Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1997, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1997, Qupperneq 4
4 MÁNUDAGUR 30. JÚNÍ 1997 Fréttir Dagbjört, 16 ára, og Rúna, næstum 15 ára, sagðar komnar til Austur-Tyrklands: Sophia íhugar að leita dætranna í Sivas - Halim gaf í skyn aö hún fengi að hitta þær þar „Þegar við Hasip, lögmaður minn, hittum Halim síðast fór hann að mana okkur að fara til Austur- Tyrk- lands og reyna að finna dætur mínar. Þá fengi ég kannski að vera með þeim, svo framarlega sem þær sam- þykktu það. Hvort ég fer á eftir að koma í ljós. Hasip sagði við Halim að hann skyldi vera viss um að við kæmum. Ég mun hitta Hasip á morg- un (í dag) til að ræða þetta. Það er möguleiki á að viö fórum. Ef það verður munum við verða undir rosa- legri vernd. Þetta er í bænum Sivas þar sem heittrúarmenn brenndu fólk inni á hóteli fyrir nokkrum árum eft- ir að þýðing á bók Salmans Rushdies kom út í Tyrklandi," sagði Sophia Hansen i samtali við DV í gærkvöldi. Sophia kvaðst ekki bjartsýn á að fá að hitta dætur sínar í Istanbúl á morgun, 1. júlí, miðað við ummæli Halims. Frá 1. júlí og þangað til 31. ágúst á Sophia samkvæmt dómi að vera með dætrum sínum. Ég er orðin ofsaiega þreytt Sophia varð fýrir miklum vonbrigð- um í réttarhaldi í sakadómi í Istanbúl þann 20. júní vegna ákæru á hendur Halim fýrir umgengnisréttarbrot. Þá lýsti HaÚm því yfir að dætumar væru komnar til Austur-Tyrklands. „Dómarinn sagði það ekki vera í sínum verkahring að skipta sér af um- gengninni í júlí og ágúst. Það gerðu aðrir. Þetta er ótrúleg framkoma. Halim sagði að bömin vildu mig ekki - þær vildu ekkert með mig hafa. Dóm- arinn vildi kalla þær til en Halim sagði þær komnar til Ausfiu- Tyrklands. Lögmaður minn mótmælti en Halim vældi og veinaði. Réttarhöldunum var síðan frestað til 26. september. Ég er orðin þreytt. Þaö kemur eng- inn með lausn á okkar málum - hvem- ig sem við látum,“ sagði Sophia. Sophia sagði að Hasip Kaplan, lög- maður hennar, hefði verið að koma frá Strasbourg vegna umsóknar um að mál hennar yrði tekið fyrir hjá mann- réttmdadómstólnum. „Hasip var bjartsýnn á að það yrði tekið fyrir - allavega er komið númer á málið þar. En ég bið íslensk stjómvöld um hjálp við að þrýsta á tyrknesk stjóm- völd. Varðandi umgengni við dætum- ar í sumar sagði Sophia: „Það má vera að eitthvað birti þó það gerist ekki strax. En ég er orðin Afmælishátíðin hófst í sól og sum- aryl við Lagarfljótsbrú. Bæjarbúar fjölmenntu til að taka á móti forseta- hjónunum og við brúna var framinn seiður til að heilla Lagarfljótsorminn upp úr djúpinu. Lét hann reyndar ekki sjá sig en ágæt eftirlíking hans skaut þó upp kollinum. Aðaldagskrá var á laugardag á íþróttavellinum. Reist hafði verið svið og þar fLutti forseti ræðu og óskaði bænum heilla. Guðmundur Bjamason og Helgi Halldórsson bæjarstjóri undirrituðu kaupsamn- ing um að ríkið seldi Egilsstaðabæ land það sem bærinn er byggður á. Blandaður kór frá Runavík, vinabæ Egilsstaða í Færeyjum, söng, þjóð- dansahópurinn Fiðrildin sýndu dans og kór Egilsstaðakirkju söng. Leikskólaböm sýndu leikþátt og bænum bámst margar góðar gjafir. Á sunnudag var fram haldið há- tíðahöldum með dagskrá í eldra skrúðgarði bak við Búnaðarban- kann. Hátíðahöldin vora öllum til sóma og ákaflega vel sótt þó svo veð- rið hefði að skaðlausu mátt vera betra. -SB ofsalega þreytt. Þetta eru eilíf vonbrigð í hveiju einasta réttarhaldi," sagði Sophia. Hræöilegt aö missa móöurhlutverkiö í 7 ár „Nú eru komin rúmlega 7 ár frá því að barátta mín hófst. Ég vil fara að sjá eitthvað jákvætt. Ég reyni að ýta þeirri hugsun frá mér að hafa misst dætur mínar öll þessi ár. Það er hræðilegt að hafa misst þær sem móðir. Það liggur við að ég bugist þegar það rennur upp fyrir mér. Eldri dóttir mín, Dagbjört, varð 16 ára í júní en Rúna verður 15 ára 3. október," sagði Sophia Hansen. Sophia hefur sent forseta íslands, forsætisráðherra, utanrikisráðherra, dómsmálaráðherra, forseta Alþingis og ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytis- ins bréf þar sem eindregið er óskað eft- ir aðstoð við að þrýsta á Tyrki í máli hennar. Sophia sagði að það hefði valdið talsverðum vonbrigðum hve heimtur væru slæmar á loforðum um söfnun- arfé fyrir hana í síðustu söfiiun, þ.e. loforðum öðrum en þeim sem greidd voru með greiðslukortum. -Ótt Afmörkun hafsvæða: Viðræður á réttri leið Samningaviðræðum