Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1997, Qupperneq 32
í K I N G A
Ltrn
ÍTtó** .
fonr kí. fv-Vúiiti
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 16. APRIL 1997
Peningasendill 10-11:
Þetta var
óþægilegt
„Ég get ekki neitaö því að þetta
var óþægilegt. yissulega kom þetta
mér á óvart. Árásin var nokkuð
sem maður þjóst ekki við á þeirri
stundu. Ég hafði ekki lent í neinu
svipuðu áður en hafði þó hugleitt
hvort það gæti gerst,“ sagði 26 ára
starfsmaður 10-11 sem tveir menn
börðu og rændu á Suðurlandsbraut
48 í fyrradag.
Maðurinn er kominn í vinnu á
ný. Hann var hress í bragði í morg-
un en vildi ekki láta nafns síns get-
ið í viðtalinu.
„Mér líður ágætlega, það er allt í
lagi með mig. Ég er búinn að ná
mér. Að öðru leyti var ránið hara
eins og sagt var í DV í gær. Hins
vegar var ekki rétt hjá mönnunum
sem komu að mér að ég hefði verið
blóðugur. En það er allt í lagi því ég
held að þeir hafi verið æstari en
ég,“ sagði maðurinn.
Eins og fram kom í DV í gær
reyndu ræningjamir að rota mann-
inn með því að veita honum ítrekuð
högg í hnakkann. Hlann meiddist
einnig á brjósti. Ljóst þykir að ekki
fór verr en raun bar vitni vegna
þess hve hann er vel á sig kominn
líkamlega.
„Ég slapp frá þessu, það skiptir
meginmáli,“ sagði maðurinn. -Ótt
Verkfall flugmanna:
Bjartsýnn á
samninga
- segir Einar Sigurðsson
„Við gerum okkur vonir um að
samningar náist í þessari lotu og
mér sýnist svipað sjónarmið vera
uppi hjá flugmönnum. Menn verða
að halda í bjartsýnina og ég vona að
við náum saman áður en til verk-
falla kemur," segir Einar Sigurðs-
son, aðstoðarmaður forstjóra Flug-
leiða, en flugmenn hjá félaginu hafa
boðað tímabundið verkfall frá og
með fóstudegi náist samningar ekki.
Flugvirkjar felldu nýgerða kjara-
samninga í gær en verkfalli þeirra
var frestað til 25. apríl.
„Nú þurfum við að setjast yfir
þau mál aftur og kanna hvað veldur
óánægju í þessum samningi," segir
Einar. -sv
Konan fundin
24 ára gömul mállaus kona, Sig-
rún Kristinsdóttir, sem leitað var
að, fannst heil á húfi í heimahúsi í
Kópavogi í gær. Konan hvarf spor-
, laust á höfuðborgarsvæðinu sl.
föstudag. -RR
Fiskverkafólk um allt land felldi kjarasamningana:
Nokkur fyrirtæki loka
komi til verkfalls
- segir Arnar Sigurmundsson - gætu orðið stórátök, segir Pétur Sigurðsson
Verkfaíl fiskvinnslufólks
' , Slgltitjörtur IsaQaröarbær . Húsavík
Vesturbyggö
” ' Grundarfjöröur Neskaupsstaður '' Esklfjöröur fáskrúösflöröur
t j/ > ■ ’/ Akranes 'f Ur o* .... -
Sandgeröi _ ' Seifoss Eyrarbakki Stokkseyri /
„Ég óttast að það komi til verk-
falls á nokkrum stöðum. Ef það
verður langvarandi verkfall munu
einhver fyrirtæki ekki fara af stað
aftur. Það er mjög erfiður rekstur
í bolfískvinnslunni eins og flestir
þekkja og það er á hreinu að fleiri
en eitt og fleiri en tvö fyrirtæki
myndu ekki komast af stað aftur,“
segir Arnar Sigurmundsson, for-
maður samtaka fiskvinnslustöðva,
um þá stöðu sem komin er upp eft-
ir að fiskverkafólk felldi nýgerðan
kjarasamning sinn og atvinnurek-
enda. „Það var um þessa samn-
inga ágæt sátt við verkalýðsleið-
togana en hún hefur ekki borist út
til hins almetma félagsmanns,"
segir Amar.
