Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1997, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1997, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1997 ÍWnlist„ *★* Blód á dansgólfinu saga Jacksons endurhljóðblönduð Michael Jackson hefur ekki gefið út margar sólóplötur miðað við lengd ferils hans til þessa. Samt er hann einn söluhæsti listamaður poppsögunnar og á það allt að þakka langlífi platna sinna. Tvö- falda platan History fellur í þennan flokk ef marka má 10 milljón ein- taka sölutölur, en engu að síður hef- ur hún nú verið tekin til endurskoð- unar (í takt við tímann og fótfima danssjúklinga) og endurhljóðblönd- uð með diskótek (jafnt í heimahús- um sem annars staðar) í huga. Doll- aramerki eru því komin augun á út- gefendum Michael Jackson, sem hafa ekki hug á því að fá minna fyr- ir sinn snúð nú en áður hefur tíðkast (meira, meira, meira....). Nýtt og gamalt í bland Jackson fær ekki alveg fri frá þessari plötu, en til að auka verð- mætið leggur hann til 5 ný lög af þeim þrettán sem platan hefur að geyma. Fyrsta smáskífan, lagiö sem er samnefnt nýju plötunni, heitir Blood on the Dancefloor og er þegar farið að hljóma töluvert á öldum Ijósvakans. Meðal nýju lagaima er einnig að finna titilagið úr væntan- legri kvikmynd poppkóngsins sem ber nafnið Ghosts. Platan hefur að geyma endurhljóðblandanir sem komu fyrst út á smáskífum History- plötunnar. Þeir sem endurhljóð- blanda eru: Franckie Knuckles í lag- inu You Are not Alone, Todd Terry í laginu Stranger in Moscow, Jam & Lewis í lag- inu Scr- eam Michael Jackson er kominn með nýja plötu sem bæði hefur að geyma endurhljóðblandan- ir af eldri lögum og ný lög. og Hani í Earth Song. Þrjár nýjar hljóðblandanir fylgja síðan í kaupbæti. íslandsvinurinn Wyclef úr Fugees endurhljóðbland- ar 2 Bad, Farley and Helier taka lag- ið Money fyrir og Tony Moran fær Samhliða plötunni Blood on The Dancefloor kemur síð- an út samansafn af stuttmyndum og verð- launasjónvarpsfram- komum á laserdisk og VHS. Meðal þess sem fyrirfinnst í saman- safninu verður: fram- koma hans á 25 ára af- mæli Motown, fram- koma hans á MTV- verðlaunahátíðinni 1995, myndbandið við Scream sem vann fem MTV-mynd- bandaverðlaun og grammy-verðlaun fyr- ir besta myndbandið 1996 og myndbandið við samnefnt lag nýju plötunnar (sem telst í raun til stuttmynda) svo eitthvað sé nefnt. í lok maí hefur Jackson síðan Evr- óputónleikaferð sína í Bremen, Þýskalandi, en hún stendur allt fram í miðjan september á þessu ári. -GBG Frægöarsól Jacksons virö- ist ætla að skína að eilífu. það verkefni að end- urhljóðblanda lagið History. Á laserdisk og VHS "'J* M* * H* E* L *G *I *N Gullöldin Danshúsið Hin gamalgróna gleöisveit Karma mun leika annað kvöld á Hótel íslandi en þeir eru ófóir sem hafa tekiö sporin und- ir leik hennar. Meðlimir Karma eru Ólafur Þórarinsson, sem syngur og leikur á gítar, Helena Káradóttir, sem syng- ur og leikur á gítar, Páll Sveinsson leikur á trommur, Eiður Alfreðsson á bassa og Ríkharöur Arnar á hljómborö. Gömlu brýnin, Svenni og Halli, leika fyrir dansi í kvöld og annað kvöld. Hótel Saga í kvöld verður Smirnoff-fata- hönnunarkeppnin haldin. Að- gangur er ókeypis og eftir keppn- ina verður dansleikur með Agga Slæ, Tamlasveitinni og Sigrúnu Evu. Annað kvöld verður sýning- in Allabaddarí en eftir kl. 23.30 verður dansleikur með Agga Slæ, Tamlasveitinni og Sigrúnu Evu. Langisandur Dægurlagahljómsveit Eyjólfs Konráðssonar heldur tónleika á veitingastaðnum Langasandi á Akranesi í kvöld. Með í för verður söngpipan ástsæla, Stefán Hilm- arsson, og munu þeir láta gamm- inn geisa. í kvöld og annað kvöld leikur hljómsveitin Upplyfting ásamt Ara Jóns fýir dansi. Hótel ísland í kvöld verður haldin fegurð- arsamkeppni fslands en annað kvöld verður sýningin Bragga- blús, söngbók Magnúsar Eiríks- sonar undir tónlistarstjóm Gunn- ars Þórðarsonar. Að lokinni sýn- ingu leikur hljómsveitin Karma fyrir dansi. Gjáin í kvöld munu félagarnir í Reggae on Ice spila á Gjánni á Sel- fossi. Sveitin er þessa dagana að leggja lokahönd á nýja plötu sem kemur út í júní og er fyrsta lagið, Ég vil, þegar komið í spilun. Ut er kominn geisladiskur með Sælu- vikulögunum 1997 en á honum er aö finna lög úr dægurlagakeppni Kvenfélags Sauðárkróks. Fjöldi þekktra tónllstarmanna áttu lög f keppninni, m.a. Geirmundur Valtýsson, Sverrir Stormsker og Valgeir Skagfjörö sem á texta á diskinum. Hljóm- sveitin Súrefni, sem er samnefni yfir þá Palla og Þröst, hefur sent frá sér geisladiskinn Geimjass en á honum er aö finn lögin Qul, Partítíðni áramóta Stínu, Flauel, Geimfatatízkan og Loch Lomond. Hér er einn geisladiskur fyrir alla sanna Austfirðinga en hann ber titilinn Kæra Höfn og er gefinn út f tilefni 100 ára afmælis Hafnar f Hornafirði. Á diskin- um er að finna 16 lög eftir ýmsa höfunda, m.a. eiga þeir feögar Örvar Kristjánsson og Grétar og Karl B. Örvarssynir allir þar lög.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.