Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1997, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1997, Qupperneq 13
ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 1997 13 Vandi íslenskra háskóla Vandi íslenskra ríkisháskóla verður ekki leystur nema með byltingu í launakerfinu, segir greinarhöfundur m.a. í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins 18. maí var höf'ð uppi at- hyglisverð umræða um vanda íslenskra háskóla. Kom þar fram hversu illa þeir háskólar sem alfarið byggja á ríkisfé eru í stakk búnir til sam- keppni um hæfa starfsmenn. Var þó helst á bréfinu að sjá að vandinn væri bundinn við rekstr- ar-, viðskipta- og tölvunarfræði. Við lesturinn rifjaðist upp lítið atvik. Ráöningarferli lektors Fyrir nokkrum árum gegndi ég stjórnunarstöðu við einn af há- skólum landsins. Kom þá í minn hlut að upplýsa nýja starfsmenn um réttindi sín og skyldur. Eitt sinn undir lok vinnuviku kom nýráðinn lektor á minn fund. Að baki var langt og flókið ráðningar- ferli sem einkennir háskólastigið og er ætlað að tryggja að hæfasti umsækjandi hverju sinni hljóti starfið: Auglýsing, langur um- sóknarfrestur, skipun dómnefndar með fulltrúum stofnunar og ráðu- neytis, kosning í skólaráði og skip- un ráðherra. Allt getur þetta tekið upp í heilt ár ef margir sækja um. Við hófum samtalið á því að ræða um kennslugreinina, að- stöðuna og starfsand- ann í skólanum. Lekt- orinn brosti. Fljótt barst talið að kjörun- um. Ég skýrði frá föst- um launum. Lektor- inn spurði hvað fleira væri um að ræða. Ég benti á möguleika á yf- irvinnu fyrir kennslu. Vissulega hafði bros lektorsins dofnað nokkuð. Enn spurði hann þó hvort ekki væri meira í boði. Smám saman skildist mér að spurt væri um fasta yfirvinnu eða launaauka af einhverju tagi. Ég svaraði auðvit- að sannleikanum samkvæmt að við skólann tiðkuðust engar yfir- borganir. Helgin leið og á mánudags- morgni barst stutt og laggóð uppsögn. Allur imdirbúningur ráðningarinnar hafði orðið til einskis. Við stóð- um aftur á byrj- unarreit. Vandi ríkishá- skóla Nú kann ein- hverjum að detta í hug að hér hafi verið á ferðinni ungur og „arrógant" karl með haldgóða menntun á sviði rekstrar eða tækni og breiða starfsmögu- leika á almennum vinnumarkaði. Svo var ekki. Lektorinn sem aldrei varð var kona. Hún var nokkuð yfir miðjan aldur. Mennt- un hennar lá á sviði hússtjómar- fræða. Hún hvarf að nýju að sínu fyrra starfi í einum af fjölbrauta- skólum borgarinnar. Háskólinn sem í hlut átti reyndist ekki sam- keppnisfær. Samt var um að ræða fulltrúa hóps sem vegna kynferðis, aldurs og menntunar stendur al- mennt veikt í samkeppninni á vinnumarkaðinum að því okkur er sagt. Þá hafði þessi einstaklingur eft- ir ýmsum sólarmerkjum að dæma aðstöðu til að kosta nokkru til í launum til að öðlast „virðulegri" stöðu á sínu sviði. Loks áttum við í þessu tilviki ekki i höggi við al- mennan vinnumarkað né heldur stofnun með sértekjur eða styrki frá stórfyrirtækjum eða samtök- um heldur hinn ríkisrekna, al- menna framhaldsskóla. Þetta er í hnotskum vandi íslenskra ríkis- háskóla og hann verður ekki leyst- ur nema með byltingu í launakerf- inu. Sem betur fer eru samningar allra háskólakennara í landinu nú lausir og hafa raunar verið frá áramótum. Metnaðarfull stjórn- völd landsins með ríkan skilning á gildi menntunar, rannsókna og fræða hafa því gott tækifæri til að leysa vandann. Hann verður þó ekki leystur með því einu að loka háskólunum og taka upp við þá raunveruleg skólagjöld eins og menntamálaráðherra og höfundur Reykjavíkurbréfs virðast telja. Fjárframlög ríkisins verður einnig að auka ef háskólarnir eiga að rísa undir nafni. Hjalti Hugason Kjallarinn Hjalti Hugason prófessor við H.