Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1997, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1997, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 1997 Fréttir Hafró boðar aukna þorskveiði og hrun grálúðuveiða: Fylgjum ekki sveiflum eftir - segir Guðjón A. Kristjánsson, forseti FFSÍ „Mér fmnst of lítið að gert í þorsk- inum. Við teljum þorskstofninn vera í mjög hraðri uppbyggingu. Það vill svo til að þær friðunaraðgerðir sem við beittum okkur fyrir frá árinu 1993, um lokun stórra uppeldissvæða fyrir Norðurlandi, hafa skilað ár- angri,“ segir Guðjón A. Kristjánsson, forseti Farmanna- og fiskimannasam- bands íslands, um tillögur Hafrann- sóknastofnunar sem gera ráð fyrir að þorskafli aukist úr 195 þúsund tonna afla á síðasta ári í 218 þúsund tonn á yfirstandandi fiskveiðiári. Þessi til- laga Hafró er grundvölluð á svokall- aðri aflareglu sem gerir ráð fyrir að ákveðið hlutfall af þorskstofninum verði veitt. Hrun í gráiú&u Hafró leggur til stórfelldan niður- skurð á grálúðu. Gert er ráð fyrir 28 þúsimd tonna veiði í ár en fiski- fræðingarnir leggja til 10 þúsund tonn á næsta fískveiðiári. Þar blasir því við hrun í veiðum en eins og DV hefur áður greint frá hafa sjómenn varað við því að til þess kynni að koma. í öðrum fisktegundum eru lagðar til minni breytingar. Ufsi verði 30 þúsund tonn í stað 37 þúsund tonna veiði. Eins og DV sagði frá í gær telur Roald Waage, forstjóri norsku Haf- rannsóknastofnunarinnar, að aðferð við að reikna út þorskkvóta sé ekki Vel&i/Aætl. '96-'97 |§g Ráðgjöf/Hafró ’97-’98 □ i / Mismunur (□ Sumargotssfld Þorskur Grálúða ?8þ. tonn 10 þ nógu góð. Hann segir aðferðina raunar vera alvarlega gallaða og hefur beint því til Alþjóða hafrann- sóknastofnunarinnar að aðferðir við aö reikna út stofnstærðir verði endurskoðaðar. Guðjón A. Krist- jánsson segir þetta álit Waage vera mikil tíðindi og það styðji kenning- ar íslenskra fiskimanna. „Þetta er ein merkilegasta frétt sem ég hef séð síðustu 10 árin ef rétt er með farið. Það sem meira er - hún svarar að mörgu leyti viöhorfum okkar fiskimanna. Uppbygging á stofni fer hraðar fram en fiskifræðin gerir ráð fyrir. Á sama hátt fer nið- ursveifla hraðar fram en tekið er mið af í ráðgjöfinni. Það segir ein- faldlega að við fylgjum uppsveiflunni nógu hratt eftir og að sama skapi leggjum við til of mikinn afla þegar niðursveiflan kemur," segir Guðjón. Hann segir fiskifræðinga vera ým- ist á undan eða eftir raunverulegu ástandi fiskstofna við spár sínar. „Það má líkja þessu við það að þorskstofninn sé á 100 kílómetra hraða inn í framtíðina. Þá eru fiski- fræðingarnir á 70 kílómetra hraða. Sama gerist þegar þorskstofninn fer niður þá halda fiskifræðingamir áfram að vera á 70 meðan þorskur- inn fer niður í 30 kílómetra hraða. Sveiflurnar eru einfaldlega miklu meiri en spálíkönin gera ráð fyrir,“ segir Guðjón. -rt Minni loðna og síld DV, Ósló: íslenska loðnan er á mörkum þess aö vera ofveidd og norsk- ís- lenska síldin þolir ekki meiri veiði. Þess vegna mælir Alþjóða hafrannsóknarstofnunin með því að dregið verði úr veiði úr báðum þessum stofnum á næstu vertíð. Tillögumar vom kynntar í Björgvin í Noregi í gær. i tillögum stofnunarinnar er gert ráð fyrir að á næstu loðnu- vertíð verði ekki veitt meira en 850.000 tonn. Það er 250.000 tonn- um minna en kvóti síðustu ver- tíðar. Síldin þolir heldur ekki núver- andi veiði og lagt er til að heild- arveiðin verði minnkuð úr 1,5 milljón tonnum í 1,2 milljón tonn. Þrátt fyrir tillögur um samdrátt er hvorugur þessara stofna talinn i hættu. -GK Geir Sveinsson átti stórleik meö íslenska landsliöinu gegn Norömönnum í morgun og skoraöi 7 mörk. DV-mynd ÞÖK „Lít björtum augum á framhaldið" - sagði Jón Kristjánsson, þjálfari Valsmanna, eftir sigurinn á Norðmönnum „Þetta var nú bölvað basl framan af. Sóknin var í lagi en vömin var að leka. Ég missti samt aldrei trúna á strákana. Ég vissi að Tobbi myndi setja Gumma í markið og hann kom heldur betur sterkur til leiks. Ég kannaðist þama vel við minn mann. Það var ákveöinn vendi- punktur þegar