Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1997, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1997, Page 9
ÞRIÐJUDAGUR 27. MAl 1997 9 Utlönd Ákvöröun um framsal til Noregs eftir tvær vikur: Paul Watson enn í gæsluvarðhaldi Bandaríski hvalfriðunarsinninn Paul Watson, leiðtogi Sea Sheperd, verður að dúsa áfram í hollensku fangelsi eftir að dómstóll í Haarlem framlengdi gæsluvarðhaldsúrskurð- inn yfir honum á meðan dómari skrifar meðmæli sín til dómsmála- ráðherrans um hvort Watson skuli framseldur til Noregs. Þetta kemur fram í frétt norska blaðsins Aften- posten í morgun. Watson verður heldur ekki leyst- ur úr haldi gegn tryggingu, eins og hann hafði þó farið frarn á. Hollenski dómstóllinn komst að þessari niðurstöðu í gær þrátt fyrir háværar mótmælaaðgerðir fyrir ut- an dómhúsið og þrátt fyrir að Paul Watson og lögfræðingur hans hefðu fengið að leggja fram gögn sem voru nánast bara áróður fyrir Sea She- perd. Hollenskir dýravinir lituðu götur Haarlem rauðar áður en málið gegn Watson var tekið fyrir. Félagar í samtökunum Animal Peace heUtu Paul Watson. bílfarmi af tómatsúpu á götumar og settu uppblásna gúmmíhvali sína í þetta „blóðhaf‘. Samtímis léku mót- mælendurnir segulbandsupptökur með hvalahljóðum. Ekki kom tU átaka á meðan á mótmælaaðgerðunum stóð og því lét lögreglan dýravinina afskipta- lausa. Norsk yfirvöld hafa krafist fram- sals Pauls Watsons vegna 120 daga fangelsisdóms sem hann fékk vegna hlutdeUdar sinnar í skemmdarverk- um á hvalveiðibátnum Nybrænna þann 26. desember 1992. Watson viðurkenndi fyrir dómar- anum að hann hefði tekið þátt í skemmdarverkunum á Nybrænna. Lögfræðingur hans sagði að aðgerð- ir skjólstæðings síns hefðu verið pólitísk nauðvöm. Þá kom fram að Watson óttast mjög um líf sitt verði hann sendur í norskt fangelsi. Dómarinn í málinu tekur sér um tveggja vikna umhugsunarfrest áður en hann sendir meðmæli sín tU dómsmálaráðherra HoUands um hvort Watson skuli framseldur. Fari svo fær Watson að áfrýja málinu og tefja það enn frekar. Sígaunakonur dansa á götum Búkarest, höfuðborgar Rúmenfu. Dansinn var liöur í mótmælaaðgerðum sfgaunanna gegn oröanotkun stjórnvalda þegar þau fjalla um sfgauna. Samkvæmt síðasta manntali eru um 400 þúsund sígaun- ar í Rúmenfu en leiðtogar þeirra segja að tvær milljónir séu nær sanni. Sfmamynd Reuter Eystrasaltsríkin: Forsetarnir ítreka ósk sina um aöild aö NATO Forsetar Eystrasaltsríkjanna þriggja gáfu í gær út yfirlýsingu þar sem þeir ítrekuðu ósk sína um að ganga i Atlantshafsbandalagið, NATO. Leiðtogar aðildarríkja NATO streyma nú til Parísar þar sem undirritaður verður i dag sátt- máli um samskipti þeirra og Rúss- lands. í sáttmálanum er kveöið á um samstarf Rússa við NATO í öryggis- málum Evrópu og þykir hann sögu- legur. Á sama tíma og leiðtogar NATO funda í París halda Algirdas Braz- auskas, forseti Litháens, Guntis Ul- manis, forseti Lettlands, og Lennart Meri, forseti Eistlands, fund með forseta Póllands, Aleksander Kwasniewski, og forseta Úkraínu, Forsetar Eystrasaltsrfkjanna ó fundi í gær. Sfmamynd Reuter Leonid Kuchma, í borginni Otepaa í suðurhluta Eistlands. Taliö er líklegt að forsetar Eystra- saltsríkjanna verði meðal þeirra sem verða