Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1997, Síða 31
LAUGARDAGUR 17. MAI 1997
39
Kaupmannahöfn:
Allt í einu korti
i
Fáar borgir njóta eins mikilla vin-
sælda hjá íslenskum ferðalöngum og
Kaupmannahöfn. Á þessu ári verð-
ur mikið um að vera í borginni og
þeir íslendingar sem ætla að leggja
leið sína þangað í sumar eða aðra
tíma ársins munu njóta góðs af því.
Kaupmannahöfn er á austanverðu
Sjálandi, við Eyrarsundið.
Borgin er ævagömul. Hún var
stofnuð árið 1167 þegar Absalon
biskup byggði klaustur og virki um-
hverfis það við höfnina. Það gerði
hann til þess að vemda hagsmuni
síldveiðanna við Eyrarsundið. Rúst-
ir byggingar Absalons er enn hægt
að sjá neðanjarðar, undir og við
Kristjánsborgarhöll. Kaupmanna-
höfn óx mjög að styrk og stærð á
miðöldum en uppbygging hennar
var að miklu leyti kostuð meö hagn-
aði Dana af íslandsverslun og því
þykjumst við Islendingar eiga heil-
mikið í borginni.
Verslun blómstraði og borgin
naut góðs af því. Valdimar Dana-
konungur gerði Kaupmannahöfn að
höfuðstað Danaveldis árið 1343. Há-
skóli var stofnaður þar árið 1479 og
danska konungsfjölskyldan hefur
haft aðsetur i Amalíuborgarhöll allt
frá 1794, einu glæsilegasta mann-
virki í rókókóstíl i allri Evrópu.
Höllin hefur alla tíð dregið að sér
ferðamenn, sérstaklega klukkan 12 á
daginn þegar vaktaskipti eru hjá
varðmönnum.
280 milljónir gesta
Amalíuborgarhöll er hreint ekki
það eina sem vekur áhuga ferða-
manna. Allir íslendingar þekkja
Tívolí sem nú er orðið 154 ára gam-
alt (opnað 1843). Meira en 280 millj-
ónir gesta hafa heimsótt Tívolí frá
opnuninni. Einkennistákn borgar-
innar er álíka vel þekkt, hafmeyjan,
sem hefur setið á granítsteini frá ár-
inu 1913. Hafmeyjan á sér fyrirmynd
í einni þekktustu sögu H.C. Ander-
sens.
Stytta af skáldinu sjálfu, sem er
við ráðhús borgarinnar, nálægt
Tívoli, er ekki eins þekkt og Haf-
meyjan. Öll þessi mannvirki gera
Kaupmannahöfn vel þess virði að
heimsækja. En fleira kemur til því
þeir sem þangað hafa komið eða
dvalið eru flestir sammála um hið
einstaka andrúmsloft sem ríkir í
borginni. Danir eru allra þjóða
snjallastir í því að njóta þess besta
sem lífið hefur upp á að bjóða.
Ferðamálayfirvöld eru farin að
selja svokallað Kaupmannahafnar-
kort (Copenhagen card) sem virkar
ekki ósvipað og debetkort. Seld eru
kort sem gefa ótakmarkaðan aðgang
að lestum, strætisvögnum, söfnum,
Tívolí, dýragarðinum og höllum
borgarinnar. Aðeins er borgað eitt
gjald á dag sem gildir i allt það sem
hér hefur verið talið upp. Kaupandi
kortsins fær einnig kort af Kaup-
mannahöfn með leiðbeiningum um
hvar helstu staði er að finna.
Græn svæði eru fjölmörg í borg-
inni og meðal þeirra helstu eru
garðamir við Dyrehaven, Botanical,
Frederiksberg, Kristjaníu og H.C.
Örsted.
Danir em víðfrægir fyrir matar-
gerð og drykki og danska eldhúsið
svíkur engan. Þá er ósvikið danska
smurbrauðið sem getur verið rúg-
brauð meö smjöri, síld, ferskum hrá-
um lauk, niðursneiddri spægipylsu
eða paté, sem skolað er niður með
dönskum bjór og viðeigandi ísköld-
um snafs. Þeir skipta hundmðum
veitingastaðirnir sem bjóða upp á
danska sérrétti eða aðrar erlendar
hefðir í matargerð.
Lífleg dagskrá
Það er engin tilviljun að Kaup-
mannahöfn skuli vera meðal 10
mest sóttu ráðstefnuborga heims.
Fjölmargir merkir viðburðir em á
dagskrá á árinu í Kaupmannahöfn
og nágrenni. Meðal atburða má telja
sýningu í Thorvaldsensafninu sem
helguð er Rómaborg í tilefni þess að
200 ár eru síðan Thorvaldsen flutti
þangað. Sú sýning stendur yfir 8.
mars til 31. ágúst.
