Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1997, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1997, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 1997 3 Fréttir Björn E. Hafberg: Veit ekki hverjar ásakanirnar eru SAMKEPPNI um útilistaverk við „Það er algerlega óverjandi fyrir starfsfólk skóla að búa við svona ör- yggisleysi i starfi. Hver sem er virð- ist geta sent skilaboð um að viðkom- andi eigi að hætta í starfi án þess að skýra ástæðuna fyrir því og leggja staðreyndir á borðið. Og eftir því er farið. Það hafa aldrei verið lagðar fram svo alvarlegar ásakanir á hendur mér í þessu máli að réttlæti starfslok mín. Ég veit ekki hverjar þessar „alvarlegu ásakanir" eru. Mál þetta gerir mig tortryggilegan á landsvísu," segir Björn E. Hafberg við DV. Eins og fram kom í DV í gær hef- ur Björn skrifað undir starfsloka- samning sem skólastjóri grunnskól- ans á Flateyri en er afar ósáttur við meðferð málsins. - Er pólitík í málinu? „Það er ekki svo auðvelt að draga pólitíska þætti inn í þetta mál. En því er ekki að neita að ég var mikill andstæðingur samstarfs Alþýðu- flokks og Sjálfstæðisflokks í ísa- fjarðarbæ og er yfirlýstur andstæð- ingur síðarnefnda flokksins." Bjöm segir að Skólastjórafélagið muni væntanlega eiga fund með Óðni Gestssyni, formanni fræðslu- nefndar ísafjarðarbæjar, um málið í vikunni. -hlh Bragi Þór Thoroddsen, verkstjóri á Fiskmarkaði Vestfjarða hf., meö vænan steinbít. Dv-mynd Hilmar Þór Fiskmarkaöur VestQarða hf: Verkfallið jók veltuna DV, Patreksfirði: „Verkfallið hér á Vestfjörðum hefur aukið veltuna hér. Það hefur mun meira farið í gegnum markað- inn heldur en var á síðasta ári,“ seg- ir Bragi Þór Thoroddsen, verkstjóri hjá Fiskmarkaði Vestfjarða hf. á Patreksfirði, um það fiskmagn sem farið hefur í gegnum markaðinn i ár. Á síðasta ári fóru 2500 tonn í gegnum markaðinn en fyrstu 4 mánuði hafa farið 1200 tonn í gegn. Fiskmarkaður Patreksfjarðar er í samstarfi við 10 aðra fiskmarkaði vítt og breitt um landið. Samstarfið er byggt á uppboðskerfi Faxamark- aðar þannig að samtímis er boðið í aflann á öllum þeim stöðum. Boðið er upp allt að tvisvar á dag. Bragi Þór segir að sjómenn séu almennt ánægðir með viðskiptin sem eru frábrugðin beinum við- skiptum milli aðila þar sem útgerð selur afla sinn beint til vinnslu í landi. „Þetta er framtíðarskipulag á sölu fisks. Það eru flestir ánægðir sem leggja hérna upp,“ segir Bragi Þór. Haraldur Böövarsson hf.: Hagnaður 293,3 milljónir - eftir þrjá mánuöi DV, Akranesi: Aðalfundur Haraldar Böðvarsson- ar hf. var haldinn 24. maí 1997. Á fundinum var samþykkt að greiða 8% arð til hluthafa og gefa út jöfn- unarhlutabréf að upphæð 121 millj- ón kr., eða um 17,926%. Á aðalfund- inum var sameining Miðness hf. við Harald Böðvarsson hf. samþykkt og miðast sameiningin við 1. janúar 1997. Hlutafé HB jókst við samein- ingima um kr. 304 milljónir og er nú 1.100 milljónir króna. Fyrirtækið rekur tvo frystitogara, þrjá ísfisk- togara, þrjú nótaskip, einn vertíðar- bát, tvö frystihús, fiskimjölsverk- smiðju, saltfiskverkun og aðra fisk- verkun auk stoðdeilda á Akranesi og í Sandgerði. Fiskveiðiheimildir hins sameinaða félags eru um 24.000 tonn í þorskígildum talið. Að meðal- tali starfa um 600 starfsmenn hjá fyrirtækinu. Hagnaður Haraldar Böðvarssonar hf. fyrstu þrjá mán- uði ársins 1997 var 293,3 milljónir kr. en áætlað er að hagnaður ársins 1997 verði 230 milljónir króna. -DVÓ Sultartangavirkjun i ---------------- --r - ' Landsvirkjun auglýsir eftir myndlistarmönnum til þess að taka þátt í lokaðri samkeppni um gerð útilistaverks á 6x22 m vegg á inntaksmannvirki ofan stöðvarhúss Sultartangavirkjunar í hlíðum Sandafells við vesturbakka Þjórsár ofan Búrfells. Ollum er heimilt að sækja um þátttöku í samkeppninni. Umsókn ásamt upplýsingum um listferil (t.d. sýningarskrár, bækur, ljósmyndir) sendist fyrir 17. júní nk. Dómnefnd skipuð fulltrúum Landsvirkjunar og Sambands íslenskra myndlistarmanna velur fimm listamenn úr hópi umsækjenda til þess að gera tillögur um listaverk í lokaðri verksamkeppni þar sem gert er ráð fyrir að þátttakendur skili líkani af tillögum sínum og ítarlegri Iýsingu á þeim. Samkeppnin verður haldin samkvæmt tamkeppnis- reglum SIM. Tilgangur samkeppninnar er að fá ffam tillögur sem til þess eru fallnar að útfæra í fullri stærð. Að lokinni samkeppni verður tekin ákvörðun um hvaða verk verður valið til uppsetningar ef um semst við listamanninn. Gert er ráð fyrir að val á þátttakendum og samkeppnislýsing liggi fyrir 1. ágúst nk. Stefnt er að því að gerð listaverksins og uppsetningu þess verði lokið fyrir haustið 1999. ' ----r Nánari upplýsingar gefa trúnaðarmenn dómnefndar, Ólafur udo L vsi naa r ■ 1 Jónsson, sími 898 9383/555 0346 og Guðrún Helga- -íl'l J2_ _ f _dóttir, sími 562 0080/453 6289, milli 17 og 19 dag hvern. Utanáskriftin e r: Umsóknir sendist: \ Landsvirkjun ‘ Háaleitisbraut 68 103 RKYKJAVÍK Umsóknir skulu merktar: „ SAMKEPPNI: Útilistaverk við Sultartangavirkjun“ ÍJ Landsvirkjun

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.