í. „Sem betur fer eru samningar allra háskólakennara I landinu nú lausir og hafa raunar verið frá áramótum. Metnaðarfull stjórn- völd landsins með ríkan skilning á gildi menntunar, rannsókna og fræða hafa því gott tækifæri til að leysa vandann Kvennalisti og gamlir flokkar Augljóst er nú að Þjóðvaki verður ekki eldri. Þegar allt var skoðað reyndist hann nálega spegilmynd Alþýðuflokksins. Jó- hanna Sigurðardóttir, ein af fáum sem geta talist stjómmálamenn alþýðunnar, sýndi meiri kjark en stjórnvisku við stofnun hans. Þingmenn Þjóðvaka hafa sýnt að þeir vilja vinna fyrir almenning. En þeir eru eins og Alþýðuflokk- urinn komnir úr þjóðleið. Óverðskulduð gangrýni Kvennalistinn hefur í flestu sætt óverðskuldaðri gagnrýni. Konurnar hafa átt erfitt með að sætta sig við að ýta baráttumál- um til hliðar fyrir stjórnarsetur. Allir hinir gefa loforð við fólkið og hagsmuni þess frá sér fyrir pen- inga og völd og fá hrós fyrir. Ekki fer sögum af illindum eða valdabaráttu inn- an listans. Annað með gömlu flokk- ana. Þar eru sí- felldar erjur og valdabarátta. Hvernig geta þeir sem ráða ekki við eigin vandá hjálpað öðrum? Kvennalistinn einn allra flokka er einhuga um að þjóðin afsali sér ekki meiru af sjálfstæði sínu en orðið er. Konurnar berjast fyrir heildina. Þær vita að með ESB-að Od er sjálfstæði okkar endanlega úr sögunni. í þessum efnum er Al- þýðuflokkurinn stórhættulegur sjálfstæði okkar og hefur mál- flutningur hans um EES og ESB verið ísmeygilegur, reyndar mjög varhugaverður. Kvennalistinn berst gegn öfga- fullri stefnu stjórnarflokkanna og Alþýðuflokks í stjóriðjumálum þar sem miklu er fórnað fyrir lít- ið. Þessir þrír flokkar eru stein- blindir í umhverfismálum. Þeir þykjast umbótasinnar á sama tíma og þeir sjá ekkert athuga- vert við að sökkva stórum hlut- um landsins undir vatn til að afla ódýrrar orku fyrir útlendinga, stofna til óborganlegra skulda- klafa og þrælmenga allt um- hverfi. Það tekur mig sárast að sjá Alþýðuflokkinn þarna. Aðeins tímamót Kvennalistanum finnst að bankastjór- ar, dómarar og aðrir ofurlaunaðir hópar megi ekki vera eins og sníkjudýr á þjóð- inni. Það verður að lækka laun þeirra og afnema sposlur. Það væri líka fyrir þá gert. Þeim liði betur. Konurnar gera sér Ijóst að þegar einhver er með 15-20 fóld árs- laun annars bitnar það t.d. á getu sjúkra- húsa til að stytta biðlista og halda sérfræðingum hér heima. Sjálfstæðisflokkurinn er þjóð- inni erfiður þröskuldur í baráttu hennar fyrir jöfnun lífskjara. í raun er hann hallur undir lítinn hluta hennar og elur á misrétti. Hann spyrnir þó við ESB. Eitt helsta baráttiunál Kvenna- listans er jafnrétti í öllum mann- legum samskiptum. Gömlu flokk- arnir láta sig það litlu skipa. Kvennalistinn vill meö Alþýðu- flokki að þjóðin hafi arð af auð- lindum sínum en ekki bara fáir einstaklingar. Athug- unarvert er að áber- andi þreytt Alþýðu- bandalag styður arð- rán stjórnarliða. Skilningur minn er að Kvennalistinn vilji að sjávarpláss hafi fastan fiskikvóta svo að braskarar græði ekki á að svipta menn sjálf- sagðasta rétti sínum, vinnunni, afkomu sinni og heimili. Kvennalistinn berst af heilindum fyrir aldraða og öryrkja. Þessar ágætu konur þurfa ekki að hætta með