Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1997, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1997, Blaðsíða 7
+ FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 1997 helstu minni hans sem komu síðar fram á ferli hans sem rit- höfundar. Þetta er um æsku- kraftinn og má segja að hér sé á ferð geysilega örlagaþrunginn tangó sem heil íjölskylda dansar og unga fólkið í fjölskyldunni leikur stærstu hlutverkin," segir Halldór E. Laxness leikstjóri. Það hljóta að teljast tímamót að ráðist sé í uppsetningu á þessu stórvirki Laxness. í Vefar- anum lýsir skáldið því hvernig sterk öfl takast á um sál ungs manns. Ástin og trúin heyja ein- vígi um hylli Steins Elliða sem á í stöðugri baráttu við leit sína að fullkomnun. Trúnni er teflt fram gegn ástinni á frændsysturinni Diljá og ættarsaga Ylfinganna fléttast á einstakan hátt inn í þessa miklu örlagasögu ung- mennanna tveggja. Þau Marta Nordal og Þor- steinn Bachmann fara með hlut- verk Diljár og Steins Elliða og Hákon Waage leikur Ömólf föð- urbróður þeirra. í öðrum helstu hlutverkum eru Guðbjörg Thoroddsen, Sunna Borg og Þrá- inn Karlsson en leikendur eru fjölmargir. Finnur Arnar Arnar- son er höfundur leikmyndar, Kristján Edelstein sér um tónlist og leikhljóð, Hulda Kristín Magnúsdóttir hannar búninga og um lýsingu sér Jóhann Bjami Pálmason. Jón Thor Gíslason sýnir málverk og teikningar í Hafnarborg í apríl, Jón Thor opnar málverkasýningu Jón Thor Gíslason opnar mál- verkasýningu í Sverrissal Hafn- arborgar, menningar- og listastofn- unar Hafnarfjarðar, á morgun kl. 14. Á sýningunni verða málverk og teikningar. Jón Thor stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla íslands 1977-82 og við Staatliche Akademie der Bildende Kunste, Stuttgart, Þýskalandi, 1989-92. Að því loknu var hann í námi í ffjálsri málun hjá prófessor Erich Mansen. Jón Thor hélt sína fyrstu einka- sýningu árið 1983 og auk þess að hafa haldið einkasýningar hefur hann tekið þátt í fjölda samsýninga hér heima og erlendis. Sýningin stendur til 28. apríl og er opin frá kl. 12-18 alla daga nema þriðju- daga. Þýsk/norska listakonan Barbara Vogler opnar sýningu á teikning- um í kaffistofu Hafnarborgar á morgun kl. 14. Barbara er fædd í Þýskalandi árið 1937. Hún stundaði nám í mál- un, teikningu og grafík við Statliche Akademie der Kunste í Stuttgart í þrjú ár, Hochschule fúr Bildende Kunst í Berlin i fimm ár og við Kunst og Handverkskolen í eitt ár. Hún hefur verið starfandi listamaður síðan 1964 með búsetu í Noregi en hefur einnig unnið að list sinni tímabundið í París, Suð- ur-Frakklandi og á Spáni. Á sýningunni verða teikningar unnar með blýanti, litblýanti og pastellitum á handunninn pappír. Barbara segir verkin unnin undir þeim áhrifum sem hún varð fyrir í sinni fyrstu íslandsferð. Sýningin veröur opin virka daga frá kl. 9-18 en frá kl. 11-18 um helgar fram til 28. apríl. Hallsteinn Siyurðsson í Ásmundarsafni Á morgun kl. 16 verður opnuð í Ásmundarsafni við Sigtún sýning á verkum eftir Hallstein Sigurðsson sem ber yfir- skriftina Kúla', píramíti og skel. Á undan- fömum árum hefur lista- mönnum ver- ið boðið að sýna verk sin í nábýli við verk Ás- mundar Sveinssonar og að þessu sinni hefur Hallsteini verið boðið að sýna verk sín og annast hönnun á sýningunni almennt. Hallsteinn Sigurðsson stundaði nám við Myndlista- og handíðaskólann á árunum 1963-1966 og