Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1997, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1997, Blaðsíða 4
FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 1997 JL>V Hónlist ísland / j=plötur og diskar— | 1. (1 ) Pottþétt 7 Ýmsir t 2. ( 4 ) Romeo & Juliet Úr kvikmynd | 3. ( 2 ) Pop U2 t 4. ( 5 ) Stoosh Skunk Anansie * 5. ( 3 ) Evita Úr kvikmynd t 6. ( 9 ) Spice Spice Girls i 7. (12) Space Jam Úr kvikmynd t 8. (11) Blur Blur 4 9. ( 7 ) Tragic Kingdom No Doubt 4 10. ( 6 ) Falling into You Celine Dion 111. (Al) Live Secret Samadhi 112. (Al) Homework Daft Punk 113. (14) Fólkerfífl Botnleðja 114. (Al) Strumpastuð Strumparnir >15. (10) Boatmans Call Nick Cave 116. (20) í,Álftagerði Alftagerðisbrœður 117. (- ) Lœf ó Dubliners Papar > 18. (15) Grammy Nominees 1997 Ýmsir 119. (Al) Coming Up Suede t 20. (Al) Earthling David Bowie London —----- -lijg- I I 1. ( 5 ) Believe I Can Fly R. Kelly | 2. (1 ) Richard III Supergrass | 3. ( 3 ) Don t speak No Doubt t 4. ( - ) Underwater Love Smoke City i 5. ( - ) It's No Good Depeche Mode > 6. ( 2 ) Mama/Who Do You Think You Are Spice Girls | 7. ( 6 ) Belissima DJ Quicksiiver t 8. (12) Block Rockin' Beats The Chemical Brothers | 9. ( 7 ) Encore Une Fois Sash! t 10. (- ) To Live & Die in LA Mkaveli New York > t 1.(1) Can't Nobody Hold Me down Puff Daddy Z ( 2 ) Wannabe Spice Girls 3. ( 3 ) You Were Meant for Me Jewel 4. ( 4 ) All By Myself Celine Dion t 5. ( 9 ) For You I Will (From „Space Jam") Monica $ 6. ( 5 ) ln My Bed ; Dru Hill t 7. ( 8 ) l'H Be Foxy Brown > 8. ( 6 ) Every Time I Close My Eyes Babyface > 9. ( 7 ) Un-Broak My Heart Toni Braxton t 10. (13) I Want You Savage Garden Bretland 1.(1) 2. (-) 3. (4) 4. (-) 5. (10) 6. (5) 7. (-) 8. (3) 9. (-) 10. (-) Spice Spice Girls Wet WetWet Tragic Kingdom No Doubt Lisa Stansfield Lisa Stansfield Blue is the Colour The Beautiful South Everything Must Go Manic Street Preachers Glow Reef Still Waters Bee Gees White On Blonde Texas Cowboy Erasure Bandaríkin - plötur og diskar—— I 1. ( - ) Life After Death The Notorious B.I.G. I 2. (6) Falling Into You Celine Dion | 3. ( 5 ) Spice Spice Girls | 4. ( 2 ) Space Jam Soundtrack ( 5. ( 1 ) Nine Lives Aerosmith 6. ( 7 ) Pieces of You Jewel 7. ( - ) Selena Soundtrack 8. ( 9 ) Brínging Down the Horse The Wallflowers | 9. ( 4 ) Unchained Melody/The Early Y... Leann Rimes 110. (10) Tragic Kingdom NoDoubt Franskt fönk frá Da funk var upprunalega geflð út á 12 tommu árið 1994 og seldist aðeins í tvö þúsund eintökum. í raun var gersamlega litið fram hjá laginu þang- að til Chemical Brothers tóku lagið í fóstur og byrjuðu að spila það á tónleikum hjá sér. Þá fyrst heyrði fólk talað um hljómsveitina Daft Punk. í dag hafa flestir þeir sem fylgjast með heyrt lagið Da funk og vita eitthvað smá um hljómsveitina. Fyrsta stóra plata Daft Punk kom út seint á síð- asta ári, hún hefur fengið frábæra dóma og mikla athygli í Evrópu. Danstónlistin Daft Punk er samsett af tveimur ungum Frökk- um, þeim Guy-Manuel de Homem-Christo og Thomas Bangalter, strákum sem hafa verið vinir frá því í gagnfræðaskóla. Báðir voru þeir aldir upp við nýbylgjurokkið og poppið og fóru í raun ekki að íila house/danstónlist fyrr en upp úr 1992. Thomas segir það hafa gerst þegar þeir fóru að fara i klúbbana. Það var virkilega spennandi að heyra tónlist sem maður hafði aldrei heyrt áður. Á heilu kvöldi heyrði maður kannski tvö eða þrjú lög sem maöur þekkti. Guy-Manuel seg- ist enn fremur vera orðinn leiður á rokktónleik- um Frakka, segir stemminguna frekar dauða miðað við það sem er aö gerast í heimi