Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1997, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1997, Síða 7
ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 1997 7 ) ) í Fréttir ) ) ) ) ) ) ) > ) Frá verkfallsátökum á Grundarfirði þar sem á þriðja tug verkfallsvarða stöðvaði löndun úr togaranum Bessa ÍS. DV-mynd Bryndfs Verkfallsdeilur á VestQöröum í hörðum hnút: Uppsöfnuð reiði vegna kvótakerfisins Verkfallið á Vestfjörðum harðnar með hverjum deginum sem líður. Hin opinbera ástæða sem gefin er • fyrir ástæðum verkfallsins er sú aö > leiðrétta beri hlut láglaunafólks í fiskvinnslu. Aðalheiður Steinsdótt- ir, verkakona á ísafirði, segir kröf- una vera að bónusinn fari inn á kauptaxta og þannig náist að hækka hina lægstlaunuðu. Þannig verði kauptaxtar færðir nær greiddum launum. Hún segir að svokallaðar bónusdrottningar fái ekki meiri hækkun en aðrir landsmenn en þeir sem hafi lágan bónus muni fá veru- I lega kjarabót. | Sú harka sem komið hefur upp á yfirborðið og sýnir sig í hörðum verkfallsátökum langt út fyrir Vest- firði er þó vart sprottin af óánægj- unni með kjör þeirra lægstlaunuðu einni. Guggunni flaggað út Þeir Vestfirðingar sem DV hefur rætt við eru sammála um að upp- söfhuð reiði vegna áhrifa fiskveiði- stjómunarinnar sé nú að bijótast . fram. Nú séu áhrif þess að verða ’ sýnilegri. Sameining Hrannar hf. og Samherja hf. hafi um garð gengið með þeim afleiöingum að stolti vest- firska flotans, Guðbjörgu ÍS, hafi verið flaggað til Akureyrar. Ný- krýndir hluthafar i Samherja hafi eignast hlutabréf fyrir hundruð milljóna sem að hluta hafi orðið sýnileg í bættri afkomu afkomenda þeirra. Þannig hafi stolt Vestfirð- i inga umbreyst í nýja jeppa og feitar bankainnistæður. > Pétur Sigurðsson, forseti Alþýðu- sambands Vestfjarða, segir vest- firskt verkafólk sækja sér fyrir- myndir til annarra hópa í þjóðfélag- inu og þá ekki síst til þeirra sem standi því næst. „Við lítum auðvitað til þeirra sem em á efri hæðunum í fyrirtækj- unum. Menn vita að þar em greidd l allt önnur laun en það sem gerist hjá þeim sem em í erfiðisvinnunni. Þetta veit fólk þrátt fyrir að þar séu i kjarasamningar ekki gegnsæir og sýnilegir. Síðan bætist það við að eigendur þessara fyrirtækja sem alltaf eru að barma sér fá upp í hendurnar þjóðarauðinn, fiskinn í sjónum. Þeir hafa óskomð yfirráð yfir auðlindinni og þá ekki aðeins hvað varðar nýtingu. Síðan geta þeir selt þetta hverjum sem er,“ seg- ir hann. Svörtustu spár þeirra sem síðasta áratuginn hafa haldið því fram að meint sameign þjóðariimar væri í raun séreign sægreifanna sem ganga myndu í erfðir hafi því geng- ið eftir. Pétur segir að verkafólk á Vestfjörðum fari ekki í neinar graf- götur með það að verið sé að selja og veðsefia sameign þjóðarinnar. „Gleggsta dæmið er þegar menn ganga út úr fyrirtæki á heljarþröm með fufla vasa fjár. Þama er um að ræða peninga sem þeir fengu fyrir auðlindina. Fyrirtæki fengu veiði- heimildir vegna þess að fiskvinnslu- fólk lagði á sig vinnu dag og nótt. Fólki finnst það blóðugt að þeir sem hvergi komu nærri viö að skapa þennan auð skuli vera þess um- komnir að labba með hann út.“ „Þetta sýnir sig svo í alls konar hlutum, svo sem íbúðarkaupum í Reykjavík, kaupum á dýrustu jepp- um og útdeilingu til fjölskyldumeö- lima. Á sama tíma er okkur sagt að fyrirtækin beijist í bökkum og geti ekki greitt sómasamleg laun. Fólkið sér að greiddar eru út allt að 500 milljónir króna fyrir aflaheimildir og auðvitað er spurt hvaðan þeir peningar séu teknir. Auövitað er það þess vegna sem fólkið þarf að vera á lágum launum næsta áratug- inn,“ segir Pétur. Vonleysi Síöasti vetur sýndi Vestfirðingum svart á hvítu að nýjustu ráðstafanir stjómvalda varðandi kvótakerfið; afiiám línutvöföldunar