síðan fram- haldsnám við Hornsey College of Art 1966-1967, Hammersmith Col- lege of Art 1967-1969 og St. Martinl s School of Art 1969-1972. Þá hefur hann farið í námsferðir til Ítalíu, Grikklands og Bandaríkjanna. Hallsteinn hefur um árabil unn- ið að gerð óhlutlægra myndverka ýmist í járn eða ál. Hann hefúr þróað myndgerð sem annars vegar ein- kennist af svifrænum formum, sem hann teiknar í rýmið, og hins vegar af hálffigúratíf- um formum sem lýsa krafti og efh- ismassa. í tengslum við sýning- una hefur verið gefin út sýningarskrá með mynd- um af verkum eftir Hallstein og hugleiðingum um listina og sam- band hans við Ásmund Sveinsson. Sýning Hallsteins stendur til 5. maí og er opin daglega frá kl. 13-16. Hallsteinn Sigurösson hefur um árabil unniö aö gerö óhlutlægra myndverka ým- ist í járn eöa ál. Um helgina veröur haldin hundasýning á vegum Hundaræktarfélags íslands í reiöhöll Gusts ■ Kópavogi. Sýningin hefst kl. 11 bæöi á morgun og sunnu- dag. Á sýningunni veröur m.a. valinn besti hvolpur tegundar, besti öldung- ur tegundar og besti hundur tegundahóps. Kostir hins villta lífernis á Suðurlandi Nemendafélag Fjölbrautaskóla Suðurlands frumsýndi í gær söng- leikinn Kostir hins villta lífemis eftir Bjöm Þór Jóhannsson, Björg- vin Rúnar Hreiðarsson, Eyrúnu Björgu Magnúsdóttur, Lenu Björk Kristjánsdóttur og Rúnar Þórar- insson. Lög og textar era öll frum- samin og þess má geta að hljóm- sveitina skipa fimm ungir menn sem allir nema við Fjölbrauta- skóla Suðurlands. Verkið fiallar um unga krakka sem era í vímuefnaneyslu og sjá einungis það sem er gott við það, en hörmulegur atburður gerir þeim ljóst að þau era ekki að stefna í rétta átt og lífsviðhorfin breytast í kjölfarið. Leikstjóri er Guðmundur Karl Sigurdórsson, fyrrverandi nem- andi skólans, og er þetta frumraun hcms sem leikstjóri. Hann hefur um áralangt skeið tekið þátt í uppfærslum hjá Leik- félagi Selfoss og Fjölbrautaskólan- um. Leikritið verður sýnt á Hótel Selfossi og verða næstu sýningar þann 15. og 16. apríl. Fjölbrautaskóli Suöurlands sýnir leikrit sem fjallar um ungt fólk í vímuefna- neyslu. ■** ”. um helgina 21 * SÝNINGAR Ásmundaraafn, Sigtúni. 12. apríl kl. 16 verður opnuð sýning á verkum eftir Hallstein Sigurðsson. Opið dag- lega frá kl. 13-16 fram til 5. maí. Galleri, Xngólfsstrœti 8. Verk eftir Þorvald Þorsteinsson til 27. apríl. Opið fim.-sud. kl. 14-18. Gallerí Fold, Rauðarárstíg. Verk Daða Guðbjörnssonar í baksal Gall- erí Foldar. Opið daglega frá kl. 10-18, laugard. frá kl. 10-17 og sunnud. frá kl. 14-17. Gallerí Hornið, Haftiarstrœti 16. Sýning á verkum Elinar P. Kolka og Sigríðar Einarsdðttur er opin alla daga kl. 11-23.30 til 16. apríl. Gallerí Sýnirými. f Gallerí Sýni- boxi: Morten Kildevæld Larsen; í Gallerí Barmi: Stefán Jónsson, ber- andi er Yean Fee Quay; Gallerí Hlust: Halldór Bjöm Runólfsson og „The Paper Dolls“; í Gallerí 20 m2: Guðrún Hjartardóttir. Gallerí Sævars Karls, Banka- stræti 9. Sýning Páls á Húsafelli stendur til 16. apríl. Opið frá kl. 10-18 virka daga. Gerðuberg. Sýning á verkum eftir Magnús Tómasson stendur til 26. maí. Sýningin er opin fimmtud. til sunnud. frá kl. 14-18. Haftiarborg. Jón Thor Gíslason opnar í Sverrissal, laugardaginn 12. apríl kl. 14. Opið alla daga nema þriðjudaga frá 12-18 fram til 28. apr- fl. Barbara Vogler opnar sýningu á teikningum í kaffistofu Hafnarborgar laugardaginn 12. aprfl