Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1997, Qupperneq 19
MÁNUDAGUR 14. APRÍL 1997
19
Ósonlagið
þvnnist enn
Dsonlagið er enn að þynnastí
yfir norðurpólnum. Það varfi
15-25% þynnra í mars síðastliðn-
um en í mars í fyrra. Þetta kem- r
ur fram í skýrslu Alþjóðlegu veð- í
urstofunnar (World Meteorolog-|
ical Organization). Samkvæmt f‘
skýrslunni er ástandið á ósonlag- i
inu verst yfir norðurpólnum og-
norðurhluta Síberíu. Ástæðan
fyrir þessu er sem fyrr losun ým-1
issa klórsambanda, sem meðal|
annars er að finna í ísskápum og
úðabrúsum, út í andrúmsloftið. I
skýrslunni segir enn fremur að '■
með samstilltu átaki alls heims-
ins um að draga úr losun þessara j
efna megi koma í veg fyrir áfram-;
haldandi þynningu ósonlagsins. \
Nýr blóðþrýstings-
mælir
Margir
hafa áhyggj-
ur af blóð-
þrýstingnum
og þurfa að
é##
.m
'+k
fylgjast með
hnnnm com "niiaf.irii
honum sem
oftast. En það getur oft tekið tíma I
að mæla hann og ekki er alltaf
tími til að setjast niður með mæl- !
inn og mæla í rólegheitum. En nú
er komið nýtt tæki sem mælir
blóðþrýstinginn á nokkrum sek-
úndum og birtir hann síðan á
skjá sem auðvelt er að lesa á.
Tæki þetta mælir einnig hjart-
slátt. Eins og sést á myndinni er
tækið mjög auðvelt í notkun og
einnig er það létt og meðfærilegt.
Þar með getur maður í raun og
veru fylgst með blóðþrýstingnum
hækka á álagsstundum.
Þráðlaus sími með
tveimur loftnetum
Þráðlausir símar hafa þótt
þarfaþing lengi og þeim fjölgar
stöðugt sem kjósa þennan síma
frekar en gamla snúrusímann. En
þeir þráðlausu hafa þann hvim-
leiða galla að ef maður fer of
langt frá símtækinu með tólið þá
verða móttökuskilyrðin heldur
slæm og stundum heyrist ekkert í
þeim sem talað er við. Panasonic
hefur nú hafið framleiðslu á nýrri
tegund af þráðlausum síma til að
ráða bót á þessu. Það sem sá sími
hefur fram yfir aðra er að loftnet-
in eru tvö. Þar með eru minni lík-
ur á að samband detti út. Önnur
nýjung er sú að hægt er að draga
hljóðnema símans inn á meðan
ekki er verið að tala en það er
gert til þess að draga úr bak-
grunnshljóðum.
Myndsímar
Illa hefur gengið að markaðs-
setja skjásíma síðan þeir komu
fyrst á markað. Líkleg ástæðan
þess var talin sú að tvo síma þarf
til að þetta virki, auk þess sem
mynd- og hljóðgæði eru alls ekki
nógu góð. En nú er útlit fyrir að
það sé að breytast því nýr
skjásími er að koma á markað.
Það sem er sérstakt við hann er
einkum tvennt. Annars vegar er
hraðvirkt 33,6 Kb. mótald sem
gerir það kieift að senda myndir í
lit en aðeins var hægt að senda
þær í svarthvítu þegar hægvirk-
ari mótöld voru notuð. Hins veg-
ar er hægt að tengja símann við
önnur tæki, svo sem aðra
skjásíma, tölvur eða sjónvarp.
Þetta gerir notkun skjásima mun
méira aðlaðandi en áður.
-*f lÁbjjJiJj vsj 'j^uJíJjj------------------
Geimferð ferjunnar Kólumbíu varð heldur endaslepp:
Vandræði í aflgjafa
ferjunnar Columbia
Kólumbía lendir í Flórída eftir misheppnaóa geimferö.
