Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.1997, Síða 56
Veðrið á morgun:
Skýjað sunn-
anlands
Á morgun verður austangola
eða kaldi. Sunnanlands verður
skýjað og dálítil rigning við
ströndina en víða léttskýjað á
norðanverðu landinu, hiti 5-12
stig.
Veðrið á mánudag:
Bjart veður
Á mánudag verður fremur
hæg breytileg átt og víðast bjart
veður, hiti 4-12 stig yfir daginn.
Veðrið í dag er á bls. 57
LAUGARDAGUR 17. MAÍ1997
Ólafur G. Einarsson:
Bjartsýnn á
þinglok í dag
„Það hefur orðið nokkur röskun
^ á þingfundi í dag. Menn þurftu að
tala meira um álbræðslu en ég
hafði reknað með,“ sagði Ólafur G.
Einarsson, forseti Alþingis, við DV
undir kvöld í gær
Ólafur sagði 32 mál vera á
dagskrá og þingheim aðeins vera á
máli númer 2. Hins vegar væru
flest málaxma sem eftir væru
hreinar og klárar afgreiðslur sem
lítið sem ekkert þyrfti að ræða.
„Við verðum að eitthvaö fram á
nótt og síðan er ég bjartsýnn á að
við náum að klára á morgun,” sagði
Ólafur í gær. Hlé verður gert á
þingfúndum fram í október. -sv
Hjónin úr Hafnarfirði:
' Útskrifuð í gær
Gunnar Gunnarsson og Linda
Bragadóttir, hjónin úr Hafnarfirði
sem lentu i mjög alvarlegu umferð-
arslysí á annan dag páska, voru út-
skrifuð af Sjúkrahúsi Reykjavíkur í
gær. Að sögn læknis eru þau á hæg-
um og góðum batavegi, batinn hef-
ur í raun verið mun betri en menn
þorðu að vona í upphafi. Hjónin
fara nú í endurhæfingu á Grensási
og má allt eins búast við að hún
taki einhverjar vikur. -sv
Cardaklija
verður með
Hajrudin Cardaklija verður í
marki Leifturs á mánudag þegar lið-
ið mætir Skallagrími í opnunarleik
íslandsmótsins í knattspymu, þrátt
fyrir að honum hafi verið neitað um
ríkisborgararétt. Cardaklija fékk
leikheimild með Leiftri í gær en
Ólafsfirðingar afturköOuðu í stað-
inn heimild fyrir Rastislav Lazorik
frá Slóvakíu. Allt bendir því til þess
að Lazorik yfirgefi Leiftur. Sam-
kvæmt heimildum DV gæti hann
verið á leið í Breiðablik á ný. -VS
DV kemur næst út eldsnemma að
morgni þriðjudagsins 20. maí.
Smáauglýsingadeild DV er opin í
dag, laugardag, frá kl. 9-14.
Lokuð á morgun, hvítasunnudag.
Opið verður á mánudag, annan í
hvítasunnu, frá kl. 16-22.
Síminn er 550 5000.
Blaðaafgreiðslan er opin í dag,
laugardag, frá kl. 6-14.
Lokað á morgun, hvítasunnudag,
og á mánudag, annan í hvítasunnu.
Blaðaafgreiðslan verður opin á
þriðjudag frá kl. 6-20.
ÞETTA HEFUR VERIP
LEIFTURSNÖGG
REPDING!
/ Sunnudagur
Þretaldur
• »
i. vimungur
o í kv'ólú
manna sem komu á vettvang voru
blóðslettur á gólfi og veggjiun í and-
dyri íbúðarinnar.
„Ég var með hundinn í ól og var
á leiðinni upp á 3. hæð þar sem ég
bý. Maðurinn beið á ganginum fyrir
utan íbúð sína. Hann var meö
svarta hanska og réðst á mig. Hann
sló mig í magann og hrinti mér utan
i vegginn. Hann hrifsaði hundinn af
mér og byrjaði að lemja hann í höf-
uöiö. Ég öskraði á hann að hann
gæti frekar meitt mig og drepið
heldur en saklaust, ósjáifbjarga dýr-
ið. Hann sparkaði þá í magann á
mér og lokaði dyrunum á eftir sér.
Ég heyrði hundinn krafsa í hurðina
og veina.
Ég reyndi að bijóta dymar upp en
yar svo máttfarin að ég gat það ekki.