og steinbítur undir kvóta, hafa komið harkalega við atvinnumöguleika í fjórðungn- um. Þar þykir einsýnt að útgerð ein- yrkja hefur dregist harkalega sam- an og þar af leiðandi hefur atvinnu- tækifærum stórfækkað. Öllu þessu fylgir það vonleysi almennings á stöðunum sem brýst út í allri þeirri reiði sem kostað hefur verkfall í á sjöttu viku. Kvótaandstæðingar á þingi Vestfirskir þingmenn studdu sumir afnám línutvöföldunar og steinbítskvóta. Þar var Einar Oddur Kristjánsson framarlega í flokki. Hann fór með stuðningi triflukarla og fleiri aðila sem létu sig sjávarút- vegsmál miklu varða. Þar vakti at- hygli eindregin andstaða hans og Einars K. Guðfinnssonar við kvóta- kerfið og krafa þeirra um sóknar- stýringu. Þeir fengu til liðs við sig gallharða vinstrimenn sem þóttust sjá von í stefiiu þeirra félaga. Ekki minni athygli hefur vakið að báðir studdu þeir afnám línutvöföldunar og steinbítskvóta sem hvort tveggja Fréttaljós Reynir Traustason vom atvinnuskapandi. Þá vakti einnig athygli að þeir studdu frum- varp sjávarútvegs- og dómsmálaráð- herra sem heimilar veðsetningu kvóta. í báðum þessum málum hef- ur Kristján Pálsson, alþingismaður og flokkshróðir þeirra, haldið uppi öflugri andspymu undir þeim for- merkjum að landsbyggðinni stafaði ógn af. I þessu felst sú þversögn að Einaramir era landsbyggðarþing- menn en Kristján þingmaður Reyk- nesinga. Um ástæður stuðnings þeirra skal ekki fjölyrt en ljóst er að Kambur hf., fyrirtæki sem Einar Oddur er stór hluthafi í, jók veð- hæfni sína um rúmlega hálfan millj- arð með því að fá einn stærsta stein- bítskvóta á íslandi auk þorsksins sem féll til við afnám línutvöföldun- ar. Kambur hf. hefur nú runnið saman við Básafell á ísafirði þar sem eignarhlutfall Kambsmanna er um 18 prósent. Engisprettufaraldur Baráttuaðferðir verkfaflsmanna á Vestfjörðum hafa vakið mikla at- hygli. Verfallsverðir hafa farið sem engisprettufaraldur um landið þvert og endilangt, ýmist á bílum eða jafn- vel flugvélum. Þar hafa engin landa- mæri verið virt og jafnt slegist á Reykjavíkurhöfn og kajanum í Grundarfirði sem á vestfirskum bryggjum. Það sýnir hörkuna í verkfallsvörslunni að ekki hefur sést annað eins í áratugi. Hellt hef- ur verið úr fiskkörum og mtt af vörubrettum þar sem reynt hefur verið að landa úr vestfirskum skip- um. Ekki hafa orðið stórslys á mönnum en verkfallsverðir hafa þó farið marðir og skrámaðir frá at- ganginum. Pétur Sigurðsson segir að barátta þeirra snúist að hluta um að halda sjálfræði til samningsgerð- ar og þeir hafni forræði að sunnan. „Sjálfræði í samningum rekur okkur áfram. Við munum aldrei sætta okkur við að okkar málum verði stjómað að sunnan,“ segir Pétur. Staða vestfirskra atvinnurekenda í verkfalli er ekki öfundsverð. Þeir eiga erfitt með að semja um meira en félagar þeirra annars staöar hafa gert. Því veldur þrýstingur Vinnu- veitendasambands íslands. Þá hafa þeir engin tök á því að breyta fisk- veiðistjórnun til að koma til móts við kröfur verkafólksins. Þaö verð- ur því ekki séð annað en pattstaða sé í málinu og á meðan blæðir Vest- fjörðum út. P I Hillukerfi 1_Veggeiniiigar BORGARTÚNI 31 • SÍMi 562 7222 Sumartilboð. Urval af flíspeysum og jökkum. ( Meiri gceði og smekkvísu) Cortina Sport Skólavörðustíg 20 Sími 552 1555 • 3 eintök á mínútu • Afrita og frumritastærð A4 stærst • 40 bls. bakki SHARP • 8 eintök á mínútu • Afrita og frumritastærö • A4 stærst • 100 bls. skúffa SHARP ©HSD • 8 eintök á mínútu • Fast frumritaborS • Stækkun - minnkun 70%-141% • 250 blaða framhlaðinn pappírsbakki • Ljósmyndastilling • Tóner sparnaðarstilling Stgr. m/vsk BRÆÐURNIR Lágmúla 8 * Sfmi 533 2800 Smáauglýslngar SINDRI -sterkur í verki • BREFASIMI 562 1024

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.