Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1997, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1997, Síða 10
nnmg MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 1997 T">"\7' 10 me____ Orðin og formin Á sýningu Magnúsar Tómassonar á Sjónarhóli sjáum við röð líkana sem hann kallar „Fimm hús tímans“ og „Tímann og vatnið“ með tilvísun í ljóðaflokk Steins Steinars. Þetta eru smækkaðar myndir af garðhúsi eða laufskála með ólíkum að- skotahlutum eða formum innanhúss. í húsinu sem vísar til Steins Steinars hangir stór óslípað- m- steinn í keðju undir þaki skálans, en á gólfinu undir steininum er svartur vatnsflötur. Eins og mörg fyrri verka Magnúsar eru þessi „hús tím- ans“ allegóríur eða launsagnir: þau hafa tvöfalda merkingu þar sem nafnið vísar til annars en myndin sýnir bókstaflega. Þessi aðferð við fram- Myndlist Olafur Gíslason setningu hefur lengi verið litin hornauga i evr- ópskri myndlist (svo ekki sé meira sagt), eða allt frá því á siðustu öld, þegar menn komust að þeirri niðurstöðu að hin sögulegu allegóríumál- verk væru tímaskekkja; eða hvers vegna þurfti franski málarinn David að mála hetjur úr sögu Rómverja eins og Brútus eða Orazi- hræðuma, þegar hann var í raun og veru að fjalla um hetj- ur frönsku stjórnarbyltingarinnar? Óbein vísun Davids í sinn samtíma verður viðauki við hina hreinu sjónrænu frásögn frá Rómaborg lýðveldis- tímans og skapar nýja merkingarvídd í myndina á sama hátt og tilvitnunin í Stein Steinarr er við- bót við það hreina sjónræna áreiti sem járnskál- inn með steininum og vatninu vekur. Launsagan er angi af mælskulist og sem slík í andstöðu við þá meginreglu módemismans að myndlistin eigi fyrst og síðast að sýna eigin kjama, hreinan og óskiptan í sínu sjónræna áreiti. Með þvi að blanda mælskulist inn í mynd- listina er verið að skapa „grátt svæði“ þar sem orðin og hin sjónrænu gildi takast á, án þess að augljóst sé hvar mörkin á milli þeirra liggja. Ef það er höfuðdyggð módernismans að verkið skuli byggja á hreinum sjónrænum gildum, þá verður hin bókmenntalega viðbót væntanlega eins og út- frymi sem spillir heildarmynd verksins. Á þess- um forsendum (sem eru ekki síst forsendur minimalismans) væri hægt að gagnrýna verk Magnúsar Tómassonar almennt, því flest þeirra blanda saman bókmenntalegri og sjónrænni framsetningu í anda launsagnarinn- ar. En er launsögnin eða allegórí- an jafn framandlegur óskapn- aður innan módernismans og þessi skýring vill vera láta? Ef betur er að gáð má finna mörg dæmi um hreinan módernisma sem ber ein- kenni laundsagnarinnar. Nærtækast er að líta til súrrealismans, sem oftar en ekki byggir á framsetn- ingaraðferð allegóríunn- ar. Marcel Duchamp sagði að hið ófullgerða verk sitt, „Stóra glerið“, væri allegóría (sem reyndar er full af íróníu). Málverkið „Vir heroicus sublimus“ eftir Bernett Newman, virðist hins vegar gjörsneytt allri íróníu. Það sýnir eirrauða fleti sem að- skildir eru með lóðrétt- um línum, og hefur löng- um verið talið einn af há- tindum bandarísks módernisma um miðbik aldarinnar. Samkvæmt nafninu virðist þetta óhlut- Magnús Tómasson: Tíminn og vatnið. læga málverk vera af ætt launsagnarinnar, þar sem form og litir myndarinnar eru hugsuð sem ígildi algildra siðferðislegra