danstón- listarinnar. Hvaðan kemur nafnið? Nafnið hefur haft sitthvað að gera með vin- sældir hljómsveitarinnar. Daft Punk? Hvað meina mennirnir eiginlega með þessu? Nafnið á í raun rætur sínar að rekja til brimsveitarinnar Beach Boys. Þegar Guy- Manuel og Thomas voru 17 og 18 ára tóku þeir nefnilega upp Beach Boys- lag án söngs, notuðu aðeins gítar og trommu- heila. Upptökunni komu þeir til Stereolab, sem setti hana síðan á tólf tommu hjá sér. Tólf tomm- an seldist í tæpum 1500 eintökum og fékk slæma dóma i Melody Maker. Um lagið sagði blaðamað- urinn m.a. ...was a bunch of daft punk. (gróf þýð- ing: ...var heilmikið heimskt pönk) og þar var nafn sveitarinnar komið. Niðurrífandi gagnrýni Stereolab reyndist heldur betur uppbyggileg fyrir strákana Daft Punk. Pólitískt teknó Það er mikill hiti í kringum þá sem spila dans- tónlist í Frakklandi. Eiturlyfjabaráttan er komin á það stig að menn eru sagðir vera að ýta undir eiturlyíjaneyslu með því að opna dansklúbba eða ef þeir halda reif. í augum yfirvalda er samasem- merki milli eiturlyfjaneyslu og danstónlistar og því eru allir þeir sem búa til tónlist af því tagi í hættu. Nýlegar handtökur eftir partý sem þetta sýndi að lögreglan handtók ekki aðeins og sak- felldi þá sem seldu lyfin, heldur einnig plötusnúð- inn og á hann nú yfir höfði sér 7 ára fangelsis- dóm. Daft Punk-menn eru lausir við eiturlyf, að Frönsku félagarnir i Daft Punk eru gífurlega vinsælir í Evrópu um þessar mundir og ættu flestir aö kannast viö lagiö Da funk sem hefur hlotiö rífandi spilun í heimi danstónlistarinnar. þeirra sögn, og finnst þvi mikið óréttlæti og mik- il ógn stafa af þessari stefnu lögreglunnar í Frakklandi. En þrátt fyrir allt sem er að gerast í Frakklandi hefur Daft Punk náð gífurlegum vinsældum í Evrópu og ef fram heldur sem horfir gæti vel far- ið svo að hljómsveitin neiti að spila í sínu eigin heimalandi. Danstónlistin er það sem skiptir máli og hana spila þeir hvar sem er, hvenær sem er og hafa gaman af. -GBG TÓNLISTARMOLAR Brjálað hjá Blur Blur gaf út smáskífuna Song 2 þann 7. apríl en þar er að finna nýju lögin Get Out of the Cities, Polished Stone, Bustin’ and Dronin’ og Country Sad Ballad Man (Live Acoustic Version). Blur er nú á hljómleikaferð um Bandaríkin. Ný plata með endur- hljóðblöndunum á eldri lögum þeirra mun vera á leiðinni. Malasía rokkar ekki Yfirvöld í Malasíu hafa að undanfórnu verið að herða baráttu sína gegn diskódansi, rokki, pönki og reiftónlist. Næturklúbbaeigendum er til dæmis gert að loka stöðum sinum klukkan eitt á nóttunni en þangað til í lok janúar gátu þeir haft opið til klukkan þrjú. Forsætisráðherra landsins hef- ur látið hafa eftir sér að „pönk- menning sé heimskuleg og gagnslaus.“ Richey ekki í Goa Sagt var frá því í Fjörkálfi DV nýlega að fyrrverandi meðlimur Manic Street Preachers, Richey Edwards, hefði sést á hippaúti- markaði í Goa á Indlandi en hann hvarf í byrjun árs 1995. Breska lögreglan telur nú að það sé ekki rétt og rannsakar ekki lengur þann möguleika að Richey sé þar í borg. Tímabundinn hljóm- borðsleikari The Charlatans hafa fundið nýj- an hljómborðsleikara en hann mun heita Tony Rodgers. Rodgers þessi kemur í staðinn fyrir hljóm- borðsleikarann Rob Collins sem lést í bílslysi i júlí síðastliðnum. Hljómsveitarmeðlimir segja að nýi hljómborðsleikarinn sé einungis tímabundið meðlimur í The Charlatans. Suede gefa út Þann 7. apríl gaf Suede út nýja smáskífu af breiðskífunni Coming up. Á smáskífunni er meðal ann- ars lagið Digging a Hole sem hljómborðsleikari Suede, Neil Codling, samdi einn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.