Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1997, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1997, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 1997 Utlönd Bretar og Frakk- ar tapa deilu um kvótaniðurskurð Sjávarútvegsráöherrar Evrópu- sambandsins samþykktu með meirihluta atkvæða í gær að draga úr fískveiðum um allt að þrjátíu prósent á fimm ára tíma- bili til að vemda flskistofna. Bretar, sem höfðu krafist þess að vandamál vegna svokallaðra kvótahoppara frá Spáni og Hollandi yrðu leyst fyrst, greiddu atkvæði gegn niöurskurðinum. Það sama gerðu Frakkar sem vUdu að dregið yrði úr veiðunum um fimmtán prósent á þremur árum. „Við erum ekki tUbúnir að horfa áfram upp á að fjórðungur breska fiskiskipaflotans sé í eigu og undir stjóm útiendinga,“ sagði Tony Baldry, sjávarútvegsráð- herra Breta, við fréttamenn eftir atkvæðagreiösluna. Kvótahopp er það kaUað þegar erlendir útgerðarmenn stofiia fyr- irtæki i Bretlandi tU að komast þannig yfir breska veiðikvóta. John Major forsætisráðherra sagði á mánudag að Bretar mundu beita neitunarvaldi sínu á ríkjaráðstefnu ESB í Amsterdam í júní ef ekki yrðu gerðar breyting- ar á fiskveiðistefnunni. Vaxandi áhyggj- ur af blóðbaði Vaxandi áhyggjur eru nú af hugsanlegu blóðbaði og stjórn- leysi í Kinshasa, höfuðborg Saírs, þar sem borgin er efst á lista upp- reisnarmanna sem sækja fram um aUt land. Fimm miUjónir manna búa í Kinshasa, síöasta vígi Mobutus Seses Sekos forseta sem neitar aö fara frá. Reuter Rumlega tvo hundruö fórust í eldi við Mekka Á þriðja hundrað pílagrímar fór- ust í eldi í gær sem kom upp í tjald- búðum nálægt Mekka i Sádi-Arabíu sem er helg borg múslíma. Sádiar- abíska rikissjónvarpið greindi frá því í morgun að að minnsta kosti 217 hefðu látið lífið og 1.290 slasast í eldinum sem kom upp á Menaslétt- unni sem er í 11 km fjarlægð frá Mekka. Ástand margra hinna slös- uðu er alvarlegt. Talið er að flest fómarlambanna hafi verið frá Indlandi, Pakistan og Bangladesh. AUs eyðtiögðust um 70 þúsund tjöld í eldinum sem kviknaði í gær- morgun og breiddist hratt út vegna vinda. Stjómarerindrekar og sjón- arvottar segja að eldurinn hafi kom- ið upp er gashylki sprakk. Sjón- varpsmyndir sýndu öryggissveitar- menn draga burt gashylki frá slys- staðnum. Skelfing greip um sig í tjaldbúð- unum er eldurinn kom upp rétt fyr- ir hádegi í gær. Vitað er til þess að einn tróðst undir er pílagrímar reyndu að flýja eldinn sem ekki tókst að slökkva fyrr en um kl. þrjú síðdegis. Fyrir tveimur áram létu þrír lífið er eldur kom upp í tjaldi Sádiaraba á Menasléttunni. Alvarlegasta slys- ið í pílagrímaferðum á síðari tímum varð árið 1990 þegar rúmlega 1.400 pílagrímar tróðust undir í göngum. Fyrir þremur árum létu 270 pila- grímar lífið í troðningi. Embættismenn í Sádi-Arabíu segjast hafa gert sitt besta til að isariildarprentsmiilja ehf. ísafoldarprentsmiðja ehf. er ein stærsta prentsmiðja landsins. ísafoldarprentsmiðja var stofnuð árið 1877 og verður því 120 ára á þessu ári. ísafoldarprentsmiðja býður uppá mjög fjölbreytta prentþjónustu og leggur áherslu á vönduð vinnubrögð, hraða og góða þjónustu. Hjá ísafoldarprentsmiðju starfa í dag um 40 starfsmenn. Vegna aukinna umsvifa óskar ísafoldarprentsmiðja eftir að ráða nýja prentsmiði til starfa. - Prentsmiðir Við leitum að fólki með reynslu í 4 lita skeytingu, útkeyrslu og með góða tölvuþekkingu. Við leitum að kraftmiklum og drífandi starfsmönnum. Nánari upplýsingar verða veittar hjá verkstjóra forvinnsludeildar ísafoldarprentsmiðju í síma 550 5982 og hjá Ábendi. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál. Vinsamlega sækið um á eyðublöðum sem liggja frammi á skrifstofu. Ábendis sem fyrste en í síðasta lagi fyrir hádegi föstudaginn 18. apríl n. k. A r Á B E N D I R Á Ð G J Ö F & RÁÐNINGAR AUGAVEGUR 178 S I M I : 568 90 99 FAX: 568 90 96 Einn hinna slösuðu fluttur á sjúkrahús. Alls slösuðust 1.290 í eldsvoðanum við Mekka og er ástand margra alvar- legt. Símamynd Reuter tryggja öryggi pílagríma. Hafa þeir hvatt pílagrímana til að hlýða til- mælum um öryggisráðstafanir, sér- staklega á yfirfylltum svæðum. Komið hefur verið fyrir eftirlits- myndavélum á helstu vegum, brúm og göngum, sem pílagrímar fara um, til að tryggja að allt fari frið- samlega fram. Veittir hefur verið um 1.300 milljarðar íslenskra króna á síðasta áratug til að stækka svæði fyrir pílagríma í Mekka og um- hverfis borgina. Alls eru um 2 milljónir pílagríma frá um 100 löndum í Sádi-Arabíu. Hámark pílagrímsferðarinnar er í dag er pílagrímar halda á Arafatfjall þar sem Múhameð spámaður flutti síðustu predikun sína fyrir fjórtán öldum. Reuter Gagnrýni á mannréttindabrot vísað frá: Stuttar fréttir Kínverska stjórnin fagnaði sigrinum Kínversk stjómvöld fögnuðu því í morgun að þeim tókst að koma í veg fyrir að mannréttindanefnd Samein- uðu þjóðanna tæki fyrir ályktun þar sem ávíta átti þau fyrir mannrétt- indabrot. Þau hvöttu Vesturlönd til að draga nú lærdóm af þessari sjö- undu misheppnuðu tilraun sinni til að gagnrýna Kínverja. „Kínverska stjórnin lýsir hér með yfir aðdáun sinni og þakklæti í garð þeirra landa sem héldu merki rétt- lætisins á lofti og studdu Kína,“ sagði Shen Guofang, talsmaður kín- verska utanríkisráðuneytisins, í morgun. Með dyggum stuðningi ríkja þriðja heimsins tókst Kínverjum að fá ályktun sem Danmörk, Bandarík- in og nokkur lönd til viðbótar, þar á meðal ísland, stóðu að, vísað frá. Bandarísk stjómvöld hörmuðu í gær afdrif ályktunarinnar um mannréttindamál í Kína og sögðu þau ekki í samræmi við þau grand- vallargildi sem mannréttindanefnd- inni væri ætiað að standa vörð inn. Talsmaður Kínastjómar sagði að með ályktun sinni heföu flutning- slöndin reynt að þrýsta á Kínverja og hafa áhrif á innanríkismál í Kína. Þetta er sjöunda árið í röð sem ekki tekst að fá samþykkta gagn- rýni á mannréttindabrot Kínverja. í þetta sinn tókst flutningslöndum ályktunarinnar ekki að afla sér stuðnings nokkurra vestrænna ríkja, þar á meðal Frakklands, Kanada, Þýskalands og Ástralíu. Fulltrúar ríkja þriðja heimsins í mannréttindanefndinni klöppuðu þegar ljóst var að frávísunartillaga Kínverja hafði verið samþykkt með 27 atkvæðum gegn 17. Níu lönd, þar á meðal Rússland, sátu hjá. Reuter John Major bjartsýnn vegna nýrra talna um góðan efnahag John Major, forsætis- ráðherra Bretiands, von- ast nú til að nýjar opin- berar tölur, sem sýna að efhahagur landsins er í góðu ástandi, verði til þess að kjósendur greiði íhaldsflokknum atkvæði sitt í kosningunum 1. maí. Það þykir þó hætta á að nýr ágreiningur um Evrópumálin innan íhaldsflokksins dragi dilk sér. í gær lýstu nefhilega stoðarráðherrar því yfir John Major. á effir á tveir að- að þeir væra mótfallnir því að Bretar tækju upp sameig- inlega mynt Evrópusam- bandsins. Samkvæmt niðurstöð- um skoðanakönnunar, sem birt var í Guardian í dag, er forskot Verka- mannaflokksins nú 14 prósent og hefur aukist um 2 prósent frá þvi i síð- ustu viku. Samkvæmt skoðanakönnun, sem birt var í dag í Daily Telegraph, er forskot Verka- mannaflokksins 21 prósent. Reuter Bilið enn breitt Enn er mjög breitt bil milli Palestinumanna og ísraela, þrátt fyrir ákafar tilraunir Evrópu- þjóða til að fá deiluaðila fyrir botni Miðjarðarhafs til að ræða saman á Möltu. Matur til Albaníu Verið er að undirbúa uppskip- un á mörg hundrað tonnum af matvælum til aðstoðar þurfandi í Albaníu. Lítill árangur Lítill árangur varð í viðræð- um þar sem reyna átti að draga úr spennunni í samskiptum stjómvalda í Moskvu og NATO. Reiði í Japan Bæði stuðningsmenn og and- stæðingar kjamorku í Japan sameinuðust í reiði sinni i morgun í garð ríkisfyrirtækis sem játaði að hafa dregið að til- kynna um nýjan leka á geislu- vfrkum efmnn. Sama fyrirtæki reyndi að hylrna yfir versta kjamorkuslys Japans í síðasta mánuöi. Skjálftar í Kína Nokkrir jarðskjálftar skóku norðvesturhluta Kína snemma í morgun og mældist sá öflugasti þeirra 6,3 stig á Richter. Þegar síðast fréttist var ekki vitað hvort manntjón hefði oröiö. Rómantíkin lifir Fi'anskar konur era enn róm- antiskar því þær falla fyrir mönnum sem ausa yfir þær gjöf- um. Þær taka hæglátan mann, sem hlustar, fram yfir vöðva- búnt og „alvitran" mennta- mann. Franskir karlar vilja helst vinkonur sem eru með verjur í handtöskunni. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.