12 félög af 26 innan Verka-
mannasambandsins, sem semja
við VSÍ og VMS, hafa fellt kjara-
samningana sem gerðir voru á
dögunum. Verkamannavinna,
ekki síst í fiskvinnslunni, leggst
því af og verkfóll hefjast í kring-
um sumardaginn fyrsta á Húsa-
vík, Selfossi, Grundarfirði, Akra-
nesi, Eskifirði, Siglufirði, Nes-
kaupstað, Fáskrúðsftrði, Stokks-
eyri, Eyrarbakka og Sandgerði og
tveimur dögum fyrr á öllum Vest-
fjörðum.
DV hefur traustar heimildir fyr-
ir því að í nokkrum tilfellum hafi
samningamenn verkalýðsfélaga
undirritað samninga og mælt síð-
an gegn þeim i eigin félagi.
„Mér líst vel á þessa stöðu. Ég
undrast það mest hversu undr-
andi verkalýðsleiðtogamir, sem
stóðu að þessum samningi, em.
Það gætu orðið stórátök ef miðað
er við yfirlýsingar formanns VSÍ,“
segir Pétur Sigurðsson, forseti Al-
þýðusambands Vestfjarða.
„Þetta er auðvitað hámark
óheiðarleika og mjög erfitt að
byggja upp trúnað í þessum sam-
skiptum, en samningar byggjast á
trúnaði. Þegar ekki er hægt að
treysta viðsemjandanum, að hann
segir eitt en gerir síðan annað, þá
er maður kominn í mjög erfiða
stöðu,“ sagði Þórarinn V. Þórar-
insson í morgun.
Fiskvinnslan víða um land er í
uppnámi vegna stöðunnar í samn-
ingamálunum, en auk þess stefnir
i að samgöngur í lofti stöðvist
einnig því að bæði flugvirkjar og
flugmenn hafa fellt samninga fé-
laganna og hefst tímabundið verk-
fall flugmanna á fóstudagskvöld
nk. -rt/-SÁ
Sprengt í loft upp
Töluverðar sprengingar urðu þegar lögregla og slökkvilið kveiktu í gömlum flugeldum í gær. 20 feta gámi, sem í voru
gallaðir flugeldar og aðrir sem gerðir höfðu verið upptækir, var komið fyrir í gömlu steinhúsi við Rauðhóla. Hús þetta,
sem er í eigu borgarinnar, átti að rífa og var því kjörið til verksins. DV-mynd S
Afgerandi
niðurstaða
- segir Hafldór
„Þetta er afgerandi niðurstaða, þó
hún sýni djúpstæða óánægju launa-
fólks með kjör sín. Dagsbrún og
Framsókn hafa sagt sitt síðasta orð
um samningana," sagði Halldór
Bjömsson, formaður Dagsbrúnar, í
samtali við DV eftir að úrslit lágu fyr-
ir í gær um nýju kjarasamningana.
í atkvæðagreiðslu Dagsbrúnar
tóku þátt 1548. Já sögðu 854 eða
55,2%. Nei sögðu 680 eða 43,9%. Auð-
ir og ógildir voru 14 eða tæpt 1%.
Handrukkarar
Tveir menn réðust á eldri mann
fyrir utan heimili hans í Breiðholti
í gærkvöld.
Árásarmennimir óku síðan burt
á bíl fómarlambsins. Annar árásar-
mannanna var handtekinn seint í
gærkvöld. Að sögn lögreglu leikur
grunur á að um handrukkara hafi
verið að ræða. -RR
L O K I
Veðrið á morgun:
Hiti
4-14 stig
Á morgun verður hæg vest-
læg eða breytileg átt. Þokuloft
eða súld með köflum vestan- og
norðanlands en að mestu bjart
veður suðaustan til. Hiti á bil-
inu 4-14 stig, hlýjast suðaustan-
og austanlands en svalast á
annesjum norðanlands.
Veðrið í dag er á bls. 44
Sjálfskipt
• /0^,
WI55AIM
Almera