Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1997, Blaðsíða 12
12
MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 1997
y-
Spurningin
Fannstu fyrir jaröskjálftan-
um síðastliöna helgi?
Þorsteinn Árnason vélfræðingur:
Já, ég heyrði í honum.
Amdís Gestsdóttir: Já, ég fann
titringinn.
Stefán Guðmundsson, kynningar-
aðili hjá Kirby: Já, ég fann titring
þar sem ég sat inni í stofu.
Guðlaug Soffla Jónsdóttir, starfs-
stúlka á Grund: Nei, ég var sof-
andi.
Bryndís Magnadóttir nemi: Nei,
ég fann ekki fyrir honum.
Lesendur
ASI og VSI samein-
ast gegn launþegum
- munu reyna aö rústa ríkisstjórninni
Helgi Sigurðsson skrifar:
Það þarf ekki ofurglögga menn til
að sjá hvað fyrir forystumönnum
ASÍ og VSÍ vakir þessa dagana. For-
ystumenn þessara samtaka ganga
nú sameinaðir og hreint til verks í
að reyna að rústa ríkisstjóminni.
Fyrst ætluðu þeir að gera það í
gegnum kjarasamningana en urðu
frá að hverfa. Nú er það lífeyris-
frumvarp ríkisstjómarinnar sem á
að verða banabiti hennar. Það er
löngu vitað að almenningur hér er
afar ósáttur við skylduaðild að sam-
eignarsjóðunum svonefndu. Margir
hafa því gripið til þess ráðs að
leggja til hliðar og geyma hluta hins
takmarkaða sparnaðar á reikning-
um sérsjóða sem stofnaðir hafa ver-
ið fyrir þá sem vilja verja fé sitt til
áranna þegar þeir hætta störfum.
Þetta vilja forsvarsmenn ASÍ og
VSÍ koma í veg fyrir með öllum ráð-
um. Þeir vila ekki fyrir sér að fella
eina ríkisstjóm til að ráða yfir þeim
sjóðum sem samtökin þykjast eiga
umfram launþegana sjálfa sem
leggja þó fram féð. Þau 6% sem
vinnuveitendur leggja fram er liður
í launakjörum launþegans og er því
hans hlutur hvemig sem á málið er
litið. Rétt eins og þau 4% sem laun-
þeginn greiðir beint af sínum laun-
um í lífeyrissjóðinn.
Nú er mikið í húfi fyrir klíkuna
ASÍ/VSÍ að halda völdum yfir þess-
um sjóðum sem þeir báðir hafa hit-
ann úr, ýmist með setu sinni í
stjórn sjóðanna eða með óbeinni
drottnun yfir hinum almennu laun-
VSÍ og ASÍ innsigla kjarasamninga í Karphúsinu. - Mikið í húfi að báðir haldi
völdum yfir lífeyrissjóðnum, segir m.a. í bréfinu.
þegum. Með því t.d. að meina sjóðs-
félögum á almennum vinnumarkaði
að hætta störfum fyrr en 70 ára svo
að þeir megi fá svokölluð „full rétt-
indi“ úr sjóðum sínum!
Það er ekki kræsilegt að sjá ríkis-
stjórn landsins kengbogna gagnvart
forsprökkum vinnumarkaðarins
sem ætla að bregða fæti fyrir síð-
búna uppstokkun í lífeyriskerfinu.
Hverju ætla nú ráðherrar Sjálfstæð-
isflokksins t.d. að svara þegar og ef
þeir láta drottnara kerfis og kúgun-
ar svínbeygja sig á þessu nýjasta og
nauðsynlega frumvarpi? Þetta verð-
ur prófsteinn á hvort hægt er að
beygja einstaka ráðherra til að af-
nema frelsi einstaklingsins til að
njóta afrakstursins að loknu ævi-
starfinu.
