Dagblaðið Vísir - DV - 23.05.1997, Qupperneq 12
★i
26 -*(
' Á -k
lyndbönd
MYNDBAMDA
Ífifij'JjifJU
Curdled:
irkrk
Hryllilegar hreingerningar
Gabriela á sér svolitið sérstakt áhugamál - morð.
Hún á úrklippubók þar sem hún safnar fréttum af
morðum og því hryllilegri morð, því betra. Þegar hún fréttir af því að til sé
hreingerningafyrirtæki sem sérhæfi sig í að hreinsa upp eftir blóðug dauða-
slys og manndráp er hún fljót að grípa tækifærið og ná sér í vinnu. Hún hef-
ur sérstakan áhuga á raðmorðingja nokkrum sem hefur verið aö drepa hefð-
ar„frýr“ undanfarið og býður sig strax fram þegar fara á að hreinsa upp eft-
ir hans síðasta verk. Þar gerir hún undarlega uppgötvun og snýr aftur á
staðinn að næturlagi, en þar er þá morðinginn einnig og best að segja ekki
meir. Hugmyndin að baki sögunni er ansi sniðug, en nokkuð vantar upp á
að úrvinnslan skili sér. Myndin fer nokkuð hægt af stað og tekur ekki al-
mennilega við sér fyrr en í endinn. Einnig eru leikaramir í slappari kant-
inum og gera ailavega ekki neinar rósir. Það borgar sig þó að sýna mynd-
inni þolinmæði, því endirinn er óborganlegur fyrir þá sem á annað borð
geta hlegið að þetta sjúklegum húmor. Á kápunni er nafn Quentin Tar-
antino tengt við myndina, sem er blekking. Hann vinnur sem svokailaður
„executive producer", en í því felst ekkert listrænt framlag. Hins vegar er
svartur húmorinn í stíl við sumt sem hann hefur gert.
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Reb Braddock. Aðalhlutverk: Angela Jones og Willi-
am Baldwin. Bandarísk, 1996. Lengd: 90 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ
Surviving Picasso:
Drullusokkurinn Picasso
*★
Surviving Picasso segir frá Francoise og sambandi
hennar við Picasso. Hann átti í mörgum stormasömum
samböndum, en Francoise er sögð sú eina sem hafði
dug í sér til að láta hann róa. Hann er rúmlega sextug-
ur þegar þau hittast og á áttræðisaldri þegar hún yfir-
gefúr hann, ennþá ung kona, en þá var hann byijaður
að halda við enn eina komunga ástmeyna. Natascha
McElhone sýnir mjög góðan leik i aðalhlutverkinu, en
Anthony Hopkins er hálfgerð vonbrigði. Hans hlutverk er að vísu afar erfitt.
Hann á að vera rosalegur drullusokkur en jafnframt afar sjarmerandi,
ódauðlegur snillingur en jafiiframt tilftnningalega vanþroskaður. Kvik-
myndataka, búningar og öll umgjörð yftrleitt er mjög glæsileg en það er lit-
ið í pakkamun. Sagan gengur einfaldlega ekki upp eins og hún er sett upp.
Kannski er það bara öfund en ég átti ailavega afar erfitt með að trúa því
hversu iiia allar konumar létu hann fara með sig, þótt hann væri frægur og
stundum sjarmerandi. Að minnsta kosti hafa þeir Merchant, Ivory og
Jhabvala gert mun betur.
Útgefandi: Warner-myndir. Leikstjóri: James Ivory. Aðalhlutverk: Natascha McEI-
hone og Anthony Hopkins. Bandarísk, 1996. Lengd: 120 mín. Öllum leyfð. -PJ
The Long Kiss Goodnight: ***
Minnislaus launmorðingi
Sakleysislega kennslukonan Samantha Caine þjáist
af minnisleysi og man ekkert af sínu fyrra lifemi. Hún
er þó með einkaspæjara í vinnu við að reyna að kom-
ast að einhverju um sig, en sú rannsókn gengur frem-
ur hægt. Einn dag fær Samantha ljótan durg í heim-
sókn og reynir sá að drepa hana. Þegar hún gengur frá
homun með stæl er Ijóst að meira hýr að baki hennar
fortíð en hana áður grunaði og hún leggur af stað með
einkaspæjaranum sínum til að athuga nýjar upplýs-
ingar. Fljótlega kemur í ljós að hún var hið mesta
hörkukvendi, njósnari og leigumorðingi á mála hjá leyniþjónustunni. Þeir
em hins vegar ekkert allt of hrifiiir af því að hún sé að skjóta upp kollin-
imi aftur enda hefúr ýmislegt breyst síðan hún mætti í vinnuna síðast. Eft-
ir hörmungina Cutthroat Island þurfti Renny Harlin á góðum hasarsmelli
að halda og tókst greinilega allvel upp. Ólíkindalegur söguþráðurinn er
kryddaður með ágætum húmor og skemmtilegum persónum, þannig að
maðm- gleymir að pæla í gloppunum og getur einbeitt sér að því að njóta
hasarsins og sprenginganna. Samuel L. Jackson þarf ekki annað en mæta
til að vera skemmtilegur og Geena Davis kemur á óvart með því að vera
ansi flott sem hin ofbeldisfúlla kisulóra.
Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Renny Hariin. Aöalhlutverk: Geena Davis,
Samuel L. Jackson. Bandarísk, 1996. Lengd: 115 mín. Bönnuð innan 16 ára. -PJ
Jack:
Stór strákur
áðliik
w
Robin Williams leikur hinn tíu ára Jack sem er hald-
inn einstökum hrömunarsjúkdómi sem gerir það að
verkum að hann eldist fjórum sinnum hraðar en venju-
legt fólk. Hann lítur því út eins og fertugur karl en að
öðru leyti hefur hann þroska tíu ára stráks. Til að
vemda hann fyrir stríðni hafa foreldramir haft hann
heima, en era nú loksins að senda hann i skóla að ráði
einkakennara hans. Þar er honum í fyrstu fáiega tekið
af jafnöldrum sinum en eftir að hann sýnir snilli sína í körfubolta er hann
tekinn í sátt, af hinum strákunum í liðinu að minnsta kosti. Vonlausari
myndir em vandfundnar. Þetta á að heita gamanmynd en hún er fuUkomn-
lega ófyndin. í staðinn fyrir húmor kemur fleðuleg væmni og þykkt lag af
boðskap, sem er grannur og heimskulegur. Sykurdrullan ágerist eftir því
sem á líður og í lokin er myndin orðin svo ógeðsleg að ég þurfti að taka á
öllu sem ég átti til að halda þennan hrylling út, og gerði það af skyldurækni
einni saman. Sjaldan hafa 109 mínútur verið jafnlengi að líða. Allir leik-
aramir standa sig verulega iila, meira að segja Robin Williams, en hann hef-
ur því miður tilhneigingu til að gerast hrikalega væminn, sérstaklega þeg-
ar krakkar em nálægt.
Útgefandi: Sam-myndbönd. Leikstjóri: Francis Ford Coppola. Aðalhlutverk: Robin
Williams. Bandarísk, 1996. Lengd: 109 mín. Öllum leyfð. -PJ
FÖSTUDAGUR 23. MAI1997
5. til 11. maí
SÍTI F,lil11 VIKA VIKUR A LISTA TITILL ÚTGEF. TEG.
1 j 5 : 2 Courage under Fire Skífan Spenna
21 1 5 ■ ■■■■ i Phenomenon Sam-myndbönd Drama
3 7 2 Associate Háskólabíó Gaman
, 4 2 4 Chain Reaction Skífan Spenna
5 3 3 Tin Cup Warner myndir Gaman
6 Ní mmm l gg: ", i Dragonheart ClC-myndbönd Spenna
7 4 5 Black Sheep ClC-myndbönd Gaman
S 6 5 Substitute Háskólabfó ’ Spenna
9 8 r 9 Time to Kill Warner myndir Spenna
10 10 9 Multiplicity Skífan Gaman
11 12 10 Nutty Professor ClC-myndbönd Gaman
12 9 6 Fan Sam-myndbönd Spenna
13 14 3 Smoke Skrfan Drama
14 Ný 1 X-Files: Tempus Fugit 1 Skrfan Spenna
15 Ný 1 Surviving Picasso Warner myndir Drama
' 16 Kt i Moll Flanders Sam-myndbönd Drama
17 3 13 6 Escape from L.A. ClC-myndbönd Spenna
18 16 1 j Stiptease skífan Spenna
19 j 11 6 Feeling Minnesota Myndterm Spenna
20 20 17 t Fargo Háskólabíó Spenna
Loks varð John Travolta að gefa eftir efsta sæti myndbanda-
listans. Mynd hans, Phenomenon, fellur þó aðeins um eitt
sæti. Á toppinn kemur stríðsdramað Courage under Fire. Að-
eins ein ný mynd bætist við í hóp þeirra fimm vinsælustu. Er
það gamanmyndin The Associate með Whoopi Goldberg í að-
alhlutverki, hækkar sig úr sjöunda sæti í þriðja. Á myndinni er
Whoopi í hlutverki sínu í The Associate. I sjötta sæti og bíður
síns tíma er ný mynd á listanum, Dragonheart, ævintýramynd
með Dennis Quaid í aðalhlutverki. Rödd Seans Connerys
kemur einnig mikið við sögu í myndinni. Það þarf að fara í
fjórtánda sæti til að sjá aðra nýja mynd, en þar eru þrjár óiík-
ar nýjar myndir í röð; ný X-Files mynd, mynd um ævi málarans
fræga, Picassos, og Moll Flanders sem gerð er eftir klassísku
ævintýri Daniels Defoes.
