Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1997, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1997, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 1997 Fréttir DV Jón Ármann Héöinsson kærir RÚV fyrir tóbaksauglýsingu í kappakstursþætti: „Þykir þetta alvarlegt slys“ Jón Ármann Héðinsson hefur sent kæru til Rannsóknarlögreglu ríkisins vegna beinnar útsendingar Ríkissjónvarpsins frá Formula 1 kappakstri á sunnudaginn. í bréfi sem Jón Ármann hefur sent Þóri Oddssyni, rannsóknarlögreglu- stjóra ríkisins, krefst hann rann- sóknar á auglýsingum um Marl- boro-vindlinga sem birtust í út- sendingunni. í bréfinu segir Jón Ármann að Marlboro-nafnið hafi glögglega komið fram í þættinum og einnig að þessi þekkti tóbaksframleiðandi sé aðalstyrktaraðilinn. Jón Ár- mann vill að rannsökuð sé tíma- lengd á hverju nafni eða tegund tó- baks í sýningunni, svo og allar greiðslur sem kunni að snerta þátt- inn. Einnig vill Jón Ármann að kannað sé hverjir beri ábyrgð á því að hefja áróður fyrir tóbaki og þar með aukningu reykinga þar sem slíkt sé algjört lagabrot hér á landi. Jón Ármann sagði í samtali við DV að undanfarin ár hefðu lög um tóbaksauglýsingar orðið strangari og viðhorf fólks sé í þá átt að slíkt eigi ekki að leyfa. Þess vegna sé það á móti straumnum að Ríkis- sjónvarpið taki til sýningar þátt sem ekki sé sýndur í fjölda landa vegna áróðurs fyrir tóbaki. „Ég vil taka það fram að ég met drengina á íþróttadeildinni mjög mikils. Þess vegna þykir mér þetta afar alvar- legt slys og mannleg mistök,“ sagði Jón. Hann sagðist aðeins vilja fá endanlega úr því skorið hvort þetta sé löglegt svo almenningur geti haft það á hreinu í eitt skipti fýrir öll hvað má og hvað má ekki. Marlboro styrkir ekki þátt- inn Ingólfúr Hannesson, íþróttastjóri RÚV, sagði það vera á misskilningi byggt að Marlboro styrkti útsend- ingu frá keppninni sérstaklega. Það auglýsi aðeins á bílum og annars staðar á vettvangi. „Það er mjög erfitt að koma í veg fýrir nokkuð slíkt. Þetta eru svipaðar auglýsingar og tíðkast í ensku knattspymunni, t.d. auglýsir Carlsberg bjór á keppn- istreyjum Liverpool," sagði Ingólfur. Að öðru leyti vísaði hann á fram- kvæmdastjóra Sjónvarpsins eða út- varpsstjóra. Hvorki náðist i Pétur Guðfmnsson útvarpsstjóra né Rúnar Gunnarsson, framkvæmdastjóra Sjónvarpsins, í gær. -HI íbúar í Seljahverfi mótmæla tengibraut: Mjög óhressir með að fá hraðbraut inn í hverfið Lögreglan í Reykjavík: Jónmundur skipaður yfir- lögregluþjónn Dómsmálaráðherra hefúr skipað Jónmund Kjartansson, í dómsmála- ráðuneytinu, sem yfirlögregluþjón við embætti Lögreglustjórans í Reykjavík. Jónmundur mun hefja störf hjá embættinu 1. júlí nk. Jónmundur mun taka við stjóm almennrar deildar Lögreglunnar í Reykjavík. Guðmundur Guðjónsson yfirlög- regluþjónn, sem stjómað hefúr al- mennri deild lögreglu, hefúr tekið við stjóm rannsóknardeildar emb- ættisins af Amþóri Ingólfssyni yflr- lögregluþjóni, sem látið hefúr af störfúm eftir 41 árs starf í lögreglu. -RR „íbúar í Seljahverfinu em að sjálf- sögðu mjög óhressir með að fá ein- hverja hraðbraut úr Kópavogi hingað inn í hverfið. Með lagningu tengi- brautarinnar eykst stórlega umferð, slysahætta og mengun hér i hverf- inu,“ segir Magnús Bjamason, verk- fræðingur og íbúi i Jaðarseli. Hann er í forsvari fyrir íbúa í Selja- hverfi í Breiðholti sem mótmæla því að tengibraut verði lögð úr Fífu- hvammshverfi í Kópavogi iim í Selja- hverfið eins og gert er ráð fyrir í aðal- skipulagi Kópavogs. „Mér skilst að það eigi að breikka Jaðarselið í fjórar akreinar eins og Breiðholtsbrautina og þá er þetta orð- in hraðbraut. Það er óþolandi að borg- arfúlltrúar okkar í Reykjavík skuli láta það ganga yfir kjósendur sína að láta setja þama upp hraðbraut. Við munum mótmæla þessu af krafti og ætlum ekki að láta vaða svona yfir okkur. Við óskum eindregið eftir því að þessi fyrirhugaða tengibraut verði felld út af skipulaginu. Við erum að safna undirskriftumum hér í Selja- hverfi og það hefur gengur sérlega vel. Ibúar í Seljahverfi ætla að hittast á fundi í Seljaskóla annað kvöld, mið- vikudag, klukkan 20. Við vonum að sem flestir mæti þannig að sterk sam- staða náist í þessari baráttu," segir Magnús. -RR Everest-fararnir: Eru á leiö til byggða íslensku Everest-faramir lögöu af stað til byggða í gærmorgun. Þeir hófu þá göngu sína úr grunnbúðum við Everest. Hópur- inn tók stefnuna til bæjarins Lukla. Gangan til Lukla tekur rúma tvo sólarhringa og er gert ráð fyrir að hópurinn komi þangað á miðvikudagskvöld. Á fimmtudagsmorgun eiga ís- lendingamir bókað flug frá Lukla til Katmandu, höfuðborgar Nepais. Þaðan fljúga þeir síðan til London nk. sunnudag. Stefht er að því að hópurinn komi heim til íslands nk. þriðjudag, 3. júní. -RR Desjarmýri í Norður-Múlasýslu: Sóknarprestur leggur niður störf óþolandi aðstæður, segir prestur Á annan dag hvitasunnu var hátíð- ur störf á hausti komanda". armessa i Bakkagerðiskirkju þar sem Seyðisfjarðarklerkamir Kristín Páls- dóttir og séra Kristján Róbertsson predikuðu og þjónuðu fyrir altari. I lok messunnar las séra Kristján söfn- uðinum fax frá séra Þóreyju Guð- mundsdóttur, sóknarpresti í Desjar- mýrarprestakalli. Þar tilkynnti hún söfnuðinum að hún „muni leggja nið- „Eg er ekki að segja upp störfúm, ég er að leggja niður starf og það er yf- irvalda að ákveða laun mín í fram- haldi af þessu. Embættið býður ein- göngu upp á kirkjuskip - án hreinlæt- isaðstöðu. Enga skrifstofú, safnaðar- heimili né prestsbústað," segir séra Þórey. Ástæðumar snúast ekki um menn, heldur málefni. -st Z3 DV-mynd Björk Guðmundsdóttir gerir þaö gott enn. Björk á topp tíu í Bret- landi og Bandaríkjunum DV, Akranesi: Lagið I Miss You, sem Björk Guðmundsdóttir endurútsetti af plötxmni Post og lagið af síðustu smáplötunni sem Björk gaf út, virðist höfða vel til Bandaríkja- manna. Lagið er á toppnum í viku 20 á einum af bandarísku dans- músíklistunum og nánast allir tíu listamir yflr dansmúsík hafa lagið á topp tíu. Þá er lagið á topp tíu á breska dansmúsíklistanum. Björk hefur hætt við að koma fram á tvennmn tónleikum, eins og til stóð í maí, í Bandaríkjunum m.a vegna þess að hún er á fullu við að ljúka við gerð nýrrar plötu, Homogenig, sem á að koma út í september. Svo upptekin er hún að í byrjun júní flýgur hún til Banda- ríkjanna og kemur fram á „Frels- um Tíbet“ þann 8. júní í Bandaríkj- unrnn og strax eftir það flýgur hún til Bretlands. -DVÓ Dagfari Sænskar