Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.1997, Síða 30
34
ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 1997
Afmæli_____________________
Guðjón Ingimundarson
Guðjón Ingimundarson húsa-
smiður, Tunguseli 4, Reykjavík, er
sjötugur í dag.
Starfsferill
Guðjón fæddist á Melhóli í Með-
allandi í Vestur-Skaftafellssýslu og
ólst þar upp. Hann gekk í bamaskól-
ann í Meðallandi og stundaði siðar
ýmis störf utan heimilis á vetuma,
m.a. fór hann tvær vetrarvertíðir á
bát frá Keflavík og vann nokkra vet-
ur á húsgagnaverkstæði hjá Axel
Eyjólfssyni.
Guðjón hóf
nám í húsa-
smíði við
Iðnskólann í
Reykjavík
1955 og lauk
sveinsprófi
þaðan 1959.
Hann hefur
síðan þá
unnið við
Guöjón iðngrein
Ingimundarson. sína, lengst
af hjá Pétri Jóhannessyni, en síð-
ustu þrjú ár hefur hann unnið hjá
Rafmagnsveitu Reykjavíkur.
Fjölskylda
Eiginkona Guðjóns er Sigrún Stef-
ánsdóttir, f. 17.6. 1930. Foreldrar
hennar eru Stefán Þorláksson, bóndi
á Amardranga í Vestur--Skaftafells-
sýslu, og kona hans, Margrét Davíðs-
dóttir.
Böm Guðjóns og Sigrúnar eru
Steinunn, f. 4.3.1957, verkakona, gift
Birgi Aðalsteinssyni; Stefán Ingi, f.
25.1.1968, starfsmaður hjá SVR.
Systkini Guðjóns era Sveinbjörg
Gróa, f. 2.1. 1931, húsmóðir, gift
Ólafí Jónssyni bónda; Guðlaugur
Ámi, f. 10.7. 1935, múrari, kvæntur
Guðrúnu Káradóttur; Bergur, f.
13.12. 1942, múrari.
Foreldrar Guðjóns eru Ingimund-
ur Sveinsson og Valgerður Ingi-
bergsdóttir.
Guðjón tekur á móti gestum í sal
í húsakynnum SVR, sunnudaginn
1.6., milli kl. 13 og 17.
Sigurður H.
Sigurður H. Haraldsson leiguhif-
reiðastjóri, Leiðhömrum 21, Reykja-
vík, er fertugur i dag.
Starfsferill
:Sigurður fæddist í Ólafsvík og
ólst þar upp. Hann stundaði nám
við grunnskóla Ólafsvíkur til ársins
1971 og sjómennsku á árunum
1973-80. Sigurður útskrifaðist sem
fiskmatsmaður fyrir saltfisk og
skreið frá Fiskvinnsluskólanum
árið 1983 og var verkstjóri og eig-
andi Sæfisks sf. frá 1984 til 1989. Sig-
urður hefur starfað sem leigubif-
reiðasfjóri frá árinu 1989.
Hann var félagi í Kiwanisklúhb-
num Korra i Ólafsvík frá 1983 til
1989, í aðalstjórn U.M.F. Fjölnis i
Grafarvogi í Reykjavík í eitt ár og
formaður knattspymudeildar sama
félags 1995-96.
Fjölskylda
Sigurður kvæntist 27.12. 1985
Helgu Olgeirsdóttur, f. 3.2.1962, full-
trúa V.M.R. Foreldrar Helgu eru
Svanborg Sigursteinsdóttir og Auð-
Andlát
Haraldsson
unn Sæberg Einars-
son, þjónn í Oregon í
Bandaríkjunum, sem
er uppeldisfaðir
Helgu. Blóðfaðir
Helgu var hins vegar
Olgeir Viktor Einars-
son sem lést árið 1980.
Börn Sigurðar og
Helgu eru Óskar Sæ-
berg, f. 2.5. 1990; Har-
aldur, f. 22.4.1980; Jón
Gunnar Þórhallson, f.
26.1. 1974.
Systkini Sigurðar:
Kjartan H„ f. 1.6.1954,
Siguröur H.
Haraldsson.
verkamaður í Danmörku;
Júlíus H„ f. 4.4.1956, verslun-
armaður í Reykjavík; Marí-
anna H„ f. 5.8. 1958, verka-
kona í Danmörku; Theódóra
S„ f. 6.1. 1961, leiðbeinandi í
Kópavogi; Ingibjörg G„ f.
