Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1997, Side 8
8
MÁNUDAGUR 14. APRÍL 1997
Útlönd
3Z>V
Jagland á lista
norskra
nýnasista
Fjórir ungir nýnasistar voru
handteknir nálægt Ósló um helg-
ina vegna gruns um að ætla að
ráðast gegn sljómmálaleiðtogum.
Lögreglan fann lista í fórum
mannanna, sem eru um tvítugt,
með nöfnum
þekktra stjórn-
málaleiðtoga,
þar á meðal
Thorbjorns Jag-
lands forsætis-
ráðherra. Ekki
er talið útilokað
að nýnasistar
hafi ætlað aö gera árásir á leiðtog-
ana eða jafnvel myrða þá. Einnig
fann lögreglan dýnamit, skotheld
vesti og hjálma hjá nýnasistunum.
Fjörutíu og níu ára gömul kona,
sem grunuð er um að hafa ijár-
magnað meinta andlýðræðislega
starfsemi, var handtekin í Bergen
á fóstudag.
Yfirmaður norsku öryggislög-
reglunnar, Elien Holager Andena-
es, sagði í viðtali við norsku frétta-
stofuna NTB að talið væri að fjór-
menningarnir væru meðal leiö-
toga herskárra norskra nýnasista.
Norskir nýnasistar hafa á und-
anfórnum árum æ oftar hitt
sænska, þýska og aðra nýnasista á
rokktónleikum erlendis og orðið
þar fyrir áhrifum, að því er sér-
fræðingar í málefnum öfgahópa
segja. Reuter
Skelfing grípur um
sig í höfuðborg Saír
- fresturinn sem uppreisnarmenn veittu útrunninn
Skelfmg greip um sig í Kins-
hasa, höfuðborg Saír, í gær þeg-
ar uppreisnarmenn lýstu því
yfir að þeir ætluðu að sækja á
ný gegn borginni til að freista
þess að koma Mobutu Sese Seko
forseta frá völdum. Þriggja daga
fresturinn, sem uppreisnar-
menn veittu forsetanum til að
fara frá, er nú útrunninn.
Andstæðingar forsetans hafa
hvatt til þess að öll starfsemi í
höfuðborginni liggi niðri 1 dag.
Er það liður í tilraun þeirra til
að binda enda á 32 ára valdafer-
il Mobutus.
íbúar höfuðborgarinnar
hömstruðu ýmsan varning í
gær og varð það til þess að verð
fór upp úr öllu valdi á mörkuð-
um. Innfluttur varningur er á
þrotum þar sem verslunareig-
endur hafa ekki þorað að birgja
sig upp af ótta við gripdeildir.
Yfirmaður hersins í Kinshasa
kom fram í sjónvarpi í gær og Mobutu Saírforseti, til hægri á myndinni, og Lingbangi forsætisráðherra heilsast fyr-
hvatti þjóðina og útlendinga til ir fund sinn í forsetahöllinni í Kinshasa um helgina. Símamynd Reuter
að halda ró sinni. Kvað hann
herinn reiðubúinn að verja höf-
uðborgina.
Greint var frá því í sjónvarps-
fréttum i Saír í gær að ótti hefði
gripið um sig í hverfum nálægt
flugvellinum við Kinshasa eftir
að andstæðingar Mobutus þar
hefðu hvatt íbúana til að hafa
sig á brott. Flugvöllurinn er ná-
lægt því svæði norðaustur af
borginni þar sem uppreisnar-
menn segjast hafa komið sér
fyrir.
Mobutu forseti lýsti því yfir í
fyrsta skipti á laugardaginn að
hann kynni að vera reiðubúinn
til viðræðna við Kabila upp-
reisnarforingja. Forsetinn tók
það þó fram að slíkt væri aðeins
mögulegt ef KabUa færi kurteis-
lega fram á fund.
Liðsmenn Kabila hafa nú yfir
helming landsins á valdi sínu,
þar á meðal mikUvæg svæði ná-
lægt höfuðborginni.
Reuter
Menntamálaráöuneytið
Norrænir
starfsmenntunarstyrkir
Menntamálaráðuneyti Danmerkur, Finnlands og Noregs veita á námsárinu
1997-98 nokkra styrki handa fslendingum til náms við fræöslustofnanir í þess-
um löndum.
Styrkirnir eru einkum ætlaðir til framhaldsnáms eftir iðnskólapróf eða hlið-
stæða menntun, til undirbúnings kennslu í iðnskólum eða framhaldsnáms iön-
skólakennara, svo og ýmiss konar starfsmenntunar sem ekki er unnt að afla
sér á íslandi. Einnig er gert ráð fyrir að sams konar styrkir verði í boöi til
náms I Svíþjóð á næsta námsári. Fjárhæð styrks í Danmörku er 20.500 d.kr.,
I Finnlandi 27,000 mörk, í Noregi 22.400 n.kr. og í Svíþjóð 14.000 s.kr.