kl. 14. Opið virka daga frá kl. 9 18 en kl. 11-18 um helgar fram til 28. apríl. Kaffi-Lefolii og Húsið á Eyrar- bakka. Ingibjörg Rán Guðmunds- dóttir er með sýningu til aprílloka. Opið kl. 20-23.30, um helgar frá kl. 14-23.30. Kjarvalsstaðir. Sýning á verkum eftir bandaríska listamanninn Larrys Bells. Sýningin stendur fram til 11. maí. Opið daglega kl. 10-18. Kjarval: Lifandi land. Listhús 39, Strandgötu 39, Hafn- arfirði. Laugardaginn 12. aprfl verð- ur opnuð sýning Einars Unnsteins- sonar þar sem verða til sýnis vegg- skápar af ýmsum gerðum. Sýningin verður opnuð kl. 16 og stendur til sunnudagsins 27. apríl. Opið mán.-fós. kl. 10-18 lau. ki. 12-18 og sud. kl. 14-18. Listhúsið Laugardal, Engjateigi 17. Verk eftir Sjöfn Har. Opið virka daga frá kl. 13-18 og lau. íd. 11-14. Listacafé, Listhúsi, Laugardal. Magdalena Margrét Kjartansdóttir sýnir verk sín., , Listasafn ASI, Asmundarsalur, Freyjugötu 41. Sýning á verkum Kristjáns Steingríms. Opið þriðjud. til sunnud. Jd. 14-18. Listasafh Islands, Bergstaða- stræti 74. Safn Ásgríms Jónssonar, vatnslitamyndir, febrúar-mai. Safhið er opið um helgar, kl. 13.30-16. Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn, Hamraborg 4. Sýning á verkum Helgu Einarsdóttur listmálara í Vestursal, Gréta Mjöll Bjamadóttir er með sýningu á neðri hæð og Sveinn Bjömsson listmálari sýningu í austursal. Sýningamar stenda til 27. apríl. Opið alla daga nema mánud. frá 12-18. Listasafn Siguijóns Olafssonar, Laugamesi. Sérstök skólasýning með völdum verkum eftir Siguijón. Opið lau. og sun. kl. 14 og 17 og eftir samkomulagi. Listhúsið í Laugardal, Engjateigi 17. Verk eftir Sjöfn Har. Opið virka daga kl. 13-18 og lau. kl. 11-14. Listþjónustan, Hverfisgötu 105. Opið alla daga nema mán. frá kl. 12-18 og um helgar frá kl. 14—18. Norræna húsið. 10. apríl kl. 18 verður opnuð sýning á verkum eftir 7 norska myndlistarmenn í anddyri Norræna hússins. Sýningin verður opin daglega kl. 9-19 nema sunnu- daga kl. 12-17 og henni lýkur 11. maí. Síðasta sýningarhelgi á mál- verkum Sigurðar Þóris. Sýningin er opin frá kl. 14-19. Sjónarhóll, Hverfisgötu 12. Sýn- ing á verkum eftir Magnús Tómas- son stendur til 27. aprfl. Opið fim.-sun. kl. 14-18. Skruggusteinn, Hamraborg 20 a, Kópavogi. Rannveig Jónsdóttir sýn- ir teikningar til 25. arpfl. Sýningin er opin alla virka daga frá kl. 12-18 og laugardaga kl. 11-16. Snegla listhús. Dagana 4.-12. aprfl , stendur yfir kynning á myndum eftir Ernu Guðmarsdóttur. Opið mánu- daga tíl fóstudaga kl. 12-18 og laug- ardaga kl. 10-14. Stöðlakot, Bókhlöðustíg 6. Sýning Guðrúnar Svövu Svavarsdóttur á vatnslitamyndum til 13. apríl. Opið alla daga kí. 14-18. Tehúsið í Hlaðvarpanum, Vestur- götu 3. Skúlptúrverk Ragnhildar Stefánsdóttur myndhöggvara til 20. apríl. Opið á laugardögum mflli 14 og 17. Undir pari, Smiðjustíg 3. Ráðhild- ur Ingadóttir opnar verslun í sýning- arrýminu fóstudaginn 11. apríl kl. 20. Opið frá kl. 20-23 fimmtudaga, föstudaga og laugardaga. Sýningin sjtendur í tvær helgar til 19. apríl. * Urbanía, Laugavegi 37. Sýning á verkum eftir Steingrím Eyfjörð tíl 20. apríl. Ónnur hæð, Laugavegi 37. Sýning á verkum Eyborgar Guðmundsd. er opin á mið. frá 14-18. Eden, Hveragerði. Myndlistarsýn- ing á nýjum og nýlegum akrýlmynd- um eftir Hannes Scheving. Sýningin stendur yfir frá 8. til 21. aprfl. t

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.