Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1997, Qupperneq 3
I>V FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1997
HLJÓMPLðTU
Charlie Haden og Pat Metheny - Beyond the Missouri Sky:
Hreint afbragð
Á nýjum hljómdiski sem ber nafnið
„Beyond the Miossouri Sky“ leiða saman
hesta sína tveir fyrirtaks tónlistarmenn
sem að mestu eru kenndir við djass. Þetta
eru kontrabassaleikarinn ástsæli, Charlie
Haden, og hinn víðfrægi gítarleikari, Pat
Metheny. Metheny handleikur að mestu
kassagítar en önnur gítarhljóð koma örlít-
ið við sögu líka. Lögin sem flutt eru á
diskinum eru af ýmsu tagi; sum eru djasslög, önnur í þjóðlagastíi, þrjú
lög (af þrettán) eru með svolítið klassísku yflrbragði og svo má finna
hér tvö lög úr kvikmyndinni Cinema Paradiso.
Það er helst flutningur dúettsins sem bindur þessi lög saman í heild.
Um hann má segja, að hann er hreint afbragð. AUflest eru lögin afar
hæg og hvert öðru fallegra. Undirtitill disksins er Smásögur (Short
Stories). Þeir félagar skiptast á stuttum lagrænum sólóum og er eins og
þeir séu bara tveir saman heima í stofu, þangað tif loks í sjötta laginu
að inn í það læðist strengjaútsetning og eftir það í nokkur önnur til við-
bótar. Aðeins í einu lagi kemur fyrir trommuleikm- sem reyndar hefði
vel mátt sleppa. Þegar hlustað er á þennan disk hugsar maður ekkert
um hvað tónlistin heitir, hún bara er þama og gælir mjúklega við eyr-
un aftur og aftur, því að þessi diskur er svo sannarlega spilaður aftur
og aftur. -Ingvi Þór Kormáksson
The Chemical Brothers - Dig Your Own Hole: ★★★
Kraftmikill dansóður
Efiiabræðumir Rowlands og Simons hafa
nú snúið aftur eftir mikla velgengni plöt-
unnar Exit Planet Dust með plötu sem nær
til breiðari hóps en sú fyrri. Chemical Brot-
hers feta nú stíginn á miUi rokksins og
danstónlistarinnar sem hljómsveitin The
Prodigy hefur gert með góðum árangri.
Fyrsta lag plötunnar Dig Your Own Hole
nefnist Block Rockin Beats og er krafhnikill
dans/rokkóður. Því er fýlgt eftir með titillagi plötunnar sem hefúr að
geyma einkennandi fizz fúnkin bassalínu sem Ah Friend framkallar á
strengjahljóðfáeri sínu.
Elektro Bank er kannski ekki alveg eins sannfærandi lag, né heldur
Piku sem kemur þar á eftir. Hljóðin sem þeim fylgja valda frekar eyma-
verkjum og senda engan í sælu. Setting Sun hefúr hins vegar þegar sann-
að gildi sitt sem einn kraftmesti dansóður þessa árs og ekki skemmir fyr-
ir að Oasis bróðirinn Noel Gallagher ljær efiiabræðrunum rödd sína og á
hlut í lagasmíðinni.
Næsta lag sem náði athygli minni var lagið Dont Stop The Rock, sem
minnir meira á það sem bræðumir (ekki blóðbundnir) vora að gera á fyrri
plötu sinni. Lagið Get on up It Like This hefúr allt til að bera sem góður
danssmellur þarf, meira að segja nafiiið, og fær því atkvæði þess er hér rit-
ar. Aftur kemur einkennandi bassalína og nú í acid jazz stíl í laginu Lost
in the K-Hole sem hefur „grúvið" sem aðalsmerki.