Sfmamynd Reuter
Þegar geimferjunni Kólumbíu var
skotið á loft 4. apríl síðastliðinn,
tveimur dögum á eftir áætlun, von-
uðust vísindamennimir hjá NASA
til þess að vandræðin, sem fylgt
höfðu skotinu, væru á enda. En sú
von rættist ekki. Flaugin, sem vera
átti í geimnum í 16 daga, varð að
hætta flugi eftir aðeins tvo daga.
Þetta voru mikil vonbrigði fyrir vís-
indamennina en geimskot þetta
hafði verið í undirbúningi í 3 ár
áður en það var framkvæmt.
Vandræði með aflgjafa
Á þessum 16 dögum átti sjö
manna áhöfn ferjunnar að gera 33
tilraunir. Athuga átti hvemig eldur
hegðaði sér í þyngdarleysi og einnig
átti að rækta próteinkristalla fyrir
læknisfræðilegar rannsóknir. Fyrir
geimskotið hafði einn aflgjafi af
þremur sem knýja ferjuna áfram
sýnt örlítil vandræðamerki. Vís-
indamennirnir hjá NASA töldu
samt sem áður að hann væri í not-
hæfu ástandi, og fóstudaginn 6. apr-
íl var flauginni skotið á loft. 7
manna áhöfn var innanborðs. Fljót-
lega eftir geimskotið kom í ljós að
ekki var allt alveg með felldu í
flauginni. Tilkynnt var að aflgjafinn
væri í ólagi. Það myndi þýða að þeir
yrðu að kalla ferjuna til baka vegna
eld- og sprengihættu.
Ferjan kölluð heim
Sunnudaginn 6. apríl leit um tíma
út fyrir að aflgjafinn hefði tekið við
sér og vísindamenn önduðu léttar
þar sem útlit var fyrir að ekki þyrfti
að kalla flaugina til baka. Fljótlega
varð þó ljóst að óumflýjanlegt var
að kalla flaugina til baka tii að
tryggja öryggi þeirra sem voru um
borð í ferjunni en ferjan getur lent
örugglega þó að aðeins tveir aflgjaf-
ar séu virkir. Þ.a.l. varð ferðin, sem
upphaflega átti að taka tvo sólar-
hringa, aðeins tæpir tveir dagar í
geimnum. Geimfórunum tókst ein-
ungis að ljúka broti af þeim tilraun-
um sem þeir áttu að gera í forinni.
Ferjan lenti á Kennedy-geimstöð-
inni í Flórída á þriðjudag, aðeins
fjórum dögum eftir að henni var
skotið á loft. Sú lending tókst vel.
Vísindamenn hafa orðið fyrir
miklum vonbrigðum með hvernig
endirinn á þessu varð. Þeir segjast
ekki hafa nægileg gögn til að skilja
nákvæmlega aðstöðuna. Þeir segjast
þó vongóðir um að hægt sé að leggja
í þessa för fljótlega aftim. Geim-
fararnir sjálfir urðu líka vonsvikn-
ir.
Þetta var aðeins í þriðja skipti
sem stytta þurfti einhveija geimferð
á vegum NASA. í nóvember 1981
varð að kalla geimferju til baka
vegna bilaðs efnarafals og radar-
tæki bilaði i annarri geimferð árið
1991. -HI/Reuter
Læknar krefjast aðgerða
vegna hættulegra sjúkdóma
Hún valdi
skartgripi
frá Silfurbúðinni
Æ9) SILFURBÚÐIN
'-X/ Kringlunni 8-12 • Sími 568 9066
- Þarfœrðu gjöfina ■
ISPÓ
Góöur og ódýr kostur
Ispó er samskeytalaust
akrýlmúrkerfi.
Yfir 600 hús kleedd á síðastliðn-
um 14 árum. 5 ára ábyrgð.
Gerum tilboð í efni og vinnu, þér
að kostnaðarlausu.
Múrklæöning hf.