21.3. 1962, húsmóðir í Kópa-
vogi; Hulda, f. 19.12. 1952,
verkákona í Hafnarfirði.
Foreldrar Sigurðar eru Har-
aldur Sævar Kjartansson, f.
8.11. 1933, og Áslaug Klara
Júlíusdóttir, f. 2.2. 1932, dag-
móðir í Reykjavík.
Ámundi Jóhannsson
Ámundi Jóhannsson tæknifræð-
ingur, Drekavogi 12, Reykjavík, lést
á heimili sínu þann 18.5. síðastlið-
inn. Útför Ámunda fer fram frá
Langholtskirkju í dag og hefst at-
höfnin kl. 13.30.
Starfsferill
Ámundi fæddist 3.5. 1918 að Iðu í
Biskupstungum og ólst þar upp.
Hann fór fyrst til sjós fimmtán ára
gamall og var þrjár vertíðir í Vest-
mannaeyjum og eina á togara.
Ámundi var í íþróttaskólanum í
Haukadal árin 1935 og 1936 fram að
vertíð en sumrin 1939 og 1940 var
hann á síld fyrir Norðurlandi. Þá
var hann í eldri deild Alþýðuskól-
ans á Laugarvatni veturinn 1941-42.
Ámundi lauk sveinsprófi í plötu- og
ketilsmíði frá Iðnskólanum í
Reykjavík 1945 og vann við þá iðn í
Stálsmiðjunni í Reykjavík næsta ár.
Hann fór síðan til Svíþjóðar í fram-
haldsnám 1946 og lauk þaðan prófi í
véltæknifræði frá Tekniska Institut-
et í Stokkhólmi 1948. Ámundi vann
svo við ýmis vélfræði- og
vélsmíðastörf næstu fimm
árin, m.a. viö hönnun
Síldarverksmiðjunnar í
Örfirisey í Reykjavík og
eitt ár sem verksljóri á
renniverkstæði Vélsmiðj-
unnar Keilis í Reykjavík.
Ámundi fékk meistarabréf
í plötu- og ketilsmíði 1953
og vann á teiknistofu Vél-
smiðjunnar Héðins í
Reykjavík frá 1953-56.
Árið 1953 réðst hann til
Fálkans hf. í Reykjavík og
starfaði þar óslitið þar til hann lét
af störfum sakir aldurs haustið 1994.
Fjölskylda
Eiginkona Ámunda var Kristjana
Sigurmundsdóttir, f. 29.11. 1917, d.
17.5. 1989. Foreldrar hennar vora
Sigurmundur Sigurðsson, læknir í
Laugarási í Biskupstungum, og
Anna Eggertsdóttir. Anna var dóttir
Eggerts Jochumssonar, bróður
Matthíasar skálds.
Ámundi og Kristjana
eignuðust fjögur börn,
Önnu Maríu, f. 17.6.
1944, húsmóður í Kópa-
vogi, hennar maður er
Birgir Sumarliðason og
eiga þau þijú böm og
eitt bamabam; Jóhann,
f. 11.4. 1946, tæknifræð-
ingur í Noregi, eigin-
kona hans er Auður Eli-
asdóttir og eiga þau tvo
syni; Steinunn, f. 16.5.
1950, húsmóðir á Viði-
mel í Skagafirði, gift Sveini Áma-
syni og eiga þau fjóra syni og tvö
bamaböm; Sigmundur, f. 7.4. 1956,
tölvufræðingur á Sauðárkróki, gift-
ur Brynhildi Björgu Jónsdóttur og
eiga þau þrjá syni.
Systkini Ámunda: Ingólfur, bóndi
á Iðu; Gunnar, húsasmiður í Kefla-
vík; Sigurlaug, húsmóðir í Reykja-
vík og móðir Jóhanns Hjartarsonar
stórmeistara; Unnur, húsmóðir á
Reykjum á Skeiðum.
Foreldrar Ámunda vora Jóhann
Kristinn Guðmundsson, bóndi á Iðu
og kona hans Bríet Þórólfsdóttir.