Brosleg tilraun í merkjavörusölu
K.S. skrifar:
Hugmynd kaupmanna að ætla að
laða hingað til lands ríka Banda-
ríkjamenn til að kaupa hér hina svo-
nefndu erlendu „merkjavöru“ er
vægast sagt brosleg. Þótt hér finnist
einhverjar vörur í þessum flokki,
ódýari hér en í New York, París,
London eða í Róm, er einnig hægt að
fá þar ódýrar vörur af öðrum toga,
mun ódýrari en hér.
Það er borin von að ríkir Amerík-
anar komi hingað gagngert til að
kaupa ódýrar merkjavörur í fatnaði.
Þær vörur eru dýrari og miklu eftir-
sóttari en svo hjá auðfólki, að það
kaupi þær „ódýrt“ norður á Islandi.
Kaupmenn athuga heldur ekki að
það hefur færst í aukana, því miður,
að erlendir ferðamenn, verði fyrir
alls konar aðkasti og ónæði af skríl,
jafnvel dópistalýð hér á landi, er
kemur aðvífandi, t.d. á götu, til fólks
sem eru áberandi sem erlendir
ferðamenn hér. Oftast kemur til að-
stoðar fólk sem sér hvert stefnir.
Lögreglan gerir það ekki, a.m.k.
ekki í miðborginni eða aðal verslun-
argötunni, Laugavegi. Hún sést þar
varla.
Þennan þátt málsins er líka vert
að athuga þegar stefnt er að því að
laða hingað hóp ferðamanna úr pen-
ingastéttum annarra landa. Það er
ekki nóg að skella fram einhverri
hugmynd um skyndigróða af ferða-
mönnum með fé milli handa. Það
verður líka að hafa í huga hvar við
búum og við hvaða aðstæður.
Textalausa Strandverði, takk
í þáttunum má m.a. sjá fagurlimaöar strandgyöjur sem leggja sig fram um aö
bjarga mannslífum.
Guðmundur Albertsson skrifar:
Ég er einn af mörgum aðdáend-
um sjónvarpsþáttanna góðkunnu,
„Strandverðir", sem eru á dagskrá á
eftirmiðdögum laugardaganna. í
þáttunum má sjá stælta karlmenn
og fagurlimaðar strandgyðjur sem
leggja sig fram við að bjarga manns-
lífum. Þetta eru hugljúfir þættir
sem bjóða upp á allt sem góðir sjón-
varpsþættir þurfa, svo sem spennu,
húmor og góðan leik. - Ríkissjón-
varpið á heiður skilinn fyrir að
bjóða einhleypum karlmönnum sem
og öðrum upp á jafn þægilega af-
þreyingu sem raun ber vitni.
Það er samt sorglegt til þess að
vita, að „kynkalt möppudýr“ úti í
bæ geti eyðilagt þessa göfugu afþr-
eyingu með því að setja íslenskan
texta á skjáinn, aðeins í þeim til-
gangi, að hylja það sewm flestir
vilja sjá, þ.e. fagursköpuð brjóst,
kúlurass og stælta brjóstkassa karl-
leikaranna.
Án þessara líkamshluta er ekki
mikið varið í þessa þætti, en eins og
allir vita þá er það hvorki gott
handrit ná gáfulegar samræður
milli strandvarða sem veldur því að
þættimir eru vinsælasta sjónvarps-
efni í heiminum í dag. Hver sá sem
segist horfa á Strandverði til að
fylgjast með uppeldi Hoby eða lífmu
á ströndinni er annað hvort lygari
eða skráður meðlimur í Kvennalist-
anum.
Ég þykist þess fullviss, að allir
þeir er horfðu á þáttinn sl. laugar-
dag eru mér sammála, þegar ég
skora á forsvarsmenn Ríkisútvarps-
ins að fjarlægja textann alfarið eða
að hafa hann efst á skjánum, því
hann gerir ekkert gott þar sem
hann er nú. - Að lokum hvet ég all-
ar konur yngri en 35 ára að fara í
brjóstaaðgerð. Það margborgar sig.