Lagið Where Do I Begin verður að teljast til þess óvenjulega sem platan
hefur upp á að bjóða, vegna þess að lengi vel framan af er enginn sleginn
taktur, aðeins gítar og kvenmannssöngur sem hvort tveggja er síðan skor-
ið út og inn kemur taktur sem aldrei virðist ætla í gang. Lagið fær atkvæði
mitt fyrir frumleika. Síðasta lag plötunnar ber nafiiið The Private Ps-
hycadelic Reel og er hvorki meira né minna en títillinn bendir til,
einkaflipp klarinettleikarans Jonathans Donahue við mjög svo fjölbreyttan
og fríkaðan undirleik efiiabræðranna. The Chemical Brothers ramba á
barmi rokktónlistarinnar með aukinni notkun lifandi hljóðfæra og kraft-
miklum lagasmíðum á þessari plötu, sem er vonandi aðeins eitt þrep i stig-
anum til frekari stórvirkja. Guðjón Bergmann
Daft Punk - Homework:
Afturhvarf í tölvupoppið
Frönsku strákamir tveir í Daft Punk hafa
ýmislegt til að bera í dansgeiranum. Þeim
hefúr tekist að endurvekja gömlu Kraftwerk
stemninguna að hluta og berjast hatramm-
lega fyrir réttindum dansmenningarinnar í
Frakklandi. Hljómsveitin fær fólk auðveld-
lega út á dansgólfið með flestum lagasmíðum
sínum, en aðeins örfá laganna hafa það til að
bera sem þarf til almennra vinsælda og viður-
kenningar. Á ég þar fyrst og fremst við lagið Da Funk sem Chemical
Brothers hófú til virðingar á tónleikaferðalögum sinum um heiminn. Lagið
flytur mann afún1 í tíma tölvupoppsins og „grúvar" allskuggalega. í raun er
hálfómögulegt að sitja kyrr þegar Da Funk hljómar. Annað lag af þessari
gráðu heitir Around the World og hefur einnig til að bera þau kennileiti sem
til þarf. Glöggir átta sig á að þama er ég að samsinna útgáfufyrirtækinu
Virgin, því þessi tvö lög hafa þegar náð heilmiklum vinsældum eftir að hafa
verið gefin út á smáskífum.
Því miður era ekki fleiri lög á plötunni Homework sem eiga mikia mögu-
leika til vinsælda eða virðingar, en miðað við vinsældir sveitarinnar til
þessa gæti ég allt eins haft rangt fyrir mér. Það er jú ótrúlegt hvað tvö vin-
sæl lög geta gert fyrir hijómsveit á uppleið. Annað efhi plötunnar er ekki
alslæmt og sómir sér líklega vel á dansstöðum um víða veröld. Þar detta Daft
Punk liðar í hina venjulegu dansgryfju sífelldra endurtekninga sem gera það
að verkum að lögin verða leiðigjöm til lengdar. Að vísu er einnig um end-
urtekningar að ræða í lögunum Da Funk og Around the World, en það vel
gerðar að það tekur hlustandann lengri tíma að fá leið á þeim.
Það er samt gaman til þess að vita að fortíðin getur enn haft áhrif og það
á dansmenningu nútímans. Guðjón Bergmann
★★
Sacred Spirit heldur í heföir og vitnar í verk forfeðra.
Sa mkruill
þjóðarWta
Tónlistarmenn samtimans
hafa imdanfarin ár glímt
við samnma tónlistar úr
ýmsum heimshomum og
menningarsamfélögum með mis-
jöfrium árangri. Þó hafa tónlistar-
menn náð undraverðum árangri á
þessu sviði á má þar á meðal nefna
Sacred Spirit plötuna Chants and
Dances of The Native Americans.
Á henni var blandað saman seið-
andi röddum amerískra indíána og
nútíma hljóðfæraleik og takti.
5acred Spirit seldi fyrri
plötu sína í rúmum 2
milljónum eintaka um
allan heim og sökum
velgengninnar snýr þessi hópur
listamanna nú aftur með nýtt sam-
krull sem ber nafnið Culture
Clash. Á plötunni er leitað fanga í
tónlist frá ýmsum menningarsam-
félögum.
The Brave eins og hann
kallar sig (upptökustjóri
og lagahöfundur) er
stjómandi verkefnisins
og hefur viðað að sér alls kyns efni
til blöndunar. Hann fékk meðal
annars nemendur sem stunduðu
klassískan hljóðfæraleik til að
spinna stutta húta af tilfinningu
frekar en af nótnablaði sem hann
síðan setti saman við búta úr tón-
list John Lee Hooker, Dee Hound
Dog Jeffs o.fl.
L| ndirtónninn er því blús-
I aður í bland við klassík
I og tónlist ýmissa ann-
W arra þjóðarbrota bætist
síðan við. Sacred Spirit heldur
uppi hefðum fyrir komandi kyn-
slóðir með því að vitna í verk for-
ferða sinna í tónlistinni.
um aö
margar
notað á mörg himdrað óformleg-
um síðum á Internetinu sem
helgaðar eru þeim. Fram-
kvæmdastjóri hljómsveitarinnar
segist vona aö stjómendur net-
þjóna taki til sinna ráða til að
ekki þurfi að koma til málshöfð-
unar. Það er ekki ætlun þeirra
félaga í Oasis að loka öllum þess-
um aödáendasíðum en þeir viija
aö greidd séu stefgjöld fyrir notk-
un á mynd- og tónlistarefhi sveit-
arinnar. Má búast við aö ógreidd
stefgjöld nemi gríðarlega hárri
endur þessara
tölvupóst í sl. viku
var tilkynnt um 30 daga
að taka efhið út áöur en
yrði stefnt fyrir dó
Jafhvel þó
heimasíðna séu bl
enn aörar sem
á ólöglegum upptökum á
leikum sveitarinnar.
-GBG