Viðamikil sýning á mörgum af
þekktustu ballettverkum heims
veröur í Fredensborgarhöll í ágúst-
mánuði og 8.-14. september munu
margir frægir erlendir ballettflokk-
ar sýna í Tívolí. í Bella Center verð-
ur alþjóðleg tískusýning 16.-19.
ágúst. Tónlistin verður í hávegum
höfð. í maí og júní koma fjölmargir
erlendir og innlendir djassleikarar
fram víða í Kaupmannahöfn og 4.-7.
júlí verður haldin djasshátíð Kaup-
mannahafnar.
íslendingar þekkja vel til rokkhá-
tíðarinnar í Hróarskeldu sem er um-
fangsmesta rokkhátíð Evrópu. Bær-
inn Hróarskelda er skammt vestan
Kaupmannahafnar á Sjálandi. Hró-
arskelduhátiðin verður haldin
26.-29. júní. Nýlokið er flutningi á
söngleiknum Saigon í Kaupmanna-
höfn en við tekur annar söngleikur,
Atlantis (31. júlí-2. október), sem
sýndur verður í Falkoner-leikhús-
inu. Nú um helgina er haldin karni-
valhátíð í Kaupmannahöfn og í sept-
ember verður kvikmyndahátíð borg-
arinnar. Það er því augljóst að líf og
fjör verður i Kaupmannahöfn í sum-
ar og eftir mörgu að slægjast.
-ÍS
Luxor opnað
Egyptar hafa loks opnað að-
gang fyrir almenning aftur að
hofinu við Luxor, eftir gagnger-
ar viðgerðir og endurbætur.
Amenhotep III. konungur, sem
ríkti á árunum 1417-1379 fyrir
Krist, lét reisa þessi stórfeng-
legu mannvirki til dýrðar
sólguðnum Amon Ra á bökkum
Nílar. Mannvirkin þörfnuðust
viðgerðar vegna þess að áin
hafði grafið undan undirstöðum
þeirra.
I
'
1
I
r
P
Hert löggæsla
Búist er við miklum aðgerð-
um og verulegri hertri löggæslu
á flestum hraðbrautum og
stærri vegum í Grikklandi og
jafnvel gert ráð fyrir að umferð
vöruflutningabifreiða í landinu
verði bönnuð um helgar.
Ástæðuna má rekja til þess að
yfir páskana reið yfir mikil
alda umferðarslysa í Grikk-
landi sem kostaði 67 manns líf-
ið og 749 manns slösuðust alvar-
lega.
Minnka
koltvísýring
Flugfélögum í Bandaríkj-
unum hefur verið gert að
tryggja að magn koltvisýrings í
andrúmslofti inni í flugvélum
verði aldrei meira en sem nem-
ur 0,5%. Þær reglur sem áður
voru í gildi leyfðu allt að 3%
koltvísýring. Nýlegar rann-
sóknir hins opinbera leiða í ljós
að ef koltvísýringur er allt að
þremur prósentum getur þaö
valdið höfuðverk og þreytutil-
finningu hjá farþegum. Fjöl-
mörg Vesturlandanna hafa eng-
ar reglur um leyfilegan koltví-
sýring í flugvélum.
Skoða frá sjó
Fjölmargir þeirra sem komið
hafa til New York hafa skoðað
borgina frá mörgum sjónar-
hornum, neðan frá götunum,
ofan úr skýjakljúfum eða jafn-
vel farið i þyrluferðir yfir borg-
ina. Nú bætist enn einn skoðun-
armöguleikinn við því farið er
að starfrækja vatnaleigubíla á
Austurá og Hudsoná. Þeir
munu verða í gangi fram í októ-
ber og eru ekkert sérlega dýrir.
Dæmigerð ferð, báðar leiðir, er
á rúmar 1000 krónur.
NÚ ER KOMIN TÍÐIN TIL
AT HEIMSÖKJA FÖROYAR !
Færeyjaferbir d frdbæru verbi
11,700,«
VERÐ frá kr.
mann*
*Verb mibast vib 4. manna fjölskyldu á eigin bíl í
svefnpokaplássi. Tveir fullorbnir og tvö börn yngri en 15 ára.
Vikuferbir 5. og 12. júní.
Sigling - Hótel - Bíll
rj r; o s; r \
VERÐ ffá kr. '»o,z>zjyrá
mann
*Verb mibast vib vikuferb fyrir 4. manna fjölskyldu á éigin bíl. Tveir
fullorbnir og tvö böm yngri en 15 ára. Gisting á Hótel Foroyar í 5 daga
at. Hf 2 í bíl þá er verbib 3" "
meb morgunmat. Ef 2 i bíl þá er verbib 38.550 kr á mann.
jökli unnara feroamögulöika
NDRRÆNA
FE RÐAS KRIFSTD FAN
LAU GAVEGUR 3 • SÍMI: 5S2 6362
AUSTFAR ehf. og umboðsmenn
472 1111