Smánarlegar
dánarbætur
Lárus hringdi:
Það er óverjandi að dánarbæt-
ur skipverja hjá Gæslunni skuli
vera jafn lágar og komið hefur
fram í fréttum. Enn þá meir
óverjandi er að ekki skuli löngu
vera búið að breyta þessum regl-
um, úr því látið er liggja að því
að menn hafi haldið að sömu
reglur giltu fyrir sjómenn Gæsl-
unnar og t.d. lögreglumenn, sem
eru líka hluti af löggæslu lands-
manna. En verst af öllu er þó að
fólk og einstaklingar skuli ekki
sjálfir hugsa fyrir hlutum eins og
þessum: Ekki er sama að vera í
vígðri eða óvigðri sambúð (að
lögum eða ekki) - eða að fólk
skuli ekki bera skynbragð á að
tryggja sig með einhverjum
hætti. Þetta er allt of algengt hér
á landi og með eindæmum hve
fólk er lítið hugsandi.
Athyglissýki
fjölmiðlunga?
Sesselja skrifar:
Mér fmnst óviðkunnanlegt hve
sumir þáttargerðarmenn á Ijós-
vakamiðlunum eru orðnir at-
hyglissjúkir. Allt til þessa hefur
þótt nóg að auglýsa dagskrár-
þætti í blöðum og útvarpi, án
þess að vera með stórar yfirlýs-
ingar og slagorð. Nú er þetta að
breytast í athyglissýki, fmnst
mér. Það er hamrað á slagorðum
eins og þessum um „Sleggjuþátt-
inn“ (þættinum lýst sem ein-
hverju „fréttamagasíni", sem
hann er auðvitað ekki), Helga og
Völu lausum á rásinni og hverj-
um þættinum eftir annan. Þetta
kalla ég hreina athyglissýki og
ekkert annað.
Annars f lokks
borgarar
í fluginu
Hrafn skrifar:
Ég lýsi þeirri skoðun minni aö
við íslendingar sitjum alls ekki
við sama borð og aðrar þjóðir
hvað varðar samkeppni í flugi til
og frá landinu. Viö erum í raun
sem annars flokks borgarar í
fluginu. Fyrst og fremst auðvitað
vegna okurfargjaldanna - líka
innanlands. Þetta vita ráðamenn
jafnt og við sem búum viö þessa
niðurlægingu. Það er því engin
gild ástæða fyrir ráðherrana tvo,
forsætisráðherra og samgöngu-
ráðherra, að taka upp hanskann
um einokun eða fáokun í fluginu.
Þeir verða minni menn af því.
Sjónvarps-
sendingar á
nóttunni
Hilmar Sig. hringdi:
Ég er einn þeirra sem eiga
erfitt með svefn á nóttunni. Fer
þá á stjá og bíð betri tíma til að
sofna aftur. Mikið held ég marg-
ir myndu fagna því ef sjónvarps-
stöðvar tækju upp þann hátt að
láta einhverja mynd rúlla á nótt-
unni. Fræðslumynd, landslags-
mynd eða þá einhverja kvik-
mynd. Getur varla veriö dýrt.
Þetta sér maður á erlendum sjón-
varpsstöðvum þegar maður dvel-
ur þar. Þetta væri veruleg þjón-
usta við margan landann.
Öttast jarð-
skjálfta
Svana hringdi:
Ég er þess fullviss að ekki er
vanþörf á að brýna fyrir fólki og
jafnvel fræða það um hvemig
bregðast skuli við ef stór jarð-
skjálfti ríður yfir þéttbýlissvæði
hér. Ég veit ekki um neinar leið-
beiningar á lausu af opinberri
hálfu. Er ekki hægt að koma
þessum leiðbeiningum á fram-
færi og ítreka þær með vissu
millibili. Margt vitlausara er
hægt að hugsa sér.