listann þó móti blási. Nú eru einungis timamót í starfi þeirra. Ef þær taka karlana á jafnræðisgrundvelli í samtök sín verður ekkert strand. Út í bláinn virðist að tala um sameinaðan jafnaðarflokk meðan A- flokkamir eru ólíkir sem olía og vatn. Það var svo sem eftir öðru hjá þessum flokkum að rjúka af stað áður en stefnan var leiðrétt. Mikið þarf að laga og bæta áður en sannur, sameinaður jafhaðarflokk- ur fæðist. Þangað til Kvennalisti þar sem jafnræði ræður í þágu þjóðar. Albert Jensen „Kvennalistinn, einn allra flokka, er einhuga um að þjóðin afsali sér ekki meiru af sjálfstæði sínu en orðið er. Konurnar berjast fyrir heildina Kjallarinn Albert Jensen trésmiður Með og á móti Á að víkka reglur um hús- dýrahald í fjölbýlishúsum? Dýraeigendur varnarlausir Runólfur Oddsson framkvæmdastjóri. „Eg er hlynntur því að reglur um húsdýrahald í fjölbýlishúsum verði rýmkað- ar og tel að það yrði af hinu góða. Vissu- lega þarf að gæta hófs í því eins og öðru. Hafa þarf eftirlit með að vel fari um dýrin og sæmilegur friður sé af þeim. Eins þarf að gæta að hreinlæti og öðru. Reglurnar eru of þröngar og bjóða þeirri hættu heim að ef fólk er á móti þér af einhverri annarri ástæðu en vegna dýrsins líkar ekki við þig eða stendur í deilu við þig vegna fjármála hús- félags svo dæmi sé tekið - kærir það húsdýrahald þitt. Mér skilst að fólk þurfi bara að segja orðiö ofnæmi til að þú verðir aö losa þig við köttinn þinn. Það fer til læknis og hnerrar hjá honum og fær vottorð upp á að það sé með ofnæmi fyrir honum. Reglurnar verða að girða fyrir það að fólk verði skotspónn nágranna sinna vegna annarra deilna, einungis vegna þess að það heldur húsdýr. Dýraeigendur standa allt of varn- arlausir. Það breytir því þó ekki að þeir þurfa auðvitað að sinna sínum dýrum og taka eðlilegt til- lit til nágranna sinna. í dag er það þannig að þú ert algerlega réttlaus ef þú átt dýr. Þetta getur gengið svo langt að ef þú borgar ekki rafmagnsreikning nágrann- ans kærir hann hundahald þitt. í Danmörku er farið er að leyfa dýrahald á elliheimilum og hefur það gefið góða raun. Við mættum taka slíkar reglur okkur til fyrir- myndar.“ Lögin skýr „Ég hef ekki séð sérstaka ástæðu til að breyta lögum um húsdýra- hald í fjölbýlis- húsum. Lögin eru býsna skýr og gera ráð fyrir að það þurfi samþykki allra íbúa í fjöl- býlishúsinu til að húsdýrahald þar sé leyft. Mér finnst það vera nauðsynlegt til að tryggja rétt allra íbúanna í húsinu. Hitt er svo annað mál að lög eins og þessi eru auövitað ekki sett í eitt skipti fyrir öll. Svona hlutir þurfa auðvitað endurskoðunar við með reglulegu millibili. Ég veit ekki hvort sérstakt tilefni sé akkúrat núna til að taka þessi lög til endurskoðunar. Ég þykist nú vita að þessi spurning hafi vaknað upp i tengslum við tiltek- ið mál sem er einkar ógeðfellt. Auðvitað geta menn velt því fyr- ir sér hvort ætti að vera nægjan- legt að meirihluti íbúa í húsi samþykkti húsdýrahald. Þar meö yrði réttur minnihlutans borinn fyrir borð. Hugsanlega gætu þær aðstæður skapast að fólk gæti ekki búið við þær og yrði þar af leiðandi að flytja út. Þá vaknar sú spuming hvort húsdýrin eigi að hafa meiri rétt en íbúamir, sem mér fmnst orka tvímælis." -VÁ Kjallarahöfundar Athygli kjallarahöfunda er vakin á því að ekki er tekið viö greinum í blaðið nema þær ber- ist á stafrænu formi, þ.e. á tölvu- diski eða á netinu. Netfang ritstjómar er: dvritst@centrum.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.