hugsjóna. Og ber ekki Guernica Picassos einkenni launsagnarinn- ar? Jafnvel abstraktmyndir þeirra Mondrians, Malevitch og Kandinskys stóðu fyrir guðspeki- legar og dulspekilegar hugmyndir um algild sannindi ákveðinna grunnforma og lita. Módernisminn er því ekki eins „hreinn“ og ýmsir kenningasmiðir hans hafa hald- ið fram, og Magnús Tómasson hefur gef- ið allri hugmyndafræði um hreinleika formsins langt nef um leið og hann notar myndlistina til að segja meira og minna duldar sögur. Stundum verða sögur hans reyndar svo ljósar að frekar er hægt að tala um brandara en allegóriu, og reynd- ar eru mörg verka hans á þessum mörk- um. Einkum ýmis verk sem hann sýnir nú í Gerðubergi. Gallinn við brandara er sá að þeir vilja oft endast illa, einkum ef þeir ætlast til að vera teknir alvarlega. En þar sem launsögnin gengur upp, eins og í húsinu um tímann og vatnið, verður verkið áhugavert og til þess fallið að vekja ímyndunaraf- lið. Steinninn sem hangir þama í keðjunni verður ekki bara steinn, heldur verður hann um leið ígildi tím- ans og skáldsins Steins án þess að við gerum okkur fyllilega grein fyrir því hvernig þessi þrjú merkingarmið komi heim og saman í einu formi. Sama á við um vatnið, sem i ljóði Steins er ekki bara venjulegt vatn, heldur líka órætt dýpi vitundarinnar. Samþætting tungumáls og myndmáls er til staðar í allri mynd- list og tengsl orðsins og formsins er reyndar eitt- hvert áhuga- verðasta rannsókn- arefni allra sjón- mennta. Sýningar Magnúsar Tómassonar í Gerðubergi og á Sjónar- hóli eru kjörinn vettvangur til slíkrar pælingar! Sýningin á Sjónarhóli stendur til 27. apríl. Sýningin í Gerðubergi stendur til 26. maí. Fögur malar astúlka Það var þungt og ákaft lófaklappið í þéttsetnum sal Gerðarsafns í Kópa- vogi á mánudagskvöldið eftir flutning þeirra Finns Bjarnasonar barítons og Jónasar Ingimundarsonar píanóleik- ara á söngvasveig Schuberts, Malara- stúlkunni fögru, við ljóð Wilhelms Múllers. Þessi tónlist er þrungin öllu því rómantískasta í rómantískri sönglist - stefjum og minnum róman- tiska sönglagsins ægir þar saman í himneskum seið Schuberts. í aðal- hlutverkum eru malarasveinninn, sem er ljóðmælandi nær allan tím- ann; lækurinn, sem í senn er tákn lífsins, ferðalagsins og dauðans; blómin, tákn ástarinnar, og myllu- hjólið, tákn tímans. í öðrum hlut- verkum eru póstlúðurinn, tákn Tónlist Bergþóra Jónsdóttir fjarskans og hins óþekkta; græni lit- urinn, tákn vonarinnar, og lútan sem hangir uppi á vegg, tákn hljóðnaðra orða og kulnaðrar ástar. Úr þessum stefjum er Malarastúlkunni fögru spunninn óður um von og ást, sorg og dauða. Ekki er á hvers manns færi að túlka þennan rómantíska óð þannig að táknmál ljóðsins lifni í tónlistinni; þannig að orðin nái flugi á dásamleg- um laglínum Schuberts. Malarastúlk- an fagra í túlkun þeirra Finns og Finnur Bjarnason bariton. DV-mynd E.