milli ís- lenskra, danskra, færeyskra og grænlenskra embættismanna um afmörkun hafsvæðanna milli Grænlands og íslands og íslands og Færeyja hefur þokað nokkuð. Samningaferlið er fremur þungt enda er tekist á um flókin lög- fræðileg efni. Það er einkum og sér í lagi hið svonefnda gráa svæði milli ís- lands og Grænlands sem verið hefur deiluefni þjóðanna. Mikill vilji er fyrir því báðum megin samningaborðsins að komist verði að niðurstöðu sem komið geti í veg fyrir alla hugsanlega árekstra milli þjóðanna. Þá er vísað til danskra skipa með veiöi- leyfi frá Færeyjum sem hafa ver- ið á loðnuveiöum á gráa svæðinu og urðu tilefni nokkurrar úlfúöar á siðsta ári. í ljósi nýlegra árekstra íslendinga og Norð- manna er kappkostaö að forðast slíkai- uppákomur grannþjóð- anna. Viðræðunum verður haldið áfram og era samninganefndim- ar í stöðugu sambandi. Þær virð- ast því sjá einhvern flöt á málinu sem geti leitt til farsælla mála- lykta. -vix Egilsstaðir 50 ára Ungir knapar úr Freyfaxa fóru fyrir forsetabílnum á leiö upp á sýningarsvæö- iö í Vémörk. Dagfari Hvenær á að reka menn? Á hinum almenna vinnumark- aði hefur það viðgengist svo lengi sem elstu menn muna að starfsfólk er rekið ef það stendur sig ekki. Þetta á að vísu ekki við um opin- bera starfsmenn. Enginn getur rek- ið þá, án þess að verið sé að halda því fram að það þurfi að reka opin- bera starfsmenn af því þeir standi sig ekki. í knattspymunni gildir hins vegar það lögmál að ef lið stendur sig ekki þá er þjálfarinn rekinn. Hann er sem sagt rekinn fyrir það að aðrir standa sig ekki. Og nú hefur það gerst, sem alltaf er að gerast, að sum lið standa sig ekki eins vel og vonir stóðu til og þau standa sig verr heldur en önn- ur lið og fyrir vikið hafa að minnsta kosti tveir þjálfarar i efstu deild íslandsmótsins verið reknir. íslenska landsliðið í fótboltanum hefur heldur ekki staðið sig sem skyldi en stjórn Knattspymusam- bandsins stóð sem klettur viö hlið- ina á þjálfaranum og sagði að ekki kæmi til greina að reka hann og það jafnvel þótt háværar sögur væru um það að stjómin ætlaði að reka hann. Stjórnin og formaöurinn vísuðu öllum slikrnn orðrómi á bug enda væri þjálfarinn með samning út keppnistímabilið. Svo kom allt í einu að því fyrir helgi að þessi sama stjóm og þessi sami formað- ur tilkynntu að landsliösþjálfarinn hefði verið rekinn. Reyndar hafði sljómin og formaðurinn gert ítar- legar tilraunir til að eiga viðræður við þjálfarann til að telja honum trú um að hann ætti að hætta af sjálfsdáðum. En maðurinn er þrár og hefur samning út tímabilið og vildi ljúka því eins og keppnismanni sæmir og á endanum neyddist stjómin til að reka þjálfarann af því að hann vildi ekki reka sig sjálfur. Hann getur því engum um kennt nema sjálfum sér fyrir að hafa verið rek- inn. Út af þessum brottrekstri lands- liðsþjálfarans hafa fauið af stað heimspekilegar vangaveltur um það hvenær eigi að reka mann og hvenær eigi ekki að reka mann. Ein kenningin er sú að það hafi ekkert upp á sig að reka þjálfara því sá sem taki við sé ekkert betri en sá sem er rekinn. Og svo er þessi kenning hjá formanni Knatt- spyrnuþjálfarafélags Islands sem er afskaplega skörp og þaulhugsuð: sum sé sú að eftir því sem lið tap- ar fleiri leikjum þeim mun styttra verðrn- í sigurleikinn. Og sá sigur er þar af leiðandi ekki nýjum þjálfara að þakka held- ur þeim fyrri, sem var rekinn, því það hlýtur alltaf að koma að sigur- leik og eftir því sem fleiri leikir tapast því styttra er í sigurleikinn! Með öðrum orðum: Kenningin er sú að það borgi sig ekki að reka þjálfara og það er heldur ekki sanngjamt, þvi þó liðið hjá honum tapi og tapi þá sigrar það að lokum og ef menn bíða nógu lengi þá kem- ur sigurinn og þá er þjálfarinn bú- inn aö sanna sig. Það má eiginlega segja að með því að tapa og tapa sé lið komið á sigurbraut og hæfileikar þjálfarans munu koma í ljós eftir þvi sem styttist í sigmleikinn. Þessi kenn- ing rennir stoðum undir þá skoðun að landsliðsþjálfarinn hafi í raun- inni staðið sig afar vel og hafi ekki átt skilið að vera rekinn, frekar en aðrir þeir þjálfarar sem hafa verið reknir, þrátt fyrir töpin. Einfald- lega vegna þess að eftir því sem töpunum fjölgaði, styttist í sigur- inn. Það mun koma i ljós þegar nýr þjálfari leiðir íslenska landsliðið til sigurs. Þá verður það sigur þess þjáifara sem var rekinn. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.