Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1997, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1997, Page 10
Jmyndbönd **-*• FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 1997 Frægðarsól Edwards Nortons Edward Norton sló eftirminnilega í gegn í myndinni Primal Fear á síð- asta ári. Það hefur ekki tekiö hann nema rúmt ár að skjótast upp á stjömuhimininn. Edward Norton er tuttugu og sjö ára fyrrum nemi við Yale-háskóla. Hann var algjörlega óþekktur þar til hann lék á móti Richard Gere í myndinni Primal Fear. Eftir það hafa hjólin farið að snúast því núna nýlega lék hann í myndinni Málið gegn Larry Flint á móti Woody Harrelson og Courtney Love. Norton var samt sem áður á báðum áttum í fyrstu um hvort hann ætti að taka að sér hlutverkið í mynd um jafn umdeildan mann og klámkónginn Larry Flint og vissi ekki alveg hvaða skoðun hann hafði á Flynt sjálfum. Þegar hann komst hins vegar að því að Tékkinn Milos Forman yrði leikstjóri mynd- arinnar sló hann til því Norton er mikill að- dáandi mynda Formans. Með sitt stutta hár og drengjalega útlit lítur Norton varla út fyrir að vera nógu gam- all til þess að raka sig. Samt sem áður eru gagnrýnendur sammála um að honum hafi tekist meistaralega vel upp sem vinur og lögfræðingur Larry Flints í samnefndri mynd. Vill eiga einkalíf sittífriði Meðan á tökum myndarinnar Málið gegn Larry Flint stóð urðu Norton og meðleikkona hans Courtney Love góðir vinir. Meira þurfti nú ekki til þess að Gróa á Leiti færi á kreik og brátt fóru að ber ast sögur um að Norton og Love ættu í ástar- sambandi. Norton her á móti öllum slíkum sögum og se"'r eins og sfjamanna er háttur að þau séu bara góðir vinir. Samt vill Norton að eigin sögn ekki lifa lífinu eins og kvikmyndastjarna. Hann vill halda einkalífi sínu og sinni persónu sem mest utan við vinnu sína. Hann reynir að forðast fjölmiðla sem mest hann getur. Hann álítur nefnilega að það geti haft slæm áhrif á feril hans og þau áhrif sem hann hefur á áhorfendur með leik sínum ef þeir vita of mikið um persónuna Edward Norton. Þá sé einnig hætt við því að persóna Edwards Norton skyggi á þá persónu sem hann reyni að túlka á hvíta tjaldinu. Norton nefhir sem dæmi um þetta að þegar hann sá Lista Schindlers eftir Steven Spiel- berg þá hafi hann orðið dolfallinn yfír leik Ralph Fiennes í hlutverki kaldrifjaða nasistaforingjans Amon Goeth. Hann telur að leikur Fiennes hafi haft svona sterk áhrif á sig vegna þess að hann vissi lítið um persónu Ralph Fiennes og því hafa Ralph Fiennes og Amos Goeth verið einn og sami maðurinn fyrir hon- um. inu gegn Larry Flint því um þessar mundir leikur hann í söngleik sem er leikstýrt af Woody Allen og heit- ir Everyone Says I Love You eða Allir segja, ég elska þig. Minnstu munaði að Norton fengi ekki hlut- verkið því þegar hann kom í prufu átti hann að syngja eitthvert lag af tilfinngahita en Woody Allen fannst hann of væminn. Norton sneri þá vöm í sókn og lofaði á vera ekki al- veg svona mjúkur og fékk þar með hlutverkið. Næsta persóna sem Norton leikur verður þó ekkert væmið gæðablóð því hann hyggst leika nýnasískan snoðinkoll í mynd sem mun að öll- Edward Norton í hlutverki lög- fræölngsins Isa- acman í Málinu gegn Larry Flint. Norton segir einnig að vissulega hefðu þekktir leikarar eins og t.d. Anthony Hopkins getað túlkaö þessa persónu vel en vegna þess hversu mikið fólk veit um persónu Hopkins hefðu áhrifin af leik hans sem nasistaforinginn Amos Goeth orðið önnur en þegar jafn dulur leikari og Ralph Fiennes átti í hlut. Syngur í söngleik um líkindum heita American Hi- story X. Norton er ánægður með hlutverk nýnasistans og segir að þetta sé nákvæmlega það hlutverk sem hann viiji komast í. Það er því ljóst að Edward Norton er fjölhæfur leikari sem getur brugðið sér í gervi sykursætra söngfugla jafnt sem forhertra glæpa- manna. -glm En Norton hefur ekki setið auð- um höndum síðan hann lék í Mál- Þokkadísin Geena í)avis Bandaríska leikkonan og hávaxna þokkadísin, Geena Davis, leikur í hasarmyndinni The Long Kiss Goodnight sem er nú ofarlega á mynda- bandalistanum. Geena Davis er fædd og uppalin í Massachu- setts í Bandaríkjunum. Hún lærði leiklist við The New England College og háskóla í Boston. Hún er nú ein eftirsóttasta leikkona vestanhafs en það hefur mikið vatn runnið til sjávar á þeim flmmtán árum sem liöin eru síðan hún lék fyrst í kvikmyndum. Frumraun hennar var í mynd- inni Tootsie með Dustin Hoffmann í aðalhlut- verki þar sem Geena lék nokkuð stórt hlutverk, vinkonu Tootsie. Sú mynd var gerð áriö 1982 og náði hún feiknavinsældum. Árið 1986 lék hún síðan í vísindatryllinum The Fly á móti Jeff Goldblum sem einnig varð mjög vinsæl. Óskarsverðlaun Áriö 1988 lék hún hundatemjara í myndinni The Accidental Tourist. Hlutverk hundatemjar- ans varð henni happadrjúgt því fyrir það hlaut Geena óskarsverðlaun sem besta leikkona í auka- hlutverki. Þremur árum síöar lék hún í mynd- inni Thelma and Louise ásamt Susan Sarandon en fyrir hana var Geena tilnefnd til Golden Globe verðlaunanna og aftur til óskarsverðlauna. Sú mynd fjallaði um tvær vinkonur í heimi karl- anna sem gefa hefðbundniun skyldum hversdags- lífs síns langt nef og leggja af stað i feröalag sem endar öðruvísi en þær óraði fyrir. Gagnrýnendur lofuðu myndina mikið og voru þær Geena Davis og Susan Sarandon sagðar vera magnaður stjömudúett. Einnig má geta þess að kvenna- gullið Brad Pitt vakti fyrst athygli í Thelmu og Louise og átti þar í eldheitum ástarsenum með Geenu Davis. Á eftir Thelmu og Louise lék Geena m.a. í myndinni Speechless þar sem hún hlaut Golden Globe verðlaunin fyrir leik sinn. Geena lék einnig I The Cutthroat Island sem var leikstýrt af eiginmanni hennar, flnnska hasarmyndaleik- stjóranum Reeny Harlin. Reeny Harlin er einnig leikstjóri The Long Kiss Goodnight. Hann hefur lýst því yflr aö hann viiji vinna sem mest með Geenu því annars sjáist þau varla. -glm Tootsie 1982 Hetch 1985 Secret Weapons (sjónvarps- mynd) 1985 Transylvania 1985 The Ry 1986 Beetlejuice 1988 Th8 Accidental Touríst 1988 Earth GirisAro Easy 1989 Quick Change 1990 Thelma and Louise 1991 ALeague ofTheirOwn 1992 Hero 1992 Angie 1994 Speechless 1994 Cutthroat Island 1995 The Long Kiss Goodnight 1996

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.