Ætt
Faðir Jóhanns var Guðmundur,
bóndi á Sandlæk, somn* Ámunda,
bónda á Sandlæk og forföður Sand-
lækjarættarinnar. Móðir Ámunda
var Guðrún, dóttir Ámunda, smiðs
og málara í Syðra-Langholti og ve-
fara hjá Innréttingunum í Reykja-
vík. Móðir Jóhanns var Guðrún,
dóttir Bjama bónda í Tungufelli,
Jónssonar og Katrínar Jónsdóttur,
systur Þóru, langömmu Sigríðar,
móður Friðriks Ólafssonar. Bríet
var dóttir Þórólfs, bónda í Gerðis-
koti í Flóa, Jónssonar, bónda á Kjal-
vararstöðum í Reykholtsdal, Krist-
jánssonar, en kona Jóns var Kristín,
dóttir Einars, bónda í Kalmans-
tungu, Þórólfssonar, langafa Ingi-
bjargar, móður Þorsteins Stephen-
sen, og langafa tónskáldanna Sig-
valda Kaldalóns og Bjama Þor-
steinssonar.
Ámundi Jóhannsson.
Fréttir
Skagafjörður:
Nýr formaður
UMSS
DV, Fljótum:
Ragnheiður Jónsdóttir var kjör-
inn formaður Ungmennasambands
Skagafjarðar á þingi þess 18. maí.
Hún hefur setið í nefndum fyrir
UMSS og var kjörin í stjóm þess
1996. Hún tekur við formennsku af
Guðmundi Ingimarssyni sem fluttur
er úr héraði. Aðrir í stjórn eru
Pálmi Ragnarsson, Siguijón Þórðar-
son, Ingólfur Guðmundsson og
Kristín Jóhannesdóttir. Tvö þau síð-
asttöldu era ný í stjóm. Ámi Þór
Friðriksson verður framkvæmda-
stjóri í sumar. ÖÞ
Leiðrétting:
Niðurlag viðtals við Garðar
Vegna mistaka í umbroti féll út
niðurlag viðtals við Garðar Cortes
í helgarblaðinu á laugardaginn.
Beðist er velvirðingar á því. Síð-
ustu greinarskilin áttu að vera
eftirfarandi:
Um það hvort sönghæfileikar
erfðust sagöist Garðar ekki geta
neitað því að rödd sonarins
minnti sig á sig ungan að áram.
-bjb
Til hamingju
með afmælið
27. mai
85 ára
Ásgeir M. Þorbjörnsson,
Kötlufelli 11, Reykjavík.
Jón Jens Guðmundsson,
Munaðamesi I, Ámeshreppi.
80 ára
Magnús Gíslason,
Fjarðarbraut 54, Stöðvarfirði.
Ármann Brynjólfsson,
Kleppsvegi Hrafnistu, Reykja-
vík.
Theódór Laxdal,
Melasíðu 2c, Akureyri.
75 ára
Jón Sæmunds-
son,
Kirkjubraut 17,
Njarðvík.
Eiginkona hans
er Bára Svein-
björnsdóttir
húsmóðir.
60 ára
Frans Magnússon,
Krókatúni 11, Akranesi.
Guðrún Guðjónsdóttir,
Brekkubæ 5, Reykjavík.
Erlingur Bertelsson,
Unnarbraut 13b, Seltjamarnesi.
Andrés Jónasson,
Skagabraut 38, Garði.
50 ára
Inga Dóra Guðmundsdóttir,
Smáratúni 9, Selfossi.
Helga Bjömsdóttir,
Holtsgötu 19, Reykjavík.
Láms Ó. Lárasson,
Faxabraut 70, Keflavík.
Kristin Guðnadóttir,
Greniteigi 24, Keflavík.
Einar Guðmundur Högnason,
Viðarási 23, Reykjavík.
40 ára
Fríða Rut Baldursdóttir,
Birkibergi 30, Hafharfirði.
Elísabet Þorgerður Einars-
dóttir,
Mánabraut 4, Höfn í Homafirði.
Inga Bima Davíðsdóttir,
Borgarholtsbraut 74, Kópavogi.
Hermann Jónasson,
Kirkjustíg 9, Siglufirði.
Þórður Herbert Eiríksson,
Foldasmára 18, Kópavogi.
Ema Guðmundsdóttir,
Silfúrgötu 10, Stykkishólmi.
Dóra Bjarnadóttir,
Reyðarkvísl 17, Reykjavík.
Helena Dóra Kojic,
Tómasarhaga 32, Reykjavík.
Guðbjörg Pétursdóttir,
Keilusíðu 12a, Akureyri.
Hólmfriður Hjaltadóttir,
Ægisstíg 10, Sauðárkróki.
Á NÆSTA
SÖLUSTAÐ
EÐA
ÍÁSKRIFT
ÍSÍMA
550 5752