fyrir vonbrigðum þegar NATO býður ný aðildarríki velkom- in á leiðtogafundinum í Madrid í júlí. Líklegast þykir að Tékklandi, Ungverjalandi og Póllandi verði fyrst boðin aðild. Yfirvöld í Moskvu eru enn andvíg aðild Eystrasaltsríkjanna og ann- arra fyrrum sovéskra lýðvelda að NATO. Bandaríkin hafa einnig lýst því yfir að herir Eystrasaltsríkj- anna hafi ekki bolmagn til að verja önnur aðildarríki NATO en það sé eitt af lykilatriðunum í samningum bandalagsins. Reuter Agúrka - ein með öllu Islensku agúrkurnar eru komnar í bæinn, ferskar, girnilegar og á fínu verði. Nartaðu í eina ferska, smelltu annarri á grillið og prófaðu uppskriftirnar. Gúrka gerir þér gott. Gúrku- og jógúrtsalat 1 agúrka 1/41 hreint jógúrt eða AB mjólk safi úr 1/2 sítrónu 1 -2 hvítlauksrif 1 -2 matsk. saxaiur graslaukur Þetta hentar vel með hvaða mat sem er, ekki síst grilluðum réttum eða bragðsterkum og það á líka við um næstu uppskrift Kgúrkttr með sýr&úm rjórna og dilli 1 agúrka skorin í u.þ.b. 1 sm þykka bita 40 g smjör púrrulaukur smátt skorinn 1 tsk. saxað ferskt dill 1/2-1 dl sýrður rjómi 1 tsk. sttrónusafi salt og pipar Steikið púrrulaukinn í smjörinu, bætið fljótlega gúrkunum saman við og kriddið með dillinu. Leyfið að malla í 10 mínútur, hrærið vel í á meðan. Bætið sýrða rjómanum út í og sítrónusafanum og kryddið með salti og pipar. Tvcer gúrkur 2 msk. olía 2 msk. rifin engiferrót 1 hvítlauksrif púrrulaukur 250 g rcekjur salt Sósa 4-5 msk. sérrí (eða kjúklingasoð) 3 msk. edik 2 msk. sojasósa 1 -2 tsk. maísenamjöl 1/2-1 tsk. sykur Skrælið gúrkurnar, skerið þær í tvennt og síðan í u.þ.b. tveggja sm bita. Erlendis eru gúrkur með stærri fræ og þau þá skorin burt. Á íslenskum agúrkum er það yfir- leitt óþarfi. Hitið olíu á pönnu og setjið gúrkubitana í og 1 skeið af engifer. Hitið í 3 mínútur og takið síðan af pönnunni. Hitið olíuna og bætið út í hvítlauk, afganginum af engifer, lauk og rækjum og látið krauma í 3 mínútur. Þá hellið þið sósunni yfir og hellið síðan yfir gúrkurnar. Agúrkusósa 1 agúrka 1/2 dl hvítvín 25 g hveiti 40 g smjör 11/21 kaffirjómi 1 tsk. sítrónusafi salt og pipar Afhýðið agúrkuna en skiljið eftir svolítið af hýðinu til að fá lit á sósuna. Skerið gúrkuna í tvennt og setjið helminginn í mat- vinnsluvél ásamt hvítvíninu. Skerið hinn helminginn af gúrkunni í þykkar sneiðar og steikið þær við lágan hita í smjörlíkinu í u.þ.b. lOmínútur. Bætið hveitinu út í og hrærið þar til það hefur blandast vel. Hellið þá smám saman agúrku- og hvítvínssafanum saman við og hrærið vel í á meðan. Látið malla við lágan hita í fimm mínútur, bætið þá sítrónusafa, salti og pipar út í. Þessi sósa er sérdeilis góð með steiktum eða soðnum fiski. Súrscv/ar gúrkttr 1 agúrka 1 -2 msk. olía 4 msk. hvítvín (mysa eða epla-cider) 2 msk. sykur salt Skerið gúrkuna í stöngla. Hitið olíuna og þegar hún er orðin heit setjið þá vín og sykur saman við og hrærið vel í. Þegar þetta er farið að snarka bætið þá við agúrkum og saltið. Eldunartími er ekki nema 3-4 mínútur. Gúrkur matreiddar á þennan hátt eru mjög góðar með öllum asísk- um mat sem og sterkum mat. ISLENSK GARÐYRKJA oLaitu/ Ííáa/ Á<JL ARGUS /ÖRKtN /SÍA SA006

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.