Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1997, Page 28
32
ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 1997
Sviðsljós
er birt undir 2 dálkum sama
dag er 50% afsláttur
af annarri auglýsingunni.
Smáauglýsingar
átlil 550 5000
Söngfuglinn er ekki eins og aðrar konur:
Hasarkroppurinn á Tlnu
Turner hrein guðsgjöf
Paul ætlar ekki
að fara á flakk
Bítillinn fyrrverandi Paul
McCartney, sör í ofanálag, hefur
hreint ekki í hyggju að leggjast í
tónleikaferðalög þótt hann hafi
gefið út nýja hljómplötu. Hann
er víst búinn að fá nóg af slíku
um ævina. Paul á líka flott hús
með fallegum garði og því lítið
varið í að hanga á hótelherbergj-
um. Hann á líka sjálfsagt nóg af
peningum.
Poppdrottningin Tina Turner hef-
ur loksins leyst frá skjóðunni og
svipt hulunni af leyndarmálinu að
stórkostlegum líkama sínum: Engin
líkamsrækt, engir megrunarkúrar
eða sérstakt mataræði að öðru leyti.
„Þetta er skrokkurinn minn, gen-
in min. Ég hef ekki þurft að hafa
neitt fyrir þessu. Margar konur
breytast þegar þær verða fimmtug-
ar en það gerði ég ekki. Þetta er
guðsgjöf,“ segir Tina sem er komin
vel á sextugsaldurinn, móðir fjög-
urra drengja á aldrinum 33 til 38
ára.
Úr því farið er að ljóstra upp
leyndarmálunum hennar Tinu er
ekki úr vegi að kveða niður þrálát-
an orðróm sem verið hefur á kreiki
um alllangt skeið. í fyrsta lagi eru
fagrir fótleggir Tinu Tumer ekki
tryggðir sérstaklega og í öðru lagi
hefúr hún ekki lagt hljómleikaferð-
ir á hiiluna, eins og mikið hefur
verið skrifað um.
„Menn hljóta að eiga við Marlene
Dietrich. Líkami minn er tryggður
Tina Turner syngur eins og henni einni er lagið fyrir aödáendur sína.
og fæturnir eru hluti af honum,“
segir Tina um fyrra atriðið.
Þá eru það fullyrðingar hennar
frá árinu 1993 um að hún ætii aldrei
framar í tónleikaferð: „Ég skal
aldrei segja það aftur," segir Tina
og hlær. „Ég er bogmaður og sí-
blaðrandi.“
Hvar væri enda Tina ef hún fengi
ekki að syngja?
„Ég fæddist syngjandi, eða þann-
ig,“ segir hún. „Ég man eftir mér
pinulítilli syngjandi uppi á stól fyr-
ir konumar í búðinni þar sem
mamma vann.“
Síðar meir, eftir að hún fluttist til
St. Louis í Missourifylki, fór hún að
syngja með Ike Tumer og hljóm-
sveit hans. Þau gengu síðan í hjóna-
band, gerðu garðinn frægan og
skildu að skiptum, eins og margir
kannast við sem hafa séð kvik-
myndina um ævi Tinu Tumer. Ike
fór illa með hana, lamdi og kvaldi á
alla vegu.
Tina naut gífurlegra vinsælda á
níunda áratugnum en hin síðari ár
hefur verið frekar hljótt um hana.
Hún er þó ekki búin að gefa upp
alla von um að endurheimta fyrri
frægð og frama.
„Mér finnst ég alltaf geta skapað
góða tónlist sem passar einhvem
veginn við það sem er að gerast í
tónlistarheiminum í dag,“ segir
hún.
Tina Tumer á heimili í bæði
Frakklandi og Sviss og þar dvelur
hún löngum stimdum, ef hún er
ekki einhvers staðar að syngja.
Vandræðagangur
hjá James Bond
Tökur á nýju James Bond kvik-
myndinni Tomorrow Never Dies í
Taílandi ganga ekki eins vel og æski-
legt væri. Fregnir herma að aðalleik-
aramir tveir, þeir Pierce Brosnan og
Jonathan Pryce, séu ósáttir við Roger
Spottiswoode leikstjóra. Þeim finnst
hann eitthvað svo óákveðinn og hik-
andi. Þeir nefiia sem dæmi að leikar-
amir mæti klukkan hálfsjö á morgn-
ana en leikstjórinn láti þá ekki gera
neitt fyrr en eftir hádegi.
Þá hafa framleiðendumir kallað til
handritshöfúndinn og beðið hann um
að gera smávægilegar breytingar.
Spottiswoode er hins vegar ánægður
með handritið eins og það er og talar
ekki við höfúndinn.
Þá er fjárhagsáætiunin farin úr
böndum.
Hagstœð kjör
Ef sama smáauglýsingin
,
-'y
_________
Ofurkarlmenniö Sylvester Stallone brosti breitt á iaugardag þegar uppáhaldsliöiö hans í NBA-körfuboltadeildinni
amerfsku, Mlami Heat, skoraöi stig gegn Chicago Bull í úrslitakeppni austurriöilsins. Á myndlnni meö Sly eru Jenni-
fer Flavin, nýbökuö eiginkona hans og barnsmóöir, og golfarinn Greg Norman, vinur Clintons Bandaríkjaforseta.
Þaö var einmitt hjá Greg sem Clinton sleit í sér liöband fyrir nokkrum vikum. Símamynd Reuter
Seinfeld undir
ströngu eftirliti
Connery vill
hlut af gróða
Skoski leikarinn og þjóðernis-
sinninn Sean Connery er til í að
leika vonda karlinn í mynd eftir
hinum vinsælu sjónvarpsþátt-
um The Avengers gegn því skil-
yrði að hann fái hlut af ágóða
myndarinnar.
Connery hitti meðleikara
sína, þau Ralph Fiennes og Umu
Thurman, svo og aðra aðstand-
endur myndarinnar á leynifundi
i London um daginn.
Bandaríski gamanleikarinn
Jerry Seinfeld, sem heimsótti
okkur íslendinga á dögunum,
hefur verið undir smásjánni hjá
bandarísku skemmtiriti, nánar
tiltekið gamanþættir hans. í 148
þáttum sem sýndir hafa verið til
þessa hafa Jerry og vinir hans
komið 229 sinnum saman á veit-
ingahúsi Monks og Kramer hef-
ur gengið 252 sinnum inn í íbúð
Jerrys á þann hátt sem honum
einum er lagið. Og þannig mætti
lengi telja.
jf
Alexandra prinsessa, eiginkona
Jóakims Danaprins, ætlar að halda
upp á 33 ára afmæli sitt í foreldra-
húsum í Hong Kong í næsta mán-
uði. Auðvitað fer eiginmaðurinn
með henni og fjölskylda Alexöndru,
eða Alex eins og hún er kölluð,
hlakkar mikið til.
Alex á afmæli 30. júní og þá verð-
ur mikið um að vera í Hong Kong.
Það verða hátíðahöld allan daginn
en reyndar ekki vegna afmælis Alex
heldur í tilefni þess að Kínverjar
taka við stjóminni í Hong Kong
þann 1. júlí.
Áður en Alex og Jóakim halda til
Hong Kong fara þau í heimsókn til
Noregs til að vera viðstödd hátíða-
höld vegna 60 ára afmælis norsku
kommgshjónanna. Að lokinni dvöl-
inni í Hong Kong fara þau í opin-
hera heimsókn til Kína.
Alexandra prinsessa.
Afmælisveisla
Alex í Hong Kong
i Sitcf lí!f fiHIÉfí íl