Ég heyrði að hann var að lemja
hundinn inni í íbúðinni og litla
greyiö veinaði. Síðan varð allt hljótt
og þá vissi ég að hann var búinn að
drepa dýrið. Ég skreið niður stigann
og náði í hjálp. Lögreglan kom
skömmu síðar,“ segir Dagbjört Inga.
Hún var í miklu losti eftir þennan
atburð og segist hrædd um að mað-
urinn muni reyna að ráðast á sig
aftur. Dagbjört Inga var með áverka
eftir árásina. Hún segir að maður-
inn hafi oft hótað sér vegna hunds-
ins. Hún segir að fyrir hálfúm mán-
uði hafi hann hótað að koma í íbúð-
ina hennar og drepa dýrið. Þá hafi
hann hótað að reka hana og móður
hennar burt úr húsinu. Dagbjört
Inga segist hafa kært manninn fyrir
hálfum mánuði fyrir andlegt ofbeldi
en ekkert hafi verið gert.
Hundurinn var 6 ára gömul tík af
terrier-kyni og hét Lady Queen.
Nokkrir íbúar í húsinu, þ. á m. mað-
urinn sem er grunaður um verknað-
inn, mótmæltu veru hundsins í hús-
inu fyrir rúmu ári. Yfirvöld úr-
skurðuðu að hundurinn yrði að
fara. Mæðgumar létu hundinn þá í
hendur vinkonu þeirra sem hefúr
verið skráður eigandi hans. Dag-
björt Inga var með hundinn í heim-
sókn þegar atburðurinn gerðist í
gær.
„Þetta er hræðilegur og sorglegur
atburður. Ég skil ekki hvað býr að
baki svona illsku. Ég var aldrei and-
vígur þessum hundi enda gerði
hann engum mein hér í húsinu,“
segir Jakob Tryggvason, íbúi í
Neðstaleiti 1, sem kom að Dagbjörtu
Ingu liggjandi á ganginum eftir
árásina. -RR
Mæðgurnar Dagbjört Inga Olsen og Kristín Olsen á heimili sínu í gær. Þær voru báðar í miklu losti eftir atburðinn.
Dagbjört Inga var nýkomin af spítala þar sem áverkar á líkama hennar voru rannsakaðir. Á innfelldu myndinni sést
tíkin Lady Queen sem var drepin á hrottalegan hátt. DV-myndir S
Þetta er svo hræöilegt. Hvemig
getur nokkur lifandi manneskja gert
svona lagað? Hann misþyrmdi mér
og drap síðan htla hundinn minn.
Ég verð ekki í rónni fyrr en búið er
að loka þennan mann inni,“ segir
Dagbjört Inga Olsen sem varð fóm-
arlamb árásar i stigaganginum í
Efstaleiti 1 i gærmorgun.
Karlmaður um sjötugt, sem býr á
2. hæð hússins, er gnmaður um lík-
amsárásina og að hafa drepið hund
sem Dagbjört Inga átti. Lögreglan
handtók manninn skömmu síðar i
ibúð hans. Hundurinn hékk þá i ól
sinni á hurðarhúni í íbúö mannsins
og var dauður. Að sögn lögreglu-
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREISEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Karlmaður um sjötugt handtekinn:
Misþyrmdi mér og
drap síðan hundinn
segir Dagbjört Inga Olsen sem varð fyrir líkamsárásinni
Björk á
Bond-plötu
m-.
DV, Akranesi:
Björk Guðmundsdóttir, Pulp,
Iggy Pop og David MacAlmot eru
meðal tónlistarmanna sem eiga út-
setningar og lög á nýrri plötu sem
verður sérstaklega gerð til heiðurs
leiknjósnaranum James Bond.
Þetta eru útsetningar af lögum
sem hafa verið leikin í Bond-
myndunum í gegnum tíðina.
MacAlmont hefur þegar hljóðritað
sína útsendingu á lagi úr kvik-
myndinni Diamonds Are Forever.
Pulp mun bráðlega byija á upptök-
um á laginu All Time High sem
var titillag einnar James Bond
myndcirinnar. Það er mikill heiður
fyrir Björk að vinna að plötunni
því valdir voru aðeins bestu lista-
menn til að útsetja lög Bond-mynd-
anna.
-DVÓ
Opel
Astra
5 dyra kr. 1.259.000.-
Bílheimar ehf.
■©■ iTJ R
opb. ETifFJ] ■■■ xy
Sœvarhöfba 2a Sími:S2S 9000