Umsóknir um styrkina, ásamt staöfestum prófskírteinum og meömælum,
skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 13.
maí nk. Sérstök umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráöuneytiö, 11. apríl 1997
F.h. Hitaveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboöum í aflspenna
fyrir 3. áfanga Nesjavallavirkjunar.
Gögnin “Power Transformers 40/40/20 MVA, 132/11/11 kV” eru á
ensku. Verkið felst í hönnun, framleiðslu og afhendingu á tveimur
þrívefju aflspennum. Spennana skal afhenda fob 1.5.1998.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, frá og meö þriöjud. 15.
apríl nk.
Opnun tilboða: fimmtudaginn 29. maí 1997 kl. 14.00 á sama
staö. hvr 57/7
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræðings er óskað eftir
tilboöum í húsgögn í fjóra leikskóia Reykjavíkurborgar. Um er
aö ræða húsgögn í tvo nýja fjögra deilda leikskóla og tvær
viöbyggingar við eldri leikskóla.
Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri frá og meö þriöjudeginum 15.
apríl nk. gegn 5.000 kr. skilatr.
Opnun tilboða: þriðjudaginn 6. maí 1997 kl. 15.00 á sama staö.
bgd 58/7
F.h. Byggingadeildar borgarverkfræöings er óskaö eftir
tilboðum í viögerðir og endursteypu á stéttum við Vesturbæjarlaug.
Um er aö ræða brot og endursteypu á stéttum með hitalögn.
Útboðsgögn fást á skrifstofu vorri gegn 10.000,- kr. skilatryggingu.
Opnun tilboða: þriöjudaginn 29. apríi 1997 kl. 15.00 á sama
Stað. bgd 59/7
INNKAUPASTOFNUN
REYKJAVIKURBORGAR
Frlkirkjuvegi 3 - Slmi 552 58 00 - Fax 562 26 16
Óeiröir brutust út í Downing Street í London á laugardaginn milli um hundraö stuöningsmanna atvinnulausra hafn-
arverkamanna og lögreglu. Um sjö þúsund manns, þar á meðal fjöldi atvinnulausra, fatlaðra, ellilífeyrisþega og út-
lendinga, tóku þátt í fjöldagöngu hafnarverkamannanna. Símamynd Reuter
Iran:
Hundruð þúsunda
bölva Þýskalandi
Hundruð þúsunda reiðra Irana
söfnuðust saman við sendiráð
Þýskalands i Teheran í íran í gær.
Kölluðu íranimir slagorð gegn
Reiðir iranir viö sendiráö Þýska-
lands í Teheran. Símamynd Reuter
Þýskalandi og einnig Bandarikjun-
um og ísrael.
Kröfðust göngumenn afsökunar
frá þýskum yfirvöldum vegna úr-
skurðar þýsks dómstóls í síðustu
viku um að íransstjóm heföi fyrir-
skipað morð á kúrdískum andófs-
mönnum í Berlin.
Yfirvöld í Iran tilkynntu á laugar-
daginn að þau hygðust kveðja heim
sendimenn sína frá þeim Evrópu-
sambandsríkjum sem kallað hafa
erindreka sína heim til skrafs og
ráðagerða, það er öllum nema
Grikklandi.
Rafsanjani, forseti írans, sakar
þýsk yfirvöld um að vera handbendi
Bandaríkjanna og ísraels. í dagblað-
inu Iran News vom Evrópusam-
bandsríki hvött til aö taka ekki þátt
í viðskipta- og stjómmálabaráttu
Bandaríkjanna gegn íran. Banda-
rísk yfirvöld saka íransstjóm um að
styðja hryðjuverkastarfsemi. Yfir-
völd í íran hafa vísað þessum ásök-
unum á bug. Reuter
Stuttar fréttir
Skaut ísraela
Palestínsk kona, sem kom frá
Jórdaníu tO Vesturbakkans, skaut
og særði tvo ísraela og araba í gær.
Fagnaö sem hetju
Romano Prodi, forsætisráðherra
Ítalíu, var fagnað sem hetju er hann
kom til Albaníu í gær.
íhuga skipti
Einingarflokkurinn á Indiandi hef-
ur boöist til að skipta út Deve Gowda,
leiðtoga flokksins,
sem beið lægri hlut í
atkvæðagreiðslu um
traust á rikisstjóm-
ina. Kongressflokkur-
inn hefur krafist þess
að Gowda, sem nú er bráðabirgðafor-
sætisráðherra, fari frá.
Prestur rekinn
Prestur í London, sem í mars olli
uppþoti er hann sagði þjófnaði í
stórmörkuðum réttlætanlega, hefur
misst starfið.
Fleiri líkhlutar
Belgíska lögreglan, sem leitar
fjöldamorðingja, hefur fundið fleiri
plastpoka með líkhlutum. Reuter