Courage
under Rre
Denzel Washington
og Meg Ryan.
Undirofurstinn
Nathan Sterling verður
fyrir því um nótt í
Persaflóastríðinu að
sprengja upp, fyrir
slysni, bandarískan
skriðdreka. Herinn
ákveður að þagga mál-
ið niður og kaliar Sterl-
ing heim. í kjölfarið er
honum falið að rann-
saka dauða flugstjóra
sem er um það bil að
verða fyrsta konan til
að hljóta æðsta heiðurs-
merki Bandaríkjahers.
Vitnum ber ekki sam-
an um atvik þau sem
leiddu til dauða hennar
og tilraunir Sterlings
til að komast að hinu
sanna ýfa gömrd sár.
|QH N i K ÁVQI i v
PHENOMENON
œr
a •
Phenomenon
John Travofta og Ro-
bert Duvall
Hinn hlédrægi Ge-
orge verður fyrir þvi
að einhvers konar eld-
ingu lýstur niður í
hann og vankar hann.
Þegar hann rankar við
sér áttar hann sig á
því að áður óþekkt
orka hefur hreiðrað
um sig í líkama hans
og huga, orka sem ger-
ir honum kleift að sjá
og ftnna fyrir óorðn-
um hlutum jafiiframt
því sem hann getur nú
hreyft hluti úr stað
með huganum. Þegar
hæfileikar hans spyrj-
ast út vekur það mis-
jöfh viðbrögð.
wwoort mmtic
The Associate
Whoopi Goldberg og
Diane West.
Laurel er einn
snjallasti fjárfestinga-
sérfræðingur fyrir-
tækisins Manchester
Inventments. þegar út-
smognum samstarfs-
manni hennar er veitt
stöðuhækkim segir
hún upp. Hún stofnar
sitt eigið fyrirtæki og
á fund með auðmann-
inum Donald Faiion,
sem verður hrifinn af
áformum hennar en
treystir ekki kven-
fólki. Laurel bregður
því á það ráð að búa
til mann sem hún seg-
ir að sé heilinn í fýrir-
tæki sínu. Hefst nú
ýmiss konar vand-
ræðagangur sem ekki
verður séð fyrir end-
ann á.
Chain Reaction
Keanu Reeves og
Morgan Freeman
Vélvirkinn Eddie
Kasalivich og vísinda-
konan Lily Sinclair
em í flokki vísinda-
manna sem hafa fúnd-
ið upp nýja tegund
orku. Skömmu eftir að
uppfinningin er gerð
er rannsóknarstofan
eyðilögð í sprengingu
og yfirmaður þeirra er
myrtur. Eddie og Lily
era grunuð um ódæð-
ið og eina von þeirra
er að valdamikill emb-
ættismaður leggi þeim
lið, en það er allsendis
óvíst að hann sé á
þeirra bandi.
Tin Cup
Kevin Costner og
Rene Russo
Ef Roy „Tin Cup“
McAvoy væri snjall
hefði hann getað orðið
meðal þeirra snjöll-
ustu í golfíþróttinni í
stað þess að vera nú
golfkennari í litlum
bæ í Texas. Hann
hefði einnig átt að láta
sér nægja að kenna
sáffræðingnum dr.
Molly golf eins og beð-
ið var um, í stað þess
verða ástfanginn af
henni. Nú þarf hann
að gera eitthvað stór-
kostlegt til að koma
lífi sínu á rétta braut.
Það sem Roy þarf að
gera er að sigra á opna
bandaríska meistara-
mótinu.