Gummi fór að verja. Hann bæði fór að verja skot sem hann átti að taka og svo aukabolt- ana sem era svo mikilvægir,“ sagði Jón Kristjánsson, þjálfari Vals og fyrrum landsliðsmaður, við DV í morgun. „Ég lít bara björtum augum á framhaldið. Miðað hvað við erum komnir langt í þessari keppni held ég að möguleikar okkar í næsta leik séu mjög góðir. Ég lít þannig á að liðið eigi raunhæfa möguleika á að keppa um verðlaunasæti en ég veit að strákarnir og Tobbi hugsa bara um næsta leik og þannig á það að vera. Það var mjög ánægjulegt að sjá Duranona koma upp og það eyk- ur breiddina í liðinu til muna. Það hafa ekki verið byggðar neinar skýj- arborgir og pressan á liðinu er ekki sú sama og oft áður. Þetta hefúr komið strákunum til góða og þeir hafa leikið vel. Ég hef fulla trú á þessu liði og eigum við ekki að segja að sigurganga liðsins haldi áfram,“ sagði Jón. -GH „Njóta þess að spila þá leiki sem eftir eru“ „Þetta er alveg frábært en mér leist ekki á blikuna á tímabili. Við voram í vandræðum í vörninni en þegar hún small saman var þetta ekki spuming. Gummi kom mjög sterkur inn í markið og með mar- kvörslu hans breyttist leikurinn. Þessi leikur var svona spegilmynd af öðm sem við höfum séð. Karakt- erinn í liðinu er ofsalega sterkur, menn eru vinnandi og það er mikill styrkur í hópnum. Það sem við get- um sagt í dag er að spennan ætti nú að vera farin úr hópnum," sagði Einar Þorvarðarson, fyrrum aðstoö- arþjálfari íslenska landsliðsins og þjálfari Aftureldingar, við DV eftir sigur íslendinga á Norðmönnum í morgun. Strákarnir eiga að stefna á verölaunasæti Þetta var stórt skref fyrir ís- lenska liðið sem fór með sigrinum upp um 8 sæti. Það vom allir að vonast eftir því að liðið næði í 8-liða úrslitin og nú er sú spenna farin. Menn eru búnir að vera að standa sig mjög vel og eftir þetta eiga menn að njóta þess að spila þá leiki sem eftir eru og reyna að komast sem lengst í keppninni. Menn mega alls ekki eyða þessu tækifæri i ein- hverja vitleysu. Við erum heppnir með mótherja í næsta leik og það er ekkert óraunhæft að við getum komist enn lengra í keppninni. Það er ekkert ómögulegt að ná verð- launasæti. Við eram að spila mjög vel en samt ætla ég að vara við of mikilli bjartsýni. Þessi uppskrift sem menn hafa verið að vinna eftir, það er að taka einn leik fyrir í einu, er mjög góð og ég vona að menn haldi henni áfram. Auðvitað eiga strákarnir að stefna að verðlauna- sæti því þeir em ekki svo langt ffá því núna,“ sagði Einar. -GH Stuttar fréttir Davíð til Parísar Davíð Oddsson forsætisráð- herra hélt í gær til Parísar tii að sitja þar leiðtogafúnd aðildarrikja Atlantshafsbandalagsins og Rúss- lands. Fundurinn hefst í dag, þriðjudag. í fór með Davíð eru Ólafúr Davíðsson ráðuneytisstjóri og Albert Jónsson deildarstjóri. 15 þúsund gestir 15 þúsund gestir heimsóttu fyrirtæki á Byggingadögum 1997 í Perlunni um síöustu helgi. Auk þess sóttu þúsundir fyrir- tækin heim, en þau voru með opið hús víðs vegar á höfuðborg- arsvæðinu. Um 30 fýrirtæki og félög voru þátttakendur í Bygg- ingadögum. Þröstur vann Þröstur Þórhallsson sigraði í Hraðskákmóti íslands sem fram fór sl. sunnudag. Þröstur hlaut 14 og hálfan vinning í 18 skák- um. í öðra sæti varð Þorsteinn Þorsteinsson með 13 og hálfan vinning. 5 milljóna framlag í tilefni af 40 ára aftnæli Kefla- víkurverktaka sf. afhenti félagið samtökunum Gróður fyrir fólk í Landnámi Ingólfs 5 milljónir króna í hófi sem félagið hélt starfsmönnum sínum. Hófið fór fram i íþróttahúsinu í Keflavík. Þreifingar í gangi Þreifmgar hafa verið í gangi nú að undanfornu um sölu á Sól hf. til Kaupfélags Eyfirðinga á Akureyri. Þá hafa einnig fleiri aðilar sýnt áhuga á fyrirtækinu. Mogginn greindi frá. Fjölnir og Mel B. Enska stúlkan Mel B., ein af söngpíunum í Spice Girls, segist ætla að giftast Fjölni Þorgeirs- syni í sumar. Fjölnir hefur stað- fest að stefnt sé á að giftingin fari fram í Englandi. Enska dag- blaðið The Sun hefur slegið sam- bandi þeirra upp á forsíðu. Mogginn greindi frá. -RR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.