Smiðsbúð 3, 210 Garðabær
Sími 656 8826
Heimurinn horfist í augu við gríð-
arlegan heilsufarsvanda þar sem
lungnabólgufaraldur geisar á ný og
bakteríur og veirur verða ónæmar
fyrir lyfjum, segir í skýrslu sem Al-
þjóða heilbrigðisstofiiunin hefur gefið
út. í skýrslunni er einnig sögð tölu-
verð hætta á að sjúkdómar, sem tald-
ir voru heyra sögunni til, skjóti aftur
upp kollinum.
Hiroshi Nakajima, forsvarsmaður
stofnunarinnar, hvetur öli lönd heims
til að leggja meira fé í baráttuna gegn
smitsjúkdómum sem verða tæplega
50.000 manns að aldurtila á degi hverj-
um og draga einnig úr möguleikum á
sviði viðskipta og ferðamannaþjón-
ustu. „Smitsjúkdómar eru á meðal
okkar. Þeir virða engin landamæri.
Öll heimsbyggðin verður að vinna
saman að því að stöðva þá,“ sagði
harrn.
Læknar hafa vonað að búið sé að
útrýma sjúkdómum á borð við bólu-
sótt og malaríu og að taugaveiki, löm-
unarveiki, bamaveiki, gula og heila-
himnubólga bætist fljótlega í þann
hóp. En Alþjóða heilbrigðisstofnunin
segir þetta ekki rétt. Sumir þessara
sjúkdóma hafa komið upp aftur í
mörgum löndum og um 30 nýir smit-
sjúkdómar, sem engin lækning hefur
fundist við, hafa komið ffam á síðustu
tveimur áratugum. í skýrslu stofnun-
arinnar er t.d. spáð að alnæmi muni
hrjá tæplega 30 milljónir manna í
heiminum árið 2000. Nýjasta plágan
er síðan kúariða sem í mönnum breyt-
ist í hrörnunarsjúkdóminn Creutz-
feldt-Jakob.
í skýrslunni er því haldið fram að
ástæðan fyrir þessu séu miklar flug-
ferðir, stærri borgir og ófullnægjandi
hreinlætisaðgerðir. Árið 1996 fóru 2,5
milljarðar manna um landamæri með
flugi og þá eru ótaldir þeir sem flúið
hafa heimaland sitt og sest að á Vest-
urlöndum. „Vesturlandabúum finnast
þeir öruggir heima hjá sér. Það eru
þeir ekki. Við getum ekki verið örugg
um okkur,“ segir David Heymann,
læknir hjá Alþjóða heilbrigðisstofnun-
inni. „Maðurinn er nú orðinn smit-
beri milli heimsálfa, rétt eins og skor-
dýr.“
Heymann segir að margar veirur
og sýklar séu að verða ónæm fyrir
lyfjum sem notuð hafa verið. Barna-
veiki hefur aftur skotið upp kollinum
í Rússlandi og Úkraínu, gula breiddist
hratt út í Afríku og berklar hafa ver-
ið að gera vart við sig I Bandaríkj-
unum. „Fúkkalyf eru ekki eins áhrifa-
rík og áður,“ segir Heymann.
Lyf sem notuð eru gegn krabba-
meini og við líffæraígræðslur hafa
einnig orsakað sjúkdóma. Þau hafa
leitt til þess að gömlu og veiku fólki
með lélegt ónæmiskerfi hefúr fjölgað.
Slik skilyrði eru tilvalin fyrir sýkla.
Heymann segir að á Vesturlöndum
séu aðallega heimildir um krabba-
mein og hjartaáfoll en ekki smitsjúk-
dóma. „Við vitum ekki hvað bíður
mannkynsins. Um leið og við hættum
eftirliti eykst hætta á sjúkdómum. Við
verðum að halda baráttunni áfram.“
-HI/Reuter
Rjómasprautur og gashylki
(passar í allar gerðir)
ÖKisag
Rjóma-
sprautur
•Tertur með rjóma •Kökurmeð rjöma
•Kaffimeðrjóma “ísmeðrjóma