Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1997, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1997, Blaðsíða 29
 með að skýra af hverju. Kannski liggur skýringin í því að í fé- lagsliðunum þekkir maður leikmennina inn og út en í landsleikjunum er þetta erfið- ara. Hins vegar finn ég það núna að þetta er að breytast. í leiknum gegn Slóvakíu um dag- inn fann ég mig mjög vel. Ég er að srila aðra stöðu en ég gerði og er meira í boltanum, bæði hjá Hertha og landsliðinu. Maður er líka kom- inn á þann aldur að maður er ró- legri, hamast ekki bara á kraftinum eins og áður heldur nýti vel reynsl- una.“ Eyjólfur segist vera stolltur yflr því að fá að leika fyrir ísland. Hann gefi kost á sér svo lengi sem hann sé ómeiddur og landsliðsþjálfarinn sýni honum áhuga. Áfram í Berlín Bjarna Jóhannsson, núverandi þjálfara Eyjamanna, en hann þjálf- aði Eyjólf hjá Tindastóli árin fyrir atvinnumennskuna. Eyjólfur segir Bjarna hafa mótað sig sem knatt- spymumann og fundið út hans sterkustu hliðar á vellinum. Þá á Eyjólfur Daum það að þakka að hann komst virkilega að hjá Stuttgart. Daum kom til félagsins haustið 1990 þegar það var illa statt í deildinni. Hann gaf Eyjólfi tæki- færi þrátt fyrir að vita ekkert um hann áður. Eyjólfur þakkaði fyrir sig og skoraði í fyrsta leik Daums. „Við Daum höfum gott samband ennþá. Hann þjálfar Bayem Lever- kusen sem nú á ágæta möguleika á meistaratitli. Hann var einmitt að grinast með það þegar ég heyrði í honum siðast að ef honum tækist ekki að verða meistari núna án min þá litist honum ekki á blikuna!" Eyjólfur verður 29 ára í sumar. Hann segir ómögulegt að spá hvað hann verði lengi í atvinnumennsk- unni. Frágengið sé að hann verði næsta tímabil í Berlín og viðræður hefjist við forráðamenn liðsins í sumar um lengri samning. „Þeir hafa orðað það við mig hvort ég vilji ekki enda ferilinn hjá liðinu og taka frekari þátt í þeirri uppbyggingu sem er hafin. Á meðan manni gengur vel þá er ekkert ver- ið að spá í að hætta. Það er auðvit- að ekki svo galið markmið að stefna að þriðja meistaratitlinum," segir Eyjólfur, draumkenndri röddu. Hvað taki við að loknum knatt- spymuferlinum segir Eyjólfur óráð- ið. Freistandi sé að fara I þjálfun eða annað starf í kringum boltann. Ekki sé heldur útilokað að fara út í viðskipti af einhverju tagi. Atvinnu- mennskan snúist mikið um við- skipti og hann hafi náð að viða að sé reynslu í þeim efnum. Aðspurður segist hann vilja koma til íslands að ferlinum loknum. „Ef svo færi að ég spili í 1. deild- inni heima þá væri ekki svo vit- laust að leika í markinu. Það er eina staðan sem ég á eftir að leika á vellinum," segir kappinn að end- ingu, sposkur á svipinn sem fyrr. -bjb DV LAUGARDAGUR 17. MAÍ 1997 f$elgarviðtalið Jurgen Röber þjálfari. Dieter Höness. DV-mynd bjb Eberhard Diepgen, borgarstjóri Berlínar. DV-mynd bjb Þjálfarinn: Hefur leikið mjög vel Framkvæmdastjórinn: Mikilvægur fyrir liðið Borgarstjórinn: Með þeim bestu Ósáttur við landsleiki sína „Eyjólfur er einn af bestu og mik- ilvægustu leikmönnum liðsins. Á því er enginn vafi og vonandi verð- ur hann áfram með liðinu næsta vetur. Ég hef verið aðdáandi Hertha Berlin allt mitt lif, er uppalinn á svæði félagsins hér í borginni. Ég vona að liðið komist upp. Það er mjög mikilvægt fyrir borgina. Þetta er alltaf spuming um ímynd henn- ar. Að hafa lið í hópi þeirra bestu er mikilvægt fyrir borgarhúa, ekki síst í borg sem enn er nokkuð skipt þrátt fyrir að múrinn er farinn. Hér er mikið að gerast og ný borg að rísá á stærsta byggingarsvæði Evr- ópu,“ sagði Eberhard Diepgen, borg- arstjóri Berlínar, við DV í hálfleik á leik Hertha Berlín og Mannheim. DV náði tali af honum í heiðurs- stúkunni, á þeim stað sem Hitler sat á ólympíuleikunum 1936! -bjb „Ég hef þekkt Eyjólf frá því hann var hjá Stuttgart. Þekki hans hæfi- leika vel og honum hefur farið mik- ið fram. Þegar hann er í góðu formi getur hann leikið hvaða stöðu sem er. Núna leikur hann í vöminni. Hann er líkamlega sterkur og mjög mikilvægur fyrir liðið. Sigurviljinn er alltaf til stað- ar. Hann hefur verið að leika mjög vel að undan- fömu,“ sagði Júrgen Röber, þjálfari Hertha Berlin, sem eitt sinn þjálfaði Eyjólf hjá Stuttgart. Það eina sem Röber kvartaði yfir var hvað Eyjólfur kæmi þreyttur heim frá