ofurlöggur I miðbæ Reykjavíkur hefur lengi ríkt ófremdarástand. Þar hefur lýð- ur safnast saman að næturlagi, einkum um helgar, og látið ófrið- lega. Lítið hefur ráðist við söfnuð- inn, sauðdrukkinn og ofbeldis- kenndan. Lögregla og borgaryfir- völd hafa setið undir ámæli fyrir að ráða ekki við andskota þessa. Bent hefur verið á að hættulegra sé að ganga í gegnum miðbæ Reykja- vikur að næturlagi en í miðborg- um nálægra landa. Menn eru stungnir og rotaðir og jafnvel drepnir. Innbrotin eru svo tíð að engin tala er á þeim. Lögregl- an segist ekki hafa næga peninga til þess að uppræta lýðinn. Það megi ekki vinna yfirvinnu og því hafl fátt verið til ráða. Óþjóðalýð- urinn fer nefnilega ekki af stað fyrr en eftir hefðbundinn skrif- stofutíma. Svona héldu menn því að ástand- ið yrði eilíflega. Uppgjöfin var al- ger og ráðleysið. Útlendar sjón- varpsstöðvar sendu tökulið hingað til lands til þess að greina frá ástandinu í hinni norrænu höfuð- borg. En þegar neyðin er stærst er hjálpin næst. Það sannaðist enn og aftur nú um helgina. Tveir sænskir lögreglumenn sem dvöldu í Reykjavík í fríi komu sem frelsandi englar. Þeir dvöldu á hótelherbergi sínu á Skólavörðu- holtinu í fyrrinótt þegar þeir urðu varir mannaferða. Trúir starfi sínu könnuðu þeir málið enda hafa þeir ekki heyrt af yfirvinnuvandræðum islenskra kollega sinna. Þegar þeir litu út um gluggann sáu þeir hvar maður var að brjótast inn í bíl. Okkar maður hélt að sér væri óhætt, allar löggur í fasta svefni. Hann áttaöi sig ekki á árvekni hinna norrænu bræðra. Svíamir tveir létu hendur standa fram úr náttfataermum og brugðu sér út á götu og handtóku þrjótinn. Hann vissi hvorki hvað upp sneri né nið- ur enda voru Svíamir ekkert að túlka romsu sína um að hann hefði rétt til þess að neita að svara en allt sem hann segði yrði hugsan- lega notað gegn honum i rétti. Inn- brotsþjófurinn var færður rakleið- is í steininn. Svíamir voru nú vel vaknaðir og fengu sér göngutúr í borginni sem þeir héldu að væri eins friðsæl og þeir höfðu lesiö um í ferðamanna- bæklingum. Engan sáu þeir starfs- bróðurinn á ferð en rákust hins vegar á annan þrjót sem hafði brot- þangað inn til þess að stela. Hinar ið rúðu í verslun og ætlaði sér sænsku ofurlöggur voru ekkert að hafa fyrir því að bjóða þeim manni góðan daginn heldur handtóku hann sem hinn fyrri. Hvomgur bófanna var með orðabók og því vissi þessi ekki fremur en hinn hvað var að gerast. Þegar hér var komið sögu köll- uðu sænsku löggumar til íslenska starfsbræður og létu þá um fram- hald mála. Þeir vom þá komnir á dagvinnutaxta og gátu því bókað þrfótana. Von hefur því vaknað í brfóstum manna að lausn kunni að finnast á vandanum í miðbænum. Ferða- málayfirvöld hafa eflaust hag af því að hafa eins og tvær sænskar súperlöggur hér á landi. Auðvitað má skipta þessu á sænskar löggur, hver þeirra gæti til dæmis dvalið hér í hálfan mánuð og handtekið bófa og ræningja. Heyrst hefur að fangar á Skóla- vörðustíg og á Litla-Hrauni hafa þegar pantað tiltækar sænskar orðabækur og séu þeir áhugasamir um námið. Þeir vilja hafa vaðið fyrir neðan sig og geta mætt örlög- um sínum lendi þeir í örmum sænskra ofurmenna. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.