum mikinn áhuga.
Láras Orri skrifaði fyrir
skömmu undir nýjan þriggja ára
samning við Stoke og sagði við
blaðið að hann hefði ekki áhuga á
að yfirgefa félagið.
„Ég hefði ekki skrifað undir nýj-
an langtímasamning nema ég væri
100 prósent ákveðinn i að leika
meö Stoke um ókomin ár. Ég hef
fulla trú á því að þetta félag hafi
alla burði til að komast í úrvals-
deildina og stefni fullum fetum að
því að leika hér allan samningstím-
ann,“ segir Lárus Orri við blaðiö.
Stoke er í ellefta sæti l. deildar
og þarf að ná sjötta sætinu til að
komast í úrslitakeppnina um úr-
valsdeildarsæti. Fimm leikir eru
eft;r og möguleikamir því enn fyr-
ir hendi en það bendir þó flest til
þess að Lárus Orri verði að láta sér
1. deildina duga á komandi keppn-
istímabili. -DVÓ/VS
Evrópukeppni bikarhafa í knattspyrnu:
Hrakfarir hjá Liverpool
- Fiorentina náði jafntefli í Barcelona
Ensk knattspyrna varð fyrir
áfalli annað kvöldið í röð þegar
Liverpool steinlá, 3-0, fyrir Paris
SG í gærkvöld. Þetta var fyrri leik-
ur liðanna í undanúrslitum Evrópu-
keppni bikarhafa og Liverpool á
erfitt verkefni fyrir höndum á
heimavelli sínum.
David James, markvörður Liver-
pool, hélt áfram að færa mótherjum
liðsins mörk á silfurfati. Leonardo
og Benoit Cauet skoraðu ódýr mörk
hjá honum í fyrri hálfleiknum og
síðan innsiglaði Jerome Leroy stór-
sigur Frakkanna með marki rétt
fyrir leikslok.
„Við lékum ekki eins og lið, spil-
uðum alltof hægt og eins og ellefu
einstaklingar. Liðið skorti þolin-
mæði, og það skorti stolt,“ sagði
Roy Evans, framvæmdastjóri Liver-
pool, vonsvikinn eftir leikinn.
Fiorentina frá Ítalíu náði hag-
stæðum úrslitum - 1-1 jafntefli við
Barcelona á Spáni. Miguel Angel
Nadal kom Barcelona yfir í lok fyrri
hálfleiks en Gabriel Batistuta jafn-
aði fyrir Fiorentina um miðjan síð-
ari hálfleik. Hann verður ekki með
í seinni leiknum eftir að hafa feng-
ið sitt annað gula spjald í keppninni
og það kann að reynast ítalska lið-
inu dýrt. -VS
ÍR er fallið
úr A-deild
ÍR féll í gærkvöldi úr A-deild
Reykjavíkurmótsins í knatt-
spyrnu þegar liðið tapaði fyrir
Fylki, 2-0. Kristinn Tómasson og r*
Ólafur Sigurjónsson skoruðu
mörkin.
Staðan fyrir ina: síðustu umferð-
Fram 4 3 1 0 9-2 10
KR 4 2 2 0 6-3 8
Valur 4 2 1 1 9-5 7
Vlkingur 4 1 1 2 5-7 4
Fylkir 4 1 1 2 3-6 4
ÍR 4 0 0 4 2-11 0
Tvö efstu liðin leika til úrslita
um titilinn. I síðustu umferð
mætast Fram-Valur, KR-ÍR og
Fylkir-Vikingur.
Þróttur vann Fjölni, 4-2, í B-
deildinni. Páll Einarsson, Vil-
hjálmur Vilhjálmsson, Gestur
Pálsson og Andri Sveinsson *
skoraðu fyrir Þrótt en Sveinn
Ögmundsson og hinn 14 ára
gamli Ólafur Páll Snorrason fyr-
ir Fjölni. Staðan í B-deildinni:
Þróttur R. 2 2 0 0 14-3 6
Fjölnir 3 2 0 1 12-5 6
Leiknir R. 2 2 0 0 8-1 6
Ármann 2 10 1 3-9 3
Léttir 2 0 0 2 2-6 0
KSÁÁ 3 0 0 3 2-17 0
-VS
Um helgina
Handbolti karla - úrslit:
KA-Afturelding (2-1).........16.00
Deildabikarinn í knattspyrnu:
KA-Leiftur...................Ak. F. 18.00
Þróttur N.-KR ......Leikn. L. 11.00
Völsungur-ÍBV .......Hafn. L. 13.00
Dalvík-Valur...............Kóp. L. 13.00
FH-Sindri ...........Hafn. L. 15.00
Þór A.-Skallagrímur . . Kóp. L. 15.00
Fram-Selfoss .......Leikn. L. 15.00
ÍA-Víkingur Ó.............Hafn. L. 17.00
ÍBV-Breiöablik......Hafn. S. 11.00
Njarðvík-Sindri.......Kóp. S. 11.00
Dalvík-Léttir ......Leikn. S. 11.00
Þróttur N.-FH .......Hafn. S. 13.00
Vikingur R.-Völsungur Kóp. S. 13.00
Fjölnir-Þór A............Leikn. S. 13.00
Leiftur-Haukar ......Hafn. S. 15.00
Grindavík-ÍA........Grind. S. 15.00
ÍR-Vikingur Ó.......Leikn. S. 15.00
Fylkir-Afturelding . . . Hafn. S. 17.00