landsleikjum íslands. „Ekki veit ég hvað þið emð að gera þama uppi á íslandi," sagði Röber og hló. -bjb „Jolli er góður leikmaður með rétta hugarfarið. Hann er sterkur i loftinu og mikilvægur fyrir liðs- heildina,“ sagði Dieter Höness um Eyjólf en hann tók við fram- kvæmdastjórastöðu liðsins um síðustu áramót. Höness var fram- kvæmdastjóri hjá Stuttgart þegar Eyjólf- ur varð meistari með liðinu 1992. Aðspurð- ur sagði Höness að Eyjólfi hafi tekið mikl- um framforum síðan þá. „Hann lék aðra stöðu á vellin- um með Stuttgart, var í sókninni. Núna er hann í vöminni og gerir það mjög vel. Reynsla hans á eftir að skila sér í 1. deildinni næsta vet- ur. Ég hef þekkt hann í sjö ár og veit vel hverjir hans eiginleikar eru.“ -bjb Frá því Eyjólfur fór í atvinnu- mennskuna hefur hann leikiö flesta landsleiki sem ísland hefur spilað. í dag em A-landsleikirnir orðnir 36 talsins og mörkin 4. Áður lék Eyjólf- ur 6 leiki með/U-21 árs liðinu og skoraði 6 mörk. Eyjólfur skoraði einmitt mark í fyrsta U-21 árs leiknum gegn Hollendingum þannig að alls staðar hefur hemn stimplað sig inn, ef x svo má segja. En Eyjólfur - er ekki sáttur við frammistöðu sína í landsleikjunum þeg- ar á heildina er lit- ið. „Einhverra hluta vegna hef ég ekki náð að sýna mínar bestu hliðar þar. Ég á rum sv | Sauðárkrókur Knattspyrnuferill Eyjólfs ísland A-landslið:36 leikir, 4 mörk U-21: 6 leikir, 6 mörk 1985-1989 Tindastóll 2. og 3. deild 99 leikir, 66 mörk stuttgait 1990-1994 Stuttgart Meistari 1992 110 leikir, 21 mark 1994-1995 Besiktas Meistari 1995 33 leikir, 9 mörk 1995- Hertha Berlín 60 leikir, 4 mörk Istanbúl Besta boðið frá Berlín Eftir að Eyjólfur ákvað að hætta hjá Besiktas fékk hann nokkur til- boð frá liðum í Englandi, Frakk- landi og Þýskalandi. Hann segir besta boðið hafa komið frá Hertha Berlín og sér hafi strax litist vel á félagið. Aðspuröur segist hann hafa heyrt af undmn manna yfir ákvörð- un sinni. Að fara í 2. deild í Þýska- landi eftir glæstan feril. En Eyjólfur hefur ekki séð eftir því. „Hingað til hefur maður tekið réttar ákvarðanir. Héma í Berlín er að rísa stórveldi á ný. Ég vona að maður fái að taka þátt í því.“ Eyjólfur segist eiga erfitt með að útskýra þennan árangur hjá sér, að hafa orðið meistari í tveimur lönd- um og vera núna í liði sem er að vinna sig upp um deild. Hann hafi stundum hent grín að þessu og sagt við félaga sína að þetta hafi ekkert með hæfileika hans að gera! Ekki meistari á bekknum Gamanlaust segist hann vera stoltur af því að hafa átt nokkum þátt í þessum titlum. Hann hafi ekki setið á bekknum og horft á félaga sína fagna. „Ég spilaði nær alla leikina á tímabilinu sem við urðum meistar- ar í Stuttgart. Þá var ég með í 31 af 34 leikjum. Hjá Besiktas lék ég alla leikina nema þá tvo sem var í banni vegna gulra spjalda. Núna er ég fastamaöur í Hertha þannig að ég hef alltaf verið að spila. Þetta finnst mér skipta miklu máli fyrir mig,“ segir Eyjólfur og bætir við að ekki hafi verið fyrir titlunum að fara í fótboltanum á íslandi. Tindastóll hafi ekki einu sinni náð 3. deildar- meistaratitli þrátt fyrir að hafa komist upp i 2. deild! Markí fyrstu snertingu Einnig má segja að Eyjólfur hafi verið réttur maður á réttum stað og á réttum tíma. Sem dæmi þá var hann aðeins búinn að vera nokkra mánuöi hjá Stuttgart vor- ið 1990 þegar hann lék sinn fyrsta leik með aðalliðinu. Ásgeir lék þá enn með liðinu. Eyjólfi var skipt inná. Hann fór rakleiðis inní teig í homspyrnu sem Ásgeir tók, boltinn rataði beint á skallcmn á Eyjólfi sem skoraði í sinni fyrstu snertingu. Hann þakkar Ásgeiri fyrir að hafa hjálpað sér að stíga fyrstu skrefin í atvinnumennskunni. Hann hafi kennt sér þolinmæði og að bera enga virðingu fyrir stjörn- unum. Hann hafi haft þetta að leið- arljósi síðan. Það að fara í Stuttgart segir Eyjólfur fyrst og fremst hafa verið hugsað sem stökkpallur. Hann hafi í upphafi aldrei reiknað með að kom- ast í liðið. „Ég hafði tilboð frá Noregi og Belgíu en ég hugsaði að hjá Stutt- gart myndi ég bæta mig mest sem knattspyrnumann. Ég átti aldrei von á að verða fastamaður i liði þar, hvað þá að verða meistari," segir Eyjólfur. Áuk Ásgeirs segir hann tvo aðra menn vera áhrifavalda á hans knattspyrnuferil. í fyrsta lagi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.