Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1997, Side 11
MÁNUDAGUR 14. APRÍL 1997
11
Ídv Fréttir
Magnesíumverksmiöja á Reytjanesi:
Ekki nægileg arðsemi
fyrir fjárfesta
I
l
í
í
i
i
i
>
$
>
i
)
)
)
)
DV, Suðurnesjum:
„Það er alls ekki ljóst enn hvort
verksmiðjan verður byggð. Eins og
dæmið lítur út nú er það ekki
nægilega arðsamt með 10-12% mið-
að við fjárfestingarkostnað. Arð-
semin þyrfti að vera í lágmarki
15% til að hægt væri að fara af stað
og til þess að laða að þessu fjár-
festa,“ sagði Júlíus Jónsson, for-
stjóri Hitaveitu Suðumesja, í sam-
tali við DV.
Aðalfundur íslenska magnesi-
mnfélagsins hf. var 10. apríl og
þar kynnt hagkvæmnisathugun
og helstu niðurstöður varðandi
byggingu verksmiðju á Reykja-
nesi. Samþykkt var heimild til
stjómar að auka hlutafé í allt að
400 milljónir og fyrir lágu heim-
ildir til sölu hlutafjár að upphæð
200 milljónir. Stjórnin hafði sam-
þykkt að selja 180 milljónir.
Hlutaféð verður nýtt eins
og nauðsynlegt er til að
ljúka forvinnu, hönnun,
ijármögnun, markaðsöfl-
un svo hægt sé að taka
ákvörðun um byggingu
verksmiðju eigi síðar en í
byrjun næsta árs.
Á fundinum kom fram
að þýskt fyrirtæki, Salt-
gitter Anlagenbau, er
reiðubúið að gera bind-
andi samning um bygg-
ingu verksmiðju, sem
væri tilbúin og gangsett
með 50 þúsund tonna ár-
lega framleiðslu hreins
magnesíums, fyrir 35
miiljarða. Menn telja að
hægt sé að lækka bygging-
arkostnað um 5 milljarða.
Júlíus segir að vegna
þátttöku íslendinga í verk-
efninu sé ljóst að um 25%
O Reykjavík
r\? y
I X
O Reykjanesbær
í Hafnarberg
Ef verksmiðja rís verður þab skammt frá Höfnum.
af öllum tækjabúnaði verði
íslensk framleiðsla. Hann
segir að af hagkvæmnisá-
stæðum sé nauðsynlegt að
leita frekari hagræðingar og
spamaðar áður en endanleg
ákvörðun verður tekin um
byggingu verksmiðjunnar.
Við athugun kom í ljós að
ýmsir þættir eru til lækkun-
ar sem ekki var unnt að
skoða nógu nákvæmlega
meðan á könnun stóð.
Júlíus telur að þessir þætt-
ir gætu þýtt um 8% lækkun
stofnkostnaðar og um 10%
lækkun rekstrarkostnaðar.
Náist þessi spamaður mun
heildararðsemin aukast um-
talsvert eða í um 17-20%.
Tíminn til áramóta verður
notaður til að sannreyna það.
Ýmsir staðir á Reykja-
nesskaga koma til greina
undir verksmiðjuna. Eftir nána
könnun á flutningsleiðum, land-
rými, jarðhitasvæðum og mengun-
arhættu, jafnt sjónrænni sem
annarri, varð svæði við Kópu,
norðan Hafnabergs, fyrir valinu.
Verksmiðja sem framleiðir 50 þús.
tonn þarf 400 starfsmenn auk þess
sem um 300-400 störf skapast
óbeint.
í könnuninni kemur fram að
markaðssambönd hafi náðst og
fyrirhugaðir langtímasölusamn-
ingar á verulegu magni fram-
leiðslunnar eru komnir nokkuð á
veg. Undirtektir nokkurra stórra
bílaframleiðanda hafa verið slíkar
að búast má við að staðfest verði
með viljayfirlýsingu áhugi þeirra
á kaupum um helming fram-
leiðslu þegar ákvörðun verður
tekin um byggingu verksmiðjunn-
ar.
-ÆMK
Vestlensku hrossin lofa góðu
Hestamenn á Vesturlandi komu
með tugi hesta til sýninga í Reið-
höllinni í Kópavogi um helgina.
Sýningar voru ijórar og sýningarat-
riði rúmlega tuttugu.
Að sýningunni stóðu hesta-
mannafélögin níu, sem verða með
fjórðungsmót á Kaldármelum í sum-
ar, og verða mörg hrossanna, sem
fram komu, sýnd á Kaldármelum,
jafiit kynbótahross sem gæðingar.
Sýningin tókst mjög vel og runnu
hrossin í gegn um reiðhöllina og
sýninguna án átaka. Mörg hross-
anna lofa góðu og kom á óvart hve
vel gekk að þjálfa þau til að sýna sín-
ar bestu hliðar, því mörg þeirra eru
ung og svæðið var afmarkað. E.J
Hestamenn af Vesturlandi kynntu hross sín ( Reiðhöllinni í Kópavogi um
helgina. DV-mynd E.J.
ÆUMENIAX
E N G R I L f K
5005
uppþvottavél
Þvær á 22 mínútum.
Hljóölát
Rafbraut
Bolholti 4 - sími 568 1440
myviuciriegir
stóðhestar
Hrossaræktarsamtök Suðurlands
hafa gefið út myndarlegan bækling
með upplýsingum um 60 stóðhesta á
Suðurlandi.
Hverjum hesti eru gerð góð skil
með upplýsingum um ættir, hæsta
dóm, kynbótamat, eigendur og notk-
unarstaði auk litmynda.
Hrossaræktarsamtökin voru
stofnuð 22. september 1996 og er for-
maður Kristinn Guðnason en Jón
Vilmundarson er framkvæmda-
stjóri.
Þessi bæklingur er framhald svip-
aðra bæklinga sem hafa komið út
imdanfarin ár á Suðurlandi. Það er
fúll ástæða til að hrósa þeim sem að
þessum bæklingum standa fyrir frá-
bært framtak. -E.J.
P
laitmp
Teg: Appia
Leðurlitir - Svart - L
Millibrún
3-1-lkr. 236.270,-
Þa skaltu líta til okkar þvi við eigum
margar gerðir af vönduðum "ekta"
leðursettum með gegnumlitaðri nauts-
húð. Þessi ítölsku sett eru öll sérlega
falleg og þægileg -eins og þau gerast best.
Teg: Meiissa
Leðurlitir - Vmrautt - Dökkfjolublatt -
Grænt - Svart - Gulbrúnt
Verið velkomin til okkar.
Opnunartími fram á haust
Má til Fi. 9-18 Fö. 9-19
5% staðgreiðsluafslattur
eða góð greiðslukjör til
margra mánaða.