ÓI. Jónasar verður eftirminnileg sem ákaflega fallegur tónlistarviðburðm'. Finnur Bjarnason hefm- undurfagra rödd og fma söngtækni þótt ungur sé. Smávægilegir hnökrar munu að lík- um slípast af því enn er hann í námi, þótt hann hafi þegar lagt á braut at- vinnumennsku i sönglistinni. Mest er um vert að auk fallegrar raddar og glæsilegrar framkomu hefur Finnur einstakt næmi fyrir hvorri tveggju, tónlist og ljóðlist, og kann að nota röddina til að laða fram blæbrigði og liti sem ljóðið krefst. Það var unun að hlusta á söng hans og varla hægt að nefna eitt ljóð betur eða verr sungið en annað. Mörg augnablik voru hlað- in músíkalskri merkingu; niðurlag fimmta ljóðsins, þar sem andstæðar persónur voru fallega skapaðar með blæbrigðum raddarinnar; lokaerindi sjötta ljóðsins, þar sem spurhingin sem pilturinn ber upp við lækinn - „ann hún mér?“- varð þrungin óþreyju og spennu. En Finnur var ekki einn að verki. Jónas Ingimundarson sýndi sínar bestu hliðar og lék sitt hlutverk, sem oftar en ekki var að sviðsetja ljóöið, mjög vel; hvort sem það var sindr- andi lækjarniður í öðru ljóðinu, tregafullt millispil í tíunda ijóðinu, táraregn eða klingjandi veiðihorn í ljóðunum um græna litinn kæra og vonda. Lokaljóðin, þar sem sveinninn gefur sig á vald læknum sem syngur honum vögguljóð, voru hrifandi. Þetta voru góðir tónleikar og sér- staklega glæsileg frumraun söngvar- ans unga. Djass fyrir alla Bjöm Thoroddsen og Sam- norræni kvartettinn leika í tón- leikarööinni Djass fyrir alla í Hafnarborg, Hafnarfirði, annað kvöld, kl. 21. Egill Ólafsson syngur með. Tónleikarnir verða einnig haldnir á Akur- eyri, Selfossi og i Reykjavík. Efnisskráin verður á léttum sveiflandi nótum með norrænu yflrbragði og kynnir veröur Jónatan Garðarsson. Tónleik- arnir eru á vegum Gildisskáta í Hafnarfirði. Forsala aðgöngu- miða er í kaffistofu Hafnarborg- ar. Sagan gleymda Á mánudaginn kom út hjá Forum-forlaginu í Kaupmanna- höfn skáldsaga sem gerist á ís- landi á 12. öld. Den glemte: historie heitir hún og fjallar um at- burði sem segir frá í Þorgils sögu og Haf- liða - sem er varð- veitt sem hluti af Sturlungu. Höfð- inginn Hafliði á ungan frænda, Má, sem er svarti sauðurinn í fjölskyldunni. Hann abbast upp á Ólaf, frænda Þor- gils, annars voldugs höfðingja, og deilumar magnast þegar Már drepur Ólaf. Söguna segir sonardóttir Más rúmri öld síðar þegar hún hef- ur misst eiginmann, syni og sonarsyni í borgarastríði Sturl- ungaaldar, og spáir þjóðveld- inu ragnarök- um. Söguna skrifar Jon Hoyer, danskur lektor við Háskóla íslands. Hann hefur skipt sér af íslenskum höfð-' ingjum til forna því fyrsta bók- in hans, Den lukkede vej, var skáldsaga í bundnu máli um Egil Skallagrímsson. Den glem- te historie er væntanleg í bóka- verslanir Máls og menningar. Tónleikar Borgar- kórsins Annað kvöld, fimmtudag, kl. 20.30, þreytir Borgarkórinn framraun sína í Seltjamarnes- kirkju. Þetta er ein nýjasta greinin á miklum meiði ís- lenskrar kórmenningar, 35 manna blandaður kór sem tók til starfa síðastliðið haust undir stjóm Sigvalda Snæs Kalda- lóns. Kórinn syngur einkum ís- lensk lög og leggur áherslu á létta og skemmtilega dagskrá. Á tónleikunum annað kvöld verða félagar Kvennakórs Suð- umesja gestir Borgarkórsins. En á næstu tónleikum, 27. apríl og 1. maí, syngm- hann með Mosfellskórnum. Námskeið í Madonnu Úr háskólalífi heimsins ber- ast þær fréttir að við háskólann í Amsterdam sé hægt að taka nám- skeið um söng- konuna Madonnu sem fjölmiðlafyrir- bæri. Nám- skeiðið gefur stig. Því miður höf- um við ekki upplýsingar um hvenær það hefst. Umsjón Silja Aðalsteinsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.